Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 32

Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 32
Eitt kvöldið þegar Sigrún Davíðsdóttir var að útbúa kvöld- matinn fyrir þrjá sérfræðinga um málefni Andrésar Andar og félaga laust þeirri spurn- ingu niður í höfuð hennar hvað Andrés og fjölskylda hans borðuðu eifflnlega. Hjá sérfræðingun- um var ekki komið að tómum kofunum. Meðan þeir biðu eftir kvöld- matnum sátu þeir allir við matarborðið og lásu Andrés Önd og það dróst ekki upp úr þeim orð. Athyglin var algjör- lega bundin við lestrarefnið. Aiex, bandarískur tólfáringur sem ekki kann orð í íslensku, var alveg jafn upptekinn af lestrinum og Ari jafn- aldri hans og fimmtánáringurinn Kjartan, sem hafa íslensku að móð- urmáli. Aðdráttarafl Andrésar og félaga nær greinilega út yfir mörk tungumálsins. Vísast af því að mat- urinn var í undirbúningi þarna í eldhúsinu sem þeir sátu þá laust þeiiri spumingu niður í kollinn á mér, sem var að elda og ekki lesa Andrés Önd og félaga, hvort þessir þrír sérfræðingar um Andrés gætu ekki frætt mig um mataræði anda- fjölskyldunnar og vina þeirra. Þeg- ar maturinn var kominn á borðið og blöðin höfðu verið lögð til hliðar var hægt að taka til við spurningu kvöldsins: Hvað borða Andrés Önd og félagar? Fyrstu svörin voru heldur dræm. Var eitthvað um mat í blöðunum? Jú, sérfræðingarnir álitu svo vera, en nákvæmlega hvað það væri mundu þeir ekki svona svipstundis. Mér datt í hug að vísast borðuðu þeir snarl, sem Alex var nýbúinn að segja mér frá, „maura á trábol“, og það þótti þeim ekki ólíklegt. Við nánari umhugsun mundu sérfræð- ingamir þó eftir einu og öðru. Það rifjaðist upp að í einni sögunni vai’ Andrés með grasker á heilanum og allur matur var með graskeri. Eins og lesendum Andrésblaðanna er kunnugt er Andrés alltaf að veiða. Þótt veiðin sé oftar sýnd en gefin þá hlýtur glóðarsteiktur fiskur oftar en ekki að vera á borðum félaganna. A afrnælisdegi Andrésínu era alltaf hamborgarar og hamborgarar geta verið herramannsmatur, ef vel er að þeim staðið. Andarangarnfr Rip, Rap og Rup era oft með ís á lofti, svo ís er greinilega fastur liður í mataræðinu á þeim bænum. Það sem fylgir hér á eftir er því matur, sem hægt væri að bjóða andafjöl- skyldunni upp á ef hún rækist inn í mat... eða áhugasömum sérfræðing- um um málefni andafjölskyldunn- ar... Góða skemmtun - bra, bra! Maurar á trjábol Þetta var það fyrsta sem mér datt í hug þegar spurningin um mataræði andanna kom upp, því þetta snarl sameinar tvennt sem er áberandi í bandarískum mat, nefni- lega jarðhnetusmjör og stöngulsell- erí. Það var Alex sem hafði frætt mig um þetta góðgæti, sem á ensku heitir „Ants on a Log“, maurar á trjábol. Maurarnir era nú í miklu uppáhaldi meðal ungviðisins í fjöl- skyldunni, sem ræður auðveldlega við að útbúa þetta góðgæti handa sér og vinunum. GRASKERSSÚPA 1 vænt grasker, ekki risavaxið þó væn smjörklípa svolítið gróft salt nýmalaður pipar eftir smekk 1 vænn rauðiaukur 1 dl ósoðin hrísgrjón 1 I soð, gjarnan grænmetissoð 4 sneiðar af reyktu svinafleski rifinn ostur, gjarnan parmesan 1 Setjið ofninn á 175. 2 Skerið lok af graskerinu, skrapið fræin úr og trefjarnar sem í kringum þau eru. Nuddið graskerið að innan með svolitlu salti, smjöri og nýmöluðum pipar. 3 Sneiðið laukinn í þunnar sneið- ar og stráið í botninn ásamt hrís- grjónunum. Hellið soðinu yfir, setjið lokið á graskerið, setjið það á fat og inn í ofninn. Nú á það að bakast í um 2 klst. eða þar til hrisgrjónin eru soðin og aldinkjötið orðið mjúkt. 4 Skerið fleskið í litla bita og lát- ið stikna í eigin fitu, svo það verði stökkt. Látið fituna renna af bitunum. 5 Takið graskerið úr ofninum, stráið fleskbitum og rifnum osti yfir súpuna og berið hana fram, gjaman með góðu brauði. Um leið og þið ausið á diskana skrapið þið aldinkjöt með svo all- ir fái bæði soð og grænmeti á diskinn. Þetta er dæmigert bandarískt eftir-skóla-snarl eða bráðlætisbiti á öðram tímum sólarhrings, sem strax fellur í kramið hjá jarðhnetu- smjörsunnendum. Galdurinn er að nota gott jarðhnetusmjör, gjarnan það sem kallast „crunchy" og er með grófmöluðum hnetum í. Síðan er að verða sér úti um gott stöng- ulsellerí með stökkum stönglum og góðar rúsínur. Hreinsið stönglana, þerrið og skerið þá í um 5 cm bita. Smyrjið jarðhnetusmjörinu í dæld- ina á stönglunum, raðið nokkrum rúsínum ofan á - „maurunum" - og berið fram. Graskerssúpa Haustið er gi-askerstíminn og graskerin eru órjúfanlega tengd hrekkjavökunni, Halloween. Gras- ker nota Bandaríkjamenn í marg- víslega rétti og þá líka andafjöl- skyldan, bæði salta og sæta. Súpa úr graskeram er til í mörgum útgáf- um og svo eru það graskerspæjar og -múffur, sem era þekktustu rétt- irnir. Einfaldasta útgáfan af súpu er að sjóða saman bita af afhýddu graskeri ásamt jurtum og kannski öðru grænmeti, setja í kvörn og bera fram með rifnum osti. Útgáfan Eru GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆDINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Spurning: í þeirri miklu umræðu sem hefur verið undanfarið um Is- lenska erfðagreiningu og miðlæg- an gagngrunn vaknar sú spurning hvort geðsjúkdómar séu arfgeng- ir. Hvað er vitað um arfgengi geð- sjúkdóma og hvaða þýðingu hefur það fyrir lækningu á þeim, ef hægt verður að finna genin sem hugsan- lega valda þeim? Svar: Lengi hefur verið talið að hinir alvarlegri geðsjúkdómar, geðklofi og geðhvarfasýki, væra að einhverju eða öllu leyti arf- gengir. Flestir eru löngu orðnir sammála um að geðhvarfasýki sé að veralegu leyti arfgengur sjúk- dómur og eigi sér líffræðilegar or- sakir. Fólki er mun hættara við að fá þennan sjúkdóm, ef hann hefur greinst hjá nánum ættingjum þeirra. Ekki hefur þó tekist að finna beint orsaksamband eða greina þau gen sem raunveralega valda sjúkdómnum. Hið sama á við um geðklofa, þótt meiri ágreiningur hafi verið um arf- gengi hans en geðhvarfasýki. Al- mennar líkur til að fá geðklofa era um 1%, en hjá þeim sem eiga for- eldri með geðklofa eru líkurnar 12% og ef eineggja tvíburi er haldinn geðklofa era líkurnar hjá hinum tvíburanum til þess að fá geðklofa um 48%. Rannsóknir á arfgengi geðklofa hafa verið gerð- ar um áratuga skeið víða um heim og öðra hvora koma fram rann- sóknarniðurstöður, sem virðast staðfesta arfgengi. Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hafa rannsóknir af þessu tagi verið í gangi um nokk- urra ára skeið undir stjórn Hann- esar Péturssonar yfirlæknis, og fyrir fáum árum voru birtar at- hyglisverðar niðurstöður, sem virtust sanna arfgengið. Ekki hef- ur þó tekist að sannreyna þessar niðurstöður með nýjum rannsókn- um. Þeim er þó stöðugt haldið áfram, nú á geðdeild Landspítal- ans, en Hannes hefur nú tekið við prófessors- og yfirlæknisstöðu þar. Samvinna hefur verið tekin upp við íslenska erfðagreiningu um þessar rannsóknir og gera menn sér vonir um að takast megi að finna erfðaefnin og staðfesta þar með fyrri niðurstöður. Þótt líkur séu til þess að arfgengi eigi veralegan þátt í að framkalla hina meiri háttar geðsjúkdóma, er þó ljóst að umhverfisáhrifin hafa mikil áhrif einnig og erfitt er að meta þátt hvors um sig sem getur verið mismikill í hverju tilviki. Einnig er mjög líklegt að mörg gen fremur en eitt einstakt liggi til grundvallar sjúkdómnum og áhrif þeirra og samspil gætu gefið mjög flókna mynd. I hinum vægari geðsjúkdómum, hugsýki og persónuleikaröskun, er arfgengi greinilega mun veiga- minni þáttur og umhverfisáhrif skipta þar meira máli. Skapferli og persónuleiki eru vafalaust erfð að vissu marki, en uppeldi og að- stæður allar móta þessa þætti í fari mannsins og ráða oftast meiru um aðlögun hans og hvort sú aðlögun verður farsæl eða sjúkleg. Maðurinn er mótaður af sam- spili erfða og umhverfis. Allt í fari okkar á sér arfrænan grunn að meira eða minna leyti. Þess vegna er sumum hættara en öðrum að fá tiltekna sjúkdóma, þar á meðal geðsjúkdóma. Það getur síðan ráðist af lífsskilyrðum, uppeldis- aðstæðum eða öðram þáttum í umhverfinu hvort sjúkdómur brýst fram eða hver framvinda hans verður. Takist að greina þau gen sem liggja að baki tilteknum geðsjúk- dómum þarf það ekki að leiða til mikilla breytinga á meðhöndlun þeirra. Vissulega er hægt að hafa áhrif á barneignir eða beita fóst- ureyðingu þegar viðkomandi er í áhættuhópi. Slíkar ákvarðanir vekja hins vegar upp alvarlegar siðfræðilegar spurningar, ekki síst vegna þess að aðrir þættir en erfðir valda einnig sjúkdómnum og framgangi hans. Hugsanlegt er að hægt verði að ráðast gegn gen- unum sem valda þessum sjúkdóm- um með nýjum lyfjum eða öðru inngripi, en of snemmt er að full- yrða nokkuð enn sem komið er hvort slíkt kann að vera mögulegt. Lyfjameðferð sem beinist að ein- kennum þessara sjúkdóma ásamt sálfræðilegum stuðningi og félags- mótun verða vafalaust áfram rík- ur þáttur í meðferð meiri háttar geðsjúkdóma. Ný þekking er þó forsenda allra framfara og upp- götvun erfðafræðilegra orsaka- valda geðsjúkdóma kann að leiða til framfara í lækningum þeirra sem okkur getur ekki órað fyrir enn sem komið er. • Lesendur Morgunblnðsins getii spurt sálfræðinginn um það sem þeim liggur á hjarUi. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkítn 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok, Fax: 5691222, Ennfremur sfmbréf merkt: Gylfí Ásmundsson, Fax: 5601720.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.