Morgunblaðið - 14.10.1998, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
_________MINNINGAR
VALDIMAR VIGGÓ
NATHANAELSSON
+ Valdimar Viggó Nathana-
elsson fæddist á Þingeyri
við Dýraijörð 11. október 1903.
Hann lést á Hjúkrunarheimilinu
Sigóli 1. október síðastliðinn og
fór út.för hans fram frá Nes-
kirkju 9. október.
Ég sneri mér til Viggós fyrir
nokkrum árum til að leita upplýs-
inga um glímumenn fyiTÍ tíma.
„Gjörðu svo vel og komdu, ég skal
reyna að segja þér það sem ég veit.“
Ég vissi að Viggó var níræður að
aldri og bjóst jafnvel við að hitta fyr-
ir hruman öldung, en það var öðru
nær. Viggó geislaði af hreysti og
lífsfjöri og það var erfítt að ímynda
sér að þessi glaðlegi eldri maður
væri degi eldri en sextugur.
Ég átti margar ferðir að Skjóli til
að ræða við Viggó um glímu og
fleira og útkoman er viðtal í blaði
Glímusambandsins Af glímu sem
var komið í prentun þegar Viggó
lést. Hann hafði lesið viðtalið og
staðfest og verður það vonandi vin-
um hans til fróðleiks og skemmtun-
ar nú þegar Viggó er allur. Eitt við-
tal segir lítið um öðlinginn Viggó,
hann hefði verðskuldað heila bók og
hefði verið af nógu að taka því hann
lifði langa og fjölbreytta ævi. Það
sem ég tók fyrst eftir var háttvísi
hans og ljúfmennska, glaðlyndi og
varfærni í dómum um samferða-
mennina. Hann hafði ákveðnar skoð-
+ Trausti Sveinsson fæddist í
Reykjavik 6. mars 1924.
Hann lést 23. september síðast-
Iiðinn og fór útför hans fram
frá Fossvogskapellu 1. október.
Síminn hringdi og í honum var
dóttir Trausta, Hafdís, og tjáði mér
að Trausti faðir hennar væri dáinn.
Slíkar fréttir koma manni
ósjálfrátt til að setjast hljóður og
renna huganum yfir farinn veg
samferðamanns og vinar, en við
Trausti vorum á svipuðum aldri,
hann var einu ári eldri en ég.
Fram í hugann komu margar
dýrmætar minningar sem við átt-
um, en leiðir okkar Trausta lágu
saman er við báðir vorum í ensku
hjá Sæmundi Jóhannessyni sem þá
var hjálparmaður Arthurs Gooks á
Sjónarhæð. Við vorum sex í þessum
tímum, og þarna hófst vinátta okk-
ar. Við vorum báðir innan við tví-
tugt, oft ræddum við saman eftir
tímana og smátt og smátt varð til
sú vinátta sem aldrei slitnaði. Það
var nefnilega vel tekið á móti manni
þegar við hittumst heima í Glerár-
götunni, en sjálfur átti ég heima á
Gleráreynim, nokkru norðar. Það
var því stutt að fara til að heim-
sækja hvor annan.
Þegar Sæmundur kennarinn
okkar fór að auglýsa Biblíunáms-
flokkinn fóram við báðir að sækja
þessa fundi, sem voru okkur mikil
hvatning og góð fræðsla sem byrj-
endur með Kristi. En báðir ákváð-
um við að taka á móti Kristi þennan
vetur og ræddum við oft um andleg
mál, en síðar tókum við niðurdýf-
ingarskírn og sóttum samkomur á
Sjónarhæð.
Arið 1946, þegar sumarheimilið á
Astjörn hóf starfsemi, ákváðum við
Trausti að vera þar saman og var
þessi fyrsta vika okkur dýrmæt.
Við vorum ungir og hraustir og
man ég er við gengum í Forvöð og
Asbyrgi, og hver dagur geymir
dýrmætar minningar. Þegar kosinn
var gjaldkeri fyrir Astjörn var það
mikið happ að fá Trausta til að sjá
um fjármálin. Margar voru vinnu-
ferðirnar sem við fórum saman og
alltaf var fógnuður okkar mikill við
hvern áfanga sem vannst. Er mér
sérstaklega minnisstætt er við gát-
anir á mönnum og málefnum og lét
þær hiklaust í ljósi en þó alltaf
þannig að særa engan.
Viggó var mikill íþróttamaður á
yngr-i árum. Fimleikamaður svo af
bar og vann það afrek á íþróttaskól-
anum Ollei-up að vera valinn í 13
manna úrvalshóp skólans úr 2.000
manna hópi sem allir reyndu að
komast að. Fimleiki hans og lipurð
komu að góðu haldi við glímuiðkun
hans og hann var eftirsóttur sýning-
armaður í báðum þessum greinum.
Hann var með í för í hinar þrjár
stóru glímusýningarferðir til Nor-
egs 1925, Danmerkur 1926 og
Þýskalands 1929. Komst ekki með
til Svíþjóðar 1932 en fór síðan í fjöl-
mennum hópi á Ólympíuleikana í
Berlín 1936 og sýndi glímu á leikun-
um. Viggó var lærður íþróttakenn-
ari frá námskeiði ÍSÍ og UMFÍ 1925
og svo frá Ollerup 1928. Skólastjór-
inn þar, Níels Bukh hreifst svo af
færni Viggós þegar hann sá til hans
í glímuflokknum 1926 að hann bauð
honum ókeypis skólavist sem hann
þáði. Slík skólavist var að öðru jöfnu
dýr og kostaði nemendur 100 krónur
danskar á mánuði sem þá var mikið
fé. Viggó kenndi síðan íþróttir um
nokkurt skeið á Islandi, um níu ára
skeið við Núpsskóla og þar varð
Unnur Kristinsdóttir, sem síðar
varð eiginkona hans, ein af hans
fyrstu nemendum. Viggó kenndi
einkum sund, glímu og leikfími og
þjálfaði upp fimleikaflokka bæði
um flutt upp á efri hæð gamla húss,
en þá var unnið nótt sem dag. Það
var sama hvað maður var þreyttur,
gleðin yfír unnum sigri var bestu
launin.
Nokkur málverk sem Garðar
Loftsson og Trausti máluðu saman
prýða veggi Astjarnar.
Trausti átti mikinn þátt í því að
settur var stór silungur í Ástjörn,
en hann sótti hann í Hafurstaða-
vatn með leyfí eiganda, samtals um
150 stk. I samfélaginu á Sjónarhæð
var nokkuð af ungu fólki og margar
voru ferðirnar farnar á 10 manna
bfl sem ég átti og vorum við með
ágætis hljómsveit, m.a. gítara,
mandólín, fiðlu og harmoniku, mik-
ið var æft og haldnar samkomur
víða, en einnig var mikið spilað á
samkomum á Sjónarhæð.
í þessum fóngulega hópi voru
margar myndarstúlkur og ekki leið
á löngu þar til við höfðum báðir
fundið konuefnið okkar. Hamingju-
sól Trausta skein skært er hann
fékk lífsförunaut sinn, Marsibil Jó-
hannsdóttur. Við kölluðum hana
ávallt Dúdú, en mikill var kærleik-
ur þeirra, og ekki síst nú síðustu
árin sem Trausti barðist við illvígan
sjúkdóm. Síðast þegar ég heimsótti
hann var hann greinilega sjúkur, en
það aftraði honum ekki, eljan var
hin sama. Hann sýndi mér m.a. sal-
inn í Hafnarfirði sem verið var að
byggja og leyndi sér ekki að þar
hafði hagur maður verið að verki,
en þótt hann væri sjúkur neytti
hann síðustu krafta sinna til að
reyna að ljúka sem mestu, hann
gerði sér grein fyrir að tíminn var
senn á þrotum.
Trausti og Dúdú fluttu suður, en
aldrei slitnuðu kærleiksböndin.
Þegar þau dvöldu í Bandaríkjunum
skrifaði hann mér indælt bréf sem
fullt var af kærleiksyl til okkar
hjónanna.
Að leiðarlokum vil ég þakka þér
Trausti minn allar dýrmætu sam-
verustundirnar og er ég þess full-
viss að við munum mætast heima
hjá Drottni Jesú Kristi. Hafðu þökk
fyrir allt og allt.
Við hjónin sendum þér Dúdú mín
okkar dýpstu samúðarkveðjur og
munum minnast þín og Hafdísar og
Birkis í bænum okkar.
Bogi Pétursson.
karla og kvenna í Dýrafirði og meira
að segja öldungaflokk í leikfimi þar
sem faðir hans var meðal þátttak-
enda.
Viggó sýndi í verki góðan hug
sinn til glímunnar. Hann lét sig ekki
vanta á Íslandsglímuna á hverju
vori og kaffiboð eldri glímumanna á
haustin. Hann sótti ráðstefnu GLI
um framtíð glímunnar nú í septem-
berbyrjun rétt um það leyti sem
sjúkdómui' sá greindist er varð hans
síðasti. Minjasafni glímunnar af-
henti hann margar ljósmyndir og
verðlaunapening sinn frá glímu
verslunarmanna í Arbæ 1929. Ég vil
fyrir mína hönd og glímunnar þakka
hina góðu viðkynningu við Viggó
Nathanelsson og votta aðstandend-
um hans samúð mína.
Jón M. ívarsson,
formaður GLÍ.
Afmælis-
og minn-
ingar-
greinar
MIKILL fjöldi minningar-
greina birtist daglega í Morgun-
blaðinu. Til leiðbeiningar fyrir
greinahöfunda skal eftirfarandi
tekið fram um lengd greina, frá-
gang og skilatíma:
Lengd greina
Um hvern einstakling birtist
ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar
minningargreinar um sama ein-
stakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínubil
og hæfilega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksentimetr-
ar í blaðinu). Tilvitnanii- í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka, og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Undirskrift
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undii- greinunum.
Frágangur og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textamenferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er ennfremur unnt að
senda greinar í símbréfi - 569
1115 - og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Vinsamlegast
sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi.
Skilafrestur
Eigi minningargi'ein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrh’ hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
gi’einin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Þar sem pláss er
takmarkað, getur þurft að
fresta birtingu minningar-
greina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna skilafrests.
Berist grein eftir að skilafrestur
er útrunninn eða eftir að útíor
hefur farið fram, er ekki unnt
að lofa ákveðnum birtingardegi.
TRAUSTI
SVEINSSON
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 47
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Áskirkja. Starf fyrir 10-12 ára
böm kl. 17.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldr-
aða kl. 13-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Grensáskirkja. Haustferð eldri
borgara er í dag. Lagt af stað frá
kirkjunni kl. 12.15. Ekið um Þing-
velli að Nesjavöllum. Heimkoma
áætluð kl. 17.15. TTT-starf (10-12
ára) kl. 16.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Heimsókn: Jón D. Hróbjartsson,
prófastur. Starf fyrir 9-10 ára kl.
16.30. Starf fyrir 11—12 ára kl. 18.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn
kl. 10-12. Kvöldbænir og fyrirbæn-
ir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 13. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Fundur
„Kirkjuprakkara" (6-9 ára börn)
kl. 14.30. Fundur TTT (10-12 ára)
kl. 16. Fundur æskulýðsfélagsins
(13-15 ára) kl. 20.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Ungar mæður og feður vel-
komin. Kaffi og spjall. Opið hús
fyrir eldri borgara kl. 14—16. Um-
sjón Kristín Bögeskov djákni.
Bænamessa kl. 18.05. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarbeimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að kpma til presta safnað-
ai-ins. TTT í Ártúnsskóla kl. 16-17.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. „Kirkjuprakk-
arar“ starf fyrir 7-9 ára börn kl.
16. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl.
17.15. Æskulýðsfundur kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK fyrir
stúlkiu- 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
16.30.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9
ára börnum í dag kl. 16.45-17.45 í
safnaðarheimilinu Borgum. Starf á
Persónuteg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararsfióri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
sama stað með 10-12 ára (TTT) kl.
17.45-18.45.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma
567 0110. Léttur kvöldverður að
bænastund lokinni.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund í hádegi í kirkjunni kl.
12-12.30. Æskulýðsstarf, eldri
deild, kl. 20-22 í Minni-Hásölum.
Keflavíkurkirkja. Alfanámskeið í
Kirkjulundi kl. 20, hefst með borð-
haldi og lýkur í kirkjunni kl. 22.
Fræðsla um kristna trú bæði fyrir
hjón og einstaklinga.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Unglinga-
starfið kl. 17. Fyrsta skiptið á
þessu hausti. Spilakvöld aldraðra
fimmtudagskvöld kl. 20. Matthías
Karelsson leikur á harmonikku.
Allir hjartanlega velkomnir.
Njarðvíkurkirkja. Foreldramorg-
. unn í dag kl. 10.30.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Mömmumorgnar í safnaðarheimil-
inu kl. 10-11.30. Samverustund og
spjall hjá foreldrum ungra barna.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Fjölskyldusamvera kl. 18.30 sem
hefst með léttri máltíð á vægu
verði. Kl. 19.30 er kennsla og þá er
skipt niður í deildir. Allir hjartan-
lega velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg. í
dag verður haldinn hádegisverðar-
fundur kl. 12.10 sem hefst með
ritningalestri og bæn. Síðan mun
Sigurbjört Kristjánsdóttir, formað-
ur stjórnar sumarbúða KFUK í
Vindáshlíð, hafa stutta kynningu á
starfinu þar. Allir áhugasamir eru
velkomnir á fundinn án fyrirvara
og reyndar hvattir til að fjölmenna.
B ar n amy n dir
í nýju fötum keisarans
BARJIA ^FJÖLSKYLDll
I, jOSMYNDIR
Ármúla 38 • sími 588-7644
Gunnar Leifur Jónasson
Minningargreinar
Vanir blaðamenn
taka að sér skrif
og frágang
minningargreina
Upplýsingar í síma
561 5054