Morgunblaðið - 20.09.1998, Síða 53

Morgunblaðið - 20.09.1998, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 53 *. Safnaðarstarf Hálf milljón á Alfa-biblíu- námskeiði SÍÐASTLIÐINN vetur fór hálf milljón Breta á svokallað Alfa-bibl- íunámskeið. Þetta er algjört eins- dæmi a.m.k. á síðustu áratugum hvað varðar áhuga almennings á að fræðast um Biblíuna og boðskap hennar. Margir halda að það sé leiðinlegt á biblíunámskeiðum og að þau hafi ekkert hagnýtt að kenna fólki. Reynsla margra kirkna í Bretlandi er allt önnur. Námskeiðin byrjuðu fyrir nokkrum árum í Holy Trinity- kirkjunni, en hún stendur við Brompton-veg í suðaustur Lundún- um, skammt frá Harrods-verslun- inni sem margir Islendingar þekkja. Fyrsta námskeiðið sótti aðeins lítill hópur fólks. En fljótt spurðist út að hér væri um frábært námskeið að ræða og þá tók þátttakendafjöldinn stökk upp á við. Hugmyndin að baki Alfa-námskeiðinu var sá grunur prestanna í Holy Trinity að fjöldi fólks hefði áhuga á kristinni trú, en hefði lítinn áhuga á hefðbundnum messum og fyndist kirkjurnar frá- hrindandi af ýmsum ástæðum. Þeim datt þá í hug að „búa til“ námskeið sem væri aðlaðandi, spennandi og jafnframt hagnýtt fyrir fólk sem væri leitandi eða trúað og vildi auka þekkingu sína. Þannig varð Alfa- námskeiðið til. Nú er farið að halda Alfa-nám- skeiðin í mörgum löndum utan Bretlands, m.a. í Bandaríkjunum, meginlandi Evrópu og á Norður- löndum. Útlit er fyrir að hundruð þúsunda eða yfir milljón manns muni sækja Alfa nú í haust víðs veg- ar um heim. En hvað er svona sérstakt við Alfa-námskeiðin sem útskýrir vin- sældir þeirra? Áhersla er á að þau séu notaleg og að fólki líði vel. Kennt er eitt kvöld í viku í 10 vikur. Hvert kvöld hefst rnéð léttum máls- verði, þá er kennt í tæpa klukku- stund, eftir það er skipt upp í um- ræðuhópa og fyrirspurnir leyfðar. Fólk fær tækifæri til að ræða efni kvöldsins og/eða annað sem því kemur í hug varðandi trúna. Um- ræður eru líflegar og frjálslegar. Framsetning efnisins er auðskilin og án formlegheita. Markmiðið er að kvöldið verði skemmtilegt og hagnýtt. Ef litið er á vinsældir Alfa- námskeiðanna hafa þau mætt trúar- legri þörf mjög margra og hjálpað fólki til að vaxa andlega. Islenska Rristskirkjan, sem er ný lúthersk fríkirkja hér í Reykjavík, stofnuð 4. okt. sl. býður nú öðru sinni upp á Alfa-námskeið. Nám- skeiðið er eins í sniðum og að inni- haldi og það í Holy Trinity í Lund- únum. Námskeiðið hefst miðviku- dagskvöldið 23. október nk. kl 7 í húsnæði Islensku Kristskirkjunnar, Bíldshöfða 10. Skráning fer fram á skrifstofu kirkjunnar og í ' síma 567 8800 kl. 13-17 alla virka daga nema mánudaga (símsvari á öðrum tímum). Námskeiðið kostar 3.500 kr. - matur og kennslugögn innifal- in. Enn er hægt að bæta við nokkrum nemendum. Innritun ferm- ingarbarna í Hallgrímskirkju ÞEIM börnum í Hallgrímssókn sem ætla að fermast næsta vor er boðið að koma til innritunar miðvikudags- kvöldið 23. september kl. 20.30, ásamt foreldrum sínum. Þar verður gerð grein fyi'ir tilhögun fermingar- fræðslunnar, rætt um fermingar- daga, æskulýðsstarf kirkjunnar kynnt, boðið upp á léttar veitingar o.fl. Nánari upplýsingar er að fá hjá starfsfólki kirkjunnar í síma 510 1000. Æskulýðsfélag stofnað á Akranesi KIRKJUSKÓLI eldri bama, 7-9 ára, hefst á morgun, mánudag, kl. 17.30. Um kvöldið kl. 20 verður svo Æskulýðsfélag kirkjunnar, í sam- Bókhaldsná Bókhald ; 'sm. ■ 2 Þetta námskeið er framhaldsnámskeið í bókfærslu og er fyrir þá sem hafa áhuga á bókhaldi og þá sem þurfa á því að halda að færa og vinna bókhald til uppgjörs. Lýsing Þjálfun í færslu dagbókar. Reikningum fjölgað og færðar nokkuð flóknar færslur. Reikningsjöfnuður kynntur og farið verður í lokafærslur. Með þessu eru tekin raunhæf verkefni úr atvinnulífinu sem samhliða eru unnin i tölvubókhaldi og bókfærslu. Reikningslyklar verða búnir til og settir upp. Nemendur vinna með þessu raunhæft verkefni úr bókfærslunni þar sem þeir verða að forvinna, færa og gera ársreikning. Námskröfur og námsmat Þátttakendur þurfa að hafa bókhaldsþekkingu fyrir námskeiðið. Námsmat miðast við 80% mætingu. Kennslufyrirkomulag Kennt er mánudaga og fimmtudaga frá kl. 18:30- 21:30. Námskeiðið hefst 28. september og þvi lýkur 17. desember. Námiö er 96 kennslutímar. Verð Námskeiðið kostar kr. 82.000. Innifalin í verði eru öll námsgögn. Gert er ráð fyrir að þátttakendur gangi frá kr. 10.000 staðfestingargjaldi til að staðfesta þátttöku. Skólinn býður upp á að hægt sé að borga námskeiðið með Visa/Euro raðgreiðslum í allt að 24 mánuði. Ef námskeiðið er staðgreitt er gefinn 5% staðgreiðsluafsláttur. VIÐSKIPTA- OG TÖLVUSKÓLINN Faxafeni 10 ■ Framtíðin • 108 Reykjavík Sími: 588 5810 • Bréfasími 588 5822 starfi við KFUM og K, stofnað í Safnaðarheimilinu Vinaminni. Er það ætlað unglingum á aldrinum 13-16 ára. Guðrún Karlsdóttir mun leiða æskulýðsfélagið ásamt Haraldi Guðjónssyni frá KFUM. Unglingar á Akranesi eru hvattir til þess að taka þátt í spennandi og skemmti- legu starfi og gerast stofnfélagar. Sóknarprestur. Friðrikskapella. Kyrrðarstund í há- degi á morgun, mánudag. Léttur málsverður í gamla félagsheimilinu að stundinni lokinni. Grensáskirkja. Mæðramorgunn mánudag kl. 10-12. Neskirkja. Fótsnyrting á vegum Kvenfélags Neskirkju mánudag kl. 13-16. Uppl. í síma 551 1079. Mömmumorgunn miðvikudag kl. 10-12. Ungar mæður og feður vel- komnir. Kaffi og spjall. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-10 ára drengi kl. 17.30. Bæna- stund og fyrirbænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bænarefnum í kirkjunni. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í kirkj- unni alla daga frá kl. 9-17. Hjallakirkja. Predikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Seljakirkja. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10. Landakirkja Vestmannaeyjum. Æskulýðsfundur í safnaðarheimili Landakirkju kl. 20. Messufall vegna héraðsfundar okkar á Álftapesi. Sóknarprestur. KFUM og K við Holtaveg: Sam- koma kl. 17. Ritningarlestur og bæn. Ingibjartur Jónsson. Bryn- hildur Bjarnadóttir segir frá sam- verum fyrir börn úr Vatnaskógi og Vindáshlíð í sumar. Einsöngur: Þor- valdur Halldórsson. Ræðumaður: Þórarinn Björnsson, guðfræðingur. Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Vörður L. Traustason. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu- maður Vörður L. Traustason. Lof- gjörðarhópur Fíladelfíu syngur. All- ir hjartanlega velkomnir. RAN6E R0VER vouge. Árgerð ‘88. Himinblár. Innfluttur nýr af umboði. Sérpantaður sjálfskiptur með topplúgu og aircondition. Einn eigandi frá upphafi. Ekinn 142 þús. Til sýnis og sölu hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum s. 575 1230 bmdurmrsakm vm&m* Við stimdum meðþér Nicorette® innsogslyf samanstendur af munnstykki sem [ er sett rör sem inniheldur nikótín. Nicorette® innsogslyf er ætlað til að auövelda fólki að j hætta að reykja. Algengur skammtur er a.m.k. 6 rör á dag en þó ekki fleiri en 12 á dag í a.m.k. 3 mánuöi og venjulega ekki lengur en 6 mánuöi. Nicorette® innsogslyf getur valdiö aukaverkunum eins og hósta, ertingu í munni og hálsi. Höfuöverkur, brjóstsviöi, ógleöi, hiksti, uppköst, óþægindi í hálsi, nefstífla og blöörur í munni geta einnig komiö fram. Við samtímis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur, eins og við reykingar, veriö aukin hætta á blóðtappa. Nikótín getur valdiö bráöum eitrunum hjá börnum og er efniö því alls ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema í samráöi viö lækni. Gæta skal varúðar hjá þeim sem hafa hjarta- og æðasjúkdóma. ÞungaÖar konur og konur með bam á brjósti ættu ekki aö | nota lyfið nema í samráöi við lækni. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja hverri pakkningu lyfsins. Markaösleyfishafi: Pharmacia & Upjohn AS, Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.