Morgunblaðið - 31.10.1998, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Glenn leikur á als oddi uppi í geimnum
„Yndislegt í
þyngdarleysinu“
Houston. Reuters.
Reuters
KOSOVO-albanskir feðgar á leið heim með föggur fjölskyldunnar.
Serbar sagðir
hafa gert árás-
ir á þorpsbúa
París, Brussel. Reuters.
BANDARISKA geimferjan Dis-
eovery var á braut um jörðu í gær
og gekk allt að óskum hjá öldunng-
um John Glenn og hinum sex í
áhöfninni. Ætluðu íbúar borgarinn-
ar Perth í Astralíu að minna hann á
frægðarförina 1962 með því að hafa
öll ljós logandi er hann brunaði yfir
borgina að næturlagi eins og þeir
gerðu fyrir 36 árum.
Glenn sá ljósin greinilega er
geimfarið hans, Friendship 7, fór
yfir Perth á sínum tíma en nú ligg-
ur brautin aðeins norðar. Það mun
því aðeins rétt bjarma fyrir borg-
inni að því er fram kom hjá Phil
West, talsmanni NASA, banda-
rísku geimferðastofnunarinnar.
Glenn og félagar hans ætluðu hins
vegar að heilsa upp á Perthbúa
með hjálp fjarskiptatækja.
Viagra
fyrir kon-
ur sem
karla
Ósltí. Morgunblaðið.
NORSKA lyfjaeftirlitið hefur
samþykkt, að getuleysislyfið
Viagra fari á markað í Noregi
og verður það fáanlegt fljótlega
eftir áramót. Það verður hins
vegar ekki aðeins ætlað karl-
mönnum, heldur konum líka.
Læknirinn og kynlífssér-
fræðingurinn Ása Rytter Even-
sen segist ekki munu hika við
að skrifa upp á Viagra fyrir
konur, sem eigi við fullnæging-
arvanda að stríða, enda hafi það
sýnt sig, að lyfið geti stórbætt
kynlífsupplifun kvenna. Segist
hún þegar vera komin með lista
yfir konur, sem vilji fá lyfið.
Eng^in allsherjarlausn
Rytter Evensen segist ekki
efast um, að Viagra verði eftir-
sótt í Noregi en býst þó við, að
karlpeningurinn muni heldur
leita til kynbræðra sinna í hópi
lækna en ekki til kvenna. Sál-
fræðingurinn Elsa Almás vill
einnig gleðja norskar konur
með því að útvega þeim
„fjörpilluna" eins og hún kaUar
Viagra og segir, að hún gagnist
báðum kynjum jafn vel. Báðar
vara þær hins vegar fólk við því
að halda, að lyfið sé einhver
lækning á öðrum og erfíðari
sambúðarvanda.
dagatöl og jólakort
í miklu úrvali.
Sérmerkt fyrir þig
Nýjar víddir
í hönnun og útgáfu
11 ci m a&i óst; ut lan t».m ra rtiggy'I fí
auping
Ekki eru allir á eitt sáttir um
ævintýri Glenns og segja sumir,
að það sé hreinn kjánaskapur,
jafnvel nokkrir ættingja hans. Á
hinn bóginn hefur það vakið gífur-
lega athygli og
ekki aðeins á hon-
um sjálfum, held-
ur einnig á geim-
ferðunum, sem
mörgum var farið
að finnast fremur
hversdagslegur
atburður.
„Það er yndis-
legt hér uppi í
þyngdarleysinu og mér líður vel,“
sagði Glenn í gær og endurtók þá
nákvæmlega ummæli sín frá 1962.
Curt Brown leiðangursstjóri bætti
því svo við, að brosið væri frosið á
andliti Glenns og næði á milli
eymanna.
Gleypti hitamæli
Áhöfnin starfaði við það í gær að
koma fjarskiptahetti á braut og
prófaði 15 metra langan arm en
hann verður notaður til að koma á
braut og innbyrða aftur hnött, sem
kanna mun kórónu sólarinnar.
Ymsar rannsóknir verða gerðar á
líðan Glenns sjálfs og er áhöfnin
lagðist til hvíldar í gær tók hann
inn pillu, sem hafði inni að halda
örsmáan hitamæli.
Það eina, sem út af hefur borið,
er það, að í flugtakinu losnaði fimm
kílóa þung álhlíf af ferjunni. Skýldi
hún fallhlíf, sem notuð er til að
draga úr ferð í lendingu, en tals-
menn NASA segja, að atvikið muni
engu breyta um ferðina.
SERBNESKAR hersveitir drápu
þorpsbúa í Kosovo og kveiktu í hús-
um þeirra fyrr í vikunni, þrátt fyrir
loforð Slobodans Milosevic Jú-
góslavíuforseta um brottflutning
herliðs úr héraðinu, að því er
frönsk læknasamtök greindu frá í
gær.
Olivier Brochu, franskur læknir
sem sneri heim frá Kosovo síðastlið-
inn sunnudag, sagði að enn væri
töluvert lið Serba í héraðinu. Hann
sagði samstarfsmenn sína hafa orðið
vitni að árás Serba á þorpið Is-
araluka á miðvikudagskvöld og
fimmtudagsmorgun. „Okkar menn
sáu þorpið í eldtungum. Það hefur
verið lagt í rúst,“ sagði Brochu á
íréttamannafundi í gær, og bætti við
að margir hefðu látið lífið.
Ibrahim Rugova, leiðtogi Kosovo-
Albana, sagði í gær að þótt mikið lið
hefði verið flutt á brott frá Kosovo
fyrr í vikunni væru serbneskar ör-
yggissveitir enn á sveimi í héraðinu,
og lagði áherslu á að brottflutningur-
inn héldi áfram.
Atlantshafsbandalagið (NATO) af-
réð á þriðjudag að grípa ekki til loft-
árása á skotmörk í Júgóslavíu að
sinni, þar sem Milosevic hefði mætt
kröfum um brottflutning herliðs frá
Kosovo.
NATO hefur eftirlit
NATO gaf í gær fyrirmæli um að
hefja skyldi eftirlit úr lofti með því
að fjöldi júgóslavneskra hermanna í
Kosovo fari ekki yfir umsamin mörk
og Júgóslavar flytji ekki þungavopn
til héraðsins á ný. Búist er við að eft-
irlit hefjist í næstu viku. Samkvæmt
samkomulagi við stjómvöld í
Belgrad mun NATO tilkynna eftir-
litsleiðangra fyrirfram, og Jú-
góslavíuher mun gera loftvarnar-
kerfi sitt óvirkt á meðan á þeim
stendur.
Jeltsín
á heilsu-
hæli
Moskvu. Reuters.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
hélt í gær til hvíldardvalar á heilsu-
hæli við Svartahaf, eftir að hafa átt
fund með Jevgení Prímakov for-
sætisráðherra, að þvi er embættis-
menn í Kreml greindu frá.
Jeltsín þjáist af ofþreytu og
ójöfnum blóðþrýstingi, og hefur
falið Prímakov daglega stjórn
landsmálanna. Hann hefur undan-
farna daga dvalið á heilsuhæli
skammt frá Moskvu.
Rússneskar fréttastofur skýrðu
frá því að Prímakov hefði í gær gef-
ið Jeltsín greinargerð um heimsókn
sína til Vínar fyrr í vikunni, þar
sem hann sat fund með fulltrúum
Evrópusambandsins, og til
Kákasus, þar sem hann átti viðræð-
ur við Aslan Maskhadov, forseta
Tsjetsjníu. Ráðgert hafði verið að
Jeltsín sæti fundinn í Vín, en hann
sat heima að læknisráði.
Engar, stjórnarskrár-
breytingar í bígerð
Dmitry Jakushkin, talsmaður
forsetans, vísaði í gær á bug fregn-
um um að forsetinn væri reiðubú-
inn að samþykkja stjórnarskrár-
breytingar sem myndu draga úr
völdum hans. Jakushkin tók ekki
fram hve lengi Jeltsín myndi dvelj-
ast við Svartahaf, en sagði að hvíld-
ardvölin myndi ekki hafa áhrif á
fyrirhugaða fundi hans með erlend-
um þjóðarleiðtogum, en nokkrir
slíkir eru fyrirhugaðir á næstunni.
Prímakov mun í dag stjórna rík-
isstjórnarfundi, þar sem ræða á
nýja efnahagsáætlun. Meginhöf-
undur hennar er Júrí Masljúkov,
fyrsti aðstoðarforsætisráðherra.
Hart deilt um skýrslu Sannleiks- og sáttanefndarinnar í Suður-Afríku
Tutu varar við harðstj órn
Pretoríu. Reuters.
DESMOND Tutu erkibiskup, formaður Sann-
leiks- og sáttanefndarinnar í Suður-Afríku, hvatti
í gær alla íbúa landsins til að sætta sig við niður-
stöður nefndarinnar, sem birtar voru í 3.500
síðna skýrslu í fyrradag, þótt ýmsar afhjúpanir
hennar væru sársaukafullar íyrir þjóðina. Stjórn-
málamenn, sem nefndin sakaði um glæpi og
mannréttindabrot, brugðust harkalega við
skýrslunni en nokkur dagblöð fógnuðu henni.
Áður en skýrslan var gerð opinber hafði
Afríska þjóðarráðið (ANC), sem er við völd í Suð-
ur-Afríka, krafist þess að lögbann yrði sett á
birtingu hennar ef nefndin strikaði ekki út kafla
þar sem flokkurinn er sakaður um hafa staðið
fyrir mannréttindabrotum, morðum og pynting-
um, þegar hann barðist gegn stjórn hvíta minni-
hlutans á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Dóm-
stóll hafnaði þeirri kröfu.
Tutu tók harkaleg viðbrögð forystumanna
ANC nærri sér og varaði við því að Suður-Af-
ríkumenn stæðu frammi fyrir hættu á nýrri harð-
stjóm. „Menn geta alls ekki gengið út frá því að
þeir sem voru kúgaðir verði ekki kúgarar morg-
undagsins," sagði hann.
Erkibiskupinn sagði að staðhæfingar forystu-
manna ANC um að nefndin hefði ekki tekið tillit
til athugasemda flokksins væru „algjört þvaður“.
Erkifjendur sameinast
í gagnrýni
Allir helstu flokkar landsins og erkifjendurnir
á tímum aðskilnaðarstefnunnar sameinuðust í
harkalegri gagnrýni á niðurstöður Sannleiks-
nefndarinnar, er lýsti aðskilnaðarstefnunni sem
„glæp gegn mannkyninu".
Thabo Mbeki, varaforseti Suður-Afríku, sagði
að ásakanimar á hendur ANC væm „rangar og
algjörlega tilhæfulausar" en Nelson Mandela for-
seti kvaðst sáttur við skýrslu nefndarinnar, þótt
hann tæki fram að hún væri ekki gallalaus.
Þjóðarflokkurinn, sem kom á kynþáttaaðskiln-
aði árið 1948 og afnam hann 1990, sagði skýrsl-
una sanna að Sannleiksnefndin hefði dregið taum
Afríska þjóðarráðsins. Jacko Maree, þingmaður
Þjóðarflokksins, sagði að flestir nefndarmann-
anna 17 væru stuðningsmenn ANC og þeir hefðu
Reuters
DESMOND Tutu, formaður Sannleiks- og
sáttanefndarinnar, Ieggur áherslu á mál sitt
á fréttamannafundi í gær.
látið hjá líða að taka tillit til ótta hvíta minnihlut-
ans við kommúnisma eða viðurkenna þátt Þjóð-
arflokksins í afnámi aðskilnaðarstefnunnar.
F.W. de Klerk, síðasti hvíti forseti Suður-Af-
ríku, sagði í gær að Sannleiksnefndin hefði klofið
þjóðina og lagði áherslu á að það var Þjóðar-
flokkurinn en ekki hreyfíngar blökkumanna sem
afnámu kynþáttaaðskilnaðinn. De Klerk tókst að
fá nefndina til að birta ekki kafla úr skýrslunni
þar sem því er haldið fram að hann hafi vitað af
voðaverkum sem framin voru í nafni aðskilnaðar-
stefnunnar en haldið þeirri vitneskju leyndri.
Klerk kvaðst í gær vera ánægður með að þessi
ásökun var ekki birt þar sem hún væri „algjör-
lega tilhæfulaus".
De Klerk höfðaði mál gegn nefndinni vegna
kaflans, krafðist lögbanns á birtingu hans, og
Sannleiksnefndin ákvað að birta ekki kaflann
strax til að þurfa ekki að fresta birtingu skýrsl-
unnar. Réttað verður í málinu á næsta ári og
nefndin kann að birta kaflann þegar málaferlun-
um lýkur.
Mangosuthu Buthelezi, innanríkisráðherra og
leiðtogi Inkatha-frelsisflokksins, var sakaður í
skýrslunni um að bera ábyrgð á mannréttinda-
brotum í blóðugri baráttu flokksins við fylgis-
menn ANC í Kwa-Zulu Natal. Forystumenn
flokksins sögðust ætla að höfða mál gegn nefnd-
inni til að hreinsa Buthelezi af þessari ásökun.
„Hann hefur hreinan skjöld og við látum ekki
slíkar ærumeiðingar viðgangast," sagði formaður
flokksins, Ben Ngubane.
Sögð kynda undir tortryggni
Suður-afríska dagblaðið Die Burger, sem styð-
ur Þjóðarflokkinn og hefur aldrei sætt sig fylli-
lega við tveggja ára rannsókn Sannleiksnefndar-
innar, sagði að skýrslan kynti undir tortryggni
og illdeilum milli flokka og kynþátta. „Þungbær-
asti sannleikurinn er að Sannleiks- og sátta-
nefndinni, sem reyndi án árangurs að komast að
öllum sannleikanum, mistókst líka hrapallega að
stuðla að sáttum," sagði blaðið.
Frjálslynd dagblöð voru á öndverðum meiði og
fögnuðu skýrslunni. „Það er virðingarvert af for-
ystumönnum nefndarinnar að þeir skuli hafa sett
hagsmuni þjóðarinnar ofar hagsmunum stjórn-
málaflokkanna," sagði Cape Times.
„Birting lokaskýrslu Sannleiksnefndarinnar
ætti að vera hneisa fyrir þröngsýna stjórnmála-
menn og verjendur þeirra í fjölmiðlunum sem
hafa eytt síðustu þrem árum í að gera lítið úr
starfi nefndarinnar og grafa undan henni,“ sagði
viðskiptablaðið Business Day.
Margir Suður-Afríkumenn, jafnt hvítir sem
svartir, voru reiðir yfir tilraunum ANC og de
Klerks til að hindra að ásakanirnar á hendur
þeim yrðu birtar. „Málshöfðun ANC var
stórfurðulegt klúður," sagði Graeme Simpson,
forstöðumaður s-afrískrar stofnunar, sem rann-
sakar mannréttindabrot á tímum aðskilnaðar-
stefnunnar og beitir sér íýrir sáttum milli kyn-
þáttanna.
Glenn