Morgunblaðið - 20.09.1998, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„Allir geta
speglað sig í
ævintýrinu um
Dimmalimmu
Leikhópurinn Augnablik frumsýnir ævin-
týrið um Dimmalimm og svaninn í Iðnó í
dag, sunnudag, kl. 14. Orri Páll Ormars-
son leit við á æfingu og heyrði hljóðið í
leikstjóranum og tónlistarfólkinu sem
, , , . , , . Morgunblaðið/Árni Sæberg
setur Sterkan SVip a synmguna. DIMMALIMM (Harpa Arnardóttir) heíllast strax af svaninum og lofar að h<“inisa“kja iiann á degi liverjum.
LJÓTA galdrakerlingin ginnir prinsinn góða til sín. Þorsteinn
Bachmann og Ólafur Guðmundsson í hlutverkum sínum.
ÖLL ÞEKKJUM við ævintýrið
um Dimmalimm, prinsessuna
prúðu sem dag einn fær leyfi
til að kanna lífið utan hallar-
garðsins. Kemur hún að vatni
þar sem hún hittir stóran og
fallegan svan, sem er í raun
prins í álögum. Hefur forljót
galdarkerling kallað ógæfuna
yfir hann. Svanurinn er dapur,
sem von er, og Dimmalimm
ákveður að heimsækja hann á
hverjum degi. Vináttan vex,
og þar kemur að því, eftir ná-
kvæmlega ár, að Dimmalimm
leysir prinsinn úr álögunum
með góðvild sinni og hug-
rekki.
Sjónleikinn um Dimmalimm,
sem frumsýndur verður í Iðnó
í dag, unnu meðlimir leikhóps-
ins Augnabliks upp úr Sög-
unni um Dimmalimm eftir list-
málarann Mugg. Er þetta í
annað sinn sem Augnablik tek-
ur Dimmalimm upp á sína
arma, því árið 1992 vann leik-
hópurinn farandsýningu upp
úr ævintýrinu. Var hún sýnd
um víðan völl, meðal annars á
leikskólum og í Kramhúsinu.
Ásta Arnardóttir leikstjóri
segir sýninguna nú töluvert
frábrugðna fyrri sýningunni -
hún hafí vaxið og dafnað.
Meira sé í hana lagt, bæði með
hliðsjón af leiklist og tónlist.
„Þessi sýning hefur verið unn-
in í góðri samvinnu leikhús- og
tónlistarfólks. Hjá svona litl-
um leikhópi er verkaskipting-
in yfírleitt ekki eins njörvuð
niður og hjá stóru leikhúsun-
um og við höfum svo sannar-
lega öll þurft að bregða okkur
í hin ýmsu hlutverk á æfinga-
tímanum. Þetta hefur verið al-
veg rosalega skemmtilegt.“
Fyrir börn á öllum nldri
Ásta segir að sýningin sé í
senn trú ævintýrinu og mynd-
um Muggs. „Fyrir vikið er
sýningin mjög myndræn sem
er vel við hæfí þegar lífinu er
blásið í Dimmalimm. Þá er
mikill galdur í henni. Mér líð-
ur stundum eins og ég sé í ijöl-
leikahúsi."
Að áliti Ástu má lesa ýmis-
legt út úr ævintýrinu um
Dimmalimm - eins og svo
mörgum goðsögum. „Þetta er
ævintýri fyrir börn á öllum
aldri - það geta allir speglað
sig í því, hvort sem þeir eru
íjögurra ára eða áttræðir.
Dimmalimm Ijallar auðvitað
fyrst og fremst um kærleikann
og vináttuna, sem við verðum
að gefa okkur tíma til að
leggja rækt við, en einnig hug-
rekkið. Það þarf hugrekki til
að yfirgefa sitt verndaða um-
hverfí og halda út í óvissuna
eins og Dimmalimm gerir í
sögunni. Dimmalimm er því
ekki aðeins þæg og góð, held-
ur líka hugrökk."
Tónlistin í sýningunni er
eftir Atla Heimi Sveinsson og
var samin fyrir listdansupp-
færslu Þjóðleikhússins á
Dimmalimm árið 1970. Er
hún flutt af Guðrúnu Birgis-
dóttur flautuleikara og Peter
Máté píanóleikara - uppi á
sviðinu. „Við höfum bæði unn-
ið töluvert í leikliúsunum en
það verður að segjast að
sjaldnast fáum við að flytja
tónlistina inni í sýningunni.
Það er spurning hvort við sé-
um komin á grátt svæði í okk-
ar stéttarfélagi," segir Guð-
rún með bros á vör og Peter
bætir við að það sé sérstak-
lega óvenjulegt fyrir píanó-
leikara að vera þátttakandi í
leiksýning^u með svo beinum
hætti.
Skrifuð af innsæi
Bæði bera þau lof á tónlist
Atla Heimis. Hún sé gidlfalleg
og hafí svo sannarlega staðist
timans tönn. „Þessi tónlist er
skrifuð af miklu innsæi, eins
og Atla Heimi er einum lagið.
Hann hefur einstakt lag á því
að semja tónlist í hinum ýmsu
stflum," segir Guðrún og bætir
við að það sé aðdáunarvert að
Þjóðleikhúsið hafí fyrir bráð-
um þijátíu árum fengið nú-
tímatónskáld í fremstu röð til
að semja tónlist fyrir börn.
Tónlist Atla Heimis við
Dimmalimm var flutt á tón-
leikum í Gerðubergi í fyrra,
þar sem leiklistin kom einnig
við sögu. Guðrún og Peter
Ieggja aftur á móti áherslu á,
að sú uppákoma og sýningin 1
Iðnó séu tvennt ólíkt. „Það var
skreyttur tónleikalestur, ef
svo má að orði komast, þetta
er leikhús!"
Leikendur í Dimmalimm eru
Harpa Arnardóttir, Þorsteinn
Bachmann og Ólafur Guð-
mundsson. Björg Vilhjálms-
dóttir hannar leikmynd og
búninga og Jóhann Pálmason
og Geir Magnússon sjá um
ljósin.
Dimmalimm verður sýnt í
Iðnó um helgar í vetur og að
sýningu lokinni verða leikhús-
gestir leystir út með brauði
sem þeir geta gefið öndunum
og svönunum á Tjörninni fyrir
framan leikhúsið. Ljóst má því
vera að mögulegir prinsar og
prinsessur í álögum munu
njóta góðs af sýningunni.
Þannig á það að vera!
Wout Oosterkamp
syngur í Norræna húsinu
KAMMERTÓNLEIKUM í
Norræna húsinu á sunnu-
dag kl. 17, syngur hollenski
bass-baritónsöngvarinn Wout
Oosterkamp lög eftir Beethoven,
Schubert, Brahms, Fauré, Debus-
sy og Ravel. Undirleikari á píanó
er Jan Willem Nelleke. Þetta eru
fyrstu kammrtónleikarnir af tíu í
röð tónleika með listamönnum
víðsvegar að sem haldnir verða í
Norræna húsinu á tvegga vikna
fresti í vetur.
Wout Oosterkamp hefur frá 1986
verið kennari við Konunglega tón-
listarskólann í Haag. Hann stund-
aði nám í söng og píanóleik við tón-
listarskólann í Maastrict. Hann
hélt fram söngnámi hjá Bodi Rapp
í Amsterdam eftir að hafa lokið pí-
anónámi hjá Jean Antonietti. Hann
nam franskan ljóðasöng hjá Pierre
Bemac í París. í júní 1985 fékk
Wout Oosterkamp hollensk tónlist-
arverðlaun sem eru mesta viður-
kenning sem er veitt ungum ein-
leikumm í Hollandi. Þessi verðlaun
gerðu honum það kleift að stunda
nám hjá hinum þekkta kennara
Lola Rodriguez y Áragon í Madrid.
Hann hefur sungið á tónleikum um
nær alla Evrópu auk Ameríku og
verið í upptökum bæði hjá sjón-
varpi og útvarpi. Nokkur sam-
tímatónskáld hafa tileinkað Wout
Oosterkamp óperuhlutverk í verk-
um sínum.
Jan Willem Nelleke, píanóleik-
ari, stundaði nám við tónlistarskól-
ann í Haag og í Utrecht hjá Else
Krijgsman og Thom Bollen. Hann
útskrifaðist sem einleikari og sér-
fræðingur í kammertónlist.
Vinnur með stórum hópi
söngvara
Hann hefur sérhæft sig í undir-
leik með ljóðasöngvurum. Hann
vinnur með stórum hópi söngvara
og hljóðfæraleikara. Ahugi hans
hefur einkum beinst að tónlist lítt
þekktra tónskálda, einkum hol-
lenskra og hefur hann einnig
stundað tónsmíðar sjálfur. Jan
Willem Nelleke starfar við Kon-
unglega tónlistarskólann í Haag.
Hann leikur með nokkrum kamm-
ersveitum og kemur reglulega
fram með Sinfóníuhljómsveitinni í
Haag.
Á hinum m'u tónleikum, sem
koma í kjölfarið, er von á Peter
Verduyn Lunel, flautuleikara og
Elísabetu Waage hörpuleikara,
norsku söngkonunni Bettinu Smith
ásamt Jan Willem Nelleke píanó-
leikara, Rúnari Oskarssyni, klar-
inettuleikara ásamt Söndru de
Bruin píanóleikara og Sigurði
Bragasyni, söngvara og Vovka As-
hkenazy píanóleikara.