Morgunblaðið - 18.12.1998, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 13
„Ég tel í ljósi reynslu síðustu ára,
þrátt fyrir að borgin hafí haft mik-
inn vilja til að reka Sjúkrahús
Reykjavíkur, þá sé þetta rekstrar-
fyrirkomulag fullreynt. Það er ljóst
að fjármunir til rekstrarins koma úr
ríkissjóði, en ekki úr borgarsjóði og
hin fjárhagslega ábyi'gð hlýtur að
liggja á endann hjá ríkinu þó að
borgin hafi verið hinn formlegi eig-
andi og rekstraraðili spítalans.
Við teljum eðlilegt að fjárhagsleg
og rekstrarleg ábyi’gð fari saman
vegna þess að við erum í raun í
þeim stöðu að yfírráð borgarinnar
yfir sjúki'ahúsinu eiu meira að nafn-
inu til en í raun. Það má nefna að all-
ir samningar sem gerðir hafa verið
við starfsfólk hafa verið gerðir undir
forræði ríkisins og yfirleitt allar
ákvarðanir um heilbrigðismál eru á
forræði ríkisins. Ég tel því sjúkra-
hússins vegna og heilbrigðisþjónust-
unnar í landinu vegna að ríkið, sem
ber á endanum fjárhagslega ábyrgð
á heilbrigðisþjónustunni, eigi líka að
bera hina rekstrarlegu ábyrgð,"
sagði Ingibjörg Sólrún.
Nú þarf ríkið að móta stefnuna
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagðist fagna þessu samkomulagi.
„Borgin vildi draga sig út úr rekstr-
inum á Sjúkrahúsi Reykjavíkur,
sem er skiljanleg og eðlileg afstaða
miðað við hvernig mál hafa þróast.
Undanfarin ár hefur þetta verið
meira að nafninu til að borgin hafi
verið þarna aðili að rekstrinum. Nú
flyst starfsemin á þessari stóru og
miklu stofnun frá borginni yfir til
ríkisins. Það er ríkisins að móta
stefnu um framhaldið.
Þarna verða áfram tvær stjómir
og einn forstjóri. Það er því ekki
verið að ákveða að sameina stofnan-
irnar. Menn gefa sér tíma fram eftir
næsta ári til að ákveða framhaldið.
Hugsanlega þarf að breyta lögum.
Við þurfum að nota tímann til að
ákveða hvemig ríkisvaldið vill haga
skipulagi stofnananna."
Geir tók fram að starfsmenn
þyrftu ekki að kvíða að breytingar
yrðu á þeirra högum. Hann sagði að
uppgjörsmál fylgdu þessari ákvörð-
un, sem leyst yrðu á komandi ári.
Þau vörðuðu gamlar lífeyiisgreiðsl-
ur og húseignir sem væru í sameig-
inlegri eigu ríkisins og borgarinnar.
Andstæð
viðhorf
ÞORVALDUR Veigar Guðmunds-
son, lækningaforstjóri á Landspít-
ala, telur að ráðning forstjóra yfir
báða spítalana í Reykjavík sé já-
kvætt skref. Jóhannes Gunnarsson,
lækningaforstjóri á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur, telur hins vegar að
ekki eigi að sameina sjúkrahúsin.
„Ég tel þetta jákvætt. Ég hef
verið á þeirri skoðun að það ætti að
vera sem nánust samvinna milli
spítalanna eða að sameina ætti þá
og því tel ég þetta vera spor í rétta
átt,“ sagði Þorvaldur Veigar Guð-
mundsson. Hann sagðist vera þeiri'-
ar skoðunar að það ætti að ganga
lengra og sameina stjómir spítal-
anna. „Ég tel að af því væri nokkur
fjárhagslegur ávinningur, en ég
held að það verði líka mikill fagleg-
ur ávinningur af því þegar til lengri
tíma er litið,“ sagði Þorvaldur.
„Ég hef alla tíð verið talsmaður
þess að það verði tvö nokkurn veg-
inn jöfn sjúkrahús á Reykjavíkur-
svæðinu. Ég hef fært fyrir því
margs konar rök enda em gild rök
fyi-ir því,“ sagði Jóhannes Gunn-
arsson.
„Það er hins vegar annað mál að
ástandið eins og það hefur verið í
sjúkrahúsmálunum er óþolandi og
ég hef því ákveðinn skilning á af-
stöðu borgarinnar að því leyti að
það er ekki auðvelt fyrir hana að
vera í þeirri stöðu sem hún hefur
verið í undanfarin ár. Það er ekki
endilega samasemmerki milli þess
að fjárhagslega ábyrgðin sé færð
yfir til ríkisins og þess að sjúkra-
húsin sameinist. Ég tel að það get
vel farið á því að það séu tvö
sjúkrahús í eigu ríkisins í Reykja-
vlk með sama hætti og ríkið á og
rekur sjúkrahús í Hafnarfírði. Við
sem era starfsmenn SHR höfum
yfirleitt verið ánægð og stolt yfir
að starfa hjá borgarstofnun og ég
held að flestum þyki það leitt að
því tímabili sé lokið. Það gildir
a.m.k. fyrir mig.“
meðal meirihlutans á fundi á mið-
vikudag þegar ljóst var að samning-
ur lá fyrir. Teldi hún því tryggt að
meirihluti væri fyrir málinu. Hún
sagði þá umræðu ranga að verið
væri að sameina spítalana, þeir
yrðu reknir áfram sem tveir spítal-
ar, menn væru ekki sannfærðir um
að einn spítali undir einni stjórn
myndi skila þeirri hagkvæmni sem
margir vildu vera láta.
Hún kvaðst hins vegar reiðubúin
að ræða það ef sér væri sýnt fram á
hagkvæmni slíks með rökum. Það
að ríkið reki bæði sjúkrahúsin þýði
ekki að þau verði eitt og hún benti á
að ríkið ræki fleiri en einn háskóla
þar sem verkaskipting væri fyrir
hendi. Hún taldi framtíðina í rekstri
hátæknisjúkrahúsanna liggja í því að
verkaskipting yrði tekin upp. Hvorld
væri vilji fyrir því hjá borgaryfir-
völdum, ráðuneyti né Alþingi að þeir
yi'ðu sameinaðir. Ekki er verið að
leysa fjárhagslegan vanda með þess-
um gjömingi, það yrði ekki gert
nema sjúkrahúsunum yrði lagt til
meira fjármagn. Um svartan dag og
gjörning sagði hún slíkar yfirlýsing-
ar einkennilegar. Sagði borgarstjóri
undarlegt að tala um uppgjöf, hér
væri miklu fremur um raunsæi að
ræða, enda hefði borgin í raun ekki
eiginleg áhrif á rekstur spítalans
meðan ríkið hefði á honum fjárhags-
lega ábyrgð. Hún sagði það fullreynt
að eiga að sjá um rekstur á þjónustu
sem annar aðili greiddi fyrir.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði
rangt að vísa til samningsdraga frá
1986, þegar hugmyndir voru uppi
um að ríkið tæki við rekstri Borgar-
spítalans. Þá hefði verið rætt um
kaup ríkisins á 50% eignarhlut
borgarinnar, en nú væri nánast ver-
ið að gefa spítalann. Hann sagði
ljóst að um sameiningu spítalanna
væri að ræða, þótt ekki væri kallað
svo í samningnum.
Borgarstjóri sagði borgina ekki
vera að afhenda eignarhluta sinn,
fyrir hann ætti ríkissjóður að
gi'eiða eftir mati umfram 15% eign-
arhlut borgarinnar. Hún sagði
sama stjórnarfyrirkomulag á SHR
í dag og var þegar hugmyndir voru
uppi um afsal hans til ríkisins árið
1986, þegar sjálfstæðismenn réðu
ferð.
Guðlaugur Þór sagði undarlegt af
borgarstjóra að vísa til gamalla
hugmynda um spítalamálin og segja
með því að samningurinn um yfir-
töku ríkisins ætti ekki að koma
mönnum á óvart. Hann spurði hvers
vegna málið hefði ekki verið rætt í
stjórn SHR og víðar úr því að það lá
svo augljóst fyrir og greinilegt að
samningaviðræður gengju svo hratt
og vel fyrir sig.
Helgi Hjörvar spurði með hvaða
hætti Guðlaugur Þór Þórðarson
hefði beitt áhrifum sínum í þing-
störfum sínum til að reyna að leysa
fjárhagsvanda SHR.
Júlíus Vífill Ingvarsson sagði
vanta tölur í umræðuna. Svo virtist
sem um stórar tölur væri að ræða í
samningnum sem hlytu að hafa
áhrif á fjárhag borgarinnar. Sala
eigna á næsta ári hefði verið ráð-
gerð í fjárhagsáætlun um hálfur
milljarður og hækkuð í 650 milljónir
og spurði hvort sala á SHR hefði
verið tekin þar inn. Hann sagði einu
ástæðuna fyrir því að læðst væri
með veggjum í þessu máli þá að
hefði verið gert uppskátt um samn-
inginn með fyrirvara hefði risið upp
alda mótmæla, ekki síst hjá starfs-
mönnum SHR.
Borgarstjóri sagði ekki hægt að
nefna tölur um hverju sala á SHR
myndi skila borginni þar sem mat
lægi ekki fyrir, en listi yfir eignirn-
ar yrði kynntur á borgarráðsfundi
þegar samningurinn kæmi til um-
ræðu.
Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara
• •
Oldruðum smátt
skammtað af góðærinu
BENEDIKT Davíðsson, formaður
Landssambands eldri borgara, segir
að ellilífeyrisþegum sé smátt
skammtað af góðærinu með áform-
um ríkisstjórnarinnar um breytingar
á elli- og örorkulífeyri. Þeir stjórn-
málamenn séu ekki framsýnir, sem
telji að orð sé á þessum breytingum
gerandi við upphaf árs aldraðra.
Benedikt Davíðsson segir að heil-
brigðis- og tryggingaráðherra hafi
talað um breytingarnar sem mark-
verðasta skref í þessum málum í 60
ár. „Þá hafa skrefin ekki verið stór
að undanfórnu," segir Benedikt,
„vegna þess að það sem er gert um-
fram það, sem ríkisstjórnin var búin
að ákveða í forsendum fjárlaga í
haust, er að bæta við 400 milljónum
króna, sem skiptast þannig að 210
fara tO ellilífeyris og 190 vegna ör-
orkulífeyrisþega. Af þessum 210
mOljónum, sem fai-a tU ellilífeyris,
eiga 80 milljónir, eða jafnvirði eftir-
launa eins bankastjóra, að fara til
þess að hækka almennan ellilífeyri.
Hann átti að hækka um 3,65% sam-
kvæmt fjárlagaforsendum en hækk-
ar nú um 4% eða um 0,35%, frá því
sem ákveðið var. Það eru 1,76 krón-
ur á dag ofan á grunnlífeyrinn,"
sagði Benedikt.
Sú ógæfa að vera gift
„Þá era eftir um 130 milljónir sem
á að nýta til þess að vinna svolítið á
þeirri miklu mismunun, sem er
gagnvart fólki, sem hefur dottið í þá
ógæfu að vera gift. Þetta er ekki
nema lítið brot af því, sem þyrfti tU
að rétta af frítekjumörkin,“ sagði
Benedikt. „Mér fmnst smátt
skammtað af góðærinu, því sam-
kvæmt skýrslu frá Ríkisendurskoð-
un, sem dagsett er 1. desember sl og
hefur verið lögð fram í fjárlaga-
nefnd, hafa framlög til ellUífeyris
skerst um 1.842 milljónir á síðustu 4
ái’um, miðað við lágmarkslaun í land-
inu. Upp í þessar 1.842 mUljónir
kemur 210 milljóna framlag vegna
ellilífeyris, 190 milljónir fara til ör-
yrkja og milljarður til beggja
hópanna til að halda í við hækkun
launavísitölunnar þetta árið.“
„Þetta er öll rausnin og þetta segir
ráðherra að sé stærsta skref, sem
stigið hefur verið í 60 ár,“ sagði
Benedikt. Hann sagðist hafa lýst því
yfir á fundum þingflokka framsókn-
ar- og sjálfstæðismanna að hann
teldi þá stjórnmálamenn ekki mjög
framsýna, sem teldu þetta framfara-
spor eða yfirleitt eitthvað, sem sé
þess virði að hafa orð á við upphaf
árs aldraðra.
Hann sagði að Landssamband
eldri borgara væri að skoða þær
breytingar, sem boðaðai’ era á frí-
tekjumörkunum. „Þetta er hænufet
varðandi frítekjumörk fyrir hjóna-
fólk. En þeir peningar eru teknir af
því, sem hefði átt að fara til að leið-
rétta grunnlífeyrinn," sagði Bene-
dikt Davíðsson.
Hlutur öryrkja helmingur
af eftirlaunum 6 bankastjóra
Garðar Sverrisson, varaformaður
Öryrkjabandalags íslands, segh- að
kostnaður ríkissjóðs vegna boðaðra
hækkana á frítekjumarki öryi-kja og
aldraðra nái ekki 0,1% af þjóðartekj-
um. Það sem kemur í hlut öryrkja
nái ekki helmingi þess, sem fara á í
eftirlaunasjóð 6 ríkisbankastjóra.
Þrátt fyrir að hækkunin sé skref í
rétta átt njóti þeir öryrkjar, sem
verst eru settir, einskis vegna boð-
aðra aðgerða.
Garðar segir það blekkingu að tala
um 1,5 milljarða króna aukningu á
framlögum til öryrkja og aldraðra.
Talað sé um 4% hækkun á bótum al-
mannatrygginga en þar af svari
3,65% til þeirrar hækkunar, sem leið-
ir af kjarasamningum á vinnumark-
aði. Ef sú hækkun hefði ekki verið
látin ganga til lífeyrisþega hefðu
þessir hópar dregist enn meira aftur
úr iaunaþróuninni en þegar er orðið.
Formaður Landssam-
bands eldri borgara og
varaforinaður Öryi’kja-
-------------?--------------
bandalags Islands telja
að breytingar þær á
elli- og örorkulífeyri,
sem tilkynnt var um í
fyrradag, séu ekki
miklar miðað við skerð-
ingar fyrri ára, loforð
ríkisstjórnar og góð-
ærið í landinu. Heil-
brigðis- og trygginga-
ráðherra segir hins
vegar að verið sé að
taka stórt skref í þá átt
að afnema skerðingu
bóta vegna tekna maka
og með breytingunum
sé verið að standa við
gefin loforð.
Gai’ðar segir að fyrsta verk núver-
andi ríkisstjórnar hafi verið að skera
á tengsl bótafjárhæða og lágmarks-
launa. Undanfarin 5 ár hafi grunnlíf-
eyrir og tekjutrygging almanna-
trygginga hækkað um 17,4% en lág-
markslaun um 52% og launavísitala
um 30%. Nú fái öryrkjar 0,35% af
þessari skerðingu til baka. Það jafn-
gildi rúraura 200 krónum á mánuði til
þess sem hefur fullar bætur en um 50
krónum til þess fjölda lífeyrisþega,
sem eingöngu hefur grunnlífeyri.
Hann segir að miðað við forsendur
ríkisstjórnarinnar sé útgjaldaaukn-
ing ríkissjóðs þær 200 milljónir, sem
það kostar að hækka frítekjumark
öryrkja, þannig að tekjur skerði
bætur ekki í sama mæli og áður.
Þetta sé skref í rétta átt en hvergi
nærri nóg. Þótt mörkin hækki standi
það eftir, að þegar þeim er náð, taka
við sömu jaðarskattaáhrifin og áður,
og nema 45% til viðbótar venjulegu
skatthlutfalli.
„Ef öryrki, tekur upp sambúð með
einhverjum, sem hefur yfir 90 þús-
und króna mánaðartekjur þá fara 44
þúsund krónurnar hans að skerðast.
Ef öryi’ki getur nýtt sitt eigið frí-
tekjumark má maki aðeins hafa 45
þúsund krónur án þess að bæturnar
skerðist. Það alvarlegasta er að það
er ekkert komið til móts við þá sem
eru mest fatiaðir og geta enga björg
sér veitt. Það er komið til móts við
þá með 200 krónum og það er svo
ömurlegt að ég á engin orð yfir það,“
sagði Garðar.
Hann sagði að með þessu frum-
varpi væri Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra að svíkja loforð
um afnám skerðingar bóta vegna
tekna maka. Að sögn Garðars breyt-
h’ frumvarpið engu um þá ákvörðun
Öryrkjabandalagsins að höfða mál á
hendur ríkisvaldinu. „Þvert á móti
því í frumvarpinu er bætt inn ákvæð-
um, sem binda þessa skerðingu í
lög,“ sagði hann.
Hann sagði að málshöfðunin mundi
byggjast á því að sú skerðing sem
orðið hefur undanfarin fimm ár hafi
verið í andstöðu við almannatrygg-
ingalög. Auk þess hafi verið brotin
jafm’æðisregla stjómsýslulaga,
ákvæði stjórnarskrár, mannréttinda-
yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna og
Mannréttindasáttmála Evrópu. Þá sé
framið skýlaust brot á meginreglum
Sameinuðu þjóðanna um málefni fatl-
aðra sem félagsmálaráðherra kynnti
á Alþingi fyrir réttu ári.
Er að standa við gefin loforð
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra segir að hún sé að standa
við gefin loforð með því frumvarpi
um breytingar á tryggingabótum,
sem lagt verður fyrir Alþingi. Verið
sé að taka stórt skref í þá átt að af-
nema skerðingu bóta vegna tekna
maka.
„Ég.hef staðið við það sem ég hef
sagt, að ég ætli að taka fyrstu skref-
in í að minnka þessa skerðingu. Það
er verið að leggja fram tæplega 500
milljónir til þess að minnka skerð-
ingu upp að frítekjumörkum. Sem
dæmi má nefna aukast tekjur hjóna
um a.m.k. 150 þúsund krónur á ári
frá því sem nú er. Svigrúmið eykst
því um 50-125% fyrir þennan hóp.
Ég er því að standa við þau fyrirheit
sem ég gaf á þinginu í vor og í kosn-
ingabaráttunni fyrir fjórum árum.
Það er hins vegar réttur hvers Is-
lendings að leita réttar síns fyrir
dómstólum, telji þeir að á sér hafi
verið brotið og þennan rétt getur Ör-
yrkjabandalagið nýtt sér eins og aðr-
fr. Það er hins vegar nauðsynlegt að
menn átti sig á því að þessi skerðing
hefur verið til staðar í trygginga-
kerfinu í 60 ár og engar breytingar
hafa verið gerðar á þessu í 30 ár. Á
þessum tíma hafa ýmsir ráðherrar
og flokkar fai-ið með þennan mála-
flokk. Þetta er í fyrsta skipti sem
skref er stigið til að draga úr þessari
skerðingu,“ sagði Ingibjörg.
Ingibjörg sagði að í fi’umvarpinu
fælist ýmiss annar ávinningur fyrir
öryrkja.
Andlát
BOGI ÞORSTEINSSON
BOGI Þorsteinsson,
fyrrverandi yfirflugum-
fei’ðarstjóri, er látinn,
áttræður að aldri.
Bogi fæddist 2. ágúst
árið 1918 að Ljárskóga-
seli í Laxárdalshreppi,
sonur Þorsteins Gísla-
sonar bónda og Alvildar
Bogadóttur. Hann
stundaði nám við Reyk-
holtsskóla en síðar nam
hann loftskeytafræði og
flugumferðarstjórn og
lauk prófi í báðum
greinum, hinni síðar-
nefndu í Altanta í Ge-
orgíu í Bandaríkjunum
árið 1951. Seinna fór hann í náms-
ferðir til Bretlands og Bandaríkj-
anna.
Bogi var loftskeytamaður á skip-
um Eimskipafélags Islands, m.a. á
Dettifossi er því skipi var sökkt árið
1945. Hann varð síðar
loftskeytamaður ílug-
málastjórnar árið 1946
og yfirflugumferðar-
stjóri á Keflavíkui’flug-
velli árið 1951.
Bogi var lengi frétta-
ritari Morgunblaðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Hann sat í orðabókar-
nefnd er undirbjó Ný-
yrði IV, Flug, 1956.
Hann átti sæti í knatt-
spyrnudómstól KSÍ, var
formaður Körfuknatt-
leikssambands Islands,
sat alþjóðlegar körfu-
knattleiksráðstefnur,
var fulltrúi Körfuknattleikssam-
bandsins í Ólympíunefnd Islands og
hann var um árabil formaður Ung-
mennafélags Njarðvíkur. Fyi’ir þessi
störf var Bogi sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu.