Morgunblaðið - 06.10.1998, Page 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
<
ATVINIMUAUGLÝSINGAR
/
Oskum eftir
duglegu fólki
• Óskum eftir að ráða trésmiði og
laghenta verkamenn til starfa í glugga-
og hurðaverksmiðju okkar í Kópavogi.
Vinnutími:
mán.-fim. 07.30-17.00.
föstud. 07.30-16.00.
• Afgreiðslufólki á kassa í verslanir
fyrirtækisins í Hafnarfirði, Skútuvogi
og í Grafarvogi
Leitum að duglegum, samviskusömum
og stundvísum einstaklingum með
góða þjónustulund.
Umsóknum skal skila fyrir
13. október nk.
til Húsasmiðjunnar
Súðarvogi 3-5,
merkt: Starfsumsókn.
HÚSASMIDJAN
Kennarar
Kennarar óskast til yfirferðar á samræmdum
prófum í 4. og 7. bekk 1998.
Skilyrði eru að viðkomandi hafi kennsluréttindi
og reynslu af kennslu nemenda á grunnskóla-
stigi í stærðfræði og/eða íslensku.
Nánari upplýsingar eru veittar á Rannsókna-
stofnun uppeldis- og menntamála í síma
551 0560 milli kl. 13.00 og 16.00 alla virka daga
til 6. október nk.
Rafvirki
Straumvirki ehf. óskar að ráða rafvirkja vegna
aukinna verkefna. Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 896 4901.
RANNÍS
Rannsóknarráð íslands óskar eftir að
ráða
fulltrúa
í hálft starf (fyrir hádegi) á vísindasvid
stofnunarinnar.
Starfssvið:
í starfinu felst m.a. umsjón með skráningum
varðandi styrkúthlutanir Vísindasjóðs og Rann-
sóknanámssjóðs, eftirlit með framvindu verk-
efna, samskipti við styrkþega, aðstoð við
gagnaúrvinnslu fyrir ársskýrslu og aðrar skýrsl-
ur og aðstoð við undirbúning funda og ráð-
stefna.
Hæfniskröfur:
Áhersla er lögð á góða samskiptahæfileika,
nákvæmni og metnað til að beita vönduðum
vinnubrögðum. Viðkomandi fulltrúi hafi góða
tungumálakunnáttu, í ensku og einu norður-
landamáli, haldgóða tölvuþekkingu og reynslu
í notkun á Word og Excel.
Laun samkvæmt samningum SFR.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljót-
lega.
Umsóknir sendist framkvæmdastjóra Rann-
sóknarráðs íslands, Laugavegi 13, 101 Reykja-
vík fyrir 12. október nk. Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsókn-
um verður svarað. Nánari upplýsingar veita
Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
Rannís og Kristján Kristjánsson, forstöðumað-
ur vísindasviðs Rannís.
Vífilfell ehf. auglýsir eftir
starfsfólki
í eftirtalin störf:
Ritari framleiðsludeildar. Starfssviðið er mjög
fjölbreytt og góð tölvukunnátta er skilyrði. Um-
sóknir skulu merktar: „Ritari".
Starfsmann með meirapróf til dreifingarstarfa
á Austurlandi. Allar nánari upplýsingar veittar
í síma 476 1570. Umsóknir skulu merktar:
„Austurland".
Við leitum að rösku og jákvæðu fólki til
að slást í hópinn. Þarf að hafa metnað og
vilja til að standa sig hjá öflugu fyrirtæki.
Umsóknir sendist til Vífilfells ehf., Stuðlahálsi
1,110 Reykjavík fyrir þriðjudaginn 13. október
nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofunni.
Atvinnurekendur
— fyrirtæki
takið eftir....
Fertugur rekstrarfræðingur ( 1. eink.) með
alhliða reynslu af skrifstofu-, fjármála- og
framkvæmdastjórn, sem hefur áhuga á að
skipta um umhverfi vill gjarnan komast í sam-
band við yður.
Auk stjórnarformennsku og fjölda trúnaðarstarfa hef ég starfað sem
yfirmaður fjármáladeildar og eignaumsýslu — gerð greiðslu- og
lánaáætlana — samskipti við lánardrottna og skuldunauta — kaup
og sölu verðbréfa — tölvubókhald og ritvinnslu — stjórnun og manna-
forráð. Tungumálakunnátta er góð. Reynsla af félagsmálum. Áhuga-
mál: Útivist, ferðalög, bókmenntir og mannleg samskipti. Samvisku-
semi í fyrirrúmi, fljótur að læra og þoli pressu bæði vegna álags
og tima. Reyklaus og reglusamur. I þeim störfum sem ég hef gegnt
hef ég þurft að treysta á sjálfan mig og eigin dómgreind og er vanur
a_ð taka ákvarðanir.
Ég tel að ég eigi allmikla möguleika á að vinna
fyrirtæki yðar gagn og að ráðning mín muni
efla það frekar en veikja.
Ég er fjölhæfur og með mikinn metnað til að
gera vel og leita eftir vellaunuðu ábyrgðarstarfi
á sviði hvers konar stjórnunar. Annað kemur
vel til greina.
Vinsamlega sendið svarbréf með nauðsynlegum
upplýsingum til Mbl. merkt:
„Dugandi starfsmaður — 1234".
V
vinnumAla
5TOFNUN
Laust starf hjá
Svæðisvinnumiðlun
Austurlands
Starf ráðgjafa (afleysing)
Um er að ræða fullt starf til 1. september 1999
sem felst m.a. í:
• Að aðstoða atvinnuumsækjendur við at-
vinnuleit og atvinnurekendur við að útvega
hæft starfsfólk.
• Að sjá til þess að atvinnuleitendur eigi kost
á ráðgjöf og úrræðum.
• Að vinna að starfsleitaráætlunum með at-
vinnuumsækjendum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi þekkingu
á vinnumarkaðinum og menntakerfinu, hafi
góða hæfni til mannlegra samskipta og góða
skipulagshæfileika.
Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið há-
skólanámi í náms- og starfsráðgjöf, félagsráð-
gjöf eða sambærilegu námi og/eða hafi víð-
tæka reynslu af þátttöku á vinnumarkaðinum.
Laun eru skv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og starfsferil skal skila til Svæðisvinnumiðlun-
ar Austurlands, Miðvangi 2—4, 700 Egilsstaðir,
fyrir 20. október.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í nóvem-
ber1998.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Harðardóttir,
forstöðumaður í síma 471 2288.
TILKYNNINGAR
Heilsugæslustöðin á Seltjarnarnesi
íbúum starfssvæðis Heilsugæslustöðvarinnar
á Seltjarnarnesi er boðið upp á inflúensu-
sprautu fimmtudaginn 8. október og föstudag-
inn 9. október kl. 14.30—16.30 báða dagana.
Gengið er inn gegnt Valhúsaskóla.
Starfsfólk Heilsugæslustöðvarinnar
á Seltjarnarnesi.
Geymið auglýsinguna!
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, bókasöfn, myndir, mál-
verk, silfur, silfurborðbúnað, jólaskeiðar, Ijósa-
krónur, bollastell, gömul póstkort, íslensk spil
og eldri húsgögn stór og smá.
Upplýsingar í símum 555 1925 og 898 9475.
Geymið auglýsinguna.
TIL SÖLU
Fasteignasala til sölu
Rótgróin fasteignasala til sölu. Mikil sala fram-
undan. Áhugasamir leggi inn nafn og síma-
númer á afgreiðslu Mbl. merkt: „Fasteignasala
- 1525".
SP-Beta tökuvél
Til sölu lítið notuð SP-Beta myndbandstökuvél
með Fujinon 14 X 8,5 linsu, recorder og power
pack. Gott verð.
Upplýsingar í síma 568 0733.
FUIMOIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Taflfélags Rvk.
verður haldinn mánudaginn 12. október kl.
20.00.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12.