Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýtt skipurit lögreglustjóraembættisins í Reykjavík tekur gildi á næsta ári Y aralögreg'liistj óri fær veigamikið hlutverk STEFNT er að því að nýtt skipurit lögreglustjóraembættisins í Reykja- vík taki gildi um næstu áramót. Sam- kvæmt því verður varalögreglustjóra falið veigamikið hlutverk við dagleg- an rekstur embættisins en lögreglu- stjóranum verður einkum ætlað að sinna stefnumótun og þróunarstarfi. „Lögreglustjóra er ætlað að vera hinn framsýni og víðsýni leiðtogi sem einbeitir sér að stefnumótun og þróun fyrir embættið í heild,“ segir í skýrslunni. Þá er gert ráð fyrir því að aðstoð- aryfirlögregluþjónum og yfirlög- regluþjónum við embættið verði fækkað úr 10 í 5. A blaðamannafundi, þar sem skýrslan var kynnt, sagði Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra, að á næstunni yrði unnið að framgangi tillagnanna. „Eg vænti þess að það verði hægt að staðfesta þetta nýja skipulag innan tiltölulega skamms tíma,“ sagði ráðherra. „í heild er verið að vinna að því að gera stjórnskipulagið öruggara og markvissara og efla stöðu lögregl- unnar í heild og gera lögreglustarfið almennt þýðingarmeira. Jafnhliða er unnið að umbótum í þeim tilgangi að bæta aðstöðu almennra lögreglu- manna,“ sagði ráðherra. Aðspurður hvernig staðið yrði að vali á einum yfirlögregluþjóni í stað tveggja og fjórum aðstoðaryfirlög- regluþjónum í stað átta, sagði ráð- herra að sérstökum starfshópi yrði falið að vinna að því að gera tillögur um hvernig best yrði staðið að þeim málum. Lögreglustjórinn snýr aftur Böðvar Bragason, lögreglustjóri, er í veikindaleyfi til 15. nóvember og Georg Lárusson, varalögreglustjóri, er settur lögreglustjóri á meðan. Dómsmálaráðherra sagði það ranga túlkun á nýja skipuritinu að með því væri lögreglustjórinn settur til hlið- ar og gerður verkefnalítill. „Það er mjög þýðingarmikið að lögreglustjórinn geti haft svigrúm til þess að hafa raunverulega stjóm og yfirsýn yfir embættið allt og tek- ið stærri ákvarðanir og stefnumót- andi ákvarðanir. Það hefur kannski verið hluti af vandamálum embætt- isins að skipulagið hefur fært of mikið af minni daglegum ákvörðun- um upp á borð æðstu yfirmanna og fyrir vikið hefur ekki gefist svigrúm til nægilegrar yfirsýnar. Eg lít svo á að skipuritið sé að bæta úr þessu og þar með styrkja stöðu yfirstjórnar lögreglunnar til að sinna sjálfri yfir- stjórninni,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Fram kemur í skýrslunni að ekki var haft samráð við Böðvar Braga- son við gerð hennar. ■ Varalögreglustjóri/10 2.000 m2 útivistar- verslun EINAR Sigfússon eigandi Sport- kringlunnar ehf. og eigendur Þors ehf. hyggjast opna nýja 2.000-2.200 fermetra útivistarverslun í tengi- byggingu Kringlunnar sem fyi-ir- hugað er að taka í notkun næsta haust. Það er einkahlutafélagið Dalir sem stendur að rekstri nýju verslun- arinnar en félagið er í eigu ofan- gi-eindra aðila. Gengið var frá leigu- samningi við Eignarhaldsfélag Kringlunnar á fimmtudag um leigu á 2.700 fermetrum undir starfsem- ina og er samningurinn metinn á 960 milljónir króna. Sjálft sölusvæði verslunarinnar, sem enn hefur ekki hlotið nafn, verður nálægt 2.200 fermetrum á tveimur hæðum. Það er álíka stórt íými og verslanir Hagkaups og Ný- kaups hafa yfir að ráða í Kringlunni hvor um sig. ■ Opna 2.200/22 Baðhúsið ehf. og Seljahlíð stóðust gæðakröfur VATNSSÝNI úr heitum pottum á dvalarheimili aldraðra við Seljahlíð og í Baðhúsinu ehf. í Brautarholti voru einu staðirnir sem stóðust gæðakröfur við prófun Hollustu- verndar ríkisins á vatni úr heitum pottum hjá nokkrum líkamsræktar- stöðvum í Reykjavík í byrjun októ- ber. Sex staðh’ stóðust ekki kröfur en nöfn allra staðanna fengust í gær hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja- víkur. Mældm’ var örverufjöldi í 100 millilítra sýnum. Þannig mældust 15 gerlar í sýni úr heitum potti hjá dvalarheimilinu við Seljahlíð en 60 hjá Baðhúsinu ehf. við Brautarholt og stóðust báðir þessir staðir gæða- kröfurnar. Tekin voru viðmiðunar- sýni úr heitum pottum á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, þar sem mældust 10 gerlar, og frá sundlaug- STEINAR Bastesen, þingmaður á norska stórþinginu og íyrrverandi hvalveiðimaður, fær ekki leyfi hjá Free Willy-Keikó samtökunum til að fara og skoða Keikó í kvínni í Ketts- vík í Vestmannaeyjum. Hallur Halls- son, fulltrúi samtakanna á íslandi, segir að samtökin vilji ekki blanda sér í umræðuna um það hvort ís- lendingar eigi að hefja hvalveiðar á ný eða ekki. Steinar Bastesen sé hér á landi til að hvetja til hvalveiða og því hafi verið ákveðið að neita honum um aðgang. Það var DV sem fór þess á leit við unum í Laugardal en þar var gerla- fjöldinn 37. Hæsta mæling reyndist vera 450 þúsund gerlar Fjöldi gerla í tveimur sýnum frá líkamsræktarstöðinni World Class var annars vegar 4.700 og hins vegar 450.000, hjá heilsulindinni Fínar lín- ur 21.000, hjá Planet Pulse mældust 20.000 gerlar í tveimur mælingum, hjá Þokkabót ehf. mældust 20.000 gerlar í sýni, úr potti á Hótel Sögu mældust 5.400 gerlar og hjá Mætti hf. var fjöldinn í einni mælingu 20.000 og í annarri 240.000. Þessir sex staðir fengu allir þann dóm Holl- ustuverndai’ við örverumat vatns- sýna að það stæðist ekki gæðakröf- ur. Heildarfjöldi gerla má ekki vera yfir 1.000 í 100 millilítrum. Bastesen að hann færi í heimsókn til Keikó. „Bastesen er tengdur hval- veiðum. Samtökin vilja ekki blanda sér í þessa umræðu og þess vegna var þessari beiðni hafnað," segir Hallur Hallsson. Steinar Bastesen segir að hrein forvitni hafi valdið því að hann hafi langað til að kíkja á Keikó. „Ég var ekki að blanda mér í neitt með því að óska eftir að fá að heimsækja hann en Keikó-samtökin hafa sannarlega gert það með því að neita mér um að fá að heimsækja blessaða skepn- una,“ segir Bastesen. HALLDÓR Blöndal samgöngu- ráðherra opnaði í gær veginn yfír Gilsfjörð, miUi Vesturlands og Vestfjarða, til almennrar um- ferðar með formlegum hætti. Framkvæmdum við þessa mestu vegsjávarfyllingu landsins er nú að ljúka en vegurinn hefur verið opinn umferð flesta daga í rúmt ár. Hugmyndir um þverun Gils- fjarðar komu fram fyrir aldar- fjórðungi og baráttuhreyfing heimamanna í Dölum og Reyk- hólasveit myndaðist upp úr 1980. Framkvæmdir hófust í mars 1996 og var Klæðning hf. aðalverktaki. Gekk verkið vel nema hvað tafir og aukinn kostnaður hlutust af því að grjótnámur brugðust og varð að sækja grjót til að verja sjáv- Vegur- inn um Gilsfjörð opnaður arfyllinguna um lengri veg en áætlað var. í fyllingu og veg fóru um 200 þúsund vörubfls- farmar af jarðefni og akstur bflanna samsvarar leiðinni til tunglsins, til baka og langleið- ina aftur til tunglsins. Kostnað- ur við mannvirkið er áætlaður um 820 milljónir kr. Nýi vegur- inn styttir leiðina milli Vestur- lands og Vestfjarða um rúma 17 kflómetra og sagði vegamála- stjóri í gær að það væru langir kflómetrar og vísaði með því til þess hvað Gilsfjörður hefur ver- ið mikill farartálmi. Myndin var tekin þegar Hall- dór Blöndal samgönguráðherra klippti á borða til merkis um opnun vegarins og naut við það aðstoðar Helga Hallgrímssonar vegamálastjóra og Gunnars I. Birgissonar, forstjóra Klæðning- ar hf. Viðstaddir voru þingmenn kjördæmanna, sveitarsfjórnar- menn, starfsmenn verktakans og Vegagerðarinnar og fjöldi íbúa byggðarlagsins. ■ Einstæðri framkvæmd/38 Bastesen fær ekki að heimsækja Keikó Sérblöð í dag 20SÍDUR Á LAUGARDÖGUM LLöDlm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.