Morgunblaðið - 14.10.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.10.1998, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Uppsagnir vegna fyrsta taps Merrills í tæp níu ár New York. Reuters. MERRILL Lynch and Co. Inc., stærsta verðbréfafyrirtæki heims, hefur skýrt frá fyrsta ársfjórð- ungstapi sínu í tæp níu ár og til- kynnt að 3.400 starfsmönnum, eða um 5% starfsliðsins í heiminum, verði sagt upp störfum. Merrill kveðst hafa tapað 164 milljónum dollara, eða 42 sentum á hlutabréf, miðað við hagnað upp á 502 milljónir dollara, eða 1,24 doll- ara á hlutabréf, á sama ársfjórð- ungi í fyrra. Tapið nú felur í sér 288 milljóna dollara uppsagnar- kostnað. Að því gjaldi frátöldu hagnaðist Merrill um 24 milljónir dollara, eða 28 sent á hlutabréf. Sérfræðingar höfðu búizt við 45 senta arði á hlutabréf og það mat hafði verið lækkað vegna versn- andi útlits í verðbréfageiranum. Síðast varð Merrill fyrir tapi á fjórða ársfjórðungi 1989 vegna kostnaðar við endurskipulagningu. „Merrill hafði gumað af því að geta dafnað vel í nánast hvaða markaðsumhverfí sem væri, en það gerðist ekki á þessum árs- fjórðungi," sagði óháður verð- bréfasérfræðingur Financial Service Analytics, Michael Flanag- an 3.400 starfsmönnum sagt upp Eins og fleiri bandarísk verð- bréfafyrirtæki tilkynnti Merrill í síðasta mánuði að tap á verðandi mörkuðum mundi koma niður á hagnaði á þriðja ársfjórðungi og skerða hann um 135 milljónir doll- ara. Merrill sagði þá að vegna nið- ursveiflunnar yrði fyrirtækið að skera niður tiltekinn kostnað og það var talið tákna uppsagnir. Merrill segir nú að fækka verði 65.000 starfsmönnum í heiminum um 3.400. Þar að auki verði sagt upp um 900 ráðgjöfum, sem fást að- allega við tæknileg verkefni. Verð hlutabréfa í Merrill Lynch hækkaði um 81 sent í 44,69 dollara árdegis í kauphöllinni í New York. Talsmaður Merrils segir að upp- sögnunum verði dreift jafnt um heiminn, en neitaði að tiltaka hve mörgum starfsmönnum í Banda- ríkjunum af 47.000 yrði sagt upp, en 5% fækkun táknar 2.350 upp- sagnir vestra. Hann sagði að Merrill mundi skerá niður 400 störf af 8.000 í Evr- ópu, Miðausturlöndum og Afríku og að flestum yrði sagt upp í London. Merrill gerir ráð fyrir 500 millj- óna dollara sparnaði með þessum ráðstöfunum. Niðurskurðurinn kemur í kjölfar svipaðra aðgerða annarra fyrirtækja á heimsmæli- kvarða, þar á meðal Citigroup-fyr- irtækisins Salomon Smith Barney og ING-Barings, fjárfestingar- bankaamis hollenzku bankasam- steypunnar Intemationale Neder- landen Groep NV. Uppsagnirnar era í hróplegri mótsögn við ástandið fyrir þremur áram þegar verðbréfafyrirtæki skiluðu methagnaði og réðu fjöl- marga til starfa vegna grósku á bandarískum verðbréfamarkaði. í verðbréfageiranum störfuðu 663.400 manns í Bandaríkjunum í ágúst, sem var 10% aukning frá því ári áður. AÐALSTÖÐVAR Merrill Lynch-verðbréfafyrirtækisins í New York. Fyrirtækið hyggst nú segja upp 3.400 starfsmönnum eða 5% af starfs- liði sínu vegna fyrsta ársfjóröungstaps í níu ár. GM tapar 809 millj. dollara eftir verkföll Detroit. Reuters. GENERAL Motors bílafyrirtækið tapaði 809 milljónum dollara á þriðja ársfjórðungi, aðallega vegna 1,2 milljarða dollara taps vegna tveggja verkfalla í Michigan, sem lamaði stai'fsemina í mestallt sumar. A sama tíma í fyn'a skilaði fyrir- tækið 973 milljóna dollara hagnaði. Tap á hlutabréf nam 1,28 dollurum, en neikvæð áhrif verkfallanna ollu 1,89 dollara tapi á hlutabréf. Á sama tíma í fyrra nam arður á hlutabréf 1,29 dolluram. ------------------ Granada selur BSkyB hlut fyrir 429 millj. punda London. Reuters. GRANADA-fyrirtækið í Bretlandi hefur selt 6,5% hlut í gervihnatta- sjónvai'pinu BSkyB verðbréfafyrir- tækinu BT Alex.Brown fyrir 429 milljónir punda. Verðbréfafyrirtækið tilkynnti strax að það mundi selja fjárfestum 111.478.527 hlutabréf fyi'h’ 404 pens á hlutabréf. Samkvæmt markaðsheimildum voru hlutabréfin seld BT Alex.- Brown á 400 pens á bréf. Granada, sem er eigandi ýmissa brezkra svæðastöðva, á 50% í hinni nýju ONdigital jarðstöðvarþjón- ustu, sem á að taka til starfa í næsta mánuði. Granada mun hins vegar halda óbeinum 4,3% eignarhlut í BSkyB, þar sem fyriríækið er einn eigenda BSB Holdings Ltd. Útboð hlutabréfa Búnaðarbankans hafíð ÚTBOÐ hlutabréfa Búnaðar- banka íslands til starfsmanna er hafíð. Starfsmönnum er gefínn kostur á að kaupa bréf á genginu 1,26. Hlutafé að nafnvirði 600 millj- ónh’ króna verður boðið út í þess- um mánuði og næsta, hluti til starfsmanna en hluti í almennu útboði. Mat á gengi hlutabréfa sem boðin verða almenningi til kaups stendur nú yfir og lýkur því starfi eftir 3-4 vikur. Þegar haft var samband við Búnaðarbankann við upphaf út- boðsins vildi talsmaður bankans ekkert tjá sig um hvernig salan hefði farið af stað, né almennt um áhuga starfsmanna á bréfun- um. SAMTÖK FJÁRFESTA ALMENNRA HLUTABRÉFA- OG SPARIFJÁREIGENDA MÁLÞING 1998 Fundarstaður: Blái saiur Verzlunarskóla íslands Fundartími: Fimmtudagur 15. október kl. 17.00 Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins. Þorvarður Elíasson flytur skýrslu stjórnar Samtaka fjárfesta. 2. Staða og stefna íslensks verðbréfamarkaðar á óvissum tímum. Sigurður B. Stefánsson, framkvœmdastjóri VÍB. 3. Verslað með verðbréf á internetinu. Stanley Pálsson, verkfrœðingur sýnir á hvíta tjaldinu hvemig hann kaupir og selur. 4. Spákaupmennska, áhætta og hagnaðarvon í afleiðuviðskiptum. Agnar Hansson, staðgengill framkvœmdastjóra FBA og lektor í HÍ. 5. Aðalfundarlok og almennar umræður . Að loknum aðalfundi er félagsmönnum boðið að taka þátt í fundi nýkjörinnar stjórnar. Nýir félagsmenn eru sérstaklega boðnir velkomnir og eru allir áhugamenn um fjármál hvattir til að ganga í samtökin. Insead og London Business School vekja helzt áhuga INSEAD nálægt París, London Business School og International Institute for Management Develop- ment í Lausanne í Sviss era þeir þrír verzlunarskólar Evrópu, sem era taldir veita beztu menntun fyrir meistarapróf í viðskiptafræði, MBA. Þetta er niðurstaða skoðana- könnunar mánaðarrits þýzkra há- skólastúdenta, Audimax, og Cox Communications GmbH, ráðgjafar- stofnunar í Idar-Oberstein, vestur af Frankfurí, að sögn Evrópuút- gáfu bandaríska viðskiptablaðsins Wall Street Journal. Á það er bent að kannanir sem þessar séu erfíðar. Um 300 skólar í álfunni bjóða upp á nám fyrir MBA-gráðu og flestir þeirra eru innan við 10 ára gamlir. Skólarnh’ þurfa ekki allir að fullnægja til- teknum gæðakröfum eins og í Bandaríkjunum og námskeiðin era mismunandi. Á sumum fer kennsla fram á ensku, á öðram á tungu við- komandi lands. Sum námskeiðin standa í eitt ár, önnur í tvö ár eða lengur. Rotterdam-skóli hrapaði Samkvæmt fyrri könnun Cox, í ágúst 1989, var Rotterdam School of Management í efsta sæti. Sá skóii er í tengslum við framhalds- viðskiptadeild Erasmus-háskóla í Hollandi og nýtur mikils álits kaup- sýslumanna í álfunni. í könnuninni að þessu sinni hrap- aði Rotterdamskólinn í 13. sæti. Áð sögn Cox-stofnunarinnar stafar það af því að skólinn býður upp á 18 mánaða MBA nám, en þýzkir stúd- entar vilja heldur eins árs nám, sem er í boði hjá IMD í Lausanne og Insead. IESE, annar virtur skóli við Na- Beztu MBA-skólar í Evrópu 1. Inseas Frakkiandi 2. London Business School Bretlandi 3. IMD Sviss 4. Manchester Business School Bretlandi 5. Instituto de Empresa Spáni 6. GSBA Sviss 7. Cranfield School of Management Bretlandi 8. IESE Spáni 9. Nijenrode háskóli Hollandi 10. WHU Koblenz Þýzkalandi 11. Henley Management College Bretlandi 12. SDA Bocconi Ítalíu 13. Rotterdam School of Management Hollandi 14. Wirtschafts- universitaet Austurríki 15. ISA Frakklandi 16. Groupe ESC Lyon Frakklandi 17. Askridge Manage- ment College Bretlandi. 18. Cambridge-háskóli Bretlandi 19. Esade Spáni 20. Hagfræöiskólinn í Helsinki Finnlandi varra-háskóla í Barcelona og Ma- drid, varð að gjalda þess að hann býður upp á 21 mánaðar námskeið. Hins vegar stökk London Business School úr 10. sæti í annað sæti, þótt námskeið þess skóla standi í tvö ár. Nánari kynni af námsefninu vóg upp á móti lengd námskeiðs- ins. Þrír þýzkir skólar á listanum bjóða upp á MBA-nám ásamt bandarískum háskólum og geta haldið því fram að slíkt nám gefi kost á meiri fjölbreytni. GSBA- skólinn í Zúrich hefur samvinnu við State University of New York í Al- bany; WHU í Koblenz við Nort- hwestern University í Chicago og Wirtschaftsuniversitaet í Vín við University og South Carolina Margur þeirra skóla sem komust á blað eru kunnir fyrir sérsvið eða nemendur. London Business School er kunnur fyrir fjármála- fræði, en IMD í Sviss býður nám fyrir úrvalsnemendur, um 80 stúd- entar á námskeiðum skólans eru nokkuð eldri en gengur og gerist og stefna á framkvæmdastjórastöður hjá fyi-irtækjum. Imstead-skólinn er hins vegar kunnur fyrir að vera æfíngarskóli fólks nálægt þrítugu sem stefnir að því að starfa að stjórnunarráðgjöf, þótt margir fyrrverandi nemendur ráði sig í þjónustu fyrirtækja síðar á starfs- ferli sínum. Efsti spænski skólinn á listanum, Instituto de Empresa, skipar fímmta sæti og er einkum talinn henta þeim hyggja á verktakastörf. Manchester Business School við Manchestewr-háskóla á Englandi hafnaði í fjórða sæti og þaðan koma margir framkvæmdastjórar meðal- stórra fyrirtækja, sem Cox telur samrýmast gamalli hefð á Manchester-svæðinu og í Þýzka- landi. Tímaritið Audimax, sem stóð að könnuninni ásamt Cox Commun- ications, kemur út í 400.000 ein- tökum á mánuði og eru lesendur þess þýzkir stúdentar. Skoðana- könnunin fór þannig fram að 201 lesandi svaraði spurningalista. Þátttakendurnir voru aðallega stúdentar sem lesa undir MBA- próf og voru svör þeirra liður í umsóknum um eftírsótt lærlinga- störf hjá Porsche. Svörin voru síð- an borin saman við upplýsingar sem Cox Communications aflaði frá skólunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.