Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 70

Morgunblaðið - 31.10.1998, Síða 70
'•'70 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ „MENN voru eitthvað að tala um að lög- reglan hefði komið,“ segir Barði Jóhanns- son aðspurður um frumsýningarpartíið í nýja kvikmyndaverinu í Loftkastalanum. „Það var samt ekkert ofheldi," bætir hann við og hlær. „Það var ekki eins og víkinga- sveitin hefði mætt með reyksprengjur og úða.“ Hann bætir við með ótuktarsvip: „Það hefði nú verið hressandi samt.“ Víkingasveitin hélt að sér höndum •if T . tAn\eikum með strengjasvei BANGGangatonlmk^. Hvernig fnnnst þér myndin? „Þetta var mjög fín tónleikamynd. Mér fannst hún skenuntilega tekin, hljóðið var misgott og margir popparanna fóru á kost- um eins og Páll Óskar, Quarashi og Kiddi í Vínyl. Einnig fannst mér atriðið með Sigur rós mjög flott.“ Var myndin eins og þú bjóst við? „Já,“ svarar hann einbeittur. „Nákvæm- lega.“ Hvað tekur við næst hjá Bang Gang? „Platan okkar, sem nefnist „You“, er í pressun úti og kemur eftir tvær vikur. Við ætlum að spila í Danmörku 14. nóvember og síðan taka við útgáfutónleikar og eitthvert uppistand út af plötuútgáfunni.“ Eins og Spitsign hafí dottið í sama pott og Steinríkur „Mér fannst myndin fín og einstaklega fallega tekin miðað við það sem maður hef- ur séð af hljómsveitamyndum," segir Magga Stína, lifandi, hress og skemmtileg að vanda. Jafnvel þótt þetta sé bara síma- viðtal. „Sum atriði máttu missa sín en tón- listaratriðin voru öll til mikils sóma og prýði. Mér fannst allar hljómsveitirnar komast vel frá sínu.“ Skaraði einhver fram úr? „Það er erfitt að taka ein- hvern út úr,“ svarar Magga Stína hugsi. „Ef ég tek það fyrsta sem kom upp í heil- ann, alveg núna, fannst mér það vera Spitsign. Ég líka sé þá á tónleikum og það var sama rogastansið. Það er eins og þeir hafi dottið ofan í sama pott og Steinríkur." Viðtökur myndarinnar Popp Reykjavík Hvernig var Rokk í Reykjavfk í sam- anburðinum? „Hún var mjög „original" mynd. Þessi er ekki jafn einstök og Rokk í Reykjavík var á sínum tíma. En báðar lýsa þær tíðarandanum vel. Rokk í Reykjavík er tekin á mörgum tón- leikum og er algjört frum. Allt í henni er frum. Það er frummynd um frumfólk með frumtónlist. En Popp í Reykjavík er kannski einmitt ekki frum. Það eru miklu meiri seðl- ar í henni og hljómsveitir valdar út frá því hvort þær gætu verið borðleggjandi fyrir einhveija sem vildu kannski kaupa. Það datt ekki neinum í hug að nokkur nennti að horta á Rokk í Reylgavík en Popp í Reykjavík er meira til að selja og hala inn áhorfendur. Tónlistin er orðin miklu meiri markaðsvara en hún var. Ég lield að engum hafi dottið í hug að selja Bjama móhíkana. En það toppar samt enginn við- talið við hann.“ Hvað er framundan hjá þér? „Ég fer til útlanda seinnipartinn í nóvember. Það er inni í myndinni að ég fari líka til Danmerkur um miðjan nóvember en það er ekki alveg 400 pró- sent. En ég ætla allavega að halda þrenna ef ekki ferna tónleika í Englandi og jafn- vel að gera nokkra fleiri tónleika í leiðinni. Svo ætla ég að spila hér heima. Ég ætla að reyna halda eina tónleika áður en trommu- leikarinn fer út sem er í byrjun nóvember þannig að það er eins gott að þeir verði hér um bil næstum því strax.“ Krakkarnir miklu meðvitaðri um ljölniiðla „Ég var ráðinn til að taka viðtöl við hljóm- sveitirnar, vera aðstoðarmaður leikstjór- ans, vegna þess að ég er vel inni í íslenskri Morgunblaðið/Golli SPYRILLINN Jón Atli Jón- asson svaf ekkert í mánuð. tónlist. Ég hef verið að skrifa í DV og Und- irtóna og hef einnig verið á X-inu nánast frá upphafi,“ segir Jón Atli Jónasson sem spurði hljómsveitirnar spjörunum úr, jafn- vel í bókstaflegri merkingu, í Poppi í Reykjavík. Varstu ánægður með útkomuna? „Mjög svo, en ég er náttúrlega orðinn samdauna myndinni. Ég er búinn að sjá miklu miklu meira en áhorfandinn. Svo ég vitni nú bara beint í dóminn sem var birtur í morgun [fimmtudag í Mbl.j þá tók ég löng viðtöl við hljómsveitirnar en ég kom ekki nálægt klippingu myndarinnar og það er leikstjórans að ákveða hvað er inni og hvað ekki. Að því leyti finnst mér það að dæma viðtölin ein og sér vera bara bull og vitleysa. Svo langaði mig til að tala um samanburðinn á þessari mynd og Rokki í Reykjavík. Þessi samanburður er óum- flýjanlegur en Rokk í Reykjavík er meira hrein- ræktuð heimildarmynd. Popp í Reykjavík er ekki heimildarmynd heldur tekur hún tónlistarlífíð í Reykjavík og setur það undir smá- sjána. Tekur púlsinn á því sem er að gerast." Var þetta mikil vinna? „Já, og á mjög stuttum tíma. Það kom þarna mán- uður þar sem maður svaf ekkert." Hvemig eru þessir popparar - eru þeir skemmtilegir? „Þeir eru eins og misjafnir og þeir eru margir,“ segir Jón Atli. „Það erfiðasta var að fá þá til að tala um annað en það sem sneri beint að tónlistinm. Krakkar eru orðn- ir miklu meðvitaðri um miðlana en þeir voru áður og eru ekkert að missa neitt út úr sér. Þeir skilja fjölmiðlana miklu betur. Þetta er fólk sem hefur alist upp með alla Ijölmiðlana í kringum sig og stanslaust áreiti sem var ekki þegar Rokk í Reykjavík var gerð. M orgunblaðið/Ásdís KRISTINN Júníusson úr Vínyl tók ekki húfuna af sér. Popp á Kaffi- barnum ► ÞAÐ ER ekki oft sem myndatökur eru leyfðar á Kaffibarnum en gerð var und- antekning á því í hófí sem haldið var fyrir frumsýning- una á Poppi í Reykjavík. Þar komu saman hljómsveitirnar og aðstandendur myndarinnar og voru svo allir fluttir í „harmóníkuvagni" eða svoköll- uðum liðvagni að Bíóborginni þar sem sýningin var haldin. En það var óneitanlgga skemmtilegt að litast um á Kaffibarnum fyrir áhugamenn um íslenska popptónlist. TVEIR af aðstandend- um myndarinnar, Ágúst Guðmundsson og Berg- sveinn Jónsson. HÖSKULDURúr Quarashi fylgist með manngrúanum. 1 .1 ssm* MAGGA Stína að hugsa eitthvað skemmtilegt. Guðni bassaleikari hennar er ekki eins glaðvær. BARÐI úr Bang Gang í hróka- samræðum við Valgeir forðum liðsmann Ununar. Hélt ekki vatni yfir útkomunni „MÉR FANNST hún alveg brillíant," segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem er óumdeild stjama Popps í Reykjavík. „Ég var einmitt svo lafhræddur við að maður myndi koma út eins og hálfviti af því maður fékk engu ráðið um hvernig viðtölin voru klippt eða lögin hljóðblönduð. Svo settist ég þarna niður og hélt ekki vatni yfir útkomunni." Vá hvað Reykjavík er frábær ANDREA Brabin, Ingvar Þórðarson og Minna Hakkinen. Og Páll Óskar heldur áfram: „Fyrir utan hvað sveitimar eru þéttar og góð- ar í þessari mynd þá er myndatakan framúr- skarandi flott og töff og hljóðblöndunin og hljóðið í þessari mynd er roooosalegt. Mér leið eins og myndin væri THX-kynningin í einn og hálfan tíma. Gústi leikstjóri og hans samstarfsfólk hefur vitað nákvæmlega hvað það var að gera. Páll Oskar í stjörnuhlutverki Popp í Reykjavík Og það allra allra besta við þessa mynd er að hún hefur sömu áhrif á mann og Rokk í Reykjavík hafði í gamla daga. Maður labbar út úr bíóinu og segir: Vá, Reykjavík er frábær. Vá, djöfull eigum við mikið af rosalega hæfileika- ríku tónlistarfólki. Vá, hvað krakkarnir em klárir og hvað það eru góð lög sem þetta lið semur. Það getur stundum verið mikil öf- und og baktal og álíka kjaftæði á Islandi, sérstaklega meðal kollega í sama bransanum, og þess vegna leið mér svolítið eins og allir yrðu vinir. Alla langaði til að fallast í faðma og segja: Heyrðu, þú ert frábær eftir allt saman." Ýmislegt sagt í skjóli fyllirís Þú ert nú alveg óumdeiid stjarna myndar- innar. „Já, ég er svona sögumaður," svarar Páll Óskar. „Sá póllinn var tekinn í hæðina strax

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.