Morgunblaðið - 20.09.1998, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
BRETINN Warren Ellis hefur á
undanfomum ámm öðlast
mikla virðingu í teiknimyndasögu-
heiminum. Hann er einn þeirra
höfunda sem markvisst hafa brotið
niður þann múr misskilnings að
teiknimyndasögur séu aðeins fyrir
börn og óþroskaða lesendur.
Undanfarnar vikur hefur Ellis
ásamt konu sinni og dóttur ferðast
um Norðurlöndin að kynna verk
sitt Transmetropolitan. Island er
síðasti áfangastaðurinn og ætluðu
Ottó Geir Borg og Björn Þór Vil-
hjálmsson að hitta hann að máli á
fyrsta degi dvalar hans hér á landi.
Ellis hafði hins vegar orðið fyrir
óskemmtilegri reynslu þegar hann
kom á Hótel Sögu þar sem hann
hélt að hann myndi dveljast. Ohapp
hafði orðið með pöntun hans og
ekkert herbergi var laust nema
þetta eina kvöld og eftir það yrði
hann á götunni. Skilst blaðamönn-
um að hann hafí bmgðist ókvæða
við og að lokum verið kominn í
mikinn ham. Það leið
u.þ.b. klukkustund
áður en Ellis kom
niður af herbergi
sínu og virtist
honum þá mnn-
in reiðin og var
hann tilbúinn
að svara öllum
þeim spuming-
Teiknimyndin góður miðill
- Hefur líf þitt tekið breytingum
með velgengni Transmetropolitan?
„Aðeins að því leyti að nú er ég
með umboðsmann í HoOywood og
lögfræðing sem sérhæfir sig í
skemmtanaiðnaðinum - sem er allt
að því óhugnanleg reynsla. Eg er
líka langt kominn með kvikmynda-
handrit byggt á Transmet og hefur
því verið sýndur mikill áhugi.“
- Hvern vildir þú sjá leika
Spider?
Það er breskur leikari sem heitir
Tim Roth sem ég held að væri full-
kominn í hlutverkið.
- Það var velgengni sem
hrakti Spider í sjálfskipaða útlegð
og þurrjós hann allri andgift. Ein-
hverjar áhyggjur af að sömu örlög
bíði þín?
„0 nei, ekki eins og hlutirnir eru
í dag. Velgengni Transmetropolit-
an er ekki slík að ég þurfi að hafa
áhyggjur af þess konar örlögum.“
Ótrúlegasta fólk les blaðið
- Hvemig viðbrögð hefur Trans-
metropolitan fengið?
„Fólk sem les blaðið myndar sér
sterka skoðun um það og ég hef
rekið mig á að ótrúlegasta fólk les
það. Kunningi minn, sem rekur
verslunina Comics Experience í
San Francisco, sendi mér tölvupóst
um að leikarinn Robin Williams
hefði keypt öll eintök af blaðinu
sem hann sá. Transmet á sér líka
dyggan hóp kvenkyns lesenda, sem
að hluta til samanstendur af, og ég
vona að enginn móðgist, konum
sem vilja sofa hjá Spider Jerusal-
em!“
- Þú virðist undrandi, sérðu sem
sagt Spider ekki fyrirþér sem kyn-
tákn?
„I guðanna bænum! Þessar kon-
ur vilja augljóslega bara láta pynta
sig.“
- Finnst þér lesendur Transmet
móttækilegir fyrir því sem þú vilt
koma á framfæri?
„Það er það sem ég elska við að
skrifa blaðið, fólk er með á nótun-
um. Stærsti hluti lesendahópsins
skilur það sem ég er að reyna að
segja og er fær um að hugsa sjálf-
stætt. Ef blaðið hefur boðskap þá
er hann einmitt að fólk eigi að
um, sem varpað var að honum, af
stakri ljúfmennsku.
- Hvemig var ferðin?
„Flugið var fínt. Flugleiðir stóðu
sig með prýði jafnvel þó nokkrar
mínútur til lendingar hafi verið
hálftími, ferðin tO Reykjavíkur var
skemmtileg, allt var í góðu lagi
þangað til ég kom á þetta skítahót-
el. Næsta spurning."
Blaðamaður gerist
einsetumaður
- Um hvað er Transmetropolit-
an?
„Blaðið fjallar um Spider
Jerusalem sem er blaðamaður og
starfar í borg framtíðarinnar.
Hann varð mjög, mjög frægur, of
frægur til að geta sinnt starfi sínu
svo hann stingur af úr hringiðu
stórborgarinnar og gerist einsetu-
maður í fjalli nokkru þar sem hann
veiðir sér til matar, stundar kynlíf
með því sem hann veiðir og stend-
ur í stríði við nágranna sína með
hátæknivopnum. Fimm árum síðar
er hann kvaddur til borgarinnar á
ný að takast á við sitt gamla starf
- leit að sannleikanum er það
sem drífur Spider áfram í öllu
sem hann gerir.“
- Hvers vegna valdir þú
teiknimyndasöguna sem þitt
listform?
„Það er mjög einfalt.
Teiknimyndasögur eru að-
eins orð og myndir. Þú get-
ur gert hvað sem þig lystir
með orðum og myndum.
Möguleikarnir eru enda-
lausir og þú getur gert
hluti sem eru ómögulegir í
öðrum miðlum. Teikni-
myndasögur eru líka ódýrar
í framleiðslu og sölu og að
mínu mati eru þær aðgengileg-
asta leiðin inn í nútíma menn-
ingu.“
WARREN ELLIS A ISLANDI
hugsa sjálfstætt. Það er það eina
sem ég vil í raun koma á framfæri,
að fólk láti ekki aðra hugsa fyrir
sig.“
- Eitt af því sem einkennir
Spider Jemsalem er reiði. Er reiði
skapandi afl?
„Að sjálfsögðu. Heldur betur.
Reiði, hatur, fyrirOtning, morð -
allir eru þessir hlutir af hinu góða,
þeir gefa lífinu lit. Og já, ég er reið-
ur þegar ég skrifa Transmet, ef ég
væri ekki reiður hefði blaðið aldrei
orðið til.
- „Eg hata það hér“ heitir dálk-
urinn sem Spider skrifar. Er það
þín afstaða til lífsins?
Nei, ekki misskilja mig. Eg nýt
lífsins en það breytir ekki því sem
ég sé þegar ég horfí í kringum
mig.
Pólitík sem
sjónvarpsafþreying
-1 lesendadálki Transmet lýsir
þú stjórnmálum sem afþreyingar-
efni tíunda áratugarins, gætir þú
fjallað nánar um þessa staðhæf-
ingu?
í dag eru stjórnmál lítið annað
en afþreying sem sniðin er að kröf-
um sjónvarpsins. Eg veit ekki
hvernig það er hérna en þannig er
það í Bandaríkjunum og í vaxandi
mæli í Bretlandi. Fréttabútar úr
bandarískri stjórnmálaumræðu ár-
ið 1970 voru 120 sekúndur, það
samsvarar heilli málsgrein. Arið
1996 var meðallengd fréttabúta 7
sekúndur. Þeim er slengt inn á
miOi auglýsinga. Pólitík er soðin
niður fyrir sjónvarp. Stjómmála-
umræðan er eins og súmó glíma,
henni er lokið á 15 sekúndum."
- Ein spuming að lokum, er eitt-
hvað sem þú vildir segja við Islend-
inga?
Já, það er nokkuð sem ég vil
segja. Samkvæmt öllu sem ég hef
lesið era Islandingar einstök bók-
menntaþjóð, ein best lesna þjóð á
hnettinum og sem ennfremur býr
að mikilli sagnahefð. Það eina sem
ég get sagt er að ég óska þess að
það væra fleiri eins og þið. Eg ber
mikla virðingu fyrir landinu og að
þeim skítseiðum sem ég hef þurft
að kljást við hérna á hótelinu frá-
töldum þá er það mér sannur heið-
ur að vera hér.
Að lokum má geta þess að War-
ren Ellis heldur fyrirlestur um
teiknimyndasögur í hátíðarsal Há-
skóla íslands á morgun, mánudag-
inn 21. september, klukkan 17.15.
Á Fótboltavef Morgunblaðsins
finnur
alla réttu
takkana
Titlar og afrek
þú
Leikmenn og
frammistaða þeirra
Saga félaganna
Liðsstjórinn,
gagnvirkur Netleikur
Dagbók, yfirlit yfir leiki
www.mbl.is/boltinn