Morgunblaðið - 31.10.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 5 7
Sumarlína
Margrét Krist-
jánsdóttir fæddist í
Bolungarvík 27.
mars 1915. Hún lést
í Landspítalanum
22. október síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Kristján Jóhami Sig-
urðsson, f. 7.10.
1892 í Miðhúsum í
Reykjaíjarðar-
hreppi, ís., d. 27.11.
1915, og Una
Guðbrandsdóttir, f.
20.10. 1877 í Kol-
beinsvík, Árneshreppi, Strand.,
d. 16.6. 1915. Margrét giftist 20.
júní 1944 Jóni Jósteini Guð-
mundssyni, ^ f. 3.1. 1911, frá
Byrgisvík, Ámeshreppi, Strand.,
d. 8.2. 1986. Böm þeirra em: 1)
Svanlaug Una Jóhanna, f. 27.11.
Stuðlaberg norðurstranda
stendur örugglega enn á gömlum
merg, en að Margréti Kristjáns-
dóttur genginni er jafn örugglega
stórt skarð höggvið í það stuðla-
berg. Það er engum ofsögum sagt
að þessi kona stóð uppi sem stuðla-
berg og kiknaði hvergi, þrátt fyiár
ýmislegt mótlæti sem henni mætti
á lífsins leið.
Nokkurra vikna gömul missti
hún móður sína. Enginn fékkst til
að fara frá Bolungarvík til ísa-
fjarðar eftir lækni, né leysa fóður-
inn unga af í skipsrúmi. Og hver
gat hætt því að missa vinnuna með
fjölskyldu á framfæri? Svona var
tíðin þá, þótt við sem yngri erum
skiljum það naumast.
Frá Bolungamk lá leiðin til
Skálavíkur. Þar bað Kristján faðir
Margrétar móður sína að sjá um,
ef hans nyti ekki við, að dóttirin
lenti ekki á hreppnum, honum byði
svo við að ekki yrði langt á milli
þeirra hjóna. Svo varð. Um haustið
drukknuðu faðir hennar og afi. Níu
mánaða gömul átti hún engan að
nema Rósu ömmu sína. Rósa gerði
hvað hún gat og ól önn fyrir barna-
barni sínu. Leiðin lá til Skálavíkur
í Djúpi, til Kristjáns og Guðbjarg-
ar.
Eitt sinn, er sjómenn komu úr
róðri, vantaði kalt vatn til að gefa
þeim þyrstum. Margrét hljóp af
stað og sótti vatn. Þegar hún kom í
hlað, heyrði hún að oddviti sveitar-
innar spurði Kristján hvort hann
vildi ekld fá greitt fyiár framfærslu
hennar. Hann leit til hennar og
svarið var nei, hún hafði unnið fyr-
ir mat sínum um veturinn. Hafði
hún þá ekki stækkað upp úr fötun-
um um veturinn? Jú, en Rósa hafði
séð henni fyrir klæðum. Þakklætið
skein úr augum ungu telpunnar,
hún fór ekki á sveitina.
Frá Svansvík lá leiðin til
Reykjavíkur, til Rósu ömmu. Þar
var dvölin ekki löng. Þegar Rósa
féll frá lá leiðin aftur vestur. Ein
var hún send sjóleiðina, nú til
Hólmavíkur og vissi ekki hvort
einhver eða hver tæki á móti
henni. Þar dvaldi hún á ýmsum
stöðum, um lengri eða skemmri
tíma, lengst þó í Veiðileysu.
Frá Veiðileysu er ekki langt til
Byrgisvíkur. Þar kynntist hún
manni sínum, Jóni Jósteini og hófu
þau þar senn búskap. Síðar flutt-
ust þau í Hveravík á Selströnd og
þaðan að Kleifum í Kaldbaksvík og
loks suður með sjó, í Sandgerði.
Þau eignuðust 15 börn, sem öll
komust upp, utan Guðmundur,
sem lést á fyrsta ári og Kristján,
sem fórst af slysförum á 17. ári.
Það gefur augaleið, að oft hefur
verið erfitt að sjá fyrir svo stóru
heimili, og þar hefur hlutverk
húsmóðurinnar ekki verið síst. Það
1930, d. 1.10. 1979.
2) Páll Kristberg, f.
9.12. 1932. 3) Lára,
f. 20.8. 1934. 4)
Sigríður Guð-
mundína, f. 2.10.
1935. 5) Krislján, f.
21.10. 1936, d. 13.2.
1953. 6) Fanney, f.
18.5. 1939. 7) Rósa,
f. 11.1. 1942. 8) Guð-
mundur, f. 10.3.
1943, d. 22.9. 1943.
9) Sigrún Guð-
munda, f. 12.7.1944.
10) Elsa, f. 10.5.
1946. 11) Sóley, f.
24.9. 1949. 12) Guðrún, f. 29.12.
1952. 13) Kristrn, f. 26.10. 1954.
14) Lilja, f. 10.2. 1959. 15) Guð-
mundur Reynir, f. 26.4.1960.
títför Margrétar fer fram frá
Hvalsneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
eru forréttindi að hafa átt
tengdamóður eins og Margréti.
Blessuð sé minning hennar.
Guðmundur Pétursson.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðarviðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Mig langar með örfáum orðum,
þó orð séu alltaf fátækleg á stund-
um sem þessum, til að minnast
elskulegrar ömmu minnar. A
skilnaðarstundum koma fram í
hugann minningar sem eru þeim
sem eftir verða mikils virði og at-
vik sem dags daglega eru ekki of-
arlega í huganum birtast nú ljóslif-
andi fyrir hugarsjónum mínum.
Hún amma mín var mikil kona og
öðlingur heim að sækja. Hús henn-
ar stóð öllum opið og það var alltaf
jafn gott að dvelja á heimili hennar
því hlýjan og kærleikurinn sem
hún umvafði sína stóru fjölskyldu
var nánast áþreifanlegur í návist
hennar. Þó kannski megi segja að
ferðirnar „suður eftir“ hafi ekki
verið of margar seinni árin minnist
ég hverrar einustu með mikilli
gleði.
Sem lítil stelpa hafði ég mikla
gleði af því að sitja inni hjá afa og
ömmu þar sem þau sátu og annað
prjónaði á meðan hitt las upphátt
úr bók. Jafnvel þó um væri að
ræða skáldsögur sem ég sjálf var
ekki farin að kjósa til lesturs á
þessum tíma og skilningur minn á
innihaldinu kannski takmarkaður,
naut ég þess að sitja og hlusta á
það sögubrot sem lesið var hverju
sinni.
Hún amma mín var trúrækin
kona og þann arf skilur hún eftir
sig hjá mér sem og öðrum ömmu-
börnum sínum í formi barnabæna.
Margar eru þær bænirnar sem ég
lærði af ömmu á unga aldri og ég
hef alltaf hugsað til hennar með
þakklæti þegar ég hef setið og
farið með þessar sömu bænir með
þeim börnum sem ég hef starfað
með nú á seinni árum. A sumrin
var yndislegt að ganga með ömmu
um garðinn hennar, sem var stolt
hennar og gleði. Það er víst óhætt
að segja að grænni fingur finnist
varla. Og á hverju vori var farin
ferð til Hveragerðis til að ná í fleiri
blóm sem bættu enn frekar á
litagleðina og fegurðina umhverfis
húsið hennar ömmu.
Amma afrekaði mikið á sinni
löngu ævi. Það er mér sífellt undr-
unarefni hvernig henni tókst að ala
fimmtán börn, halda utan um stórt
heimilið og vinna öll þau störf önn-
ur sem erfitt líf sveitakonu
krafðist á sínum tíma og jafnframt
halda sinni dillandi lífsgleði og
óþreytandi starfsánægju.
En seinni árin var orka ömmu
farin að dvína - og skyldi engan
undra eftir jafn vinnusama og
viðburðaríka ævi. Það er alltaf
erfitt að kveðja en ég er þakklát
fyrir öll árin sem ég hef fengið að
njóta samvista við elskulega ömmu
mína og bið nú algóðan Guð um að
halda verndarhendi sinni yfir
henni. Minning hennar lifir i
hjarta mínu um ókomna tíð.
Hulda.
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér.
Hún heitast þig elskaði og fjTÍrgaf þér.
Hún ávallt er vöm þín, þinn skjöldur og hlíf.
Hún er íslenska konan sem ól þig og þér
helgar sitt líf.
Með landnemum sigldi hún um svarrandi
haf.
Hún sefaði harma, hún vakti er hún svaf.
Hún þerraði tárin. Hún þerraði blóð.
Hún var íslenska konan sem allt á að þakka
vor þjóð.
Og loks þegar móðirin lögð er í mold
þá lýtur þú höfði og tár falla á fold.
Pú veist hver var skjól þitt, þinn skjöldur og
hlíf.
Það var íslenska konan sem ól þig og þér
helgaði sitt líf.
(Omar Ragnarsson)
í dag kveð ég elsku ömmu mína
sem lést á Landspítalanum 22.
október síðastliðinn. Alltaf er það
svo að það kemur manni í opna
skjöldu þegar andlát ástkærs ætt-
ingja ber að höndum og erfitt er að
sætta sig við að þú, elsku amma,
sért farin frá okkur. En við eigum
minningar sem munu ylja okkur
um hjartarætur um ókomna tíð.
Amma var einstök kona. Hún
unni og hjálpaði öllum, hún vildi
öllum vel og gleymdi engum. Hjá
henni var alltaf stutt í hláturinn og
aldrei heyrði ég hana segja
styggðaryrði um nokkum mann.
Eg fæddist í húsinu hjá ömmu
og afa í Sandgerði og þar átti ég
margar ánægjustundir. í hveiri
heimsókn valdi ég mér bók til að fá
lánaða með mér heim og alltaf var
það jafn sjálfsagt. í þeirra húsum
var alltaf tekið á móti mér opnum
örmum, hlýjum orðum og kræs-
ingum á borðum. Aldrei fór ég
heim án þess að taka með mér
kleinur og jafnvel harðfisk því
ömmu var mjög í mun að enginn
færi svangur frá henni.
Amma var iðin við prjónaskap-
inn og gaf jafnharðan þau stykki
sem urðu til í höndum hennar. Ör-
lát var hún og gaf ekki bara þeim
sem hún þekkti. Til skamms tíma
bjó ég erlendis og þá prjónaði hún
reiðinnar býsn af vettlingum og
sendi mér til að gefa börnunum í
kringum mig. Svo mikið sendi hún
mér að ég gat leyft mér að halda
nokkmm pöram eftir og þau mun
ég varðveita til seinni tíma.
Ég bið góðan guð að halda
vemdarhendi sinni yfir ömmu og
þakka henni fyrir allar góðu stund-
irnar sem ég átti með henni.
Elsku Fanney, kærar þakkir
fyrir að gera ömmu kleift að búa
heima. Eg veit að hún mat það
mikils og gladdist mjög yfir að
þurfa ekki að fara á elliheimili.
Oddný Guðrún.
Okkur langar í örfáum orðum til
að kveðja ástkæra ömmu okkar
sem var svo hógvær og lítillát en
gaf þó svo mikið.
Elsku amma, það var mikið áfall
að frétta að þú værir farin frá okk-
ur. Jafnvel þó þú værir komin á
þennan aldur og að við þessu hefði
mátt búast er erfitt að hugsa sér
lífið án þín. En nú ertu búin að fá
hvfldina miklu, sem þú varst ef-
laust farin að þrá. Okkur era
minnisstæðar þær stundir sem við
áttum saman á Suðurgötunni. Mik-
il bókakona varst þú og mikinn
fróðleik hjá þér að finna. Þær eru
ófáar sögurnar sem þú sagðir okk-
ur frá bernsku þinni og er óhætt
að segja að þær hafi kennt okkur
sem yngri erum að meta meira það
sem við búum við í dag og gert
okkur að betri manneskjum. Það
var yndislegt að sjá hvernig þú
lékst við Fanneyju Svanborgu og
hlátur ykkar hljómaði um allt
húsið. Og eftir að sonur okkar
fæddist síðla sumars umvafðir þú
hann sama kærleik og öll hin
ömmubörnin þín.
Til þín gátum við alltaf leitað
ráða þegar eitthvað bjátaði á og
aldrei brást þú okkur. Við viljum
þakka fyrir öll góðu ráðin og þær
stundir sem við áttum saman. Það
skarð sem höggvið hefur verið er
mikið. En huggun okkar allra, sem
áttum þig að, er hin góða minning
sem þú skilur eftir í hjörtum okk-
ar.
Guð blessi þig.
Guðný, Ivar og börn.
Elsku amma okkar er dáin og
langar okkur að minnast hennar
með nokkrum orðum. Amma var
alltaf svo hress, og urðum við
aldrei vitni að því að hún væri í
fýlu eða vondu skapi. Amma var
alltaf að segja okkur sögur, lesa
fyirir okkur og sýna okkur myndir
og höfðum við öll gaman af.
Eftirminnilegast er þegar hún
las Glókoll og gat hún lesið hana
svo oft og aldrei fengum við leið á
henni og með þeirri sögu kenndi
hún okkur margfóldunartöfluna og
eins þegar hún sagði okkur frá
uppvaxtarárum sínum og alltaf
þegar komið var heim úr skólanum
eða þegar við komum í heimsókn
var amma alltaf með kökur og
mjólk handa svöngum og þreytt-
um börnum.
Við getum endalaust haldið
áfram að rifja upp minningar og
munum við geyma þær að eilífu í
hugum og hjörtum okkar.
Elsku amma, takk fyrir að hafa
verið svo góð við okkur og
leiðbeint okkur eins og þú gerðir.
Elsku amma, við kveðjum þig
með söknuði en við vitum að þú ert
hjá afa og hefur það gott hjá hon-
um.
Hvfl í friði. Blessuð sé minning
þín.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Jóna Petra, Magnús Þór,
Hólmfríður Osk og EUen Dana.
Stofnað 1990
Sími: 567 9110 & 893 8638 - www.utfarir.is utfarir@itn.is
Hvít kista kr. 39.500
Furukista vistvæn kr. 52.500 Eikarkista kr. 60.000
Eikarkista kr. 78.000 Viðarkista með bastáferð kr. 78.000
SUMARLINA
MARGRÉT
KRIS TJÁNSDÓTTIR