Morgunblaðið - 20.09.1998, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 20.09.1998, Qupperneq 27
MORGUNB LAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 2 7 efu ára. Ég sá mikið eftir því. Það átti að ferma elstu dóttur okkar þetta vor en fermingarkjóllinn brann inni með öllu öðru, svo fermingunni var frestað og við byggðum nýtt hús. Sturlaugur var sjómaður og vann til- fallandi verkamannavinnu. Sjálf var ég heima með börnin sem urðu fimm. Tvö þeirra eru nú látin.“ Var ólýsanlega spennt að hitta systkini mín „Börnin mín gáfu mér fyrir far- gjaldinu þegar ég fór til Kanada ár- ið 1962 til þess að hitta systkini mín fjögur sem ég hafði þá aldrei séð. Ég fór með hópferð hjá Guðna í Sunnu og þetta var yndisleg ferð. Ég var ólýsanlega sgennt meðan ég var á leiðinni út. Ég hefði þekkt Botníu systur þótt hún hefði ekki verið með neitt tákn til að veifa - svo lík var hún móðursystur okkar henni Guðrúnu. Ég var í Ameríku í þrjá mánuði og leiddist á endanum svo mikið að ég var alveg að verða vitlaus. Ég hef oft lofað Guð íyrir að hafa ekki verið send til Ameríku á sínum tíma, en sjaldan eins og þá. Margt var þarna langt á eftir tíman- um miðað við hér. Hjá sumu kunn- ingjafólki sem ég heimsótti með systkinum mínum var ekki einu sinni útikamar; svo fnimstætt var lífið þarna. Ég hugsaði oft til mömmu, hún skipti ábyggilega mjög til hins verra er hún fór út. Eg fór víða um Bandaríkin til þess að heimsækja systkini mín. Mér geðj- aðist mjög vel að þeim öllum. Botnía var mér nákomnust, hún skildi aldrei við mig þennan tíma, fór með mér hvert sem ég fór. Systkini mín höfðu öll komið sér vel fyrir, það gladdi mig að sjá. Mér fannst einkum undarlegt að hitta Magnús bróður minn, mér fannst ég sjá sjálfa mig í spegli, svo lík þótt mér við vera. Hinir bræð- urnir voru ekki líkir mér. Ekkert af systkinum mínum hafði komið til íslands þegar þetta var, en komu hingað síðar. Botnía kom hingað þrisvar. Hún lést fyrir þremur ár- um. Tveir af bræðrunum komu - Ragnar tvisvar og Ágúst einu sinni. Magnús kom aldrei, hann var dálítið brjóstveikur og þorði ekki að koma hingað, hann hélt að það væri svo mikið rok á Islandi. Af bræðrum mínum lifir nú Ágúst einn. Ég hafði hrósað Islandi mikið í eyru systkina minna og talaði oft um hve einstaklega fallegt væri á íslandi. Þegar við vorum að keyra Ágúst bróður suður í Þorlákshöfn AÐALHEIÐUR ellefu ára, myndin er tekin um sama leyti og pakkinn með sirsefninu og bláa skartgripaskríninu kom frá Ameríku. AÐALHEIÐUR og systkini hennar árið 1977 er þau hittust öll saman í fyrsta skipti. F.v. Magnús, Ragnar og Ágúst. Siljandi eru f.v. Botnía og Aðalheiður. AÐALHEIÐUR, t.v., átján ára á Stokkseyri að fara á ball með vinkonu sinni Guðrúnu Sæmundsdóttur. EYJÓLFUR Eyjólfsson og Guðrún Magnúsdóttur fáum dögum áður en þau Iögðu upp í Ameríkuferðina. F.v. eru synir þeirra Ragnar, Magnús og Ágúst. Guðrún gekk þarna með yngsta barnið sem fæddist á skipsfjöl og hlaut nafnið Botnia eftir skipinu sem flutti þau vest- ur um haf. Eyjólfur dó mánuði eftir að hann kom til fyrirheitna landsins. AÐALHEIÐUR þriggja ára. „Það var alltaf verið að taka af mér myndir til að senda út til mömmu í Ameríku." horfði hann út um bílgluggann yfir sandana og tautaði aftur og aftur fyrir munni sér í stríðnisrómi: „Fagurt land - fallegt land“. Hann talaði mjög góða íslensku og systk- ini mín öll. Það var líka eins gott því ég talaði ekki orð í ensku. Ragnar bróðir söng fyrir mig ís- lensk kvæði sem hann lærði áður en hann fór út. Hann sagði mér að mamma hefði gert hann að sínum trúnaðarvini. Honum sagði hún all- ar sorgir sínar. Henni leið oft illa. Þegar ég var úti varð mér enn bet- ur ljóst en ella hve illa henni hlýtur að hafa liðið. Hún þráði alla sína ævi að komast aftur heim til ís- lands en sú ósk rættist ekki. Árni Björnsson, sem mamma var ráðskona hjá, bauð mér og Stur- laugi manni mínum að koma út til sín í vinnu. Mig vildi hann fá sem ráðskonu en Sturlaug vildi hann láta vinna á jörðinni en við vildum ekki fara. Ég er sannarlega ekki ósátt við að hafa verið skilin eftir þegar fjölskylda mín fór til Amer- íku. Það hefur aldrei flökrað að mér þótt ég hafi saknað fjölskyldu minn- ar. Ég ásaka móður mína ekki fyrir að hafa skilið mig eftir, hún gat ekki annað - kringumstæðurnar voru slíkar. Og svo dó pabbi og þá þurfti hún að láta tvö börn í viðbót - ekki gat hún tekið mig til sín við þær að- stæður blessunin." Aðalheiður og Sturlaugur fluttu til Reykjavíkur árið 1953. Stur- laugur hafði þá misst vinnu sína á verkstæði Kaupfélags Árnesinga, en það var flutt á Selfoss og íbúar þar gengu fyrir með vinnu. „Enga atvinnu var að fá á Stokkseyri svo við urðum að flytja suður,“ segir Aðalheiður. Eftir það bjuggu þau hjón í Reykjavík þar til Sturlaugur dó árið 1985. Nú býr Aðalheiður að Norðurbrún 1 í Reykjavík og held- ur sér vel þrátt fyrir nokkuð háan aldur. „Þegar ég var ung kona fannst mér stundum að ég ætti varla neina fjölskyldu. Nú ræð ég varla við þá fjölskyldu sem ég á. Afkomendur okkar hjóna eru fimmtíu talsins." Þegar ég horfí á Aðalheiði og skoða myndir af börnum hennar og barnabörnum þá get ég ekki annað en glaðst yfir því að Island skyldi ekki missa allt þetta fólk frá sér. Og þegar ég hugsa til systkina hennar og allra annarra sem fóru til Vest- urheims verður mér ljósara en ella hver blóðtaka brottför alls þessa fólks hefur verið íslensku þjóðlífi á sínum tíma. ► NYR&BETRI t.-’Meiri kraftur____________________________ ^Minni eyðsla_____________________________ O'Aflstýri___________________________________ 'O'Hreyfiltengd þjófnaðarvörn________________ OÚtvarp/segulband, 2 hátalarar og loftnet á þaki <0 Plasthús með hurðum_________ OAfturhurðir opnast i 180° QFestilykkjur á palli__________ p Burðargeta 605 kg án húss og 575 kg með húsi. < ’ Flutningsrými 2,41 rúmmetrar < Rými fyrir Euro bretti <jýVerð með virðisaukaskatti www.hekla.is HEKLA simi 569 5500 SKODA FELICIA PICK-UP meö plasthúsi kostar aðeins kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.