Morgunblaðið - 20.09.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
komast að í Brautargengi. Vonlaust
er að fara af stað í rekstur og vita
t.d. ekkert um bókhald. Það er ekki
hægt að vera með rassvasabókhald
þótt það hafi kannski gengið fyrir
20 árum.“
Guðjón blandar sér í umræðuna
og segir: „Það var algjör himna-
sending fyrir Guðrúnu að komast í
Brautargengi. Sannkallaður happ-
drættisvinningur.“ Hann starfar hjá
Vista, einsog að framan gi’einir, sem
er til húsa að Höfðabakka 9 eins og
Tanni. Guðjón hefur yfirumsjón
með bókhaldi og tölvumálum
Tanna.
Ekki nóg þó hugmynd kvikni
„Viðskiptaáætlun er mitt hjart-
ans mál,“ segir Guðrún. „Aður
fannst mér að fyrirtækjarekstur
væri mest í hjartanu; það atriði
verður að vera í lagi en áætlanir og
stefnumótum skipta líka mjög miklu
máli.
Það er ekki nóg að fá góða hug-
mynd heldur verður að setjast niður
og reikna út hvort dæmið gangi
upp. En bankar eru lengi að taka
við sér. Það dugar ekki að sýna
þeim áætlun fyrir næstu ár og að
vel hafi gengið síðustu ár. Að rekst-
urinn sé í lagi. Auðvitað ættu þeir
að veita fyrirgreiðslu út á það en
alltof mikið er um að einhver amma
úti í bæ sem á einbýlishús ski-ifi upp
á lán. Eins og kerfið er í dag skiptir
það bankann engu máli hvort fyrir-
tækið gengur vel eða illa - hann fær
sitt veð í einbýlishúsinu ef illa geng-
ur - en þjóðarbúið tapar á því.
Bankar ættu að segja: gott og vel,
þú hefur rekið þitt fyrirtæki vel, við
erum tilbúnir að styðja þig. Það á
ekki að einungis að hugsa um veð í
steypu. Það þarf að taka bankakerf-
ið í gegn, ekki bara laxveiðimálin."
Þrennt er í föstu starfi í Tanna
ehf. Guðrún, Sigurbjartur Guðjóns-
son tengdafaðir hennar og Orri
Baldursson, sem sér um bókhald og
Hugmyndin var upphaf-
lega su að við yrðum
með fyrirtækið heima og
ég sinnti því hálfan dag-
inn, en nú vinnur maður
frá átta á morgnana til
hálftólf á kvöldin!
tölvumál í samvinnu við Guðjón.
Orri hóf störf í fyrirtækinu viku áð-
ur en Þórður lést. „Mig vantaði ein-
hvern kláran meðan Þórður var í
fríi en Orri hélt svo áfram. Hann er
snjall knattspyrnumaður og ég varð
að gjöra svo vel að lána hann í allt
sumar! Hann lék með Hvöt og seldi
um leið fyrir okkur fyrir norðan, en
það varð til þess að ég komst ekki í
sumarfrí!" segir Guðrún.
„Tengdapabbi minn, sem er áttræð-
ur, er gamall kartöfiubóndi úr
Þykkvabæ. Hann var reyndar odd-
viti í Þykkvabæ í áratugi, frá því
hann var 25 ára til 72 ára aldurs,
orgelleikari í kirkjunni og stjórnaði
kirkjukórnum. Það var orðið of
erfitt fyrir hann að stunda kartöflu-
rækt, hann flutti því í bæinn þegar
við stofnuðum fyrirtækið og vinnur
hér fulla vinnu. Keyrir út vörur;
hann hafði aldrei keyrt í Reykjavík
fyrr en hann flutti hingað, en sá að
með þessu móti gerði hann mest
gagn í fyrirtækinu, beit því á jaxlinn
og fór af stað!“
Guðjón segir fyrirtækið hafa
breytt miklu í lífi þeirra hjóna. „Við
eigum lítil frí um helgar og á kvöld-
in og lítið hefur verið um sumarfrí.
Eg hugsaði stundum með mér að
það væri ef til vill ekki gott fyrir
samband okkar að fara út í þetta en
þróunin hefur verið þveröfug. Fyr-
irtækið hefur styrkt
samband okkar Guð-
ránar og því reynst
okkur mjög gott.“
Guðrún segir: „Við
erum með tvær stelp-
ur heima, reynum að
skipuleggja tímann
vel og svo er amman í
kjallaranum." For-
eldrar Guðjóns búa
sem sagt í sama húsi.
„Sú litla hefur oft
sofið hér í hillum eða
hvílt sig og sú stóra
kemur með vinkon-
urnar þegar t.d. er vörutalning og
þess háttar. Við hjálpumst því öll
að.“
Hagnaður hefur verið á rekstri
Tanna frá upphafi, einsog fyrr
greinir, nema í fyn-a en „þetta hef-
ur ekki verið glimrandi gróðafyrir-
tæki. Tíðustu gjaldþrotin eru í
heildverslun og mikil samkeppni í
þessari grein,“ segir Guðjón. „Þetta
eru því engin uppgrip. Ef svo væri
væru allir í þessu og þá gengi dæm-
ið auðvitað ekki upp. Eg heyrði ein-
hvem tíma að í ljós kæmi eftir sjö
ár hvort fyrirtæki gangi; lifði það
enn eftir sjö ár gæti það dafnað, og
hef oft hugleitt þetta undanfarið."
Sjö ár verða einmitt á næsta ári frá
stofnun Tanna. Hann minntist áður
á að fyrirtækið hefði styrkt sam-
band þeirra hjóna, og segir nú að
Guðrán hafi aldrei gleymt heimil-
inu, „einsog sumir gera, þó mikið
hafi verið að gera í fyrirtækinu.
Hún passar upp á sín böm og sitt
heimili." Guðrún bendir á að það sé
spurning um skipulag, og bætir síð-
ar við að eiginmaðurinn sé duglegur
heima fyrir. „Hann vinnur helming
húsverkanna. Það er líka mitt
hobbí að vinna heima; ég hef gam-
an af því að baka, búa til sultu og
slátur og elda mat. Það er hvíld í
því fyrir mig frá fyrirtækinu og
rosalega gaman.“
SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 31
Súreíiii svörur
Kariii Herzog
• vinna gegn öldrunareinkennum ;
• enduruppbyggja húðina
• vúma á appelsínuhúð og sliti
• vinna á unglingahólum
• viðhalda ferskleika húðariimar
• Þœr eru ferskir vindur í umhirðu húðar •
SÖLUSTAÐIR:
WORLD CLASS - REYKJAVÍK OG AKUREYRI
SIGURBOGINN - LAUGAVEGI
CLARA - KRINGLUNNI
SANDRA, SMÁRATORGI
SNYRTIHÖLLIN - GARÐATORGI
NEGLUR OG FEGURÐ - EIÐISTORGI
HÁALEITISAPÓTEK.
HOLTSAPÓTEK - GLÆSIBÆ
HRINGBRAUTARAPÓTEK
SNYRTI-OG NUDDSTOFAN PARADÍS
ENGLAKROPPAR - STÓRHÖFÐA 17
SÓL OG SÆLA - FJARÐARGÖTU 11
ÞITT MÁL- HEILSUSTÚDÍO - GARÐATORGI
HVERAGERÐISAPÓTEK - HVERAGERÐl
SELFOSSAPÓTEK - KJARNANUM, SELFOSSI
HEILSUSTÚDÍÓ VÖXTUR - ÓLAFSVÍK
BETRI LÍNUR - VESTMANNÁÉYJUM
BORGARNESAPÓTEK
KEFLAVÍKURAPÓTEK " '
SAUÐÁRKRÓKSAPÓTEK
Dreifing: Solvín, box 9184,129 Reykjavík, sími 899 2947
Upplifðu óviðjafnanlega aksturseiginleika
BMW 3-línan
Það hefur alltaf verið aðalsmerki BMW að tvinna frábærlega saman glæsileika, þægindi og öryggi.
Nýr BMW 3 státar m.a. af spólvörn og stöðugleikastýringu, sem færir hemlaaflið á afturhjól þegar
hemlað er í beygju. Hann er einnig fáanlegur með fullkominni tölvustýrðri sjálfskiptingu sem gerir
aksturinn þýðan og þægilegan.
Komdu í reynsluakstur og upplifðu óviðjafnanlega aksturstilfinningu.
- engum líkur