Morgunblaðið - 18.12.1998, Page 16

Morgunblaðið - 18.12.1998, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján KRISTJÁN Þór Júlíusson bæjarstjóri og Ólafur B. Thors forstjóri Sjóvár-Almennra. Sjóvá-Almennar og Akureyrarbær V átryggingasamn- ingur undirritaður VATRYGGINGASAMNINGUR milli Akureyrarbæjai- og Sjóvár-Al- mennra trygginga hf. hefur verið undirritaður. Samningurinn nær til allra stofnana og fyrirtækja bæjarfélagsins og tekur hann gildi um næstu áramót, en gildistíminn er 6 ár. Tekur samningurinn til allra vátryggingaviðskipta bæjarfélagsins, s.s. brunatrygginga húseigna, húseigenda-, lausafjár- og ábyrgðartrygginga bifreiða auk slysatrygginga starfsmanna og skólabarna. Samningurinn var gerður í kjölf- ar útboðs þar sem tilboð Sjóvár-Al- mennra var lægst, en það var að upphæð 13,4 milljónir króna, Vá- tryggingafélag íslands bauð 14,1 milljón kr., sem og Trygginga- miðstöðin, tilboð Tryggingar var að upphæð 15,5 milljónir, en Vörður, Vátryggingafélag, átti hæsta til- boðið, 23 milljónir króna. Ljóst er að 'samningurinn sparar Akureyi-arbæ verulegar upphæðir, en fyrri samningur var að upphæð rúmar 20 milljónir króna, að sögn Baldurs Dýifjörð bæjarlögmanns og var þó umfangið mun minna. Við undirritun samningsins lýstu Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Ólafur B. Thors ánægju með samninginn og væntu góðs af sam- starfmu. Kristján sagði þetta í annað sinn sem bærinn byði út tryggingar sínar og hann saknaði þess helst að samningurinn væri ekki styttri, upphæðirnar lækkuðu við hvert útboð! Ólafur sagði að ávallt yi’ði tryggt að fyrir hendi yrði sú besta vátryggingavernd sem þörf væri fyrir og það væri fyrir- tækinu keppikefli að bjóða besta verð sem völ væri á. Einkar ánægjulegt hefði verið að taka við vátryggingum fyrir Akureyrarbæ, en félagið ætti og hefði alltaf átt tryggan hóp viðskiptamanna í bæn- um. Kvöldstund við kertaljós KVÖLDSTUND við kertaljós verður í Laufáskirkju á sunnu- dagskvöld, 20. desember, og liefst hún kl. 21. Kirkjukórinn flytur aðventu- og jólalög undir stjórn Hjartar Steinbergssonar. Fermingarbörn flytja sam- talsþáttinn „Hvar heyrist hin sanna rödd jólanna?" Lesin verð- ur jólasaga og jólakvæði flutt. Sr. Bolli Gústavsson vígslubisk- up flytur hugleiðingu. Söngnem- endur úr Tónlistarskóla Eyja- fjarðar syngja undir stjórn Jólalög í Svartfugli í GALLERÍI Svartfugli stendur nú yfir jólasýning þeirra Einars og Sveinbjarg- ar og kennir þar ýmissa grasa, en auk þess að vera gallerí er Svartfugl einnig vinnustofa þehTa tveggja og eru þau oftar en ekki að störf- um, þannig að gestum og gangandi gefst færi á að fylgjast með þeim við vinnu sína. A laugardag, 19. desember, mun Jacqueline FitzGibbon leika jólalög á sópran- og alt- blokkflautur frá kl. 14 til 16, en galleríið er opið frá kl. 14 til 22 þann dag. Á sunnudag, 20. desember, er opið frá kl. 14 til 18 og einnig á mánudag, en á þriðjudag verður opið til kl. 22 og til 23 á Þorláks- messu. Lokað er á aðfanga- dag. Þuríðar Baldursdóttur. í Iokin verður ljósahelgileikur þar sem öll börn í kirkjunni fá ljós til að halda á. Kyrrðar- og bænastund verður í Grenivíkurkirkju mánu- dagskvöldið 21. desember kl. 21. Aðventustund verður í Greni- lundi á mánudag, 21. desember, kl. 16. Kirkjukórinn syngur und- ir stjórn Bjargar Sigurbjörns- dóttur. Börn og unglingar syngja, leika á hljóðfæri og sýna lielgileik. Kaffí Karólína Myndir úr verkinu um Pétur Gaut TÍU litógrafíur eftir norska lista- manninn Frans Widerberg eru nú sýndar á Kaffi Karólínu í Grófargili. Myndirnar byggir Frans á efni leik- ritsins um Pétur Gaut eftir Henrik Ibsen, en það er jólaleikrit Leik- félags Akureyrar og verður frum- sýnt 28. desember næstkomandi. Sýningin er sett upp af því tilefni og er hér fyrir tilstilli Norska send- iráðsins í Reykjavík. Efnivið sinn í verkin sækir hann í nokkur atriði verksins; Pétur segir móður sinni frá hreindýrsreiðinni, búðarránið, dauða Ásu og þegar Pétur Gautur hittir Anítru. Frans Widerberg er fæddur í Ósló árið 1934 og er hann í hópi þekktustu núlifandi norskra lista- manna. Hann hefur sýnt verk sín víða um heim. Morgunblaðið/Ingimundur TÆKNIMENNIRNIR sem mikið mæddi á meðan jólaútvarp Grunn- skóla Borgarness stóð yfir. Þeir heita f.v. Einar Bragi Hauksson og Jón Ingi Jónsson. Jólaútvarp í Borgarnesi Borgarnesi - Dagana 8.-11. desem- ber sl. stóðu nemendur Grunnskóla Borgarness fyrir jólaútvarpi. Er þetta í sjötta sinn sem nemendur skólans standa fyrir slíku útvarpi á jólaföstu. Mikil undirbúningsvinna fór fram áður en útvarpið fór í loftið og sér- stakt útvarpsráð var skipað. Út- sendingar hófust alla dagana kl 10.00 að morgni og stóðu hvfldar- laust til 23.00 að kveldi. Allir bekkir skólans lögðu fram efni sem var mjög fjölbreytt. Fyrirtæki í bænum lögðu ungmennunum lið. Voru auglýsingar settar fram á margvís- legan máta. Sumar voru lesnar, aðr- ar sungnar og ein auglýsingin, sem var í bundnu máli, var kveðin af ein- um nemenda skólans. Þá voru viðtöl við ýmsa íbúa bæjarins. Tónlist skipaði stóran sess og var komið víða við í því efni. Segja má með sanni að íbúar bæjarins gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Þetta er lofsvert framtak og þroskandi verkefni sem verður örugglega haldið aftur að ári. Vinsælt að borða úti fyrir jólin Tölva til tónlist- arnáms Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason FYRSTA kennsludaginn hjá 1. bekk í nýja skólahúsnæðinu var for- eldrum boðið til að fóndra með börnum sínum fyrir jólin. Greinilegt er að báðir aðilar leggja sig fram og hafa gaman af. Nýtt skólahúsnæði tekið í notkun í Stykkishólmi Stykkishólmi - Tekið var í notkun nýtt skólahúsnæði við Grunnskól- ann í Stykkishólmi 14. desember. Húsnæðið er við gamla barna- skólann og hýsti áður skrifstofu Stykkishólmsbæjar þar til í síðasta mánuði að hún flutti í nýja ráðhúsið. I húsinu er ein kennslustofa þar sem 1. bekkur grunnskólans hefur aðsetur. Þar fer einnig fram sérkennsla og heilsdags- skólinn starfar þar frá hádegi. I haust var í fyrsta sinn boðið upp á heilsdagsskóla. Nemendur 1.-3. bekkjar eiga kost á að vera í skólanum frá því að kennslu lýk- ur og fram til kl. 17.15.1 skólan- um fá þeir hádegismat og boðið er upp á frjálsa vinnu og auk þess sem nemendur fá aðstoð við heimanámið. Einnig er samstarf við tónlistarskólann og íþrótta- skóla Snæfells. Þennan fyrsta vetur eru 15-20 nemendur í heilsdagsskólanum. Stykkishólmi - Jólahlaðborð á Hótelinu í Stykkishólmi nýtur mikilla vinsælda og er aðsókn alltaf að aukast og verða mat- argestir yfir 700 manns. Sigurður Skúli Bárðarson, hótelsljóri, segir að hótelið hafí byrjað með jólahlaðborð árið 1986. Þá var þetta nýtt og fólki fannst óþarfi að fara út að borða svona rétt fyrir jólin. Á seinni ámm hefur orðið mikil breyting á. Nú er fastur liður hjá starfsmannahópum, saumaklúbbum og félagasam- tökum að fara út og hittast við jólahlaðborðið. Jólahlaðborð stendur nú lengur en áður. Það hófst 21. nóvember og fyrstu tvær helg- arnar komu hópar úr Reykja- vík. Um helgina komu 270 manns á jólahlaðborðið og margt verður einnig um næstu helgi. Sigurður Skúli segir að viðtökurnar hafi verið mjög góðar og er starfsfólk hótelsins þakklátt fyrir það. Borgarnesi - Fyrir skömmu af- henti Rristján Snorrason, úti- bússtjóri Búnaðarbanka íslands í Borgarnesi, nemendafélagi Grunnskólans í Borgarnesi og Félagsmiðstöðinni Óðali tónlist- artölvu. Sagði hann við það tækifæri að segja mætti að þetta væri jólagjöf Búnaðar- bankans til þessara aðila. Formaður nemendafélagsins veitti gjafabréfinu viðtöku og sagði að tölv- an ætti örugglega eftir að koma að góðum not- um. Myndi tilkoma henn- ar hvetja unglinga til tónsköpunar. Myndin er tekin við þetta tækifæri. Frá vinstri Indriði Jósafatsson, æskulýðs- og íþróttafulltrúi Borg- arbyggðar, Guðbjörg Thelma Traustadóttir, formaður nemendafélags Grunnskóla Borgarness, og Kristján B. Snorra- son, útibússtjóri Búnað- arbankans í Borgarnesi. Morgunblaðið/Ingimundur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.