Morgunblaðið - 20.09.1998, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 20.09.1998, Blaðsíða 64
T|N|T| Express Worldwide 580 1010 íslandspóstur hf Hraðflutningar MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Rússneskir starfs- menn við Búrfellslínu Hafa feng- ið greiddar 21 þúsund krdnur RAFIÐNAÐARSAMBAND íslands fór þess á leit við Landsvirkjun í gær að kjör rússneski-a rafiðnaðarmanna Technopromexport við Búrfellslínu verði leiðrétt hið snarasta. Á fundi forsvarsmanna RSI með starfsmönnum Technopromexport á fóstudag kom fram að fyrirtækíð hefur þegar borgað hverjum og ein- um 21.000 krónur frá því í júlí. Að sögn Guðmundar Gunnarssonar, for- manns RSÍ, fengust á fundinum þær upplýsingar að lágmarkslaun rafiðn- aðarmanna hjá Technopromexport væru um 224.450 krónur sem séu 34% lægri laun en rétt lágmarkslaun samkvæmt samningum. Inn í það vanti hinsvegar ýmsa kostnaðar- pósta, s.s. flokksstjóraálag, fæðisp- eninga og hæðarálag. Samkvæmt út- reikningum RSI er talið að laun raf- iðnaðarmannanna í ágúst hafí átt að vera um 456.000 krónur. Guðmundur segir forsvarsmenn Technopromexport ekki hafa gefíð neinar skýringar á greiðslum til starfsmanna sinna. „Þegar við kröfð- um þá svara voru þeir aðeins með dylgjur og útúrsnúninga. Við höfum krafist þess að Landvirkjun gangi í málið og leiðrétti kjör þessara starfsmanna. Ef það gerist ekki munum við grípa til aðgerða," segir Guðmundur. Landsvirkjun hafði í gær boðað forsvarsmenn Technopromexport til viðræðna um málið. Morgunblaðið/Ingvar Morgunblaðið/Golli Undir regnboganum Háskdla- nám hag- kvæm fjár- festing MIKILL meirihluti nýnema í öll- um deildum Háskóla Islands telur að námið sé hagkvæm fjárfesting. Meirihlutinn telur einnig að ríkið eigi að styðja háskólanema betui'. Þetta er meðal niðurstaðna í rann- sókn á vegum Hagfræðistofnunar Háskóla íslands. Þegar litið er á niðurstöður eftir deildum kemur í ljós að nýnemar í verkfræði og guðfræði skera sig nokkuð úr hópnum. Verkfræði- nemar fyrir það að fræðOegur áhugi á greininni er minni en hjá öðrum nemum en væntingar um vel launað starf sem krefjist há- skólamenntunar ráða tiltölulega miklu. Guðfræðinemar skera sig úr fyrir að vera ívið eldri en aðrir ný- nemar, frekar í sambúð eða giftir og með börn. Hjá þeim réð valinu einkum fræðilegm’ áhugi á grein- inni, það að námið gæfí alhliða und- irbúning undir lífið og að háskóla- nám yki lífsþroska. ■ Telja námið/4 ------------- Raf- og bensínbíll til Islands TOYOTA umboðið, P. Samúelsson, flytur á næstunni inn bíl af gerð- inni Toyota Prius sem er búinn bæði rafvél og bensínvél, svonefnd- an fjölorkubíl eða bíl með tvennd- arvél. Bíllinn er væntanlegur til landsins um miðjan nóvember og verður hér um tíma. Vélarnar tvær í Prius vinna ým- ist saman eða hvor um sig. Rafvél- in vinnur á litlum hraða en þegar hann er orðinn yfír 40 km tekur bensínvélin við. Þegar um álag er að ræða vinna þær saman. Bensín- vélin hleður rafgeymana þegar hún gengur og þegar hemlað er nýtist orkan einnig rafgeymunum. ■ Fyrsti/El Lögregla fjarlægir bifreiðar LÖGREGLAN í Reykjavík fjar- lægði á einu bretti sex bifreiðar, sem lagt hafði verið ólöglega við Grundarstíg. Það getur verið dýrt og óþægi- legt fyrir eigendur bifreiða að end- urheimta þær aftur þegar siík að- gerð er framkvæmd, en samkvæmt laganna hljóðan grípur lögreglan til aðgerða þegar ökutæki er stöðvað eða því lagt þannig að það veldur óþægindum eða hættu fyiár umferð. Eigendur bifreiða, sem eru brottnumdar geta þurft að greiða 6-8 þúsund krónur fyrir að fá þær aftur. Lögreglan hyggst herða eftirlit á þessu sviði og vill beina þeim til- mælum til ökumanna að þeir finni ökutækjum sínum stæði þar sem ekki hljótast af óþægindi fyrir aðra umferð eins og reyndist í umræddu tilviki. Tillaga um kvótastýringu á Flæmingjagrunni felld Á ÁRSFUNDI Norðvestur-Atlantshafsfisk- veiðistofnunarinnar í Lissabon í Portúgal var tillaga Islendinga um kvótastýringu á rækju- veiðum á Flæmingjagrunni í stað sóknarstýr- ingar felld. Á fundinum var m.a. rætt um stjóm fiskveiða á Flæmingjagrunni. Meiri bjartsýni gætir nú en á síðustu árum um ástand rækjustofnsins og lögðu vísindamenn til að heildarveiðin yrði um 30.000 tonn á næsta ári. Færeyingar lögðu á fundinum fram tillögu um nokkra stækkun rækjuveiði- svæðisins á Flæmingjagrunni til vesturs og var tillagan eindregið studd af íslendingum. Náði hún fram að ganga og verður íslenskum skipum því heimilt að veiða á stærra svæði á næsta ári en hingað til. Á fundinum lagði sendinefnd Islands til að tek- in yrði upp kvótastýring á veiðum á Flæmingja- grunni en niðurstaðan varð sú að halda áfram sóknarstýringu sem byggist á úthlutun veiðidaga til hvers lands. Af hálfu íslands var ítrekuð and- staða við þetta fyrirkomulag þar sem því er hald- ið fram að það gefí ekki kost á að mæta nauðsyn- legum veiðitakmörkunum með hagkvæmum hætti, auk þess sem framkvæmd sóknarkerfisins á Flæmingjagrunni hafi verið afar ótrúverðug. Það er mat sjávarútvegsráðuneytisins að afstaða íslands um að ákvarða heildarafla og skipta hon- um milli aðildarríkja njóti vaxandi stuðnings enda hafí komið í Ijós að veiðistjórnun Islendinga sé mun skilvirkari en það fyrirkomulag að stjórna sókninni með dagatakmörkunum. Á fundinum var því lýst yfir að ísland myndi áfram ákvarða leyfílegan heildarafla íslenskra skipa með einhliða aflamarki og vakin athygli á að eðlilegt væri að endurskoða heildaraflaákvörð- unina með hliðsjón af auknum afla á sóknarein- ingu. Leyfilegur heildarafli Islendinga á þessu ári er 6.800 tonn samkvæmt ákvörðun íslenskra stjórn- valda en því er spáð að heildarafli allra þjóða verði um 28 þúsund lestir í ár. Eftirlit verður með sama hætti og áður Eftirlitsmál á NAFO-svæðinu voru mjög til umræðu á fundinum, sérstaklega það í'yrirkomu- lag að hafa eftirlitsmann um borð í hverju skipi. Af hálfu íslands og annarra rækjuveiðiþjóða var bent á að rækjuveiðar á Flæmingjagrunni krefð- ust ekki svo víðtæks og kostnaðarsams eftirlits. Niðurstaða fundarins var engu að síður að fram- lengja núverandi fyrirkomulag á eftirlitsmanna- kerfinu sem komi til endurskoðunar eftir tvö ár. Jafnframt var ákveðið að taka upp gervihnatta- eftirlit með öllum fiskveiðum á NAFO-svæðinu frá og með 1. janúar árið 2001. I fréttatilkynn- ingu segir að íslendingar muni áfram leggja áherslu á að nýjasta tækni sé hagnýtt við endur- skoðun eftirlits á svæðinu til að auka skilvirkni og lækka kostnað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.