Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Evrópsk kórakeppni í Noyon í Frakklandi Schola cantorum og rúmenskur kór hlutu 1. verðlaun SCHOLA cantorum syngur í dómkirkjunni í Noyon. KAMMERKÓRINN Schola cantor- um og rúmenskur kirkjukór deildu fyrstu verðlaununum í evrópski-i kórakeppni sem fram fór í dóm- kirkjunni í Noyon í Norður-Frakk- landi sl. laugardagskvöld. Tilkynnt var um úrslitin á sunnudag en fyrir athöfnina höfðu allir kórarnir fengið fyrirmæli um að vera tilbúnir með tíu mínútna dagskrá, ef svo færi að þeir hrepptu verðlaunin. „Við vorum svo heppin að lenda í þessu og urð- um að vonum afskaplega ánægð,“ segir Hörður Askelsson, stjórnandi kórsins, í samtali við Morgunblaðið. „Þetta er viðurkenning á því að það sem við erum að gera sé gott, auk þess sem þetta vekur athygli og áhuga á kórnum, En það sem skiptir mestu máli er reynslan sem við fá- um við að taka þátt í keppni sem þessari. Því fylgir mikil spenna og miklu meira álag en því að syngja á venjulegum tónleikum, þannig að þetta er prófsteinn á svo margt. Nú finnum við líka hverjir veikleikarnir eru og hvar við þurfum að vinna bet- ur,“ segir hann. Keppnin er einn af hápunktum kirkjutónlistardaga sem haldnir eru í nokkrum bæjum í Picardie í Norð- ur-Frakklandi. Þátttaka í keppninni er miðuð við kóra við stórar kirkjur og var hámarksfjöldi í hverjum kór 45 manns. Flestir þeirra átta kóra sem tóku þátt voru af þeirri stærð eða hátt í það en í Schola cantorum eru átján félagar, sem sumir hverjir syngja einnig í Mótettukór Hall- grímskirkju og eru flestir tónlistar- menntaðir. Kórinn er ungur að ár- um, stofnaður 1996 af stjómandan- um, Herði Askelssyni. Óviss um hvort við ættum möguleika „Við vissum ekkert mikið um keppnina fyrirfram og sendum inn umsókn fyrirvaralítið. Okkur lang- aði að prófa þetta til þess að hafa eitthvað að keppa að og renndum svo sem alveg blint í sjóinn með það. Við vorum líka langminnsti kórinn, svo við vorum dálítið óviss um það fyrst hvort við ættum möguleika," Þekkt vörumerki segir hann. Á opnunartónleikum kóramótsins söng franskur kór sem hafði fengið verðlaun þegar keppnin var haldin í fyrsta sinn og að sögn Harðar eini franski kórinn sem hef- ur náð einhverjum árangri í keppn- inni. „Stjórnandinn sagði mér að franskir kórar teldu sig ekki eiga er- indi í þessa keppni því þeir væru einfaldlega ekki nógu góðir. Þeir væru hræddir við þetta og þess vegna legðu þeir ekki í að sækja um.“ Hátt á fimmta tug kóra sótti um að fá að taka þátt og af þeim valdi dómnefnd níu kóra til þess að keppa. „Við héldum að við værum að fara að hitta þarna franska kóra, þýska og enska, þar sem kórhefðin er mjög mikil, og jafnvel norræna. Það kom okkur því mjög á óvart að kórarnir sem valdir voru reyndust allir nema við vera frá Austur-Evr- ópu,“ segir Hörður en kórarnir komu m.a. frá Tékklandi, Póllandi, Eistlandi, Rúmeníu og Ukraínu. Raunar urðu kórarnir ekki nema átta vegna þess að félagar í þeim síðastnefnda fengu ekki vegabréfs- áritun og komust því hvergi. Auk heiðursins sem fylgir því að vinna keppnina er Schola cantorum nú 14 þúsund frönkum ríkari, eða um 175.000 íslenskum krónum, og segir Hörður það létta mjög kostn- aðinn við ferðalagið. Þá eru ótalin þau nýju sambönd og kynni sem takast á mótum sem þessu og eru oft ekki síður mikilvæg. Tónleik- ar í Hall- gríms- kirkju í TILEFNI sigursins í evrdpsku kdrakeppninni í Frakklandi heldur Schola cantorum, kamm- erkdr við Hallgrímskirkju í Reykjavík, tdnleika í Hallgríms- kirkju í kvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 21. Kdrinn flytur m.a. verkefnin sem hann söng í keppninni; kdrverk frá endurreisnar- og barokktimabilinu eftir Tallis, Purcell og Schein, svo og kdr- tdnlist frá 20. öldinni eftir Þor- kel Sigurbjörnsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Atla Heimi Sveins- son og Thomas Jennefelt. Auk þess flytur kdrinn verkið Ubi est eftir sldvenska tdnskáldið Larisa Vhrunc, en það var skylduverkefni í kdrkeppninni. Maður á mislitum sokkum á Smíða- verkstæðinu NÚ STANDA yfir æfingar á gamanleikritinu Maður í mislit- um sokkum eftir Arnmund Backman á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Leikritið lýsir í léttum dúr viðburðaríkum dögum í lífi ekkju á besta aldri og nokkurra vina hennar. Hvað gerir góð- hjörtuð kona þegar hún finnur ókunnugan, rammvilltan og minnislausan mann á fömum vegi? Þetta er fyrsta leikrit Arn- mundar sem sýnt er í Þjóðleik- húsinu en leikritið var fyrst sýnt sl. vetur hjá leikfélagi eldri borgara, Snúði og Snældu. Ammundur hafði áður sent frá sér tvær skáldsögu, Hermann og Böndin bresta, og skrifað leikritið Blessuð jólin, sem kynnt var með leiklestri í Þjóðleikhúsinu fyrir tæpum tveimur árum. Arnmundur Backman lést 11. september 1998, 55 ára að aldri. Leikendur em Þóra Friðriks- dóttir, Bessi Bjamason, Guðrún Þ. Stephensen, Gunnar Eyjólfs- son, Helga Bachmann, Árni Tryggvason, Guðrún S. Gísla- dóttir og Olafur Darri Ólafsson. Lýsingu hannar Ásmundur Karlsson. Höfundur leikmyndar og búninga er Hlín Gunnars- dóttir. Sigurður Sigurjónsson leikstýrir. BÓKASALA í sept. Rðð Var Titill/Hðfundur/Útgefandi 1 DÖNSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-DÖNSK ORÐABÓK/ / Orðabókaútgáfan 2 ENSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-ENSK ORÐABÓK/ / Orðabókaútgáfan 3 ENSK-ÍSLENSK SKÓLAORÐABÓK// Mál og menning 4 AMAZING ICELAND - ÝMIS TUNGUMÁL' Helgi Guðmundsson og Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 5 SPÆNSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-SPÆNSK ORÐABÓK/ / Orðabókaútgáfan 6 ENSK-ÍSLENSK /ÍSLENSK-ENSK VASAORÐABÓK//Orðabókaútgáfan 7 SJÁLFSTÆTT FÓLK/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell 8 HÍBÝLIVINDANNA/ Böðvar Guðmundsson/ Mál og menning 9-10 ENGLAR ALHEIMSINS/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning 9-10 MANNDÓMUR/Andrés Indriðason/ Mál og menning Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 SJÁLFSTÆTT FÓLK/ Halldór Kiijan Laxness/ Vaka-Helgafell 2 HÍBÝLIVINDANNA/ Böðvar Guðmundsson/ Mál og menning 3 ENGLAR ALHEIMSINS/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning 4 SALKA VALKA/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell 5 LIFSINS TRE/ Böðvar Guðmundsson/ Mál og menning 6 BRENNU-NJÁLS SAGA// Mál og menning 7 LEIKURHLÆJANDILÁNS/AmyTan/Bjartur 8 BREKKUKOTSANNÁLL/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell 9 ÍSLANDSKLUKKAN/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell 10 SNORRA-EDDA/ Snorri Sturluson/ Mái og menning ÍSLENSK OG ÞÝPD UÓÐ 1 HÁVAMÁL/ / Vaka-Helgafell 2 EDDUKVÆÐI - STYTT ÚTGÁFA/ Óiafur Briem sá um útgáfuna/ Iðunn 3 EDDUKVÆÐI/ Gísli Sigurðsson sá um útgáfuna/ Mál og menning 4 LITARÍM/ Pórarinn Eldjárn/ Forlagið 5 LJÓÐ DAGSINS/ Sigurbjörn Einarsson valdi efni/ Setberg 6 SÁLMABÓK ÍSLENSKU KIRKJUNNAR/ Róbert A. Ottósson valdi efni/ Kirkjuráð 7 TUHUGU LJÓÐ UM ÁST OG EINN ÖRVÆNTINGARSÖNGUR/ Pablo Neruda/ Háskólaútgáfan 8 SPÁMAÐURINN/ Kahlil Gibran/ íslendingasagnaútgáfan 9-10 GULLREGN ÚR ÁSTARLJÓÐUM ÍSLENSKRA KVENNA/ Gylfi Gröndal tók saman/ Forfagið 9-10 GULLREGN ÚR LJÓÐUM JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR/ Guðni Jónsson tók saman/ Forlagið ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGiTNGABÆKUR 1 MANNDÓMUR/ Andrés Indriðason/ Mál og menning 2 BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA/ Astrid Lindgren/ Mál og menning 3 VINALEITIN/ Eiríkur Brynjólfsson/ Mál og menning 4-5 STAFRÓFSKVER/ Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn/ Forlagið 4-5 ÞRÍR LITLIR GRÍSIR/ Alan Benjamin/ Mál og menning 6 GÖNGUFERÐ MEÐ KRUMMA/ Sigríður E. Sigurðardóttir/ Mál og menning 7 ÓSÝNILEGA BARNIÐ/ Tove Jenson/ Mál og menning 8 STUBBUR/ Bengt Nielsen/ Mál og menning 9 GEITURNAR ÞRJÁR/ Jonathan Langley/ Mál og menning 10 ÚLFURINN OG SJÖ KIÐLINGAR/ Richard Scarry/ Mál og menning ALMENNT EFNIOG HANPBÆKUR 1 DÖNSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-DÖNSK ORÐABÓK// Orðabókaútgáfan 2 ENSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-ENSK ORÐABÓK/ / Orðabókaútgáfan 3 ENSK-ÍSLENSK SKÓLAORÐABÓK// Mál og menning 4 AMAZING ICELAND - ÝMIS TUNGUMÁL/ Helgi Guðmundsson og Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagid 5 SPÆNSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-SPÆNSK ORÐABÓK/ / Orðabókaútgáfan 6 ENSK-ÍSLENSK /ÍSLENSK-ENSK VASAORÐABÓK/ / Orðabókaútgáfan 7-8 ÞÝSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-ÞÝSK ORÐABÓK/ / Orðabókaútgáfan 7-8 SJÁVARNYTJAR VIÐ ÍSUND/ Karl Gunnarsson/ Mál og menning 9-10 DÖNSK-ÍSLENSK SKÓLAORÐABÓK/ / Mál og menning 9-10 ÍSLENSK-ENSK ORÐABÓK/ / Iðunn Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Keflavíkur, Keflavík Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum Penninn-Eymundsson, Austurstræti KÁ, Selfossi Eymundsson, Kringlunni Penninn, Hallarmúla Penninn, Kringlunni Penninn, Hafnarfirði Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka á sölu bóka í september 1998 Unniö fyrir Morgunblaðið, Félag Islenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með pær bækur sem seldar hafa verið á mörkuöum ýmiss konar á pessu tímabili, nó kennslubækur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.