Morgunblaðið - 31.10.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 27
ERLENT
Kjósa Bandaríkjamenn
um afstöðu til forsetans?
Bandaríska þjóðin gengur að
kjörborðinu á þriðjudaginn og
velur sér m.a. þingmenn og rík-
isstjóra. Kosningarnar að þessu
sinni eru sagðar snúast ekki
eingöngu um einstaka fram-
bjóðendur heldur ekki síður um
afstöðu almennings til hneyksl-
ismála forsetans. Rakel Þor-
bergsdóttir skrifar frá Boston.
Reuters
MIKIÐ mæðir á Clinton-hjónunum fyrir þing- og
ríkissljórakosningar sem framundan eru.
KOSNINGARNAR á þriðjudag eru
margþættar og misjafnt eftir ríkjum
um hversu mörg embætti er kosið.
Að þessu sinni verður kosið um öll
435 sæti fulltrúadeildar þingsins, 34
sæti öldungadeildarinnar, 36 ríkis-
stjórar verða valdir auk þess sem 46
ríki af 50 kjósa í æðstu stöður stjórn-
sýslu sinnar. Aðalbaráttan er um yf-
irráð þingmeirihluta í fulltrúadeild-
inni en Demókrataflokkurinn þarf
einungis 11 þingsæti til að fella
meii’ihluta Repúblikanaflokksins.
Demókratar eru í meirihluta öld-
ungadeildarinnar en með fimm þing-
sætum til viðbótar réði flokkurinn
yfir tveimur þriðju hlutum atkvæða
og gæti þar með komið í veg fyrir að
hugsanleg málshöfðun til embættis-
missis á hendur forsetans yrði sam-
þykkt.
Hagstæð úrslit flokkanna í kosn-
ingum þessa árs geta skipt máli fyrir
stöðu þeirra næstu árin því manntal
verður tekið árið 2000 og kjördæma-
skipan breytt í samræmi við það.
Sigri repúblikanar gæti það sett
demókrata í viðkvæma stöðu og gert
þeim erfiðara um vik að endur-
heimta töpuð sæti síðar.
Þegar undirbúningur fyrir kosn-
ingarnar hófst leit út fyrir að úrslit
yrðu tíðindalítil og breytingar litlar.
Efnahagur landsins var r blóma og
friður ríkti allt þar til Lewinsky mál-
ið blossaði upp og ljóst var að erfið-
leikar Clintons myndu ekki hverfa
án einhverra eftirmála. Um tíma var
því haldið fram að þrengingar forset-
ans myndu vekja næga samúð og
reiði til að flokknum tækist að nýta
sér umfjöllunina til að auka fylgi sitt.
Nú vh'ðast flestir þeirrar skoðunar
að það verði Repúblikanaflokkurinn
sem muni hagnast á hremmingum
Clintons.
Atkvæði kvenna niikilvæg
Nokkur atriði hafa einkennt kosn-
ingabaráttuna í Bandaríkjunum að
þessu sinni. Áhersla frambjóðenda á
einstök málefni í stað þess að reyna
að klekkja á andstæðingnum með
neikvæðum auglýsingum hefur ein-
kennt kosningaslaginn ef frá er tal-
inn lokaspretturinn þar sem öllum
brögðum er beitt til að sigra. Mikl-
um fjármunum hefur verið eytt í
kosningabaráttuna á landsvísu og
reiknast mönnum svo til að nýtt met
hafi verið sett.
Repúblikanaflokkurinn hefur biðl-
að sérstaklega til kvenna og blökku-
manna en Demókrataflokkurinn hef-
ur reynt áð höfða hvort tveggja til
frjálslyndra og miðjumanna. Konur
eru sagðar gegna lykilhlutverki í
kosningunum og afstaða þeirra til
hneyklismála forsetans er talin geta
haft úrslitaáhrif í einstökum ríkjum.
Repúblikanaflokkurinn fór af stað
með tíu milljóna dollara auglýsinga-
herferð á landsvísu fyrr í vikunni þar
sem mál forsetans voru opinskátt
gerð að kosningamáli og meðal ann-
ars notaðar myndir af Clinton þar
sem hann ávarpar þjóðina. Nokkrar
þessara auglýsinga eiga sérstaklega
að ná til kvenna og mæður eru meðal
annars spurðar hvort það eigi að
verðlauna forsetann fyrh- að ljúga að
þjóðinni í sjö mánuði. Heimavinn-
andi húsmæður þykja sérstaklega
viðkvæmai- fyrir áróðri af þessu tagi
því jafnvel skoðanakannanir meðal
demókrata hafa sýnt að hneykslun
fólks á hegðun forsetans er hvað
mest á meðal foreldra ungra barna.
Skoðanakannanir á viðhorfi al-
mennings til Lewinsky-málsins hafa
verið tíðar undanfarna mánuði og
reynt hefur verið að spá um hugsan-
leg áhrif þess á kosningarnar. News
NBS og Wall Street Journal birtu
niðurstöður einnar slíkrar á miðviku-
dag þar sem tveir þriðju hlutar þjóð-
arinnar lýstu yfir óánægju sinni með
framferði þingmanna Repúblikana-
flokksins vegna rannsóknar á málum
forsetans. Könnunin leiddi í ljós að
54 prósent kjósenda sögðu að Lewin-
sky málið myndi ekki hafa áhrif á
ákvörðun þeirra í kjörklefanum. Um
36 prósent sögðust síður myndu
kjósa frambjóðanda sem færi fram á
embættismissi forsetans á móti 14
prósentum sem sögðust frekar kjósa
frambjóðanda sem styddi slíkt.
Ny rfkisstjórn skipuð í Slóvakíu
Bættum
stjórnar-
háttum
heitið
Bratislava. Reuters.
FORSETI slóvakíska þingsins skip-
aði í gær nýja ríkisstjórn, sem hefur
heitið því að standa að miklum um-
skiptum í landinu í því skyni að
koma því sem fyrst aftur í fremstu
röð þeirra ríkja sem bíða aðildar að
Atlantshafsbandalaginu (NATO) og
Evrópusambandinu (ESB).
Erlendir stjórnarerindrekar
binda vonir við að hin nýja stjórn
Slóvakíu verði þess megnug að
brjóta landinu leið út úr þeirri ein-
gangrun sem það hefur lent í eftir
gerræðislega stjórnartíð Vladimirs
Meciars, sem beið mikinn ósigur í
þingkosningum í september.
Fjórir flokkar standa að nýju
stjóminni, þar á meðal flokkur hins
fjölmenna minnihluta Ungverja í
landinu, og fyrir henni fer hagfræð-
ingurinn Mikulas Dzurinda. Hann
tjáði fréttamönnum í gær að stjórn
hans myndi reyna að græða þau sár
á þjóðfélagi Slóvakíu sem fyrri
stjórnarherrar hefðu valdið.
Dzurinda sagði að meðal fyrstu
verkefna yrði að stokka upp í leyni-
þjónustunni og ríkissjónvarpinu, en
Reuters
MIKULAS Dzurinda, nýskipaður
forsætisráðherra Slóvakíu, um-
kringdur fréttamönnum í gær.
stjórn Meciars hafði haft sérlega
mikil afskipti af báðum þessum
stofnunum og beitt þeim óspart í
pólitískum tilgangi.
Schuster verður forseti
Rudolf Schuster, formaður miðju-
vinstri-flokks sem stendur að
stjórninni, hefur verið tilgreindur
sem forsetaefni stjómarflokkanna,
en Slóvakía hefur verið án þjóðhöfð-
ingja frá því Michal Kovac, svarinn
andstæðingur Meciars, lét af emb-
ætti forseta í byrjun marz sl. Þingið
kýs forsetann.
Fárviðri í Mið-Ameríku
Allt að 50 hafa farist
San Pedro Sula. Reuters.
FELLIBYLURINN Mitch, sem
hefur valdið allt að 50 dauðsföllum í
Mið-Ameríku, var í gær skilgreind-
ur sem hitabeltisstormur og óveðr-
ið hélt áfram að valda flóðum og
skriðuföllum á stóru svæði.
Vindhraðinn hafði minnkað í 64
km á klst. í gær en var 295 km þegar
hann var mestur fyrr i vikunni.
Manntjónið var mest í Hondúras,
þar sem um 30 manns létu lífið, og
rúm hálf milljón manna varð að flýja
heimili sin í Mið-Ameríkuríkjunum.
„Algjör ringulreið ríkir við Atl-
antshafsströndina, tjónið er ómetan-
legt,“ sagði talsmaður almanna-
varnanefndar Hondúras. Óveðrið
hefur kostað alls 19 manns lífið í
Níkaragva og ellefu fórast þar í
skriðuföllum af völdum steypiregns
á fimmtudag. Sex manna var enn
saknað.
A leið yfir Yucatan
Miðja stormsins var um 80 km
sunnan við La Ceiba í Hondúras í
gær og veðurfræðingar sögðu að fár-
viðrið kynni að færast í norðvestur,
yfir Yucatan-skaga í Mexíkó og inn í
Mexíkóflóa. Þeir vöruðu við því að
vindhraðinn myndi aukast ef storm-
urinn færi aftur yfir hafið.
Framtiðarböm og Síminn Internet bjóða bömum á aldrinum 5 -14 ára upp á nytsamleg og spennandi tölvunámskeið fyrir aðeins
3.900 krónur á mánuði. Tilboðið gildir aðeins fyrir viðskiptavini Símans Intemet.
Tölvuskólinn Framtíðarböm sérhæfir sig í tölvukennslu fyrir böm og unglinga á aldrinum 5-14 ára. Námið sjálft er byggt upp í kringum
tíu ákveðna þætti tölvunotkunar, m.a. ritvinnslu, töflureikni, myndvinnslu, margmiðlun og hagnýtingu tölvunnar og kennt er hvemig
tölvan nýtist við lausnir ýmissa verkefna og vandamála. Markmiðið er að gera tölvunotkun skemmtilega og lifandi og er unnið eftir
ákveðnu þema á hverju námskeiði.
Næstu námskeið liefjast 2. - 7. nóvember. Gert verður hlé á kennslu 14. desember, byrjað aftur 4. jar.úar og haldið áfram fram í
miðjan maí.
Skráning fer fram á skrifstofum Framtíðarbarna á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík, Grensásvegi 13 (Pfaffhúsinu), sími:s53 3322
Akureyri, Skipagötu 16, sími: 4613328, Anna
Akranes, Kirkjubraut 17, símv.4313350, Borghildur
ísafirði, Mánagötu 6, sími: 456 3168 eftir kl. 20, Bergljót
Selfossi, Tölvuskóla Suðurlands, sími: 482 3937
SÍMINNibternet'
FRAMTÍÐARBÖRN
sími 553 3322