Morgunblaðið - 14.10.1998, Side 4

Morgunblaðið - 14.10.1998, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Meira tekið af sterk- um fíkniefnum í ár LÖGREGLAN í Reykjavík hefur lagt hald á nokkru raeira af sterk- um fíkniefnum það sera af er ár- inu en í fyrra en heldur minna magn af veikari efnum. Þannig hefur verið lagt hald á 420 g af kókaíni en allt árið í fyrra 212 grömm og af amfetamíni hefur náðst í 1.680 g í ár en 2.066 g allt síðastliðið ár. I fyrra lagði lögreglan hald á 3.397 töflur af alsælu (ecstasy) og í ár 2.037 töflur. Þá náði hún 973 g af maríhúana í fyrra en það sem af er árinu hefur verið lagt hald á 808 g. Laga- frumvarp um laun þing- manna PÉTUR H. Blöndal og Árni R. Ámason, þingmenn Sjálf- stæðisflokks, hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga sem gerir m.a. ráð íyrir því að laun alþingismanna hækki um 155 þúsund krónur á mánuði eða frá því að vera um 220 þúsund krónur í 375 þúsund krónur. Jafnframt er gert ráð fyrir að horfið verði frá fóstum greiðslum til þingmanna, eins og til dæmis 25 þúsund króna bifreiðastyrk og 40 þúsund króna svokallaðri kostnaðar- greiðslu. Samkvæmt frum- varpinu er það lagt í hendur forsætisnefndar Alþingis að ákveða aðrar greiðslur til al- þingismanna í samræmi við raunverulegan kostnað. I greinargerð frumvarpsins segir m.a. að Kjaradómur hafi gert tilraun til þess að bæta kjör alþingismanna en ríkis- stjóm og Alþingi séð sig knúin til að ómerkja þá hækkun. Þessu verði að breyta. „Al- þingi má ekki láta kjör alþing- ismanna verða svo léleg að þau séu ekki á nokkum hátt eftirsóknarverð fyrir hæfi- leikafólk.“ Norræna húsið í Færeyjum Helga Hjörvar ráðin fram- kvæmdastjóri HELGA Hjörvar hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Norræna húss- ins í Færeyjum. Alls sóttu 43 um, þar af níu Is- lendingar og átján Svíar. Helga Hjör- var, sem síðustu ár hefur verið framkvæmda- stjóri Teater og Dans i Norden, segir að starfið leggist vel í sig, enda hafi hún lengi haft mik- inn áhuga á Færeyjum. Hún von- ast eftir fleiri íslenskum gestum í húsið og bendir á að þetta fallega hús og öflugt menningarlíf þar og í Færeyjum ætti að vera aðlaðandi fyrir Islendinga. Hdga Hjörvar Að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar aðstoðaryfirlögreglu- þjóns hafa starfsmenn fíkniefna- deildar lítið orðið varir við LSD á árinu en í fyrra náðust yfir 3.600 LSD-töflur sem er yfir 10 sinnum meira en árið 1996. Það ár náðist hins vegar mesta magn am- fetamíns í langan tíma eða rúmlega 6.000 grömm. Áhersla á gott samstarf við erlendar löggæslustofnanir Ómar Smári segir að áhersla hafi verið lögð á gott samstarf við erlendar löggæslustofnanir og með því hafi verið komið í veg fyrir flutning á talsverðu magni fíkni- efna til landsins. Ómar Smári segir að rannsóknir fíkniefnamála hafi gengið greiðlega og hann sagði að nú mætti finna fyrir góðum stuðningi við fíkni- efnadeildina en umræða um hana hefði verið neikvæð um tíma. Hann sagði áhuga starfsmanna mikinn og fyrirheit og von um bætta starfsaðstöðu og samstarf við tolla- yfírvöld væri mönnum mikil hvatn- ing. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður Spyr um laxveiði- kostnað Vegagerðar og Rafmagnsveitu JÓHANNA Sigurðardóttir, þing- flokki jafnaðarmanna, hefur lagt fram á Alþingi tvær skriflegar fyr- irspurnir sem varða annars vegar rekstrarkostnað Vegagerðarinnar og hins vegar rekstrarkostnað Raf- magnsveitu ríkisins. Fyrirspumunum var dreift í gærkvöldi og eru þær í sex liðum, nánast samhljóða. Þar er m.a. spurt um laun, lífeyrisréttindi og önnur starfskjör stjómenda stofn- ananna, kostnað við utanlandsferð- ir, hvaða reglur gildi um bifreiða- hlunnindi stjómenda, risnu- og ferðakostnað þeirra og hvort farið hafi verið í laxveiðiferðir á vegum stofnananna. Jóhanna vill síðan nánari út- skýi-ingar á hugsanlegum lax- veiðiferðum. Hún vill vita hvernig árlegur kostnaður skiptist af þeim sl. 5 ár milli laxveiðileyfa og ann- arra útgjalda vegna ferðanna. Hve margar ferðir hafí verið farn- ar á ári hverju, hvert hafi verið farið, hverjir hafi verið þátttak- endur í slíkum ferðum og hvert hafí verið tilefni þeirra. „Hverjir taka ákvarðanir um ferðir stjórnenda til útlanda og laxveiðar, sé um þær að ræða?“ spyr hún að síðustu. Beðið um skrifleg svör ráðherra Fyrirspuminni um Vegagerðina er beint til Halldórs Blöndal sam- gönguráðherra en fyrirspuminni um Rafmagnsveituna er beint til Finns Ingólfssonar viðskiptaráð- herra. Óskar Jóhanna skiiflegra svara frá þeim. Dagskrárblað Morgunblaðsins í breyttri mynd í DAG fylgir Morgunblaðinu á ný sérblaðið Dagski-á, sem fjallar um dagskrá ljósvakamiðlanna hálfan mánuð í senn. Blaðið kom síðast út árið 1996 undir sama heiti, en hefur nú fengið nýtt útlit og annað brot, heft og skorið. Blaðið kemur út annan hvem miðvikudag með tveggja vikna dagskrá sjónvarps og útvarps frá fimmtudegi til miðvikudags. Jafnframt mun dagleg síða í Morgunblaðinu, ÚTVARP/- SJÓNVARP, fá nýtt útlit. [Sjá blaðsíðu 62.] Sérblað Morgunblaðsins, Dag- skrá, verður prentað í 75.000 ein- tökum og er útbreiddasta blað sinnar tegundar sem gefið er út á Islandi. Jafnframt því að fylgja Morgunblaðinu hálfsmánaðar- lega á miðvikudögum verður hægt að nálgast blaðið ókeypis á bensínstöðvum höfuðborgar- svæðisins. Aukin þjónusta við lesendur Morgunblaðið er með þessu að auka þjónustu við lesendur sína, itmar i hCuv.vi i | 0 ji FORSIÐA nýja blaðsins. enda hefur aðgangur þeirra að dagskrám ljósvakamiðlanna ver- ið hafður að leiðarljósi í þeirri vinnu við útlit og framsetningu efnis sem nú er að baki. Það er von Morgunblaðsins að lesendur taki vel þessu endurbætta sér- blaði og breyttu útliti á dagleg- um síðum í Morgunblaðinu um sama efni. | ► Mánudapir iS. oki. ^jUji -----— OPNA úr Dagskrá Morgunblaðsins. Um 7% meðaltalshækkun á gjaldskrá Dagvistar barna GJALDSKRA DAGVISTAR BARNA HÆKKAR Fullt gjald Forgangsgjald Námsmannagjald Klst. ádag Gjaldskrá er Gjaldskrá verður Breyting Gjaldskrá er Gjaldskrá verður Breyting Gjaldskrá er Gjaldskrá verður Breyting 4 7.600 8.400 9,52% 6.700 7.000 4,29% 6.800 7.200 5,56% 5,5 8.500 9.450 10,05% 7.000 7.400 5,41% 6.800 7.200 5,56% 5 12.100 13.100 7,63% 7.400 7.800 5,13% 7.400 7.800 5,13% 5,5 13.000 14.150 8,13% 7.700 8.200 6,10% 8.000 8.400 4,76% 6 14.000 15.200 7,98% 8.000 8.600 6,98% 8.800 9.200 4,35% 6,5 15.000 16.250 7,69% 8.400 9.000 6,67% 9.700 10.100 3,96% 8 18.750 19.400 3,35% 9.500 10.000 5,00% 13.500 14.700 8,16% 9 18.750 21.500 12,79% 9.500 11.000 13,64% 13.500 15.400 12,34% Meðaltal 8,38% A » • » • » 6,65% f t*f f t*f 6,23% Systkinaafsláttur hækkar úr 25% í 33% Ht*# lltl# Ht*# Hærri gjöld vegna launa- og vísitölubreytinga GJALDSKRÁ Dagvistar barna hækkar um næstu áramót um 7% að meðaltali og að sögn Kristínar Blöndal, formanns stjórnar Dag- vistar barna, er ástæða gjald- skrárhækkunarinnar fyrst og fremst sú hækkun sem orðið hefur á neysluvísitölu síðan gjaldskráin var síðast hækkuð, en það var í júlí 1996. Þá er einnig tekið tillit til væntanlegra 3-6% launahækk- ana. Kristín sagði í samtali við Morg- unblaðið að hækkun gjaldskrárinn- ar væri mun minni en vísitölu- Gjaldskráin hefur ekki hækkað síðan í júlí árið 1996 hækkunin hefði verið frá síðustu hækkun gjaldskrárinnar. ,JÞað er samþykkt íyrir því að endurskoða þessa gjaldskrá árlega en það hefur ekki verið gert síðan 1996 og auðvitað verðum við að reyna að láta hana fylgja verðlaginu. Þetta svarar þó ekki hækkuninni sem orðið hefur á neysluvísitölunni, og í rauninni var gjaldski-áin ekki hækkuð meira núna vegna þess að í fyrra tókst að ná mjög góðum ár- angri í spamaði í rekstri, þannig að við sjáum okkur nú fært að hækka þetta mun minna en sem nemur vísi- töluhækkuninni," sagði Kristín. Áætlað er að heildartekjuaukn- ing Dagvistar bama vegna gjald- skrárhækkunarinnar verði 50 milljónir króna á ári og sagði Kristín að þeir fjármunir fæm allir í rekstur leikskólanna til að mæta þeim verðlagshækkunum sem orð- ið hefðu. Ætlaði að borga með fölsuðum peningaseðli UNGUR drengur freistaði þess að borga með fölsuðum peningaseðli í Bónus-Vídeói í Mosfellsbæ í gær. Rétt fyrir klukkan 17 í gær hugð- ist ungur drengur borga fyrir vömr í versluninni og rétti fram seðil, sem í fyrstu virtist vera 2.000 króna seðill. Starfsfólk tók eftir því að seðillinn var ekki sem skyldi og spurði pilt hvort hann áttaði sig á því. Brást hann við með því að hlaupa á dyr og komst hann undan. --------------- Vinnuslys í Vest- mannaeyjum VINNUSLYS varð í Vestmannaeyj- um um klukkan 13 í gærdag þegar maður sem var að undirbúa málningu á skipi í slippnum féll m- stiga. Hann kvartaði yfir eymslum og var fluttur á heilsugæslustöð til rann- sóknar en að sögn lögreglu var ekki talið að meiðsli hans væm alvarleg. --------------- Bein lýsing á fþröttavef LANDSLEIK íslendinga og Rússa í Evrópukeppni landsliða verður lýst beint á íþróttavef Morgunblaðsins í kvöld. Sagt verður frá atburðum leiksins eftir því sem honum vindui' fram og myndir frá leiknum settar inn eftir því sem verkast vill. Slóð Iþróttavefjai- Morgunblaðsins er www.mbl.is/sport/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.