Morgunblaðið - 31.10.1998, Page 69

Morgunblaðið - 31.10.1998, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 69V Afmilljónaðir íslendingar ÍSLENSKA þjóðfélagið býður sjónvörpunum þremur upp á harða samkeppni. Að vísu sækja sjón- vörpin mikið af dagskárefni s£nu til þjóðfélagsins, eins og efnið í „Enn eina stöðina" eða eintal Marteins Mosdals, sem gæti verið skemmti- legra af því hann er nú einu sinni einn af okkar allra bestu grínköll- um ásamt þeim stöðvarköllum. Þetta efni veitir ekki þjóðfélaginu harða samkeppni í skiingilegheitum heldur er um það sjálft. En það einkennilega er, að einungis lítill hluti af vitleysunni í þjóðfélaginu kemst á dagskrá hjá grínurum. Maður les og heyrir að- algrinið i dagblöðum og heyrir það í ljósvakafjölmiðlum. Sjónvörpin komast aldrei i hálfkvisti við gam- anið bæði grátt og venjulegt í frétt- um nema auðvitað í fréttatímum. Þótt þetta sé ekki vettvangur, þar sem fjallað er um skrif í blöð- um, ber umræðan í landinu þegar nokkurn keim af þúsund ára af- mæli landafunda í vesturvegi og hafa þegar hlotist nokkur ski'if af. Eróðir menn hafa lagt sig í fram- króka við að fínna lendingarstað hvitra manna í Ameríku og hefúr Guðmundur Hansen bent á með rökum að lendingarstaðurinn hafi verið Manhattan, eiginlega Wall Street. Tveir menn annarrar lífs- skoðunar en Guðmundur Hansen SJONVARPA LAUGARDEGI halda því fram að þetta sé tóm vit- leysa. Annar hefur skrifað kennslubækur í sögu, sem þyrftu kannski einhverrar endurskoðunar við, en hinn er kunnur fyrir að hafa komið Margaret Thatcer í veður- fréttn hér á norðurhjaranum, þeg- ar hún var í Falklandseyjastríðinu. Leikmann í fræðunum grunar að báðir þessir menn séu á móti kenn- ingu Guðmundar Hansen, af þvi að fólk á borð við Leif heppna, Bjarna Herjólfsson, Guð- ríði Þorbjarnardóttur og soninn Snorra má ekki hafa lent þar, sem síðai' varð helsta kapitalistadíki veraldar, sjálft Wall Street. Önnur mjög skemmtileg uppá- koma varð um helgina, samkvæmt fréttum. Stofnað var til undirbún- ings flokks vinstri: nanna og græn- ingja. Þar er á ferð nær helmingur af þingflokki Allaballa. Maður vissi nú alltaf að þen væru grænir í bókstaflegri merkingu. Þessir aðil- ar virðast ekki sjá velgrónar hug- sjónalendur sameiningar. Vitað mál er að vísu að ekki var samein- ast til neins annars en koma í veg fyrir framboð krata. Þeh' eiga enga möguleika sameinaðir gegn Allaböllum í prófkjöri, kvennalist- inn ekki heldur né aðrir útai'far með listaveiki. Flokksstofnun græningja er því óþörf. Vegna væntanlegra kosninga má fólk eiga von á framhaldsskemmtun í fréttatímum næstu mánuði. Ríkiskassinn sýndi danska mynd á laugardag um fíkniefnasala. Myndin sætti nokkrum tíðindum vegna þess að það er ekki á hverj- um degi sem Dönum tekst að gera góða mynd, og voru þeir þó í „den“ í fremstu röð kvikmyndaframleið- enda. Gaman er að sjá að þeir virð- ast vera að sækja sig, einkum á sviði afbrotamynda, þai- sem Kan- ar hafa haft yfírhöndina. Annað íylgh' á eftir. Þessi danska mynd er ekki á nokkum hátt byggð sam- kvæmt venjunni að vestan, sem virðist hafa haft svo mikil áhrif hér, að varla verður þverfótað fyiir eft- iröpunum. Hún hefur mitt í dauð- ans alvöru möguleika á svolítilli danskri kímni og má kalla það af- rek miðað við aðstæður og and- rúm. Og svo er hún mannleg að auki, sem er nú yfírleitt ekki uppi- staðan í svona myndum. Og svo féll Lottóið og hægt að byrja aftur á byrjuninni. Til allrar guðslukku gekk vinningurinn út við sjöunda drátt, annars veit eng- inn nema þetta hefði endað með slagsmálum í miðasölum. Það voru sem sagt langflestir íslendingai' afmilljónaðir um síðustu helgi og hefur ekki annað eins rusk orðið hér á sviði peninga síðan landinu var stjórnað með gegndarlausum gengisfellingum. Indriði G. Þorsteinsson Frábær danstónlist frá kl. 23.30 með hljómsveitinni Saga Klass og söngvurunum Sigrúnu Evu Ármannsdóttur og Reyni Guðmundssyni fara á koslum « fcrö CLEÐI, SONCUR OC FULLT AF GRÍNIISÖLNASAL Arna og Stefán halda uppi stuðinu á Mímisbar FOLK í FRÉTTUM ÞORGRLUllR HalM' ll""* «■» iS T'S’jr •wiw u>u rad^aSverrit- Fönkið er eitrað „BANDIÐ er eiginlega tveggja ára. Við kölluðum okkur Mími og keppt- um í Músíktilraunum, þar sem við fengum verðlaun íyrir gítarleik, hljómborðsleik og bassaleik. Eftir það gerðist ósköp lítið hjá Mími, þar til fyrir nokkrum mánuðum að fónk- kóngurinn Fíri kom og sagði okkar að hætta að spila „fusion“ tónlist, eða bræðing, og snúa okkur að íonkinu. Bandið skipti um nafn, fónkið lífgaði okkur við og síðan höfum við verið að gera alls konar skemmtilega hluti,“ segir Ómar Guðjónsson gítai'leikari og forsprakki Funkmaster 2000, sem spilar fyi'ir fólk í stuði á Vegamótum í kvöld. Maður verður að geta sagt, je“ - Hvað er skemmtilegra við fönk- ið? ÓMAR: Það er ekki skemmtilegra, bræðingurinn byggist á fleiri hljóm- um og er meira krefjandi tónlist. Það er hins vegar stemmningin, tilfinn- ingin í fonkinu sem er krefjandi. HELGI: Það er bara erfitt að fá gott „grúv“. ÓMAR: Maður velur sér ekki fönklag, spilar það saman og er þar með að fónka. Hljóðfæraleikararnir verða allir að ná mjög vel saman í »,grúvinu“ sem er í gangi, vera í réttu stemmningunni og geta sagt ,Je“. HELGI: Hreyfa sig, vera frjálsleg- ur, og afslappaður, je, funkið er eitr- að. - Er þetta ekki töffaratónlist? ÓMAR: Jú, Funkmaster 2000 er töffaraband. A tónleikum er sýning í gangi. Þegar maður byrjar að spila kemst maður í vímu. Þessa fónk- vímu, je, og þá hugsar maður um lít- ið annað en að vera í þessu „grúvi“. Svo fær maður mjög mikið út úr því hlustað á tölvur. Fólkið kann greini- lega að meta það og það er miklu betri stemmning á börunum núna. HELGI: Það er skemmtilegra fyr- ir fólkið að hafa ekki bara eitthvað í eyrunum, heldur vera hluti af tón- listinni með því að dansa, orga og klappa. - Er ykkar mesta metnaðarmál að hafa fólk í stuði? ÓMAR: Nei, nei. Að spila tónlist er að gera sjálfum sér til geðs. Mér fmnst það alltaf þannig, hvort sem ég er uppi á sviði eða heima hjá mér. Maður er að annast sál sína með því að spila. En það er frábært að fá já- kvæð viðbrögð frá fólki, og það væri fáránlegt að vera einn úti í horni að spila tónlist. Fólkið er hluti af henni. - Spilið þið eitthvert frumsamið efni? ÓMAR: Við erum að semja, en það er ekkert komið almennilega af stað hjá okkur. Annars erum við mest að spila Meders, JBs og Herbie Hancock. HELGI: Við erum held ég aðeins grófari en þeir í því sem við erum að semja. ÓMAR: Já, þótt við semjum á sömu fónkforsendum og þeir, þá er- um við nýtt band og lifum í núinu. Það er svo mikið að gerast í tónlist og við höfum úr svo fjölbreyttri tónlist velja að auðvitað blandast eitthvað af henni inn í það sem við semjum. - Afhverju eruð þið ekki með hár- kollur eins og náunginn á merkinu ykkar? IIELGI: Ég veit reyndar um eina góða en Spooky Boogie voru með hárkollur og dót. - Eitthvað að lokum ? ÓMAR: Göngum saman inn í nýja öld ... HELGI:... með Funkmaster 2000. íA(geturgaRnn Smiðjuveffi 14, Xppovogi, sími 587 6080 Danshús Hljómsveit Stefáns P. og Pétur leika í kvöld Borðapantanir í símum 557 9717 og 587 6080 Sjáumst hress núna! Funkmaster 2000 er fönksveit, eins og nafn- ið gefur til kynna, og meðlimirnir segja að það sé töffaraband, af- slappað og frjálslegt. Hildur Loftsdóttir hitti gítarleikarann og trymbilinn. Morgunblaðið/Ámi Sæberg FUNKMASTER 2000 skipa; Ómar Guðjónsson, Hannes Helgason, Helgi Svavar Helgason, Sverrir Sævarsson og Kristján Orri Sigurleifsson. hvað allir eru ánægðir. Fólkið gefur manni sprautuna til að halda áfram. Það vantaði þessa frábæru fönk- stemmningu í bræðinginn, þá sagði enginn je. Fönkið er að festa sig sessi. Fólkið er hluti af tónlistinni - Er íonkið ekki mikið í tísku núrja? ÓMAR: Jú, svo virðist sem það sé að vakna aftur til lífsins. Mér finnst skemmtilegt að lifandi tónlist er að koma aftur, í stað þess að eingöngu sé * •v. r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.