Morgunblaðið - 14.10.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 13
FRETTIR
*
Abendingar starfshóps um
fjölmiðlamál til biskups
Breytingum lokið í Árbæjarkirkju
OKTOBERTILBOÐ
Aætlun um
almannateng'sl á
erfíðleikatímum
í kirkjunni
MEÐAL ábendinga í skýrslu
starfshóps um upplýsinga- og fjöl-
miðlastefnu til biskups og kii'kju-
ráðs sem lögð var fram á kirkju-
þingi í gær er að gerð verði áætlun
um almannatengsl á erfiðleikatím-
um sem farið sé eftir þegar sérstök
vandamál koma upp innan þjóð-
kirkjunnar.
I tengslum við skýrslu kirkju-
ráðs um störf þess frá síðasta
kirkjuþingi hafa verið lagðar fram
ýmsar skýrslur starfshópa og
nefnda um framgang málefna sem
komu til umræðu á síðasta kirkju-
þingi. Er fyrrgreind skýrsla ein
þeirra en á fundi kirkjuráðs í febr-
úar 1998 var samþykkt að Innform
ehf., fyrirtæki um almannatengsl
og upplýsingastarfsemi, myndi
stýra starfshópi sem skoða ætti
stöðuna í upplýsinga- og fjölmiðl-
unarmálum kirkjunnar.
Varðandi viðbrögð kirkjunnar á
erfiðleikatímum er í skýrslunni
bent á að viðbragðsflýtir skipti
máli þar sem skyndilega geti opn-
ast sóknarfæri og rétt viðbrögð
eigi að geta komið í veg fyrir að lít-
il mál séu blásin út í fjölmiðlum.
Einnig er lagt til að stefna í upp-
lýsinga- og fjölmiðlastarfi verði
hluti af heildarstefnumótun kirkju-
ráðs og biskups og náð verði víð-
tækri samstöðu um það hvað þrjú
til fjögur aðalmálefni kirkjustjóm-
in setji á dagskrá almennrar um-
ræðu. Kirkjan útnefni helstu tals-
menn sína í viðkomandi málum og
þeir sjái um að túlka þau gagnvart
almenningi og standa fyrir þjálfun
þjóðkirkjufólks til að halda á þess-
um málum.
Þá leggur starfshópm-inn til að
biskup fái sérstaka fjárveitingu til
að sinna upplýsingastarfi inn á við í
þjóðkirkjunni og gagnvart almenn-
ingi. Lagt er einnig til að Biskups-
stofa haldi fréttabréfi úti á Netinu
og verði það auk þess prentað og
dreift til starfsfólks kirkjunnar og
virks safnaðarfólks. Er Víðförli,
fréttabréf Biskupsstofu, nýlega
komið út í því formi en ritstjóri
þess er sr. Örn Bárður Jónsson,
fræðslustjóri kirkjunnar.
Fyrsta umræða á kirkjuþingi um drög
að fjölmörgum starfsreglum
Frekari umræða
í nefndum
DRÖG að starfsreglum sem setja
þarf um fjölmörg atriði í starfi
kirkjunnar vegna nýrrar lagasetn-
ingar voru til umræðu á kirkjuþingi
í gær. Má sem dæmi nefna reglur
um kjör til kirkjuþings og þing-
sköp, reglur um val á presti, um
stöðu og starf sóknarnefnda og
fleiri.
Sextán drög að starfsreglum voru
á dagskrá í gær og eftir fyrstu um-
ræðu á kirkjuþingi er þeim vísað 1
nefndir. Mál úr nefndum verða síð-
an aftur rædd á fundum kirkjuþings
og er búist við að fyrstu málin komi
aftur á dagskrá þar á morgun eða
fóstudag.
Umræðan í gær hófst á drögum
að starfsreglum um kjör til kirkju-
þings og þingsköp, síðan var rætt
um stöðu og starfshætti sóknar-
nefnda, um skiptingu starfa presta í
prestaköllum þar sem fleíri en einn
prestur er og um reglur um val á
presti.
Þá átti í gær að fjalla um drög að
starfsreglum um starfsskyldur
presta, um sérþjónustupresta,
djákna, prófasta, héraðspresta og á
dagskrá var einnig umræða um
starfsreglur leikamannastefnu, um
skipan sókna, prestakalla og pró-
fastsdæma, um þjálfun prestsefna
og fleiri reglur.
Séra Þorvaldur Karl Helgason
biskupsritari segir að mikil umræða
um öll þessi drög hafi farið fram úti
í héruðum og fyrir liggi kringum 30
umsagnir frá ýmsum aðilum er mál-
in snerta. Þegar drögin koma aftur
til umræðu á kirkjuþingi eru þau að
lokum borin upp til samþykktar.
, , Morgunblaðið/Golli
RURI, Mannfreð Vilhjálmsson arkitekt, Jdhann Björnsson formaður sóknarnefndar og sr. Guðmundur Þor-
steinsson sóknarprestur
Nýtt glerlistaverk helgað
3ja sæta sófi
verð kr. 169.800 stgr.
3ja sæta sófi + 2 stólar
verð kr. 359.000 stgr.
Opið á laugardögum
Raðgreiðslur til alltaðlöraán.
LOKIÐ er gagngerum breyt-
ingum í Árbæjarkirkju, sem
staðið hafa frá því í vor, og var
sérstök hátiðarmessa sl. sunnu-
dag af því tilefni. Hr. Karl Sig-
urbjörnsson biskup helgaði nýtt
glerlistaverk, Ljósstafi eftir
Rúrí, við athöfnina.
Árbæjarkirkja átti tíu ára af-
mæli á síðasta ári og ákváðu
forráðamenn safnaðarins að
láta gera gagngerar breytingar
á kirkjunni. Verkið hdfst í maí
sl. en helstu breytingar eru að
söngloft kirkjunnar, þar sem
orgel og kór hafa staðið, var
tekið niður og op gert á austur-
vegg kirkjunnar og hvelfing
mynduð fyrir orgel og kór.
Kirkjugestir munu því eftirleið-
is sjá bæði kór og orgel við at-
hafnir. Að sögn Jóhanns
Björnssonar, formanns sóknar-
nefndar, er von á nýju pípuorg-
eli í kirkjuna, sem Björgvin
Tómasson er að smíða, og verð-
ur það væntanlega sett upp og
vígt á næsta ári.
Færanlegt skilrúm aftast í
kirkjunni hefur verið fært enn
aftar og kirkjubekkjum fjölgað.
Sjálft altarið hefur verið hækk-
að og á vesturvegg uppi við alt-
arið er kominn gluggi sem
hleypir inn birtu. Mannfreð Vil-
hjálmsson arkitekt hannaði
kirkjuna og hefur hann einnig
séð um breytingarnar. „Kirkjan
átti upphaflega að vera svona
eins og hún er nú, með kórinn
og orgelið í hvelfíngu úr aust-
urvegg,“ sagði hann. „Ég er því
mjög sáttur við þessa breyt-
ingu.“
Listaverk úr
kristalgleri
Listaverkið Ljósstafir er
unnið úr kristalgleri, en krist-
algler er tærara og ljósbrotið
skýrara heldur en þegar um
venjulegt gler er að ræða.
Verkið er tæpir 10 metrar og
sett saman úr 52 mismunandi
glereiningum, sem eru um sjö
cm á þykkt og vegur hver 15
kg. Að sögn Rúríar eru fá gler-
verkstæði sem ráða við að
steypa kristalgler í þessum
stærðum en það var gert hjá
Lindshammar í Svíþjóð. Glerið
er fölgrænt á lit og formað
þannig að ljósbrot myndast inni
í einingunum. Liturinn var val-
inn með hliðsjón af grænum
tóni í steinflísum á gólfinu.
Glerið er fest með festingum úr
ryðfríu stáli framan við gafl-
vegg kirkjunnar ofan við altar-
ið og sá Sigurðúr Sigurbergs-
son vélsmiður um uppsetningu
verksins en hann smiðaði fest-
ingarnar.
„Þegar maður er beðinn um
að vinna verk fyrir kirkju þá
leitar maður ósjálfrátt til biblí-
unnar og þá upphafsins," sagði
Rúrí. „Tærleiki og ljós hafa
táknræna merkingu og er þá
vísað til hvors tveggja náttúr-
unnar og kristinnar trúar. Ég
tileinka verkið samferðamönn-
um mínum, lífs og liðnum.“
CHATEUD’AX
Teg: 513
NÝTT HÓTEL
Á BESTA
STAÐ í MIÐBORGINNI
Persónuleg þjónusta á fyrsta flokks hóteli.
Afar þægileg og vistleg herbergi.
Fyrir utan eriðandi mannlífið - veitingastaðir,
kaffihús, verslanir og leikhús.
Verðfrá 2.700 á mann i 2ja manna herhergi.
Morgunverðarhlaðborð innifalið.
Frir drykkur á veitingahúsinu Vegamótum .
Sími 511 6060 Fax 511 6070 guesthouse&eyjar.is