Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 17

Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 17 Eins og góð heimsókn til sálfræðings RÍR UNGIR tónlistarmenn, þau Sigurbjörn Bernharðs- son, fíðluleikari, Sigurður Bjarki Gunnarsson, sellóleikari, og Nína-Margrét Grímsdóttir, píanó- leikari, halda tónleika í Listasafni Kópavogs í kvöld,sunnudagskvöld, klukkan 20:30. Á efnisskrá tónleik- anna eru þrjú píanótríó, Hoboken tríóið í Es-dúi' eftir Franz Joseph Haydn, H-dúr tríó Jóhannesar Bra- hms og Tríó op. 67 eftir Dimitri Sjostakovitsj. Tónleikarnir eru þeir síðustu í bili af röð tónleika sem þau hafa haldið hér undanfarið, en þau ei-u öll búsett í Bandaríkjunum. Þau Sigurbjörn, Sigurður og Nína-Margrét eru mislangt komin á námsbrautinni, Sigurbjörn lauk á síðasta ári mastersgráðu í Chicago og Nína-Margrét stundar doktors- nám í píanóleik í New York. Sigurð- ur hefur aftur á móti mastersnám í Juilliard-skólanum í New York í haust. Þau Sigurbjörn og Nína-Margrét hafa bæði starfað nokkuð í Banda- ríkjunum sem lausráðnir hljóðfæra- leikarar meðfram námi og láta vel af verunni þar. „Það er geysilega mikið að gerast í tónlistarlífinu í Bandaríkjunum," segir Sigurbjörn og Nína-Margrét tekur undir það: „Bandarískt tónlistariíf er mjög lif- andi og opið, ólíkt til að mynda tón- listarlífí í Lundúnum en ég lærði einmitt þar.“ Þau segja að það kosti mikla vinnu að koma sér áfram í tónlist vestan hafs, enda sé sam- keppnin yfirgengileg. Það sé aftur á móti vel til þess fallið til að efla metnað og ýta við mönnum. „Það er líka svo mikið um klíkur," segir Sig- urbjörn, „og til þess að fá eitthvað að gerast þarf helst að vera í ein- hverri klíkunni." „Það kemur sér reyndar vel að vera frá íslandi," segir Nína-Margi-ét, „því menn eru enn að tala um tónleika Sinfóníunn- ar í Carnegie Hall; menn urðu svo undrandi yfir því hvað Islendingar ættu góða sinfóníuhljómsveit." Öll hafa þau síðan orð á því hversu gott tónlistarlíf sé á Islandi; það sé ekki minna að gerast hér á landi, ótrúlega mikið um tónleika- hald og mikið af góðu fólki til að spila með. „Það er líka allt svo miklu opnara hér á landi og tónlist- arstefnur skarast mun frekar,“ seg- ir Sigurbjörn, en hann og Sigurður Bjarki eru nýkomnir úr tónleikaför um heiminn með Björk Guðmunds- dóttur. Aðspurðir segja þeir að það hafi verið mjög skemmtileg lífs- reynsla, frábær reyndar, og þeir væru alveg til í að fara aðra eins ferð. „Við sáum þó ekki mikið af löndunum sem við komum til, það var helst að við gætum skoðað lang- ferðabíla og flugvélar að innan.“ Ollum hollt að gefa út Þau Sigurbjöm og Nína-Margrét hafa bæði gefið út geisladiska í sam- vinnu við SKREF og segja það mik- ilsverða og nauðsynlega reynslu. „Það er öllum tónlistarmönnum hollt að gefa út, að kynnast þvi hvernig er að vinna í hljóðveri. I raun er nauðsynlegt að gefa út, því það er svo allt annað en augnablikið sem tónleikar gefa; diskurinn lifir áfram.“ Nína-Margrét bætir við að svo sé diskurinn líka fyrirtaks nafnspjald þegar verið er að leita sér að verk- efnum, því fátt sé betra til að kynna SIGURBJÖRN Bernharðsson, Nína-Margrét Grímsdóttir og Sigurð- ur Bjarki Gunnarsson, en þau halda tónleika í Listasafni Kópavogs næstkomandi sunnudag. sig en geta rétt disk til að mynda að hljómsveitarstjóra eða útgefanda. Áhugi á frekara samstarfi Eins og getið er leika þau Sigur- björn, Sigurður Bjarki, og Nína- Margi-ét á tónleikum í Listasafni Kópavogs næstkomandi sunnudag, sem verða lokatónleikar þeirra sam- an í bili. Þau hafa þó mikinn áhuga á frekara samstarfi, munu reyndar leika í Bandaríkjunum undir nafn- inu The Icelandic Trio, eða íslenska tríóið, og flytja þá skandinavíska og íslenska tónhst. Þau segjast einnig hafa áhuga á að fá tónskáld til að semja fyrir sig verk, enda sé fátt eins lærdómsríkt fyrir tónlistar- menn. Efnisskrá tónleikanna í Lista- safni Kópavogs er þrjú píanótríó frá ólíkum tímum og ólíkrar gerðar. Haydn segja þau að menn séu að uppgötva upp á nýtt; undanfarið hafi mjög aukist útgáfa á upptökum á verkum hans. „Píanótríóið eftir Brahms er senniiega eitt þekktasta píanótríó tónbókmenntanna, dramatískt verk og skemmtilegt. Tríóið eftir Sjostakovitsj nýtur æ meiri vinsælda og á eftir að komast í hóp verka sem lifa þessa öld. Það er þrungið tilfinningum og áhrifa- mikið; eins og góð heimsókn til sál- fræðings." Nýjar bækur • ÞAÐ sem enginn sér er cftir Gunnhildi Hrólfsdóttur. Sagan er um Benna og Laufeyju sem eru 12 og 13 ára og stríða bæði við mótlæti. Þau kynnast og styðja hvort annað en til að líf þeiiTa geti fallið í eðlilegar skorður á ný þarf aðstoð fólks sem kann til verka. Hér er meðal annars fjallað um kynferð- islegt áreiti og ein- elti og hvemig bregðast skuli við slík- um vanda. Bókin er 190 síður, prentuð í Sví- þjóð og kostar 1.890 krónur. Halla Sólveig gerði kápumynd. 0 Drengurinn sem svaf með snjö i rúminu er eftir sænska höfundinn Henning Mankell í íslenskri þýðingu Gunnars Stefánssonar. Þetta er þriðji hluti sögunnar um Jóel sem nú er orðinn 13 ára. Nýjar kenndir bær- ast í brjósti hans og heitast þráir hann að verða rokkstjarna. Þetta er þroskasögu, en sögurnar eru hver um sig sjálfstæð lesning, segir í fréttatilkynningu. Bókin er215 síður, prentuð í Sví- þjóð og kostar 1.490 krónur. Ingi- björg Eyþörsdóttir gerði kápumynd. 0 í loftbelg yfir hafíð er eftir Mats Wahl. Sagan er um 12 ára gamla stráka og sumarævintýri þeirra. Strákamir njóta sumarsins, synda í sjónum og glettast við stelpurnar, en margt breytist á þessum aldrí og dag nokkurn taka málin óvænta stefnu. Áður hafa komið út eftir Mats Wahl þrjár bækur á íslensku, allar í þýðingu Hilmars Hilmarssonar. Bókin er 219 síður, prentuð í Sví- þjóð. Verð 1.490 kr. Anna Cynthia Leplar gerði kápumynd. Útgefandi bókanna er Mál og menning. Gunnhildur Hrólfsdóttir Lúðar tveir og lottóvinningar ERLEjVDAR BÆKLR Spennusaga LUCKY YOU eftir Carl Hiaasen. Pan Books 1998. 486 síður. BANDARÍSKI spennusöguhöf- undurinn Carl Hiaasen er með þeim fyndnari sem fást við glæpa- skrifin og kemur það m.a. til af því að hann hefur ótrúlegt og óstöðv- andi hugmyndaflug þegar hann býr til sögupersónur sínar. Hann er Flórídabúi eins og mörgum er kunnugt og fyn’um blaðamaður og sem slíkur þekkir hann vel til stað- arins og þeirra sem þar búa, bæði hárra og lágra. Hefur hann hæðst að þeim mjög í bókum eins og „Double Whammy" og „Native Tounge" og „Strip Tease“ (það var ekki honum að kenna að bíómyndin með Demi Moore var ömurleg). Sögur Hiaasens gerast undantekn- ingarlaust á heimaslóðum hans og hann hefur nákvæmlega ekkert álit á þeim stað og er óspar á að láta það í ljós í bókum sínum, ferða- málaráði staðarins eflaust til sárr- ar gremju. Við sama heygarðshornið Þær örfáu sögupersónur hans sem eru nokkurn veginn í andlegu jafnvægi og gegna hlutverki góðu gæjanna, eru einasta akkeri les- andans í sérstaklega furðulegum undirheimum Flórída, því óþokka- safnið í sögum Hiaasens er eitt það skrautlegasta sem fyrirfinnst í glæpasagnabókmennt- unum. Bófarnir í nýj- ustu Hiaasen-sögunni, sem heitir „Lucky You“ og kom nýlega út í vasabroti, ættu ekki að valda aðdáendum höfundarins vonbrigð- um. Hann er við sama heygarðshornið og fá m.a. öfgahægrisinnað- ir föðurlandsvinir og nýnasistar fylkisins orð í eyra frá honum í þetta skiptið. Bófamir tilheyra þeim hópi manna og eru sannar- lega verðugir fulltrúar hans. Þeir eru tveir, Bode og Chub, og lifa á mörkum mannlegrar greind- ar. Bode er sá betur gefni og er gersamlega ofsóknarbrjálaður. Hann sér í hverju skúmaskoti sam- særi kommúnista, svertingja, gyð- inga og NATO og allt sem nöfnum tjáir að nefna, gegn úi’valsfólkinu í Ámeríku, hreinræktuðum, heiðai-- legum hvítum mönnum eins og honum og Chub. Félagi hans, Chub, meðtekur boðskapinn eins og barn í sunnudagaskóla á milli þess sem hann sniffar lím eins og blóðhundur. Saman fá þessir heið- ursmenn lottóvinning að upphæð 14 milljónir dala. Það dugar þeim þó alls ekki þegar þeir fregna að vinningurinn gæti verið 28 milljón- ir ef ekki væri fyrir unga svert- ingjakonu sem vill svo óheppilega til að var með sömu lottótölur og þeir. Bode sýnist þeir þurfa allar 28 milljónimar ef Bræðralagið, eða hvað svosem þeir kalla sig, ætlar að veijast innrás kommanna í NATO og gyðingasamsærum. Svo þeir finna kon- una, berja hana og fá hana til þess að láta sig hafa lottóseðilinn. Þaulreyndur blaða- maður, sem reyndar eru á niðurleið í starfi sínu, ætlar að taka við- tal við hinn heppna vinningshafa en verður þess í stað félagi henn- ar og saman elta þau Bræðralagið uppi. Hiaasen gerh- grín að öllu sem hönd á fest- ir eins og vanalega og húmorinn er ekkert farinn að dala. Hann finnur alltaf uppá einhverju nýju til þess að gleðja með lesend- ur. Margt er kunnuglegt úr öðrum sögum hans. Þarna er spilltur dóm- ari á hröðum flótta eftir fáránlegt asnastrik, eiginkona sem neitar að gefa eftir skilnað, ritstjóri sem finnur frið í sálinni, svikahrappur sem þykist fá lófasár eins og Jesús og er að pæla í að bora í gegnum lappirnar á sér og fleira og fleira. Það helsta sem finna má að bók- inni er að hún er of löng. Hiaasen þarf miklu minna en næstum fimm hundruð blaðsíður til þess að koma því frá sér sem hann vill og hefur að segja og það er ekki laust við að hliðarsögurnar taki of mikið at- hyglina frá aðalmálinu. Engu að síður er hér um skemmtilestur að ræða sem Hiaasen og lesendur hans geta verið ánægðir með. Arnaldur Indriðason Carl Hiaasen Taum- lausir tónstigar IIIM.ISI Gerðarsafn EINLEIKSTÓNLEIKAR Boris Guslitser lék verk eftir Beethoven, Chopin og Liszt, fimmtudag kl. 20.30. BORIS Guslitser hámenntað- m' og reyndur píanóleikai-i lék fyrir gesti Gerðai’safns á fimmtudagskvöldið Sónötu Beet- hovens í f-moll ópus 57, Appassionata sónötuna; Andante spianato og Grand Polonaise Brilliante eftir Chopin; Ung- verskai' rapsódíur m’. 11 og 12 og Mefistóvalsinn eftir Franz Liszt. Það eni varla aðrh' en snillingar sem hafa djörfung í að spila svona dagskrá, - þar sem öll verkin era bæði vinsæl og ástsæl og búast má við að stór hluti tón- leikagesta þekki þau og hafi skoðun á hvernig á að leika þau. Það leikur enginn vafi á því að Boris Guslitser er mikill píanisti. Hann er alinn upp í höfuðvígi rássneska píanóskólans, hjá Pa- vel Serebryakov, dáðum kenn- ara og fyrrum skólastjóra snill- ingafabrikkunnar, Tónlistarhá- skólans í Leníngrað. Guslitser hefur unnið til margvíslegra verðlauna fyrir leik sinn og notið talsverðs frama í list sinni að því er ráða má af tónleikaskrá. Óbrigðul tækni er eitt af höfuð- einkennum rássneska píanóskól- ans, og tæknikunnáttu hefur Guslitser nóga. Hann sýndi hana líka svo um munaði, og skalar og brotnir hljómar í metravís þutu hjá á nánast ólöglegum hraða og víst er slík fimi aðdáunarverð. En það eitt er ekki nóg. Appassionata var leikin með miklum bravúr, en það vantaði í hana músíkina; því miður. Hægi þátturinn sem þarf að vera yfir- máta yfirvegaður og stilltur, var órólegur og ójafn, eins og Guslitser hefði ekki þolinmæði til að bíða eftir súiTandi vh’túósísku niðui'lagi verksins þar sem hann sannarlega spilaði eins og hann ætti lífið að leysa. Það vantaði að píanóleikarinn dveldi í tónlistinni; lifði hana og andaði í henni. Það vantaði bara að hann gæfi augnablikinu að- eins meiri gaum. Sömu sögu var að segja um verk Chopins, And- ante Spianato og Grande Polonaise Brilliante. Það var undh’ballans í andanteþættin- um; vinsti'i höndin of sterk á kostnað ljóðrænnar laglínu hægri handarinnai', sem hefði þurft að hljóma betur í gegn. Pólónesan var leikin hi-att og af öryggi, en hrypjandin svo ýkt að dansinn vai'ð grótesk. Það sem upp úr stóð á þessum tónleikum var leikur Boris Guslitser á Ungverskum rap- sódíum nr. 11 og 12 eftir Franz Liszt. Þar lifnaði talsvert yfir leiknum. Þar náði þessi flinki pí- anisti að laða fram falleg blæ- brigði, eins og til dæmis í inn- ganginum að fyrri rapsódíunni, þai' sem píanóið hljómaði eins og ungverskt cimbalom, - þetta einkennishljóðfæri ungversku sígaunatónhstai'innai’. Það voru líka víða afar fallega mótaðar andstæðurnar í hægum og hi'öð- um þáttum þeirra ungversku dansa sem rapsódíurnar byggj- ast á. Allt þetta sýndi meiri inni- leika hans í túlkuninni á ung- versku rapsódíunum en í fyrri verkunum á efnisskránni. Mefistóvalsinn, það mikla glæsi- verk, vai' lokaverkið á efnis- skránni og var leikinn með þeim vh’túósíska stæl sem búast mátti við af svo flinkum píanóleikara; en það var líka allt og sumt. Bergþóra Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.