Morgunblaðið - 18.12.1998, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 41
LISTIR
GUÐNÝ Kristmanns. Án titils. SIGURÐUR Vilhjálmsson: Morgunflug.
skjóta sig í fótinn. Hvarvetna sem
slíkai- framkvæmdir líta dagsins Ijós
úti í heimi er tala innsendra verka
margfóld á við það sem með góðu
móti er hægt að taka inn, jafnvel
hundraðfóld. Menn virðast þar skiln-
ingsríkari, áhugasamari og kjarkaðri
en afkomendur víkinganna í norðri.
Eða kannski halda menn að sér hönd-
unum fyrir einhverja hræðslu og
þegnskyldu við hvíslara og baktjalda-
menn sem einir vita hvað er helst á
döfinni í heimslistinni, telja sér skylt
að lúta föðurlegri forsjá þeirra, marka
sér þai’ tóftir til garða. Segja má að
framkvæmdin sé rétt í burðarliðnum
og nokkuð erfitt um vik vegna þess að
hún er ekki á höfuðborgarsvæðinu, en
hins vegar telst það takmörkuð fé-
lagshyggja og svik við heildina að
vera hér ekki með á nótunum og
styðja við bakið á heilbrigðri þróun
með almennari þátttöku.
Sýningin í ár er þó mun frísklegri
en í fyrra, þótt gjarnan hefðu ýmsir
þungaviktarmenn á öllum aldri mátt
vera með, en ekki mæli ég með því
að farið verði að leita sérstaklega til
slíkra, eins og gert var er sýnt þótti
að fyrri framkvæmd væri í andar-
slitrunum. Sem raunar var einnig
gert fyrir áðurnefnt blómatímabil,
en skrifari tók með öllu fyrir er hann
var í fyrirsvari nefndarinnar í tvö ár,
enda andstætt meginmarkmiði slíkra
samsýninga.
Framkvæmdin er þannig greini-
lega á uppleið þótt betur megi ef
duga skal, áberandi er að hinir grón-
ari listamenn setja helst svip á sýn-
inguna, svo sem Guðmundur Ar-
mann, sem kemur nokkuð á óvart
með sínu stóra og fínt útfærða mál-
verki „Jökulrót" og Helga Magnús-
dóttir, þó frá henni hafi komið sterk-
ari verk. Einnig ber hér að nefna
Kristin G. Jóhannson, þótt hann sé
einungis með eitt meðalstórt verk,
sem er misráðið. Greinilegt er að
hinir óþekktari sækja á brattann og
vil ég hér helst nefna Sigurð Vil-
hjálmsson, Guðnýu Ki-istmanns,
Ólöfu Kjaran og Sigurð Magnússon.
Þetta fólk vill eitthvað, því liggur
sitthvað á hjarta, leitar ekki ódýrra
lausna með þegnskyldu við alþjóð-
lega strauma, viðeigandi eftirgerð-
um og línudansi. Til umhugsunar er
hve útlendingurinn Alan James sker
sig úr í þessum hópi og hve gi'eini-
lega má kenna fjai’lægan hugsunar-
hátt í útfærslu verka hans. Þá má sjá
einstaka góða takta hjá fleirum, en í
heild er þetta naumast nógu sterk
sýning í ljósi þess hve marga ágæta
myndlistarmenn við eigum nú um
stundir.
Meta skal og lofa frumkvæði
Listaskálans, og mikilsvert væri ef
fleiri slík sérhönnuð hús risu upp í
hinum landsfjórðungunum með
áherslu á sjónlistir í vistlegu og
menningarlegu umhverfi. Væri þá
lag að hver og einn hefði haustsýn-
ingu með sínu sniði, fjölbreytnin er
fyrir öllu. Væri í anda þróuninnar
um alla Evrópu síðustu áratugi, ekki
síst á hinum Norðurlöndunum. Loks
skal enn einu sinni vísað til þeirrar
skyldu að rækta hugvitið og lífs-
mögnin á tímum múghyggju, er hörg
og hof rísa hvarvetna til heiðurs
hand- og fótmennt, sem skal þó eng-
an veginn lastað. Upp skal kjöl
klífa...
Bragi Asgeirsson
Operan
Amal í
Neskirkju
ÓPERAN Amal og næturgestirnir
eftir Menotti, verður sýnd á morg-
un, laugardag, kl. 17 og sunnudag
20. desember kl. 20.30. Þetta eru
síðustu sýningar, en ópei'an var
frumsýnd sl. laugardag.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna,
Kammerkór Kópavogs, nemendur
úr Listdansskóla Islands og ein-
söngvarar standa standa að sýning-
unni. Leikstjóri er Randver Þor-
láksson, hljómsveitarstjóri er Ingv-
ar Jónasson og danshöfundur
Astrós Gunnarsdóttir. Hlutverki
Amals skipta þeir Hjalti Magnússon
og Rúrik Fannar Jónsson á milli sín.
Hlutverk móðurinnar er í höndum
Huldu Guðrúnar Geirsdóttur. Vitr-
ingarna þrjá leika Skaiphéðinn Þór
Hjartarson, Ólafur Rúnarsson og
Benedikt Ingólfsson. Skóveininn
leikur Egill Gunnarsson.
A undan óperunni flytur Kór
Neskirkju, ásamt hljómsveit, lög
eftir Atla Heimi Sveinsson. Einnig
er fluttur Jólakonsert Corellis og
hefur verið saminn dans við hann
sem dansarar úr Listdansskóla Is-
lands sýna.
Forsala aðgöngumiða er í Ey-
mundsson í Austurstræti. Einnig
verða miðar seldir við innganginn.
Klapparstíg 44. sími 562 3614
Nvkontiö ekta enskt
«»
(iolematts simtep
Stjörnuspá á Netinu
<|> mbUs
-ALLTy\f= GITTH\SA£) /MÝTT