Morgunblaðið - 18.12.1998, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ágúst
Nvr útskipunar-
búnaður
Morgunblaðið. Neskaupstaður.
NYR útskipunarbúnaður fyrir mjöl
var tekinn í notkun hjá loðnuverk-
smiðju Sfldarvinnslunnar hf. í Nes-
kaupstað fyrir skömmu. Búnaður-
inn er tengdur 6 mjöltönkum sem
nýverið var lokið við smíði á og tek-
hjá SVN
ur hver þeirra um 1.000 tonn af
mjöli. Geymslurými á mjöli mun
þrefaldast við þessar framkvæmdir
og öll útskipun verður í lokuðu
kerfi, auk þess sem hún verður ein-
faldari og krefst minni mannafla.
Leyfílegur afli
túnfísks ákveðinn
ALÞJÓÐARÁÐIÐ um vemdun
túnfiskstofna í Atlantshafi (ICCAT)
hefur samþykkt áætlun sem
stemma á stigu við ofveiði túnfisks í
Vestur-Atlantshafi á fundi sínum á
lok nóvember, að því er Worldfish
Report greinir frá. Samkvæmt
henni verður leyfflegur hámarksafli
2.500 tonn á ári næstu 20 árin og
skiptist á milli Bandaríkjanna,
Kanada og Japans.
Einnig var ákveðinn leyfilegur
hámarksafli í Austur-Atlantshafi og
Miðjarðarhafi til næstu tveggja ára,
32.000 tonn á næsta ári og 29.500
tonn árið 2000. Þorri þess kvóta
kemur í hlut Evrópusambandsins
(ESB), eða 20.165 tonn árið 1999 og
18.590 tonn árið 2000.
Samkvæmt ákvörðuninni verður
túnfiskkvóti ESB skertur um 4.700
tonn í heild vegna ofveiði undanfar-
inna ára. Hins vegar eiga ESB-
löndin eftir að koma sér saman um
það hvernig sú skerðing skiptist á
milli þeirra. Spáð er að ríkin munu
takast á um þetta efni á fundi fisk-
veiðiráðs ESB í Brussel 17.-18. des-
ember næstkomandi.
Fulltrúar í sendinefd Bandaríkj-
anna á fundi ICCAT lýstu ánægju
sinni með niðurstöðu ráðsins. Ann-
að hljóð var í strokki World Wide
Fund for Nature (WWF) en tals-
menn samtakanna telja áætlunina í
grundvallaratriðum gallaða, þ.s.
kvóti hafi verið aukinn en ekki
minnkaður og ekki þjóna þeim til-
gangi að minnka ofveiði á túnfiski.
WWF spáir því að túnfiskstofnar í
Vestur-Atlantshafi muni hrynja inn-
an áratugar verði ekkert að gert.
Afgreiðslutími
til jóla
AUa virka daga
opiðtilkl. 18.00
Laugardaginn 19. desember
opiðkl. 10.00-18.00 (
Fimmtudaginn 24. desember
opið tilkl. 12.00
Afgreiðslutími pósthússins í Kringtunni
er sá sami og í verslunum Kringlunnar.
Afgreiðslubás í Hagkaupi við Smáratorg
verður opinn kt. 10.00-22.00 alla daga
fram að jólum.
TNT Hraðflutningarhafa að auki
opið kl. 10-18 á laugardag.
Sunnudaginn 20. desember
opið kl. 10.00-18.00
á Akureyri. í Pósthússtræti
og Mjóddinni.
ÚR VERINU
Héraðsdómur um „tonn á móti þremur tonnum“
Verð aflamarks komi
inn í uppgjör til áhafna
HÉRAÐSDÓMUR Hafnarfjarðar
hefur nú í desember fellt dóm, sem
felur í sér að við uppgjör til áhafna
skuli útgerðin ekki aðeins miða við
verðmæti afla, heldur einnig verð-
mæti aflamarks, sem útgerðin fær
hjá kaupanda aflans. Þetta tilfelli
snýst um uppgjör háseta á Hafsúlu
HF 77. Skipið var í viðskiptum við
ákveðinn fiskkaupanda, svokölluð-
um tonn á móti þremur tonnum.
Fyrir hvert eitt tonn sem landað hjá
fiskkaupandum kom ákveðin
greiðsla fyrir fiskinn, en að auki
lagði fiskkaupandi útgerðinni til
aflamark, þrjú tonn á móti hverju
einu sam landað var, án endur-
gjalds. Niðurstaða dómsins er því á
þá leið að ofan á greiðslu fyrir hvert
tonn af fiski skuli, við uppgjör,
reikna verðmæti þriggja tonna af
aflamarki sömu tegundar, í þessu til
felli þorsks, til viðbótar fiskverðinu.
1,6 milljónir auk vaxta
Hásetinn var á Hafsúlunni frá
hausti 1996 og fram á útmánuði árið
eftir. Krafa hans var um greiðslu á
tæpum 1,6 milljónum króna ofan á
fyrra uppgjör auk dráttarvaxta og
greiðslu málskostnaðar og varð
dómurinn við kröfum hans. Þannig
féllst dómurinn á að séu veiðiheim-
ildir lagðar á móti lönduðum afla,
skuli litið á þær sem greiðslu fyrir
aflann og beri að taka mið af verð-
mætum þeirra við uppgjör til áhafn-
ar. Stefnandi í málinu taldi sig með
þeim hætti, sem viðhafður var við
uppgjör, taka þátt í kaupum á afla-
marki, en slíkt væri óheimilt sam-
kvæmt iögum og kjarasamningum.
Stefndi krafðist sýknu í málinu á
þeim forsendum að stefnandi gerði
aldrei athugasemdir við uppgjör
meðan hann var á skipinu og að
uppgjör vegna veiðanna var alltaf
miðað við hæsta gangverð á stað og
stund eins og kjarasamningur gerði
ráð fyrir. Stefnanda hafi alla tíð ver-
ið kunnugt um eðli þeirra viðskipta
sem vom stunduð í þeim veiðiferð-
um, sem hann hafi farið í á vegum
stefnda, auk þess sem stefnanda
hafi alla tíð verið kunnugt um það
hvert viðmiðunarverð yrði við upp-
gjör. Stefndi hafi síðan ráðfært sig
við áhöfn og gert sitt bezta til að
tryggja að það verð, sem hann fékk
fyrir aflann, væri hæsta gangverð
miðað við stað og stund. Aldrei hafi
stefnandi eða áhöfnin á Hafsúlunni
gert athugasemdir vegna þess,
þrátt fyrir að sérstakar kæruleiðir
hafi verið opnar. Þvert á móti hafi
stefnandi og reyndar öll áhöfnin
haft sérstaka velþóknun á þeim
kjörum sem hún bjó við.
Ekkert markaðsgildi
Stefndi segir ennfremur svo í
málsvörn sinni að í tonni á móti
þremur tonnum viðskiptum skuld-
bindi útgerðarmaður sig til að landa
afla sínum hjá þeim aðila sem láti
aflakvóta í té. Fyrir aflann sé svo
greitt umsamið verð. Kvótinn sem
útgerðarmaðurinn hafi, sé honum
ekki til frjálsrar ráðstöfunar og hafí
ekkert markaðsgildi fyrir hann.
Hann geti ekki selt hann og hann
geti ekki veitt upp í hann, landað
aflanum síðan annars staðar og
fengið almennt markaðsverð fyrir
afiann.
Uppgjörsmátinn brot
á kjarasamningi og lögum
í dómsniðurstöðu segir meðal
annars svo: „Óumdeilt er í þessu
máli að fyrir hvert tonn af slægðum
þorski, sem stefndi lagði til fisk-
kaupanda, fékk stefndi greitt 3 tonn
af aflamarki auk peningagreiðslu.
Verðmæti aflamarksins kom ekki til
skipta við uppgjör heldur aðeins sá
hluti sem greiddur var með pening-
um. Samkvæmt tilvitnuðum ákvæð-
um laga og kjarasamninga ber út-
gerðarmanni að greiða laun miðað
við það heildaraflaverðmæti sem út-
gerðin fær fyrir aflann og er út-
gerðinni óheimilt að draga frá þvf
verðmæti kostnað við kaup á afla-
Perú réttir
PERÚSKA hafrannsóknastofnunin,
Imarpe, hefur lagt til að leyfilegur
hámarksafli lýsings verði 80.000
tonn á næsta ári. Ráðherra sjávar-
útvegsmála segir leyfilegan afla
verða aukinn í 100.000 tonn árið
2000 og svo enn á ný í 120.000 tonn
árið 2001. Frá þessu er greint í
Worldfísh Report.
Afli perúskra fiskiskipa jókst í
októbermánuði miðað við fyrra ár
heimildum. Uppgjörsmáti sá, sem
viðhafður var í skiptum aðila, var
því brot á kjarasamningi aðila og
brot á 1. gr. laga nr., 24/1986. Sam-
kvæmt 18. gr. sömu laga varðar
þessi háttsemi sektum."
Það var Gunnar Aðalsteinsson,
hdl. sem kvað upp dóminn.
Miðað við of lágt verð aflamarks
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað
upp dóm í svipuðu máli í síðasta
mánuði. Þar var ágreiningur uppi
um það hvernig verðleggja skyldi
aflaheimildir sem útgerðin fær í
tonn á móti tonni viðskiptum. Stefn-
andi var skipverji á skipi, sem er í
eigu Þormóðs ramma-Sæbergs hf.
Skipið var á rækjuveiðum og var
þeirri rækju, sem fór til vinnslu í
landi, landað hjá ákveðnum aðila,
sem auk þess að greiða ákveðið verð
fyrir rækjuna lagði útgerðinni til
eitt tonn aflamarks í rækju á móti
hverju lönduðu tonni.
Félagsdómur hafði á árinu 1996
komizt að þeirri niðurstöðu að við
uppgjör væri skylt að miða við verð-
mæti fenginna aflaheimilda auk
beinnar greiðslu fyi'ir aflann. Þor-
móður rammi-Sæberg hf. hafði þeg-
ar greitt stefnanda ákveðna upp-
hæð samkvæmt þeirri niðurstöðu,
en ágreiningur var um útreikning
sem að baki þeirrí greiðslu lá.
Stefnandi taldi upphæðina of lága
og krafðist 103.000 króna til viðbót-
ar auk vaxta. Dómurinn féllst á
kröfur hans og verður Þormóður
rammi-Sæberg samkvæmt niður-
stöðunni að greiða þá upphæð auk
75.000 ki-óna málskostnaðar.
Sigríður Ólafsdóttir hdl. kvað upp
dóminn.
úr kútnum
um 60.000 tonn, úr 405.300 tonnum í
464.300 tonn. Búist er við að afli
verði um 500.000 tonn í þessum
mánuði og heildarafli ársins muni
nema um fjórum milljónum tonna.
I áætlunum fyrir 1999 er gert ráð
fyrir að magn landaðs sjávarafla
aukist um 43% miðað við yfirstand-
andi ár. A hinn bóginn hefur útflutn-
ingsverðmæti sjávarafurða minnkað
um 50% á milli áranna 1997 og 1998.
betriflís
vœðaflís
HERÐASLÁ Á
úr flís meb trefli. J||
Vönduð flík Jm
úr gæöaflís. J§
Fyrir stúlkur
á öllum
í aldri.
.AGERÐIN
ykjavík sími 511 2200
Eyjasl
Ýmsir litir