Morgunblaðið - 31.10.1998, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 31.10.1998, Qupperneq 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMl 5601100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Tvö erlend olíufélög . sýna áhuga á olíuleit Tillögur nefndar um hugsanlega olíuleit kynntar á næstunni TVÖ erlend olíufélög hafa sent stjórnvöldum erindi þar sem þau lýsa yfir áhuga á því að kanna til hh'tar líkur á því að olía finnist inn- an íslenskrar lögsögu. Annað fyrir- tækið er lítið, bandarískt olíufélag, en hitt er evrópskt. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa fullti-úar bandaríska olíufélagsins komið hingað til lands til undirbún- ings sínu erindi. Finnur Ingólfs- son, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að tillögur nefndar á vegum ráðuneytisins, um hvemig standa beri að hugsanlegri olíuleit við Is- land, verði kynntar á næstunni. „Nú er staðan sú að tveir erlendir aðilar, sem ég er ekki tilbúinn að gefa upp hverjir em á þessari stundu, hafa sýnt því áhuga að hefja olíuleit við ísland. Áður en til þess kemur að tekin verði ákvörðun varðandi þessi erindi þarf að afla upplýsinga um þessa aðila, hversu traustir þeir em og með hvaða hætti þeir geti hugsað sér að standa að slflnun hlutum. Við höfum staðið að svona rannsóknum með öðrum þjóðum. Við þurfum að ganga úr skugga um hvaða rétt við höfum til þess að nota sameiginleg rannsóknagögn til slíkra hluta. Af hálfu ráðuneytisins er verið að vinna í þessum málum. Ég get ekki sagt á þessari stundu hvenær við verðum tilbúnir með okkar afstöðu til máls- ins. Það sem er hins vegar ánægju- legast er að erlend íyrirtæki sem hafa reynslu af því að leita olíu sýna Islandi núna áhuga. Þann áhuga vil ég nýta til að kanna hvort ekki sé hægt að koma hér á einhverju sam- starfi um að hér verði hafin skipulögð olíuleit," sagði Finnur. ■ í fyrsta/6 Sjónvarpsréttur fyrir útsendingar frá efstu deild í knattspyrnu Skammhlaup í spennistöð á Akureyri Starfsmaður RA brenndist mjög illa STARFSMAÐUR Rafveitu Akur- eyrar brenndist illa á höndum og í andliti er skammhlaup varð í spennistöð sem maðurinn var að vinna í sl. fimmtudag. Starfsmað- urinn, Jósep Sigurjónsson, var að vinna við tengingu á 11.000 volta streng og við skammhlaupið varð sprenging með miklum blossa og hita og kastaðist Jósep til vegna þrýstingsins. Hann var fluttur með sjúkra- bifreið á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar þar sem hann Iiggur enn. I samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, sagði Jósep að líðan sín væri þokkleg miðað við aðstæður en hann er reifaður á báðum höndum, með umbúðir í andliti og með verki í augum. Jósep var með fullri meðvitund allan tím- ann og hann brá strax á það ráð að kæla hendur sínar í snjó utan við spennistöðina. Félagi Jóseps, sem var með honum í spennistöðinni slapp við meiðsl, þótt hann hafi vissulega orðið var við hinn mikla þrýsting sem myndaðist. Jósep hefur starfað hjá RA í rúm 25 ár og hann sagðist hafa áður fengið stuð við vinnu sína en aldrei neitt í líkingu við þetta. Að sögn Svanbjöms Sigurðar- sonar, rafveitustjóra, varð þetta óhapp vegna mannlegra mistaka en í kjölfarið varð rafmagnslaust í bænum sunnan Glerár í stutta stund. Engar greiðsl- ur hafa borist r-. FÉLÖGIN tíu, sem léku í efstu deild karla í knattspyrnu á síðustu leiktíð, hafa enn ekkert fengið greitt íyrir sjónvarpsréttinn sem seldur var þýska fyrirtækinu UFA sl. vor. Fyrsta greiðslan af þremur átti að koma í júlí. Nemur heildarskuld UFA við félögin um 15 milljónum króna. Iceland Seafood Benedikt Sveinsson tekur við stjórn BENEDIKT Sveinsson, for- stjóri íslenskra sjávarafurða hf. (IS), mun á næstunni flytja vestur um haf og taka við yfir- stjórn Iceland Seafood Cor- poration, dótturfyrirtækis ÍS í Bandaríkjunum. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er um tímabundna ákvörðun að ræða og hefur verið ákveðið að stjórnarfonnaðui- IS, Hermann Hansson, taki að sér aukin verkefni í fjarvei-u Bene- dikts. Ekki hefur þó verið ákveðið hve lengi þessi tilhögun varir. Bandaríkjamaðurinn Hal Carper hefiir gegnt starfi for- stjóra Iceland Seafood frá árinu 1994. Um það var samkomulag að greitt yrði í þremur hlutum, fyrst í júlí, þá september og loks um mánaðamótin október/nóvember. Eru því aðeins örfáir dagar þar til þriðji og síðasti hlutinn gjaldfellur og er forráða- menn félaganna farið að lengja held- ur eftir peningunum. Morgunblaðið hefur heimildir fyr- ir þvi, að þýska fyrirtækið telji sig ekki þurfa að greiða félögunum fyi-r en gengið verður formlega frá samn- ingunum. Slík virðist einnig vera túlkun forráðamanna félaganna sem Morgunblaðið ræddi við og kallaði Stefán Jóhann Stefánsson, formaður knattspyrnudeildar IR, þetta „pennaleti". Ingólfur Hannesson, íþróttastjóri RÚV, sem staddur er erlendis, seg- ist undrandi á því að greiðslurnar hafi ekki borist. Hann segir tafirnar hins vegar óviðkomandi RIJV. „Ég fæ ekki með nokkru móti séð hvern- ig hægt er að benda á okkur sem einhvern skúrk í þessu máli,“ sagði Ingólfur. ■ Félögin / B1 Morgunblaðið/Kristján JOSEP Sigurjónsson brenndist illa við vinnu sína hjá Rafveitu Akureyrar. Hér liggur hann reifaður á höndum og með umbúðir í audliti í sjúkrarúmi á FSA. Kaupfélagi Eyfírðinga Harður árekstur á Miklubraut ÞRIR voru fluttir á slysadeild eftir allharða aftanákeyrslu á Miklubraut- —1 inni milli Réttarholtsvegar og Grens- ásvegar kl. 21 í gærkvöld. Meiðsli hinna slösuðu voru þó ekki alvarleg, að sögn lögreglu. Slysið vildi til með þeim hætti að ekið var aftan á kyrrstæða bensínlausa bif- reið, sem stóð á Miklubrautinni. Báðar bifreiðarnar skemmdust mik- ið og þurfti að draga þær burt með kranabíl. breytt í fjögur hlutafélög REKSTUR Kaupfélags Eyfirðinga verður færður yfir í nokkur hlutafélög og samþykkti stjórn KEA í gær að fela Eiríki S. Jóhannssjmi kaupfélagsstjóra að vinna að þessum breyting- um. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, formaður stjórnar KEA, segir þetta mestu stefnumark- andi ákvörðun sem tekin hefur verið varðandi félagið frá árinu 1906 þegar horfið var frá pönt- unarfélagsforminu. Bókfært eigið fé KEA er um tveir milljarðar króna og var velta síðasta árs um 12 milljarðar. Er gert ráð fyrir að hún verði heldur meiri á þessu ári. Hlutafélögin verða til að byrja með að fullu í eigu Kaupfélags Eyfirðinga sem verður áfram rekið sem samvinnufélag. Síðar er gert ráð fyrir að önnur félög í skyldum rekstri geti komið til samstarfs við hlutafélögin Samkeppnisumhverfíð tekið breytingum Eiríkur S. Jóhannsson sagði er framtíðar- skipulagið var kynnt í gær að samkeppnisum- hverfi KEA hefði tekið miklum breytingum síð- ustu árin. KEA hefði sem samvinnufélag ekki mikla möguleika til vaxtar og þróunar í samræmi við þá stefnumótun að nýta hagkvæmni stór- rekstrar. Hann sagði þetta einnig auka mögu- leika á því að ná áhættufjármagni inn í fyrirtæk- ið. Gert er ráð fyrir að stofna fjögur hlutafélög, eitt um matvöruverslun, annað um móttöku og vinnslu landbúnaðarafurða, þriðja um iðnað og það fjórða um aðra starfsemi. Eignarhluti KEA í hlutafélögunum verður í eigu Eignarhaldsfé- lagsins Sameignar hf. Verður eignum og skuld- um KEA skipt milli félaganna. Stefnt er að skráningu Sameignar á Verðbréfaþingi Islands. ■ Nokkur hlutafélög/16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.