Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 52

Morgunblaðið - 31.10.1998, Side 52
-62 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ BRIDS Umsjóii Arnðr G. Ragnarsson Bridsfélag Reyðarfjarðar og Eskifjarðar ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 27. október var spiluð fjórða umferðin í aðaltvímenningi BRE. Úrslit urðu þessi: SigurðurFreysson-JóhannBogason 31 Óttar Guðmundsson - Einar Þorvarðarson 30 Bjöm H. Guðmundss. - Magnús Valgeirss. 27 Asgeir Metúsalemss. - Kristján Kristjánss. 20 Nú þegar einni umferð er ólokið í aðaltvímenningnum er staða efstu manna þannig: Ásgeir Metúsalemss. - Kristján Kristjánss. 73 OttarGuðmundsson-EinarÞorvarðarson 58 Auðbergur Jónsson - Hafsteinn Larsen 39 SigurðurFreysson- Jóhann Bogason 35 Bridsfélagið Muninn Síðasta miðvikudagskvöld var spilaður Mitchell-tvímenningur. Spiluð voru 28 spil og miðlungur var 168 stig. Lokastaðan eftir kvöldið er eins og hér segir: N-S Karl G. Karlsson - Amór Ragnarsson 218 Víðir Friðgeirsson - Einar Júlíusson 189 Bjöm Dúason - Karl Einarsson 173 A-V OliÞórKjartansson-KjartanOlason 198 RandverRagnarsson-Pétur Júlíusson 197 Skafti Þórisson - Elías Guðmundsson 182 Næsta miðvikudagskvöld, hinn 4. nóvember, verður svo haldið áfram í tvímenningi og eru allir hvattir til að koma og taka þátt. Bridsfélag Breiðfirðinga Fjórtán pör spiluðu Howell-tví- menning fimmtudagskvöldið 29. október síðastliðinn. Kristín Þór- arinsdóttir og Sveinbjörg Harðar- dóttir náðu hæsta skorinu og er þetta í annað sinn á skömmum tíma sem þær verða hlutskarpast- ar. Eftirtalin pör náðu hæsta skor- inu: Kristín Þórarinsd. - Sveinbjörg Harðard. 180 Þorsteinn Karlss. - Jón Viðar Jónmundsson 171 Halldóra Magnúsdóttir - Þórður Ingólfsson 166 Ásmundur Ömólfss. - Gunnlaugur Karlsson 165 Alfreð Kristjánsson - Leifur Aðalsteinsson 162 Jón Stefánsson - Guðlaugur Sveinsson 159 A fimmtudögum er ávallt spilað- ur eins kvölds tvímenningur með forgefnum spHm. Allir velkomnir. Þú getur valið úr 21 sjónvarpsstöð og 17 útvarpsrásum Þú færð hvergi betra yfirlit yfir dagskrá sjónvarps og útvarps en í sérblaði Morgunblaðsins, Dagskrá. Þar getur þú á auðveldan hátt raðað saman þinni dagskrá. í blaðinu eru einnig fréttir, myndir og umfjöllun um þættina, kvikmyndirnar og fólkið sem kemur við sögu. Dagskránni er dreift með Morgunblaðinu annan hvern miðvikudag og ókeypis á helstu bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Hafðu Dagskrána alltaf við hendina. / allri sinni mynd! RANNSOKNIR í HERKVÍ HAGSMUNA? ÞAÐ ERU þekkt sannindi að valdhafar allra tíma hafa reynt með ýmsum ráðum að hafa áhrif á skoðanir vísindamanna, þekkingar- leit þeiiTa og rannsóknaniðurstöð- ur. Fyrir aðeins fáum árum viðurkenndi t.d. kaþólska kirkjan form- lega, að jörðin væri hnöttótt og snérist í kring um sólu, and- stætt því sem valdhaf- ar hennar héldu fram af mikilH hörku fyrr á öldum. Þá hafa tóbaks- framleiðendur nýlega falHst á að reykingar geti valdið krabba- meini í lungum. Hér heima mætti nefna að stjómendur ýmissa sveitarfélaga börðust fyrir fáum árum hart gegn þeim mönnum, sem vildu vekja athygli á hugsan- legri snjóflóðahættu viðkomandi staða. Og margir muna líklega eftir því, að einstaka andmæli gegn upp- græðslu og túngerð í sveitum með skurðgreftri og þurrkun lands, vom talin árás á hagsmuni bænda og andstaða við tækniframfarir. I öllum þessum tilvikum tókust á pólitískir hagsmunir og vísindarök. Gróðurhúsa- vandinn Síðustu tvo áratugina hafa um- ræður um svokallaða gróðurhúsa- upphitun jarðarinnar orðið æ fyrir- ferðarmeiri, bæði hér á landi og annars staðar. Meðal vísinda- manna vora og era skiptar skoðan- ir á þessu máli, bæði hvort um sé að ræða raunveralega og varanlega upphitun jarðarinnar af völdum losunar gróðurhúsalofttegunda (aðallega koltvísýrings), hvernig hún dreifðist yfir jörðina og hvort hugsanleg upphitun væri sá hnatt- ræni vandi sem látið er í veðri vaka. Hafa verður í huga að lengi vel var það skoðun margra vísinda- manna, að jörðin væri líklega að fara inn í nýtt ísaldartímabil, sem sannarlega myndi leiða til stór- felldrar röskunar á lífsskilyrðum okkar jarðarbúa. Alveg fram á þennan áratug fóru fram um allan heim opinskáar umræður meðal vísindamanna um þetta mál, en nú á síðustu árum má merkja veru- lega breytingu hér á. Að hluta til má rekja hana til aukins skilnings manna á eðli málsins, svo og að mörg undangengin ár hafa verið hlýrri en áður hefur mælst síðustu 100 til 150 árin eða svo. Þannig hef- ur ýmislegt stutt tilgátuna. En einnig vega hér þungt þær heims- pólitísku ákvarðanir sem teknar hafa verið. Er nú svo komið, að pólitísk nauðsyn og oft stórfelldir efnahagslegir hagsmunir stórfyrir- tækja og heilu samfélagana, allt að því krefjast þess, að þetta sé ein- hver mesti umhverfisvandi heims- ins. Og þegar einstakHngar, fyrir- tæki eða þjóðir eiga orðið verð- mæta koltvísýringskvóta verða efa- semdir um upphitunarvandann barðar niður með alþekktum að- ferðum skoðanakúgunar. A fundi starfsbræðra minna í V- Evrópu nýlega kom fram, að í kjöl- far Kyoto-ráðstefnunnar og stefnu- markandi ákvarðana og skuldbind- inga sem þar vora samþykktar, sáu menn fyrir stóraukna þátttöku veð- urstofa í ráðgjöf við stjórnvöld. Ég benti á, að þegar svo yrði komið yrðu veðurstofurnar að hafa eina opinbera skoðun á málinu, og hið vísindalega skoðanafrelsi sem áður hefði ríkt innan þessara stofnana um máHð heyrði sögunni til. Við slíkar aðstæður yi-ði t.d. varla hægt að búa við veðurstofu- stjóra sem hefði aðrar skoðanir en þær sem samræmdust stefnu og hagsmunum stjórn- valda, auk þess sem ein þjóð, stór eða lítil ætti erfitt með að hafa aðra stefnu en þarna var ákveðin. Þegar bú- ið yrði að leggja á koltvísýringsskatta á öllu evrópska efna- hagssvæðinu og stærstu iðnfyrirtæki svæðisins hefðu sem helstu tekjulind að framleiða tækjabúnað til þess að farga eða binda koltvísýring í jörðu eða sjó yrðu efasemdarraddirnar þaggað- ar niður. Ofveiði- vandinn Fyrir u.þ.b. aldarfjórðungi kom fram sú skoðun meðal íslenskra fiskifræðinga að við væram að of- veiða þorsk og fleiri tegundir hér við land. Þessi skoðun kom í fram- haldi af miklum breytingum í um- hverfi hafsins sem aftur tengdust breytingum á veðurfari Islands og nálægum svæðum. Um þetta mál vora afar skiptar skoðanir, bæði meðal lærðra utan sem innan Haf- rannsóknastofnunar, að ekki sé minnst á sjómenn, alþingismenn og fjölda leikmanna. A árunum upp úr 1980 fóru fram miklar umræður og skoðanaskipti um rannsóknarað- ferðir, áhrif veiða, áreiðanleika stofnmælinga, nýliðun o. fl. Þegar síðan aflamarkskerfið var tekið upp má segja að smám saman hafi myndast „skoðanamúr" í kring um Hafrannsóknastofnun, múr sem nánast hefur verið óvinnandi eftir að frjálsa framsalið var sett á og stjórnvöld og útgerðarmenn sam- einuðust í hagsmunagæslunni um fiskveiðistjórnunarkerfið. Engu er líkara en að allt í einu hafi vísindin verið orðin svo þróuð, að öll vafaat- riðin sem menn ræddu áður séu ekki lengur til staðar, þegar um fiskifræðina er að ræða. Er nú svo komið að flestar efasemdaiTaddir era þagnaðar enda menn úthrópað- ir sem sérvitringar, falsspámenn eða jafnvel ábyrgðarlausir óvinir þjóðarinnar. Margir náttúrufræð- ingar og fleiri sem gagnrýnt hafa forsendur fiskveiðistjórnunarkerf- isins era hættir að þora að láta skoðanir sínar í ljósi þar sem þeir eiga á hættu að missa vinnuna eða verða fyrir öðram beinum eða óbeinum óþægindum eða jafnvel mannorðsmissi. Svipað er uppi á teningnum þeg- ar minnst er á gagnrýni sjómanna og skipstjórnamanna á kerfið, þeir fá þá annaðhvort að taka pok- ann sinn eða koma að læstum stýr- ishúsum. Til að herða enn á skoð- anakúguninni era ýmsir embættis- menn þjóðarinnar og forystumenn útvegsmanna á faraldsfæti um all- an heim til að mæra okkar ábyrga fiskveiðistjórnunarkerfi og óskeik- ulu vísindin sem eiga að hafa byggt upp alla fiskistofna víð Island síðan kerfið var sett á!! Þegar síðan auð- trúa útlendingar (oftast hagfræð- ingar) annaðhvort skrifa greinar eða koma í heimsókn til að lof- Magnús Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.