Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 43

Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR að lífeyrissjóðnum engan kvóta. Þó að maður leggi peninga í banka eignast maður ekki bankann. Þó að sundlaugar séu byggðar fyi'ir almannafé (skattpeninga) ræður hinn almenni borgari ekki yfír sundlaugunum. Það þarf að borga sig inn og svo er ákveðinn af- greiðslutími. Þetta er einmitt kjarni málsins. Yfirráðin yfír kvót- anum eru að mestum hluta í hönd- um örfárra fyrirtækja og það er al- vörumál. Það er alvörumál að nokkrir aðilar geti ráðstafað nokkurn veginn að vild stærstu auðlind þjóðarinnar. Bjarni Haf- þór segir að margir telji að ekki eigi að skattleggja atvinnustarf- semi fyrirfram, en á þá eitthvað frekar að verðleggja óveiddan fisk fyrirfram og fá af honum arð? Svo kemur trikkið hjá Bjarna Hafþóri, það sem hrífur alltaf svo vel: Hvað segja útlendingarnir? Hvað halda þeir um okkur? Það ætlar seint að fara af okkur heim- óttarskapurinn. Heldur Bjarni Hafþór eiginlega að það sé ekkert rifíst í útlöndum, ekki einu sinni smá; svona eins og eitt og eitt stríð einhvers staðar. Ég býst við að aðalritari Sam- einuðu þjóðanna hafi verið að tala um fískveiðistjórnunina (aflastýr- inguna) en ekki kvótaeignina þeg- ar hann sagði að auðlindastjórnun okkar væri til fyrirmyndar. Það eru allir sammála um að stjórna þurfi fiskveiðum en það er ekki nauðsynlegt að rétta fáeinum útvöldum yfirráðin á silfurfati. Ég held að Bjarni Hafþór ætti að fara að finna aðrar áróðursaðferðir til varnar sægreifum en greinaskrif. Einhvern tíma gaf hann út lag og myndband. A myndbandinu sást hann í forgrunni í vænni lopa- peysu og ef ég man rétt sást glitta í fjölda manns að dansa línudans í einhven-i skemmu á Akureyi-i. Það væri kannski sniðugt hjá honum að semja lag til dýrðar kvótaeigendum og á myndbandinu sem fylgdi laginu væri hann í for- grunni með púðraða hárkollu og í bakgrunni sæjust sægreifar og sægreifynjur dansa menúett í íþróttahúsinu á Akureyiá, svona eins og gert var við hirðir konunga fyrr á öldum. Kannski það hrífi sem áróðursbragð - en ekki fleiri greinar takk! Höfundur er kennari á ísafírði. ÚTILÍF GLÆSIBÆ • S: 581 2922 www.utilif.is LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 43 % Pro Ef þú þjáist af þreytu og sleni, finnst þig vanta orku þá erPROLOGIC fyrir þig! fp'tortoie Fæst i flestum apótekum og lyfjaverslunum um land allt. Framleiöandi: DCV BioNutritions a DuPont Company. Innflytjandi: Pharmaco hf. PROLOGIC gefur þér aukinn lífskraft. PROLOGIC er hlaðið vítamínum og næringarefnum sem líkaminn þarfnast til að takast á við krefjandi verkefni dagsins. vnrnum lihamans og auhtu II ís m iii Hl i 1 Frologic™ lli Ný og háþróuð aðferð við vinnslu eggja gerir PROLOGIC að einstöku fæðubótarefni. A U • K T U F S O R K U N A

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.