Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 24
24 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
ÚR VERINU
Mikilvæg stefna í
umhverfismálum
Morgunblaðið/Ásdís
FULLTRtíAR á Aðalfundi LÍÚ samþykktu meðal annars mótun umhverfisstefnu og vilja koma á fót
sérstökum sjávarútvegsskóla.
Þeir sem auðlindina nýta
eiga að stjórna veiðunum
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra varar við hugmynd-
um um alþjóðleg yfirráð yfir auðlindum hafsins
„VIÐ tókum hér mjög mikilvæga
stefnu í umhverfismálum, sem við
eigum eftir að útfæra, hvemig
verði mæld og mörkuð, en við
meinum þau átta boðorð, sem við
setjum okkur hér. Það er svo ein-
dreginn vilji þessa fundar að sam-
tökin beiti sér fyrir því, að útvegur-
inn sem slíkur verði miklu meira
afgerandi og taki að sér stjóm á
skólamálum sjávarútvegsins,“
sagði Kristján Ragnarsson, for-
maður LÍU, í samtali við Morgun-
blaðið í lok aðalfundar samtakanna
í gær.
„Þetta var mjög ánægjulegur
fundur, mjög vel sóttur. Það hefur
verið mikií eindrægni hér og menn
hafa skipzt á skoðunum um mikil-
væg mál. Það er mikil andstaða við
Kvótaþing, en ekki með sama hætti
við verðlagsstofu skiptaverðs enda
er það ekki eins Ijóst fyrir mönnum
hvemig hún kemur til með að
virka.
Skólamálin lúta fyrst og fremst
að skipstjórnar- og vélstjóra-
menntun, en fiskvinnsluskóli kem-
ur einnig til greina, en af slíku
höfum við engin afskipti haft.
Hvemig þetta gerist liggur ekki
fyrir. Til þess þurfum við að ræða
við stjórnvöld og samtök sjó-
manna og kanna hvort þau vilja
koma með okkur að þessu verki.
Þarna er mikið verk að vinna og
okkur finnst að skólarnir hafi fjar-
lægzt atvinnugreinina og við vilj-
um ná meiri samstöðu milli at-
í EFNAHAGSÁLYKTUN aðal-
fundar LÍÚ, sem samþykkt var í
gær, segir m.a. að skilyrðin í hafinu
hafi verið fremur hagstæð á þessu
ári. Verð á fiskafurðum í mikilvæg-
ustu markaðslöndum Islendinga
hafi hækkað og eftirspurn sé mikil.
Innlent verðlag hafi almennt verið
frekar stöðugt og verð á olíu hafi
lækkað á árinu. F>ví sé ástæða til
hóflegrar bjartsýni á næstu mán-
uðum ef engar meiriháttar breyt-
ingar verði til hins verra í starfs-
umhverfi útvegsins. Fundurinn
NOHA
Brunaslöngur
frá Noregi
Viðurkennd brunavöm
Fáanlegar með og án skáps
Heildsöludreifing:
Smiðjuvegi 11, Kopavogi
Sími 564 1088.fax 564 10B9
Fást í byggingavðruwefslunum um land allt.
vinnugreinarinnar og skólanna og
við njótum starfskrafta þeiira
bezt með því,“ sagði Kristján
Ragnarsson. Hann var endurkjör-
inn formaður samtakanna með
lófataki á fundinum.
Umhverfisstefna LÍtí
Umhverfisstefna LÍÚ er í átta
liðum og er sem hér segir:
1. LIÚ mun vinna að því að við-
halda hreinu og heilnæmu haf-
svæði umhverfis Island.
2. LIÚ mun stuðla að áframhald-
andi sjálfbærri nýtingu auðlinda
sjávar.
3. LIÚ mun beita sér fyrir því að
útbúnaður veiðarfæra leiði til góðr-
ar nýtingar auðlinda sjávar.
4. LÍÚ mun beita sér fyrir eflingu
hafrannsókna.
5. LIÚ mun beita sér fyrir því að
leiðbeina félögum þannig að þeir
séu betur í stakk búnir að uppfylla
kröfur sem koma fram í lögum og
reglum.
6. LIÚ mun kappkosta að upplýsa
almenning um umhverfisáhrif út-
gerðarinnar.
7. LÍÚ mun markvisst vinna að efl-
ingu umhverfisvitundar starfs-
manna útgerðarinnar.
8. LÍÚ mun vinna að því að fá
stjórnvöld og aðra aðila í sjávarút-
vegi til liðs við sig um þessa um-
hverfisstefnu.
Fundurinn fól stjórn samtak-
anna að útfæra stefnumið og fram-
kvæmdaáætlun fyrir stefnuna.
lagði til að Kvótaþing íslands yrði
lagt niður, enda stefndi óbreytt
starfsemi þess rekstarforsendum
einstaklingsútgerða í hættu.
Aðalfundur LÍÚ lagði í efna-
hagsáætlun sinni til að Kvótaþing
íslands verði lagt niður, ella þurfi
að breyta starfsemi þess þannig að
augljósir vankantar á starfseminni
verði sniðnir af hið fyrsta. Bent var
á að upplýsingar um viðskipti á
þinginu verði birtar eftir að þau
hafa farið fram, vinna þurfi að því
að gera tilboðsgerð auðveldari og
einfalda þurfi skrifræði sem fylgi
starfsemi þingsins. Einnig að auka
þurfi sveigjanleika í jöfnum skipt-
um, enda sé það algengasta form
kvótaviðskipta.
Fundurinn mótmælti jafnframt
öllum hugmyndum um að fjölga
sóknardögum krókabáta og auka
þannig aflahlutdeild þeirra á kostn-
að annarra,-
Auðlindaskattur skerðir sam-
keppnisstöðu erlendis
Fundurinn lagði til að sam-
keppnisstaða sjávarútvegsins á er-
lendum mörkuðum verði ekki skert
með sérstökum skatti á útveginn.
Auðlindaskattur sé fyrst og fremst
landsbyggðarskattur, þar sem 80%
af útgerðinni séu rekin í sjávar-
byggðum við strendur landsins. Þá
hvatti fundurinn til þess að sérstök
úttekt verði gerð á samkeppnis-
stöðu atvinnugreinarinnar gagn-
vart sjávarútvegi í helstu sam-
keppnislöndum.
www.mbl.is
HALLDÓR Ásgrímsson, utanrík-
isráherra, varaði alvarlega við hug-
myndum um alþjóðleg yfirráð fyrir
auðlindum hafsins á aðalfúndi LÍÚ
í gær. „Ég hef ávallt verið þeirrar
skoðunar að stjórn fiskveiða eigi að
vera sem næst þeim sem nýta auð-
lindina. Krafan um aukið alþjóðlegt
samráð er hins vegar skiljanleg.
Ákvarðanir um nýtingu auðlinda
og önnur not innan efnahagslög-
sögu strandríkja hafa áhrif á um-
hverfi alls hafsins, þar með talið út-
hafið, sem öll ríki veraldar eiga
rétt tíl. Það er sömuleiðis siðferðis-
leg skylda okkar að sjá til þess að
við skilum auðlindinni til komandi
kynslóða þannig að þær geti einnig
nýtt hana í samræmi við megin-
reglur sjálfbærrar þróunar. Því er
erfitt að standa gegn þróun í átt að
aukinni alþjóðlegri samvinnu á
þessu sviði. Alþjóðleg samvinna er
nauðsynleg en við höfum því miður
dæmi um að stjómun á nýtingu
auðlinda hafsins hefur gjörsamlega
snúist upp í andhverfu sína,“ sagði
Halldór.
Sjálfstæða heimsnefndin
um hafið
Halldór kom víða við í ræðu sinni
en sagði svo: „Margt hefur komið
fram í þessa átt að undanfómu,
bæði á vegum stofnana Sameinuðu
þjóðanna og einnig hafa komið vís-
bendingar um að áhugi ýmissa
áhrifaaðila í Bandarfkjunum bein-
ist í þessa átt. Svipaðar hugmyndir
koma fram í skýrslu Sjálfstæðu
heimsnefndarinnar um hafið, sem
kynnt verður á allsherjarþingi Sa-
meinuðu þjóðanna síðar í þessum
mánuði.
Þessi nefnd hafði margan mekt-
armanninn innanborðs. Formaður
hennar var Maríó Sóares fyrrver-
andi forseti Portúgals. Meðal ann-
arra sem komu sínum sjónarmið-
um á framfæri í nefndinni má
nefna Sidney Holt sem unnið hefur
um áratugaskeið gegn íslenskum
hagsmunum á vettvangi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins og David
MacTaggart einn af stofnendum
Greenpeace.
Sú niðurstaða sem komist er að í
skýrslunni er vægast sagt kvíð-
vænleg hafi maður íslenska hags-
muni í huga. Þar erum við komin
að inntaki þessa erindis í dag, það
er það sem margir úti í hinum
stóra heimi vilja kalla „Fiskveiði-
stjómunarkerfi framtíðarinnar".
Alþjóðastofnun um
málefni hafsins?
Skýrslan boðar meðal annars að
sett verði á laggimar einhvers kon-
ar alþjóðastofnun um málefni haf-
anna og gera verði nýtingu auð-
linda hafsins „lýðræðislegri“ sem
þýðir að óskilgreindar stofnanir og
samtök geti haft áhrif á fiskveiðar
og aðra auðlindanýtingu hvar sem
er í heiminum. Á einum stað segir
bemm orðum: „Sem stendur ber
mikið á milli hvemig afrakstur af
nýtingu auðlinda hafsins skiptist
milli þjóða heimsins. Þessi mis-
munun mun vara þangað til að því
kemur að sett verður á laggimar
kerfi sem deilir þessum auðlindum
á réttlátan hátt milli þjóða.“ Til-
vitnun lýkur. Þetta er til marks um
það hvert stefnir í þessari umræðu.
í þessum efnum komumst við
íslendingar ekki hjá því að það er
fylgst með okkur. í því sambandi
nefni ég skýrslu sem náttúm-
vemdarsamtökin „World Wildlife
Fund“ gáfu út fyrr á þessu ári um
ástand fiskistofna í heiminum. í
henni er að finna vandaða umfjöll-
un sem var gleðileg nýbreytni frá
hendi samtaka sem stundum hafa
farið villur vegar í málflutningi
sínum. í skýrslunni er fjallað á
hlutlægan hátt um ástand sjávar-
útvegsmála víðs vegar um heim og
farið sérstökum orðum um góðan
árangur af kvótakerfum í þremur
löndum, Ástrah'u, Nýja Sjálandi
og íslandi. Það liggur í augum
uppi að við verðum að geta rætt
þessi mál opinskátt við þá aðila,
sem vilja líta þau raunsæum aug-
um, í því skyni að koma okkar
áherslum að og beina umræðunni
inná brautir sem eru hagstæðar
okkur.
Aukin áhrif umhverfíssamtaka
Margt hefur hert á þessari þró-
un. Þar á meðal má nefna vaxandi
áhyggjur af ofveiði víða um heim,
ofveiði sem leiða kann til þess að
fiskstofnar hrynji. I þessu sam-
bandi má nefna að mildl áhersla er
nú lögð á samráð og samvinnu um
vemd og nýtingu lifandi strand- og
sjávarauðlinda á vettvangi samn-
ings Sameinuðu þjóðanna um líf-
fræðilega fjölbreytni. Annað dæmi
er þrýstingur ríkja um vemd ým-
issa tegunda sjávardýra innan
OSPAR samningsins um vemd
N orðaustur-Atlantshafsins.
Þessar áhyggjur em skiljanlegar
í ljósi reynslunnar af hrani ein-
stakra fiskistofna, eins og til dæm-
is þorskstofnsins við austurströnd
Kanada og norsk-íslenska síldar-
stofnsins. En því miður ráða ann-
arleg sjónarmið sumstaðar ferð-
inni, sjónarmið þeirra sem era ein-
faldlega þeirrar skoðunar að fisk-
veiðar séu af hinu vonda, veiði-
tækni og veiðarfæri séu ómannúð-
leg og þess vegna eigi að vinna
gegn fiskveiðum," sagði Halldór.
Varað við mismunun
„ÞAÐ má þvi ekki koma til þess
undir nokkram kringumstæðum
að eignaraðild að útgerð valdi mis-
munun í rétti til veiðiheimilda,“
sagði Kristján Ragnarsson, for-
maður LÍÚ, á aðalfundi samtak-
anna. Kristján var þá að ræða um
hugmyndir forsætisráðherra um
æskilega almenna eignaraðild að
sjávarútvegsfyrirtækjum.
„Forsætisráðherra vék að því í
stefnuræðu að æskilegt væri að
eignaraðild að sjávarútyegsfyrir-
tækjum væri almenn. Á örfáum
áram hefur orðið veruleg breyting
á eignaraðild á þann veg sem for-
sætisráðherra telur æskilegt. I öll-
um landsfjórðungum era nú stór
og öflug fyrirtæki sem skráð eru á
markaði. Ég tel það mikils virði
fyrir sjávarútveginn og einstök
fyrirtæki að hafa breiða eignarað-
ild sem gerir kröfu um arðsemi.
Þegar tugir þúsunda manna
eiga beina eða óbeina eignaraðild
að fyrirtæki sætta þeir sig ekki við
að fyrirtæki sé til lengri tíma rekið
með tapi. Þessi eignaraðild styrkir
einnig stöðu sjávarútvegsins gagn-
vart stjórnvöldum um að honum
séu á hverjum tíma sköpuð eðlileg
starfsskilyrði, en ekki látið reka á
reiðanum eins og svo oft hefur
gerst á liðnum áratugum. Við meg-
um heldur ekki gleyma einyrkjum
og fjölskyldufyrirtækjum í útgerð,
sem oft hafa sýnt frábæran árang-
ur í rekstri. Þar era ekki skráðir
yfu-vinnutímar og mikið er á sig
lagt til þess að ná góðum árangri.
Það má því ekki koma til þess und-
ir nokkrum kringumstæðum að
eignaraðild að útgerð valdi mis-
munun í rétti til veiðiheimilda,"
sagði Kristján Ragnarsson.
Efnahagsályktun aðalfundar LIU
Ástæða til hóf-
legrar bjartsýni
Vilja að Kvótaþing verði lagt niður
TEIIGIehf.