Morgunblaðið - 14.10.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.10.1998, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 ERLENT MORGUNB L AÐIÐ Borís Jeltsín verður lrklega frá vinnu út vikuna vegna veikinda Rússnesk dagblöð telja ástand Jeltsíns alvarlegt Moskvu. Reuters. Efast um að hann geti gegnt forseta- embættinu út kjörtímabilið TALSMAÐUR Borís Jeltsíns, for- seta Rússlands, sagði í gær að for- setinn myndi að öllum líkindum verða frá vinnu og dvelja í sveitabú- stað sínum nálægt Moskvu út vik- una vegna veikinda. Læknar Jeltsíns segja að hann hafi fengið barka- og berkjubólgu en rússneskir fjölmiðlar veltu því fyrir sér hvort veikindin væru alvarlegri og efuðust um að hann gæti gegnt forsetaemb- ættinu út kjörtímabilið. Nokkur dagblöð höfðu eftir ónafngreindum heimildarmönnum í Kreml að ástand forsetans væri verra en emb- ættismenn hefðu viðurkennt. Jeltsín varð á mánudag að flýta heimfór sinni frá Kasakstan, þar sem hann var í fyrstu utanlandsfór sinni í hálft ár. Dagblaðið Kommer- sant sagði að forsetinn hefði sýnt ýmis merki andlegrar ellihrörnunar í ferðinni til Kasakstans og Usbekís- tans. „Þegar hann var í Ösbekístan var ljóst að forsetinn áttaði sig ekki á því að hann var ekki í Moskvu," sagði blaðið. Kommersant sagði að ferðin til Mið-Asíulandanna hefði jafnvel ver- ið meira klúður en heimsókn forset- ans til Svíþjóðar í desember, þegar hann kom öllum á óvart með því að boða stórfellda fækkun rússneskra hermanna í Eystrasaltsríkjunum. Yfirlýsingin kom jafnvel aðstoðar- mönnum forsetans í opna skjöldu og þeir urðu að leiðrétta hana. „Þetta var miklu verra en í Sví- þjóð,“ hafði Kommersant eftir ónafngi'eindum embættismanni í Kreml. „Guði sé lof að blaðamenn- irnir heyrðu ekkert.“ „Ekki aðeins kvef“ Jeltsín missti næstum fótanna við móttökuathöfn í Úsbekístan og einn af lífvörðum hans varð að styðja hann. Forsetinn fékk einnig hóstakast þegar hann flutti ávarp eftir að hafa undirritað samstarfs- samninga Rússlands og Úsbekís- tans. Læknir Jeltsíns sagði að hann hefði fengið barka- og berkjubólgu, sjúkdóm af völdum bólgu í slímhúð lungnaberkna. Veikindin einkennast m.a. af slímhósta og verk fyrir brjósti. Dagblaðið Izvestia kvaðst hafa heimildir fyrir því að forsetinn þjáð- ist „ekki aðeins af kvefi“ en greindi ekki frá því hvað fleira væri talið ama að honum. Blaðið Sevodnja sagði að slæm frammistaða Jeltsíns í ferðinni gæti orðið til þess að kommúnistar á þinginu létu verða af hótun sinni um að hefja málshöfðun á hendur for- setanum til embættismissis. Zjúganov hvetur til mótmæla Talsmaður Jeltsíns, Dmítrí Jakúshkín, á í mestu erfiðleikum með að sannfæra Rússa um að ekk- ert alvarlegt ami að forsetanum, enda hafa embættismenn oft reynt að gera lítið úr alvarlegum veikind- um leiðtoganna í Kreml og lýst þeim sem venjulegu kvefi. Síðustu mánuðina hefur Jeltsín lít- ið látið að sér kveða í stjómmálunum og lengst af dvalið í sveitabústað sín- um nálægt Moskvu. „Hann hefur átt erfitt með að vinna í tvo eða þrjá tíma á dag nú þegar,“ sagði Gennadí Zjúganov, leiðtogi rússneskra komm- únista, á mánudag. Hann hvatti Rússa til að efna aftur til götumót- mæla í næsta mánuði til að krefjast þess að Jeltsín segði af sér yrði hann ekki við kröfunni um að launaskuldir ríkisins yrðu greiddar að fullu og stjórnin breytti efnahagsstefnu sinni. Neyðist forsetinn til að láta af embætti vegna veikinda á forsætis- ráðherrann að gegna skyldustörfum hans í þrjá mánuði þar til nýr forseti verður kjörinn. Ólíklegt þykir að Jevgení Prímakov forsætisráðherra sækist eftir því að verða kjörinn for- seti en á meðal líklegustu forseta- efnanna eru Júrí Lúzhkov, borgar- stjóri Moskvu, og Alexander Lebed, héraðsstjóri Krasnojarsk í Síberíu. Ekkert lát á tjármagnsflóttanum Jeltsín hefur oft átt við veikindi að stríða síðustu árin og gekkst und- ir hjartaskurðaðgerð fyrir tveimur árum. Veikindi hans höfðu ekki mik- il áhrif á fjármálamarkaðina á mánudag þótt þau vektu efasemdir um að Jeltsín væri fær um að gegna forsetaembættinu, einkum í ljósi efnahagskreppunnar í Rússlandi. Prímakov sagði í gær að fjár- magnsflóttinn úr landinu næmi nú andvirði 100-140 milljarða króna á mánuði en forsætisráðherranum hefur ekki enn tekist að ganga frá áætlun um hvernig bregðast eigi við vandanum. Einn af aðstoðarforsætisráðhen-- um Prímakovs, kommúnistinn Júrí Masljúkov, sagði að stjórnin myndi ekki leggja fram frumvarp til auka- fjárlaga fyrir síðasta fjórðung ársins eins og gert hafði verið ráð fyrir. Hann sagði að Rússar stæðu frammi fyrir verðbólguþrýstingi - þ.e. að seðlar yrðu prentaðir - ef Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn veitti Rússlandi ekki fleiri Ián. Reuters Nóbelsverðlaun í eðlisfræði og efnafræði kynnt Verðlaun fyrir rannsóknir á eðlisfræði hálfleiðara Arekstur í Mexíkó FIMM fórust og um 140 særðust þegar flutningalest rakst á far- þegalest í Rio Blanco í Veracruz- ríki í austurhluta Mexíkó. Leitaði starfsfólk Rauða krossins fórnar- lamba slyssins í flökum lestanna í gærmorgun en áreksturinn olli því að fjöldi vagna fór út af sporinu. Grikkland Kjósendur mótmæla efnahags- stefnunni Aþenu. Reuters. HÆGRIMENN báru sigurorð af vinstrimönnum í borgarstjórakosn- ingum í Grikklandi á sunnudag og úrslitin voru túlkuð sem mótmæli kjósenda við efnahagsaðgerðir ríkis- stjórnar sósíalista. Þegai- 70% atkvæðanna höfðu ver- ið talin í Aþenu var borgarstjórinn, hægrimaðurinn Dimitris Avra- mopoulos, með metfylgi, 57,2% at- kvæðanna. Fylgi frambjóðanda sósí- alista var aðeins 16,5%. Frambjóðendur hægrimanna í Píreus og Þessalóníku fengu rúm 40% atkvæðanna og líklegt er að þeir fari með sigur af hólmi á sunnudag- inn kemur þegar kosið verður milli tveggja efstu frambjóðendanna í borgum þar sem enginn fékk meiri- hluta atkvæða í kosningunum á sunnudag. Grísk dagblöð sögðu að úrslitin væru augljóslega til marks um óá- nægju kjósenda með efnahagsað- gerðir stjómarinnar, sem hefur framfylgt strangiú aðhaldsstefnu í fjármálum með það að markmiði að minnka fjárlagahallann og verðbólg- una. Með aðgerðunum vill stjómin gera Grikklandi kleift að ganga í Efnahags- og myntbandalag Evrópu (EMU) í janúar 2001. Stokkhóimi. Reuters. BANDARÍKJAMENNIRNIR Ro- bert Laughlin og Daniel Tsui og Þjóðverjinn Horst Stoermer deila með sér Nóbelsverðlaununum í eðlisfræði árið 1998 og Austurrík- ismaðurinn Walter Kohn og Bret- inn John Pople deila verðlaunun- um í efnafræði. Greindi sænska vísindaakademían frá þessu í gær- morgun. Sagði í tilkynningu henn- ar að þeir Laughlin, Tsui og Stoermer hlytu verðlaunin fyrir rannsóknir tengdum eðlisfræði hálfleiðara. Kohn fær hins vegar efnafræðiverðlaunin fyrir að reikna út lögun sameinda út frá nákvæmri rafeindaskipan og Pople fyrir að þróa reikniaðferðir í skammtaefnafræði. Stoermer fæddist árið 1949 í Frankfurt í Þýskalandi og er pró- fessor við Columbia-háskóla í New York. Tsui fæddist árið 1939 í Hen- an í Kína en er nú bandarískur rík- isborgari og prófessor við Pr- ineeton-háskóla. Laughlin, sem er fæddur 1950, gegnir prófessors- stöðu við Stanford-háskóla. Kohn fæddist 1923 og starfar við eðlisfræðideild Kaliforníuháskóla í Santa Barbara en Pople, sem fædd- ist 1925, sinnir rannsóknum við efnafræðideild Northwestem-há- skólans í Chicago. Hafliði P. Gíslason, prófessor við Háskóla íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið að nú væri í annað skipti veitt Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á eðlisfræði hálfleiðara en að í ár fengju þeir Stoermer, Hui og Laughlin verðlaunin fyrir víðari eða sígildari útskýringu á uppgötv- un Klaus Von Klitzing, sem hlaut Nóbelsverðlaunin 1985, á þessu sviði. Mun Viðar Guðmundsson, sem starfar á eðlisfræðistofu Raun- vísindastofnunar, hafa starfað náið með Von Klitzing á síðustu árum. Japanir hyggjast biðjast af- sökunar MASAHIKO Komura, utanrík- isráðherra Japans, sagði í gær að Japanir myndu að öllum lík- indum biðja Kínverja formlega afsökunar á framferði sínu í heimsstyrjöldinni síðari, þegar forseti Kína, Jiang Zemin, kæmi í opinbera heimsókn til Japans síðar á þessu ári. Keizo Obuchi, forsætisráðherra Japans, lagði fram formlega af- sökunarbeiðni til Suður-Kóreu- búa í liðinni viku. Utanríkis- ráðuneyti Kína gaf út þá yfir- lýsingu á mánudag að það æskti þess að þróast gætu náin tengsl milli Kínverja og Japana, en fyrst þyrftu Japan- ir að „sjá söguna í réttu ljósi“. Thierse verð- ur þingforseti LEIÐTOGAR Jafnaðar- mannaflokksins SPD á þýska þinginu til- nefndu í gær Wolfgang Thierse í embætti þing- forseta. Thi- erse er frá Austur- Þýskalandi og er kunnur fyr- ir baráttu sína í þágu borgaralegra réttinda. Gerhard Schröder, kanslara- efni SPD, vonast til að stjórn- armyndunarviðræðum við Græningja verði lokið er þing kemur saman á mánudag í næstu viku. Sehyman vill meiri áhrif VINSTRIFLOKKURINN í Svíþjóð velgdi í gær ríkis- stjórninni undir uggum þegar flokksformaðurinn Gudrun Schyman lýsti yfir óánægju með að flokkurinn hefði ekki fengið að hafa nægileg áhrif á gerð fjárlaga fyrir næsta ár. Minnihlutastjórn jafnaðar- manna treystir á stuðning Vinstriílokksins til að halda velli. Menem hygg- ur á framboð árið 2003 CARLOS Menem, forseti Ar- gentínu, sagðist í gær hafa í hyggju að bjóða sig fram í for- setakosning- unum árið 2003. Yfir- standandi kjörtímabili hans lýkur á næsta ári, en samkvæmt lögum getur hann ekki boðið sig fram þá, þar sem hann hefur setið í embætti tvö kjörtímabil sam- fleytt. Menem kvaðst viss um að Perónistaflokkur hans færi með sigur af hólmi í kosning- unum á næsta ári, en orðróm- ur er á kreiki um að bróðir hans, Eduardo Menem, verði þá í framboði. Carlos Menem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.