Morgunblaðið - 31.10.1998, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
AKUREYRI
MORGUNP LAÐIÐ
M orgu nbl aðið/Kristáán
Fuilorðinsfræðsla
fatlaðra fær góða gjöf
Vinna við umfangsmiklar breytingar á skipulagi KEA hefst um áramót
Nokkur hlutafélög
stofnuð um reksturinn
Sérútbúinn
hnakkur
til kennslu
ÞROSKAHJÁLP á Norðurlandi
eystra hefur fært Fullorðins-
fræðslu fatlaðra á Akureyri sér-
útbúinn hnakk vegna kennslu
fatlaðra í námstilboði sem kallað
er: Jafnvægis- og líkamsþjálfun á
hestbaki. Hnakkurinn var af-
hentur í hófí í Hvammshlíðar-
skóla og sagði Helgi Jósefsson,
skólastjórnandi, að þessi ágæti
gripur myndi nýtast fjölfiitluðum
nemendum vel, auk þess sem
fleiri gætu nýtt sér námstilboðið
en áður. „Við litum á þessa stund
sem ákveðin tímamót í starfsemi
skólans."
Guðmundur Árnason söðla-
smiður hannaði hnakkinn, sem
var smíðaður í Söðlasmiðju Bald-
vins og Þorvaldar á Selfossi.
Lilja Guðmundsdóttir formaður
Þroskahjálpar á Norðurlandi
eystra afhenti Magnúsi Jóhanns-
syni nemanda í Fullorðinsfræðslu
fatlaðra hnakkinn. Með þeim á
myndinni er Helgi Jósefsson,
skólastjómandi Hvammshlíðar-
skóla.
STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga
samþykkti á fundi í gær að færa
rekstur félagsins inn í nokkur
hlutafélög og hefur Eiríki S. Jó-
hannssjmi kaupfélagsstjóra verið
falið að vinna að því. Hlutafélögin
verða til að byrja með að fullu í
eigu Kaupfélags Eyfirðinga, sem
áfram verður rekið sem samvinnu-
félag, en síðar er gert ráð fyrir að
félög í skyldúm rekstri geti komið
til samstarfs við hlutafélögin.
Kaupfélagsstjóri kynnti hið nýja
framtíðarskipulag KEA á fundi í
gær. Félagið hefur með höndum
fjölbreyttan rekstur í eigin nafni á
sviði verslunar, landbúnaðar, iðn-
aðar og þjónustu auk þess sem það
tekur þátt í um það bil 30 hlutafé-
lögum og nokkrum sameignarfé-
lögum. Kaupfélag Eyfirðinga hefur
markað sér þá stefnu að nýta sér
hagkvæmni stórrekstrar og telja
stjórnendur þess að nauðsynlegt sé
að efla núverandi rekstrareiningar
eigi þetta markmið að nást.
Möguleiki á stækkun
eininga
Eiríkur gerði grein fýrir ástæð-
um breytinganna og sagði að sam-
keppnisumhverfi KEA hefði tekið
miklum breytingum á síðustu ánim
og væri stöðugt að breytast. Með
núverandi skipulagi sem samvinnu-
Deildarfundir KEA haustið 1998
Akureyrardeild
Mánudagur 2. nóvember, kl. 20.00. Fosshótel KEA.
Glæsibæjar-, Skriðu- og Öxndæladeild.
Þriðjudagur 3. nóvember, kl. 20.30 í Engimýri.
Arnarnes- og Árskógsdeild.
Miðvikudagur 4. nóvember, kl. 14.00 í Freyjulundi.
Dalvíkur- og Svarfdæladeild.
Miðvikudagur 4. nóvember, kl. 20.30, Víkurröst.
Ólafsfjarðardeild.
Fimmtudagur 5. nóvember, kl. 20.30. Hótel
Ólafsfjörður.
Hrafnagils-, Saurbæjar- og Öngulsstaðadeild.
Mánudagur 9. nóvember, kl. 20.30, í Freyvangi.
Strandardeild.
Þriðjudagur 10. nóvember, kl. 13.30 í Ráðhúsinu.
Hríseyjardeild.
Þriðjudagur 10. nóvember, kl. 20.00 í kaffistofu
Snæfells hf.
F njóskdæladeild.
Miðvikudagur 11. nóvember, kl. 14.00 á Illugastöðum.
Höfðhverfíngadeild.
Miðvikudagur 11. nóvember, kl. 20.30 í
samkomuaðstöðu grunnskólans.
Grímseyjardeild.
Fimmtudagur 12. nóvember, kl. 17.00, í
félagsheimilinu.
Siglufjarðardeild.
Fimmtudagur 12. nóvember, kl. 20.30, Suðurgötu 4, 3.
hæð. Gengið inn frá Suðurgötu.
félag hefði KEA ekki mikla mögu-
leika til vaxtar og framþróunar í
samræmi við þá stefnumótun að
nýta hagkvæmni stórrekstrarins.
Sala B-deildar hlutabréfa hefði
skilað takmörkuðu fjármagni inn í
reksturinn, en með hlutafélags-
forminu opnaðist möguleiki á að
stækka einingarnar með samruna
við önnur félög og þátttöku ann-
arra hluthafa.
Hlutafélagavæðing félagsins er
einnig mikilvægur þáttur í þeim
aðgerðum sem unnið hefur verið að
undanfama mánuði og miðað hafa
að því að bæta afkomuna. Þá
nefndi Eiríkur að vaxtarmöguleik-
ar ykjust til muna sem og mögu-
leikar á að ná áhættufjármagni inn
í fyrirtækið.
Fjögur hlutafélög
stofnuð
Gert er ráð fyrir að stofnað verði
eitt hlutafélag um matvöruverslun,
annað um móttöku og vinnslu land-
búnaðai’afurða og þá verða stofnuð
hlutafélög um iðnað og aðra starf-
semi. Vinnuheiti hlutafélaganna
em KEA-verslun, KEA-Matvæli,
KEA-Iðnaður og KEA-Annað.
KEA rekur nú 10 matvöruversl-
anir og er stefnt að fjölgun þeirra,
en rekstur þeirra yrði færðm' í
hlutafélög um verslunarrekstur.
Kjötiðnaðarstöð, sláturhús, mjólk-
ursamlag, safagerð og smjörlíkis-
gerð yrðu færð inn í hlutafélag um
matvæli. Sérstakt tillit verður tek-
ið til framleiðenda á starfssvæði
KEA og stefnt að því að tryggja
þeim aðild að stjórn hlutafélagsins.
„Við höfum alltaf staðið vörð um
hagsmuni bænda og hverfum ekk-
ert frá því þó þessar breytingar
séu gerðar,“ sagði Eiríkur. Undir
iðnað falla brauðgerð, fóðurvöm-
deild, Kaffibrennsla og Efnaverk-
smiðjan Sjöfn, en rekstur fóðui'-
verksmiðjunnar Laxár, Garðyrkju-
félags Reykhverfinga, bygginga-
vöru- og raflagnadeilda auk apó-
teka er nú flokkað undir annað.
Einn öflugasti hlutabréfa-
sjóður landsins
Eignarhlutur KEA í þessum
hlutafélögum verður í eigu Eignar-
haldsfélagsins Sameignar hf. sem
verður einn öflugasti hlutabréfa-
sjóður landsins. Vel þykir hugsan-
legt að hann eigi ekkert hlutafélag-
anna að fullu í framtíðinni og jafn-
vel ekki einfaldan meirihluta í
neinu þeirra. Stefnt er að skrán-
ingu hans á Verðbréfaþingi Is-
lands. Eignum og skuldum KEA
verður skipt upp milli hlutafélaga.
Mikil vinna er framundan vegna
þessara breytinga og gert ráð fyrir
að hún taki allt næsta ár. Byrjað
verður á að koma rekstri verslana
Morgunblaðið/Kristján
EIRÍKUR S. Jóhannsson kaupfélagsstjóri kynnir framtíðarskipulag
KEA, en rekstrinum verður skipt í nokkur hlutafélög.
Nýtt skipulag Kaupfélags Eyfirðinga
<1^
T
Eignarhaldsfélag - Sameign hf.
KEA - Verslun hf.
KEA - Iðnaður hf.
KEA - Annað hf.
KEA - Matvæli hf.
Snæfell hf.
Eignaraðild SAMEIGN hf: 93%
og matvælaframleiðslu í hlutafé-
lagsformið, en þar þykja möguleik-
arnir á að ná fram hagræðingu
mestir.
Stór ákvörðun
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
formaður stjórnar KEA sagði að
gengi þessi ferill eftir væri um að
ræða stærstu stefnumótandi
ákvörðun sem tekin hefði verið
varðandi félagið frá árinu 1906
þegar ákveðið var að hverfa frá
pöntunarfélagsforminu og opna
verslun á Akureyri.
Bókfært eigið fé Kaupfélags Ey-
firðinga er um 2 milljarðar króna.
Velta síðasta árs var um 12 millj-
arðar og gert ráð fyrir að hún verði
heldur meiri á þessu ári. Jóhannes
Geir sagði að líklega gæti ekkert
félag hér á landi gert eins um-
fangsmiklar breytingar á rekstri
sínum og framundan væru hjá
KEA, en félagið hefði rætur í öllu
atvinnulífi á Islandi. Þá ætti félagið
miklar duldar eignir eins og hann
sagði og sú eign gæti nýst til að
draga að nýja fjárfesta og í fram-
tíðinni freistað erlendra fjárfesta.
Skólastjórafélag Islands
POLLINI
-klæðirþigvel
Námstefna
NÁMSTEFNA Skólastjórafélags
íslands verður haldin á Akureyi'i
daganu 6. til 8. nóvember næst-
komandi. Viðfangsefni námstefn-
unnar eru tvö. Hið fyrra er: Tími
til stjórnunar - sjálfstæði skóla.
Erindi flytja Hegle Vreim formað-
ur norska skólastjórafélagsins og
dr. Gerður G. Óskarsdóttir
fræðslustjóri Reykjavíkur.
Skólinn og foreldrarnir - sam-
vinna og áhrif er yfirskrift síðara
viðfangsefnis námstefnunnar. Fyr-
á Akureyri
irlesarar verða Jónína Bjartmarz
foi-maður Heimilis og skóla, Erla
Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri
kennslusviðs KHÍ, Guðríður Ragn-
arsdóttir atferlisfræðingur, skóla-
stjórarnir Hafsteinn Karlsson og
Kristinn Breiðfjörð, Sigurjón
Magnússon kennai-i og Svanhildur
Þóroddsdóttir foreldri barns í
grunnskóla.
Unnið .verður í hópum og niður-
stöður kynntar sem fara til nefnd-
ar félagsins sem vinnur úr þeim.