Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sig. Fannar
NÝSVEINAR í húsasmíði f.v.: Björn Þór Gunnarsson, Sveinn Gíslason, Gunnlaugur Sigurðsson, Birkir Ar-
mannsson, Runólfur Sturluson, Sigurður Guðmundsson, Magnús Kristjánsson, Björn Magnússon, Axel Þór
Gissurarson, Stefán Gunnarsson, Sveinn Skorri Skarphéðinsson, Brynjar örn Sveinsson og Hákon Bjarnason.
Nýsveinar í húsasmíði útskrifast
Selfossi -14 sveinar í húsasmíði
útskrifuðust með sveinsbréf
sunnudaginn 4. október. sl.
SUNNIÐN hélt hóf til heiðurs
nýsveinunum í nýjum salarkynn-
um að Austurvegi 56 á Selfossi.
Sigmundur Ámundason prófa-
meistari flutti stutt ávarp um
iðnnámið og afhenti nýsveinum
skírteini. Ármann Ægir Magnús-
son, formaður SUNNIÐNAR,
hélt ávarp og minntist hann m.a.
á háa slysatíðni í byggingariðn-
aðinum og hvatti hann alla ný-
sveina til að fara varlega, gæta
fyllsta öryggis og nota allan
þann öryggisbúnað sem til boða
stæði.
Finnbjörn A. Hermannsson,
formaður Samiðnar, hvatti ný-
sveina til þess að kynna sér ný-
gerðan samning við mennta-
málaráðuneytið vegna umsýslu
sveinsbréfa og námsamninga í
bygginga- og mannvirkjageiran-
um og afla sér stöðugt nýrrar
þekkingar. Þá fluttu Sigurður
Sigursveinsson skólameistari og
Árni Erlingsson fagkennari
hvatningarorð og óskir til ný-
sveinanna og þökkuðu
SUNNIÐN fyrir að sýna iðn-
greinunum virðingu með því að
halda hefðbundin hóf við út-
skrift og afhendingu sveins-
bréfa.
Sauðfjárslátrun á Blönduósi
Stefnir í 20%
meiri slátrun
Blönduósi - Sauðfjárslátrun hjá
sláturhúsi Sölufélags A-Húnvetn-
inga (SAH) er langt komin og
stefnir í 20% aukningu frá fyi-ra ári.
í fyrra var slátrað 26.344 kindum
en áætlanir gera ráð fyrir að um
32.000 fjár verði slátrað á þessu
hausti. Meðalþyngd dilka þegar
slátrað hafði verið 23.600 lömbum
sl. föstudag var 14,73 kg og er það
240 grömmum minna en var sl.
haust.
Ástæður þessarar aukningar slát-
urfjár eru þær helstar að sauðfé a-
húnvetnskra bænda fer aftur fjölg-
andi eftir riðuniðm-skurð og mark-
aðssvæði sláturhúss SAH fer
stækkandi að sögn Ricardos Villa-
lobos hjá SAH. Hann sagði að í
haust hefði verið slátrað fé austan
úr Skagafirði og vestan úr ísafjarð-
ardjúpi. Að sögn Ricardos voru á
ferðinni fyrir helgina matsmenn frá
EB til að taka út sláturhúsið með
tilliti til útflutnings á kjöti til Evr-
ópubandalagslanda og er niður-
stöðu af ferð þeirra ekki að vænta
fyrr en eftir um það bil tvo mánuði.
Ricardo sagði að vel hefði gengið
að manna sláturhúsið, slátrun hefði
gengið mjög vel og afköst við slátr-
un aukist á milli ára.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
FLEIRI kindum verður slátrað í sláturhúsi SAH á Biönduósi en dilk-
ar eru ögn léttari í ár en í fyrra.
Byggt við Grunn-
skóla Tálknafjarðar
Tálknafirði - Við upphaf
kennslu í Grunnskóla
Tálknafjarðar í haust
voru teknar í notkun
tvær nýjar skólastofur.
Unnið hefur verið að
byggingu þeirra í sumar.
Það voru starfsmenn
Trésmiðjunnar Eikar
ehf. sem sáu um bygg-
ingaframkvæmdir, en
einnig komu að verkinu
starfsmenn Vélsmiðj-
unnar Skanda, Ragnar
J. Jónsson vinnuvéla-
stjómandi, Karl Þór
Þórisson rafvirkjameist-
ari og Daði Halldórsson
málarameistari.
Viðbyggingin er hin
glæsilegasta í alla staði og bætir til
muna aðstöðu starfsfólks og nemenda
í skólanum. Á síðasta ári var byggt
nýtt anddyri við skólann og vinnuað-
staða kennara endurbætt verulega,
settar upp nýjar innréttingar keypt
húsgögn á kennarastofu o.fl.
^NOHA
Morgunblaðið/Finnur Pétursson
STARFSMENN O.V. ásamt Ragnari Jóns-
syni vinna að uppsetningu götulýsingar.
frá Noregi
Fáanlegar meö og án skáps
Heildsöludreifing:
—.. Smiðjuvegi 11.Kópavogi
TEflGlehf. sími 564 1088. fax 564 1089
Fást í byggingavöruverslunum um land allt.
Búið er að setja upp tölvur í skól-
anum, en stefnt er að því að kenna
nemendum meðferð og notkun
helstu forrita, fingrasetningu o.fl.
Svo gripið sé til samanburðarfræð-
innar eru 5 nemendur um hverja
tölvu í skólanum og er hlutfallið í
tölvufjölda með því hæsta sem þekk-
ist á landinu.
Þetta verður þriðja árið í röð sem
Grunnskólinn á Tálknafirði er ein-
setinn. Nokkuð vel hefur gengið að
manna kennarastöður við skólann í
haust, þó eru nokkrir leiðbeinendur
á undanþágu, en flestir með háskóla-
gráðu. Er þvi óhætt að segja að
Tálknfirðingar geti vel við unað, mið-
að við það sem heyrst hefur frá
mörgum öðrum skólum.
Langþráður göngustígur
Þá er vert að geta þess að í lok
ágúst var byggður upp göngustígur
frá Hólsánni út að skóla. Stígurinn
er samvinnuverkefni Tálknafjai'ðar-
hrepps, Vegagerðarinnar og Orku-
bús Vestfjarða. Tálknafjarðarhrepp-
ur sá um jarðvegsvinnu, Vegagerðin
sá um mælingar og lagningu slitlags
og það kemur síðan í hlut Orkubús-
ins að setja upp lýsingu með stígnum
og verður það verk unnið nú í haust.
Göngustígur með akveginum út
grundirnar hefur verið mikið bar-
áttumál Tálknfirðinga um árabil, þar
sem öll bömin fara þessa leið til og
frá skólanum. Með tilkomu stígsins
eykst umferðaröryggi á þessari leið
til mikilla muna og er það ánægju-
legt hve vel hefur til tekist við fram-
kvæmdina.
Morgunblaðið/Guttormur V. Þormar
Hauststillur við Lagarfljót
Þróttur í
Neskaup-
stað 75 ára
Neskaupstað - íþróttafélagið
Þróttur í Neskaupstað varð 75 ára
á þessu ári. I tilefni afmælisins
buðu Þróttarar Norðfirðingum til
kaffisamsætis fyrr í sumar og nú á
dögunum efndu þeir til afmælis-
veislu í Egilsbúð.
í veislunni, þar sem flutt voru
ávörp og skemmtiatriði, voru félag-
inu færðar góðar gjafir. Átta ein-
staklingar voru heiðraðir með gull-
merki Þróttar fyrir störf fyrir fé-
lagið. Þeir sem urðu þess heiðurs
aðnjótandi voru Brynja Garðars-
dóttir, Kristinn V. Jóhannsson,
Lilja H. Auðunsdóttir, Guðmundur
Bjamason, Haraldur Jörgensen,
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
ÞAU hlutu gullmerki Þróttar: Olafur Sigurðsson, Guðmundur
Bjarnason, Lilja H. Auðunsdóttir, Brynja Garðarsdóttir, Haraldur
Jörgensen, Kristinn V. Jóhannsson og Benedikt Sigurjónsson. Á
myndina vantar Grím Magnússon.
Benedikt Sigurjónsson, Grímur
Magnússon og Olafur Sigurðsson.
Þá var í veislunni fimm aðilum
veitt viðurkenning frá Skíðasam-
bandi íslands. Brynja Garðarsdótt-
ir, Birna Rósa Gestsdóttir og Álf-
dís Ingvarsdóttir hlutu silfurmerki,
Benedikt Sigurjónsson gullmerki
og Stefán Þorleifsson hlaut heiður-
skross Skíðasambandsins.
Veislustjóri í velheppnaðri af-
mælisveislu var Þórhallur Jónas-
son, fyrrverandi fomiaður Þróttar
og núverandi Siglfirðingur.
Formaður íþróttafélagsins
Þróttar er Gunnar Á. Karlsson.