Morgunblaðið - 18.12.1998, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
TILKYNNING UM SKRÁNINGU HLUTABRÉFA KROSSANESS HF.
Á VAXTALISTA VERÐBRÉFAÞINGS ÍSLANDS
Útgefandi:
Starfssvið:
Umsjón með skráningu:
Skráningardagur:
Krossanes hf., kennitala 660190-1479, Krossanesbraut, 603 Akureyri
Tilgangur með starfsemi Krossaness hf., samkvæmt 3. grein
samþykkta þess, er framleiðsla og sala d sjdvarafurðum og skyldur
rekstur, rekstur fasteigna og lánastarfsemi.
Kaupþing Norðurlands hf., kt. 610587-1519, Skipagötu 9, 602
Akureyri, sími 460 4702, fax 460 4717
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að skrá bréfin á vaxtarlista og
verða bréfin skráð 22. desember 1998. Hlutabréf í Krossanesi hf. hafa
gengið kaupum og sölum á Opna tilboðsmarkaðinum frá 19. júlí
1996.
Hlutabréf sem skráð verða: Allt hlutafé félagsins, að nafnverði 143.476.078 króna.
Hlutabréfin eru öll seld og útgefin.
Einkenni bréfa:
Skjöl varðandi skráningu:
Hlutafé félagsins skiptist í einsleita einnar krónu hluti og margfeldi
þar af. Bréfin eru ekki gefin út í föstum einingum.
Hægt er að nálgast skráningarlýsingu og önnur gögn er vitnað er til
hjá Kaupþingi Norðurlands hfi, Skipagötu 9, Akureyri, Kaupþingi hfi,
Ármúla 13, Reykjavík, og hjá stærri sparisjóðum.
Ekiðá
ljósastaur
LJÓSASTAUR var ekinn niður á
mótum Hlfðarbrautar og Borgar-
brautar í gærdag og þá var ekið á
annan staur við Strandgötu í fyrra-
dag. Þann dag urðu þó nokkur
óhöpp í uniferðinni, en að sögn lög-
reglu gekk umferð nánast óliappa-
laust fyrir sig í gær og var enginn
asi á fólki þó margir séu á ferðinni.
-------------
Bókun í bæjarráð
um hafrannsókn-
arskip
Heimahöfn
verðiá
Akureyri
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar í
gær bókaði Oddur H. Helgason,
bæjarfulltrúi L-listans, þá tillögu
sína að bæjarstjóra verði falið að
skoða hvað Akureyrarbær geti gert
til að heimahöfn nýs hafrannsóknar-
skips verði á Akureyri.
„Innan tíðar bætist nýtt og full-
komið _ hafrannsóknarskip í flota
okkar íslendinga. Það er stefna nú-
verandi ríkisstjórnar að styrkja
landsbyggðina með flutning stofn-
ana eða hluta þeirra út á land. Akur-
eyri hefur allt til að bera til að verða
heimahöfn nýja hafrannsóknar-
skipsins. Ljóst er að ákvörðun um
það yrði mikil lyftistöng fyrir Eyja-
fjarðarsvæðið," segir í bókun Odds.
Morgunblaðið/Kristján
VALDIMAR Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftiríits
Eyjafjarðar afliendir Franz Árnasyni, framkvæmdastjóra HVA
skjal því til staðfestingar að gæðakerfið GÁMES sé virkt hjá
Vatnsveitu fyrirtækisins.
Hita- og vatnsveita Akureyrar
Gæðakerfi komið á
hjá Vatnsveitunni
VALDIMAR Brynjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Eyjafjarðar hefur gefið út starfs-
leyfi til handa Vatnsveitu Hita- og
vatnsveitu Akureyrar, HVA og
þar með vottað að gæðakerfið
GÁMES sé virkt í fyrirtækinu.
GÁMES kerfið snýst um að
greina mikilvæga eftirlitsstaði og
gera fyrirbyggjandi aðgerðii- þar.
Skilgreindir hafa verið 30 mikil-
vægir eftirlitsstaðii- í Vatnsveit-
unni. Þessi staðh- eru sérstaklega
vaktaðir og á þeim er gerð skrán-
ing á öllum aðgerðum og frávikum.
Einnig hefur verið gerð sérstök
hreinlætisáætlun, umgengisreglur
og fjöidi af verkreglum varðandi
innra eftirlit í fyrirtækinu.
Vatnsveitur landsins falla undir
skilgreiningu sem matvælaíýrir-
tæki, þar sem kalt vatn til neyslu
er afgreitt inn á öll heimili. í máli
Valdimars Brynjólfssonar kom
fram að um 60% matvælafyrir-
tækja á Eyjafjarðarsvæðinu hafi
komið upp innra eftirliti. Hann
sagði að hjá vatnsveitum reyndi
enn frekar á að öll ytri skilyrði
væru í lagi.
Allir starfsmenn þátttakendur
í máli Franz Amasonar, fram-
kvæmdastjóri HVA kom fram að
lögð hafi verið mikil áhersla á að
kynna kerfið fyrir starfsmönnum
og gera alla þátttakendur í því. Það
sé forsenda íyrir því að kerfið virki
og að starfsmenn séu meðvitaðir
um þá ábyrgð sem hver og einn
ber sem starfsmaður í matvælafyr-
irtæki. Starfsleyfi veitunnar sé háð
því að yfirvöld samþykld og votti
að innra eftirliti hafi verið komið á.
Ráðgjafafyrirtækið VSO Ráð-
gjöf hefur verið leiðbeinandi við
uppsetningu á kerfinu en vinna
við kerfið innan Vatnsveitunnar
var aðallega í höndum þriggja
starfsmanna HVA, Árna Sigurðs-
sonar, Kristjáns Baldurssonar og
Áma Árnasonar.
Morgunblaðið/Kristján
BIRGIR Rafn Friðriksson, Arnfríður Arnardóttir og Ragnhildur Magn-
úsdóttir nemendur í niálunardeild Myndlistarskólans á Akureyri eiga
ásamt fleirum verk á Desembersýningunni á Teríunni, en með þeim á
myndinni er Guðmundur Ármann Sigutjónsson kennari við skólann.
Desembersýning
á Teríunni
NEMENDUR í málunardeild
Myndlistarskólans á Akureyri
sýna nú verk sfn á Kaffi Teríunni
og stendur hún út þennan mán-
uð, en yfirskrift sýningarinnar er
Desembersýning.
Alls taka sjö nemendur málun-
ardeildar þátt í sýningunni og
eru verkin 25 talsins, fjölbreyti-
leg að stærð og gerð, vatnslitir,
olíumálverk og grafíkmyndir.
Tveir gestanemar frá Lathi í
Finnlandi taka þátt í sýningunni,
þær Marja Ruuska og Paivi
Hagström. Forsvarsmenn Terí-
unnar leituðu til nemenda mynd-
listarskólans um að sýna verk sin
á veggjum veitingastaðarins og
tóku þeir vel í málaleitan þeirra,
þótti frábært að fá þetta tæki-
færi til að sýna hvað þeir liöfðu
fram að færa.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Bæjarráð um CAFF-
skrifstofuna
Ekki
ókostur að
vera á
Akureyri
BÆJARRÁÐ Akureyrar mót-
mælti harðlega í gær fullyrð-
ingum Snorra Baldurssonar
framkvæmdastjóra CAFF-
skrifstofunnar um ókosti þess
að staðsetja alþjóðlega starf-
semi á Akureyri. Snorri sendi
umhverfisráðherra, Guðmundi
Bjarnasyni, bréf fyrr í þessum
mánuði, en það fjallaði m.a. um
staðsetningu og umhverfi
CAFF-skrifstofunnar.
Bæjarráð mótmælti fullyrð-
ingum Snorra um ókosti þess
að staðsetja skrifstofuna á
Akureyri og fól bæjarstjóra að
koma sjónarmiðum bæjarráðs
á framfæri. Jafnframt skoraði
bæjarráð á umhverfisráðherra
að fullnusta þegar í stað
ákvörðun sínum sem tilkynnt
var við opnun Stofnunar Vil-
hjálms Stefánssonar um það að
skrifstofa PAME verði vistuð á
Akureyri.
Iþrótta- og tóm-
stundamál
Fjárfest fyrir
185 milljómr
FJÁRFESTINGAR Akureyr-
arbæjar á sviði íþrótta- og tóm-
stundamála á næsta ári nema
185 milljónir króna samkvæmt
fjárhagsáætlun sem samþykkt
hefur verið í Bæjarstjóm
Akureyrar.
Kostnaður við framkvæmdir
við nýbyggingu Sundlaugar
Akureyrar, innréttingar, bún-
aðar og aðkomu nemur 80
milljónum króna á næsta ári.
Þá eru 60 milljónir króna áætl-
aðar í byggingu skautahallar,
en gert er ráð fyrir að verkið
verði boðið út í alútboði og
miðað við að húsið verði tekið í
notkun á næsta ári. Samnings-
bundið framlag til Vetran'-
þróttamiðstöðvar íslands er 35
milljónir króna á næsta ári og
þá eru 10 milljónir króna áætl-
aðar í viðhald og búnað íþrótta-
mannvirkja.
Fj árhagsáætlun
Akureyrarbæjar
Hönnun bygg-
ingar við
Amtsbóka-
safnið
ÞRJÁTÍU milljónum króna
verður á næsta ári varið til
fjárfestinga á sviði menningar-
mála samkvæmt fjárhagsáætl-
un fyrir árið 1999 sem sam-
þykkt hefur verið í bæjarstjórn
Ákureyrar.
Alls fara 10 milljónir króna til
framkvæmda við svonefnt Ket-
ilhús í Grófargili. Þá verða 8,5
milljónir króna notaðar vegna
upphafs framkvæmda við bygg-
ingu við Amtsbókasafnið og
gert ráð fyrir að lokið verði við
hönnun og gerð útboðsgagna.
Gilfélagið fær framlag að upp-
hæð 3,1 milljón króna sam-
kvæmt samningi við félagið og
þá fær menningarmálanefnd 2
milljónir króna til ráðstöfunar.
Áætluð hlutdeild bæjarins
vegna framkvæmda við sýning-
arsal Minjasafnsins á Akureyri,
uppsetningu á nýrri sýningu,
sýningaraðstöðu og fleira.