Morgunblaðið - 18.12.1998, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 18.12.1998, Qupperneq 42
42 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 4S STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FULL YRÐIN GAR SADDAMS LYGI, SEGIR BLAIR BRETAR OG BANDARÍKJAMENN létu til skarar skríða gegn Saddam Hussein, forseta íraks, í fyrrakvöld. Klukk- an 22 hófust loftárásir á hernaðarleg skotmörk í Irak og tak- mark árásaraðilanna var að tortíma verksmiðjum, sem fram- leiða gereyðingarvopn, eiturefna-, sýkla- og kjarnorkuvopn. Bæði Tony Blair, forsætisráðherra Breta, og Bill Clinton, for- seti Bandaríkjanna, ávörpuðu þjóðir sínar og heimsbyggðina, skömmu eftir upphaf árásanna og skelltu skuldinni á Saddam Hussein, sem þeir sögðu að hefði sýknt og heilagt ögrað Sam- einuðu þjóðunum og gengið á bak bæði samkomulags, sem Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, gerði í febrúar og eins samkomulags, sem gert var við Iraksstjórn um miðjan nóvember, er árásarheimild hafði verið gefin. Hún var aftur- kölluð á síðustu stundu og hernaðartólum snúið við. I vopnahléssamkomulagi, sem gert var við Irak áiáð 1991 var að finna ákvæði um að gereyðingarvopn Iraka skyldu upp- rætt og framleiðslu þeirra hætt. Saddam Hussein skellti skoll- eyrum við þessu ákvæði og hélt áfram að þróa og framleiða efna- og sýklavopn. Ennfremur hafa störf eftirlitsmanna Sam- einuðu þjóðanna verið toi-velduð æ ofan í æ og þeim með öllum tiltækum ráðum meinað að skoða staði, þar sem grunur hefur leikið á að gereyðingarvopn séu geymd. I síðustu viku kom Iraksher í veg fyrir störf eftirlitsmannanna og því voru árásir hafnar í fyrrakvöld fyrirvaralaust eins og lýst var yfir að yrði raunin, er hætt var við árásirnar í nóvember. Saddam Hussein er einræðisseggur, sem einskis svífst og stjórnarfar hans fer verst með hans eigið fólk, landa hans. Hann hefur gert margar atlögur að samborgurum sínum og nægir þar að mipna á hrottafengna árás á þorpið Halabja í norðausturhluta Iraks fyrir tæpum 11 árum, er Iraksher réðst á þetta kúrdíska þorp með efnavopnum, bæði tauga- og sinn- epsgasi. Afleiðingarnar fyrir þetta fólk eru hrikalegar, varan- legar, erfðafræðilegar, ólæknandi líkamsskemmdir, sem ekki aðeins bitna á fólkinu, sem varð fyrir árásinni, heldur einnig afkomendum þess, ef þeir þá eru ekki ófrjóir með öllu. írak hefur verið haldið í ströngu viðskiptabanni af hálfu Sameinuðu þjóðanna um árabil. Morgunblaðið hefur áður gagnrýnt slíkt viðskiptabann, því að það bitni verst og þyngst á þeim sem sízt skyldi, sjúkum, börnum og gamalmennum. Sameinuðu þjóðirnar hafa brugðist við slíkri gagnrýni með því að leyfa Irökum að stunda olíusölu til þess að unnt sé að gefa þessu þurfandi fólki mat, lyf og klæði, en Saddam Hussein hef- ur ginið yfir þeim fjármunum, sem hann hefur á þennan hátt komizt yfir, byggt hallir fyrir sig, fjölskyldu sína og gæðinga og skeytir engu um hag almennings. A þetta minntist Bill Clinton í ræðu sinni í fyrrinótt og Tony Blair sagði: „Við reyn- um af fremsta megni að koma í veg fyrir að fólk bíði bana. Ég get ekki, af augljósum ástæðum, farið nánar út í það. En mig langar til þess að taka fram eitt atriði. Deila okkar er ekki við írösku þjóðina og hefur aldrei verið. Allur heimurinn má vita, að við höfum leyft Saddam að selja olíu til þess að hann gæti keypt eins mikið af mat og lyfjum og nauðsynlegt er. Fullyrð- ingar hans um annað eru lygi. Hann gat fætt og klætt þjóð sína, en hann valdi að gera það ekki. Deila okkar er aðeins við hann sjálfan og þá illu stjórn, sem hann er í forystu fyrir.“ Þótt skoðanakannannir í Bandaríkjunum sýni að á milli 70 og 80% bandarísku þjóðarinnar standi að baki ákvörðun Clint- ons Bandaríkaforseta um að hefja árásir á hernarðarmann- virki í írak og þingmenn lýsi yfir því að þeir standi að baki hersveitum Bandaríkjanna í þessum átökum, telja margir að tíminn, sem valinn er til árásanna sé óheppilegur. í gær átti að greiða atkvæði í fulltrúadeild Bandaríkjaþings um það, hvort Clinton yrði ákærður vegna Lewinsky-málsins svokallaða. Þeirri atkvæðagreiðslu hefur nú verið frestað. Ýmsir hafa haldið því fram, að Clinton hafi notað tækifærið nú til þess að láta til skarar skríða vegna atkvæðagreiðslunnar, en aðrir for- ystumenn Bandaríkjanna, sem tóku þátt í ákvörðuninni, segja að slíkt hafí ekki verið uppi á tengingnum. Málið hafi einfald- lega ekki þolað bið, m.a. vegna trúarhátíðar múslíma, sem í hönd fer, föstumánaðarins ramadan. Clinton minntist raunar á atkvæðagreiðsluna í ræðu sinni í fyrrinótt og taldi að Saddam hefði ekki reiknað með árásum nú vegna þess að forsetinn myndi ekki treysta sér til að taka ákvörðun með atkvæða- greiðsluna yfirvofandi. Lagði hann áherzlu á að bandarískt þjóðfélag byggðist ekki á slíkum uppákomum. Þá vekja viðbrögð Frakka líka athygli, en þeir styðja ekki árásirnar. Það gera Rússar og Kínverjar ekki heldur, en þess- ar þrjár þjóðir ásamt Bretum og Bandaríkjamönnum eru þær, sem fast sæti eiga í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Fyrri aðgerðir gegn Irak virðast því hafa notið meiri og almennari stuðnings, en þessar aðgerðir, sem nú standa yfir. Athygli vek- ur einnig að Þjóðverjar styðja aðgerðirnar með friðarsinnann og græningjann Fischer í broddi fylkingar. Norðurlönd virðast ekki vera meðal gagnrýnenda og utanríkisráðherra íslands hefur lýst yfir stuðningi við aðgerðirnar, en afstaða hans til viðskiptabannsins hefur verið önnur en Morgunblaðsins. SKÝRSLA nefndar Bandaríkja- þings sem fékk það verkefni að fjalla um kvótakerfi í sjávarúL vegi var gerð opinber I gær. í skýrslunni eru tilmæli til þingsins um aðgerðir í sjávarútvegsmálum hvað varðar kvótakerfi. Skýrsla nefndarinn- ar er vel á 7. hundrað blaðsíðna og var samantekt úr henni dreift til banda- rískra fjölmiðla í gær. I Bandaríkjunum gilda svokölluð Magnusson Stevens-lög um fiskveiðar. Lögin hafa tekið talsverðum .breyting- um í tímans rás, en núgildandi lög kveða á um bann við frekari þróun kvótakerfa í fiskveiðum fram til ársins 2000. Fulltrúadeild þingsins óskaði eft- ir því við Rannsóknaráð Bandaríkj- anna að unnin yrði ítarleg skýrsla um reynsluna af kvótakerfum í Bandaríkj- unum sem og erlendis. Rannsóknaráð- ið hafði umsjón með gerð skýrslunnar og var skipuð nefnd 15 manna úr ólík- um greinum og með ólík sjónarmið sem hafa frá því haustið 1997 unnið að ítarlegri úttekt á reynslunni af kvóta- kerfum í sjávarútvegi. Nefndarmenn eru einkum bandarískir fræðimenn úr ýmsum greinum; hagfræðingar, lög- fræðingar, stjórnmálafræðingar, mannfræðingar, líffræðingar, auk framkvæmdastjóra stórfyrirtækis á sviði skógnytja. Þrír erlendir fræði- menn hafa einnig átt sæti í nefndinni, þeir dr. Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði við Háskóla Islands, dr. Rögnvaldur Hannesson, prófessor í hagfræði við Norska viðskiptaháskól- ann í Bergen, auk sérfræðings á sviði fiskveiðistjórnunar á Nýja-Sjálandi. Þess var vandlega gætt að ekki veldist í nefndina fólk sem hefði einkahags- muna að gæta og nefndin hefði tök á að vinna verk sitt í friði, laus við allan pólitískan þrýsting. Formaður nefnd- arinnar er Jan S. Stevens fyri-verandi lagaprófessor og aðstoðarmaður ríkis- saksóknai-a í Californíu. Hefur hann stýj't vinnu nefndarinnar, ásamt emb- ættismönnum Rannsóknaráðs Banda- ríkjanna. Þá hafi staiísfólk nefndar- innai’ aflað umfangsmikilla gagna. Gísli Pálsson segir nefndina hafa unnið mikið staif og komið oftsinnis saman á ólíkum stöðum í Bandainkjun- um til skrafs og ráðagerða. Meðal ann- ars hafi verið kölluð til vitni úr mörgum áttum. Þar var almenningi gefinn kost- ur á að koma á framfæri sínum sjónai’- miðum og taka þátt í umræðum, auk þess sem rætt var við sérfræðinga úr bandarísku stjómkerfi, háskólum og í-annsóknastofnunum og fulltrúa ólíkra hagsmunaaðila, bæði sjómanna, út- gerðarmanna og byggða. Þar fyrir ut- an hafi nefndin haldið lokaða vinnufundi. I Bandaríkjunum er stjói'n fiskveiða að hluta til hjá alríkinu en að hluta til hjá svæðisráðum og einstökum ríkjum og byggðai’lögum. Gísli segii’ að þar fyi’ir utan sé bandaríska þjóðin saman- sett af fjölmöi’gum ólíkum þjóðarbrot- um og aðstæður því mjög ólíkar, t.d. í Alaska og við Mexíkóflóa. „Tillögur nefndai-innar eru því ekki bara til þingsins, heldur einnig til annaira stjórnstiga sem koma að fiskveiði- stjórnun. í Bandaríkjunum hafa sum- staðai’ vei’ið tekin upp kvótakerfi, með- al annars í Alaska. Víða hefur gætt óá- nægju með þessi kerfi og áköf þjóðfé- lagsumræða um réttlæti og jöfnuð hef- ur gjarnan fylgt í kjölfai’ið. Þingið ákvað því að taka á málinu og nefndin var stofnuð í ft-amhaldi þess.“ Gísli segir ítariega umfjöllun um mörg fiskveiðistjómunarkeifi í skýrsl- unni. Sitt hlutverk í nefndinni hafi ekki verið einskorðað við umfjöllum um ís- lenska kerfið, þó skiljanlega hafí hann, ásamt Rögnvaldi, komið hvað mest að þeirri vinnu. „Öll nefndin hefur rætt alla þætti þessa starfs og stór hluti skýi’slunnar er skrifaður af hópnum í sameiningu. Við skiptum snemma með okkur verkum, en höfum gagnrýnt, breytt og bætt vinnu hver annars. Skýrslan er tilraun til að alhæfa um þau kerfi sem voru til umfjöllunar. Nefndinni var uppálagt að líta á þessi kerfi í mjög víðu samhengi og þess vegna staðnæmist hún ekki aðeins við arðsemi og hagkvæmni, heldur einnig áhrif á fiskistofna, vistkerfi, samfélag ogbyggðir." I Magnusson Stevens-lögunum er tekið fram að binda eigi enda á ofveið- ar. I öðru lagi er lögð áhersla á nýja umhverfissýn og verndun fisksins og í þriðja lagi á fiskveiðibyggðir eða -sam- félög. Ennfremur er lögð áhei’sla á sanngjarna og jafna úthlutun og dreif- ingu aflaheimilda ef um kvótakerfi er að ræða. Þetta segir Gísli vera fjögur meginmarkmið fiskveiðistefnunnar í Skýrsla nefndar Bandaríkjaþings um útfærslur kvótakerfa við stjórnun fískveiða Mikilvægt að standa rétt að upphaflegri úthlutun I ítarlegri skýrslu nefndar sem fjallað hefur um útfærslur á kvótakerfum fyrir Banda- ríkjaþing kemur fram að víða hefur verið staðið rangt að upphaflegri úthlutun afla- heimilda. Þá telur nefndin mikilvægt að sam- félaginu sé tryggður hluti af þeim arði sem myndast í kvótastýrðum fiskveiðum. Dr. Gísli Pálsson átti sæti í nefndinni sem skilaði niðurstöðum sínum í gær. Helgi Mar Arna- son ræddi við hann um innihald skýrslunnar. Bandaríkjunum sam- kvæmt gildandi lögum. „Með hliðsjón af þessum fyrirmælum laganna hefur nefndin skilgi’eint þau lyk- ilatriði sem eiga að nást í stjórnun fiskveiða. Nefnd- in hefm’ farið í gegnum þá vitneslgu sem hún hefur aflað sér um kvótakerfi sem eru til eða á teikni- borðinu og kannað að hve miklu leyti þessum megin- markmiðum laganna hefur verið fullnægt, hvernig kerfunum mætti breyta til að ná betur þessum mark- miðum og síðan hvort aðr- ar leiðir væru hugsanlega betri við stjóm fiskveiða," segir Gísli. Nefndin leggur í skýrsl- unni til að Bandaríkjaþing aflétti banni við frekari þróun kvóta- kerfa í fiskveiðum. Nefndin telur þó að ákveðin skilyi’ði verði að vei’a fyrir hendi til þess að kvótakerfi megi koma á og skilgreinir hver þau skilyrði eigi að vera. Gísli segir eitt þeirra skilyrða vera að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til að forðast þær óæskilegu af- leiðingai’ kvótakerfa sem i’eynslan hef- ur leitt í Ijós. „í mörgum af þeim kvótakerfum sem nefndin hefur kann- að hefur verið einblínt á hagkvæmni og arðsemi. Þetta hefur verið mjög af- drifai’íkt og leitt af sér mikinn ójöfnuð og óánægju.“ Rétt sé staðið að upphaflegri úthlutun Gísli segir upphaflega úthlutun afla- heimilda skipta geysilega miklu máli við hönnun kvótakerfa. Nefndin bendi á margs konar úthlutunarmöguleika, meðal annars til sjómanna, bátaeig- enda, vinnslustöðva og til byggða. Einnig skipti verulegu máli hverjii’ komi að úthlutuninni. „Nefndin leggur mikla áherslu á að þeir aðilar sem koma að hönnun kerfisins komi sem víðast úr sjávarútveginum og hópui’ svokallaðra „hagsmunaaðila" sé ekki skilgi-eindur mjög þröngt. Þeir eiga ekki aðeins koma úr röðum útgerðai- manna, heldur einnig sjómanna, hús- mæðra, eigenda fiskverkunarstöðva og þar fram eftir götunum, frá þeim byggðum sem allt sitt eiga undir fisk- veiðum. Það er ákveðin togstreita á milli alríkisins og grasrótarinnar og nokkuð ljóst að Bandaiíkjaþing getur ekki sett almennar reglur fyrir allt landið, öðruvísi en þær almennu reglur sem koma fram í Magnusson Stevens- lögunum. Nefndin gerir ráð fyrir að svæðisráð, sem stýra fískveiðum á við- komandi svæði innan Bandaríkjanna, geri tillögur um stjórn veiða og mið- stjórnarvaldið hafi með höndum það hlutverk að tryggja að fullnægt sé grundvallarskilyrðum laga. Svæðisráð- in geti síðan úthlutað hluta af valdi sínu til einstakra byggða." Samfélaginu sé tryggður hluti af arði Kvótakerfi geta, ef vel er að staðið, skapað töluverðan arð og segir nefndin í skýrslunni að hann eigi að hluta til að skila sér til samfélagsins, ekki aðeins til handhafa aflaheimildanna. Gísli segir nefndina ekki leggja til hvaða leið skuli fara í Bandaríkjunum vegna mismunandi að- stæðna á einstökum svæðum. „Það er hins vegar lögð á það mikil áhersla að hluti af ágóð- anum skili sér til samfé- lagsins og sömuleiðis hluti af rentunni sem skapast síðar og auka beri svigi’úm laga í þess- um efnum. Það er ekki kveðið á um hver þessi hlutur eigi að vera. Að- eins er tekið fram að hann eigi að standa straum af rannsóknum á fiskistofnum og fiskveið- um og gagnaöflun um það hvernig kvótakeifinu vindur fram. Nefndin bendii’ á ýmsar leiðir í þessu sam- bandi. Þar á meðal er auðlindagjald. Einnig er bent á athyglisvert ástralskt keifi sem er fólgið í því að aflaheimild- um er úthlutað til ákveðins tíma í senn en litið svo á að þær rými á hverju ári. Handhafi kvótans þarf þá að kaupa á fi-jálsum markaði það sem upp á vant- ar ef hann vill halda sama kvóta ár eft- ir ár. Hann þarf' líka að sýna fram á að hann fylgi settum reglum, þannig að þeir sem verða uppvísir að brottkasti og slæmi-i meðferð á afla eiga ekki sama rétt á endui’nýjun aflaheimilda.“ Komið verði í veg fyrir óhóflega hlutdeild Nefndin leggur einnig ríka áherslu á að þegai’ komið sé á kvótakerfi sé í upphafi skilgi-eind „óhófleg hlutdeild" einstaklinga eða fyi’irtækja. Gísli bendir þannig á að á íslandi hafi afla- heimildii’ safnast á tiltölulega fá fyrir- tæki. „Hvað er óhóflegt og hvað ekki kann að vera breytilegt á milli landa eða héraða. Nefndin leggur til að í hverju fiskveiðihéraði verði ákveðið strax í upphafi hvað sé óhófleg afla- hlutdeild. Menn þurfa því að ákvarða fyrirfram hvort eðlilegt sé að stærstu handhafar kvóta séu með 1%, 10% eða 20%, það er skilgreiningaratriði. Það er mismunandi eftir því hvaða veiði- skapur er ríkjandi á viðkomandi svæði. í sumum tilvikum kann að vera rótgró- in hefð fyrir smábátaútgerð í dreifðum byggðum. Þar væri ekki hægt að leggja drög að kerfi sem heimilaði öra samþjöppun aflaheimilda. í öðrum til- vikum kynni slíkt að vera eðlilegt.“ Áhersla á almenningseign fiskistofna Þá fjallaði nefndin ítarlega um laga- lega skilgreiningu aflaheimilda. Gísli segir það vera lykilatriði hvort litið sé á aflaheimild sem eign eða afnotarétt. „Nefndin leggur ríka áherslu á að fiskistofnar séu í eigu almennings og handhafai- kvóta séu einungis með tímabundinn nytjarétt í höndunum. Það getur svo verið breytilegt eftir fiskveiðihéruðum eða veiðiaðferðum hversu lengi þessi nytjaréttur gildh’. Nefndin leggur áherslu á að tryggja Morgunblaðið/Halldór DR. Gísli Pálsson, prófessor í mann- fræði við Háskóla Islands. þuifi handhafa aflaheimilda ákveðið öi-yggi, þannig að sá sem gerir út búi við ákveðinn stöðugleika. Þessi trygg- ing má hins vegar aldrei verða til þess að kvótinn verði talinn eign útgerðar- mannsins. Bandai’íkjamenn settu fyrir margt löngu lög til að tryggja almenn- ingi jafnan aðgang að auðlindum. Mér sýnist að dómstólar á lægil stigum í Bandaríkjunum hafi lagt blessun sína yfir úthlutun aflaheimilda til ákveðinna manna. Vel er þó hugsanlegt að Hæsti- réttur Bandaríkjanna komist að sömu niðurstöðu og sá íslenski. En á það hef- ur ekki reynt, enda lítil reynsla komin á kvótakerfi í Bandaríkjunum. En nefndin leggur ríka áherslu á að hand- hafai- aflaheimilda fari ekki að líta á sig sem lagalega eigendur kvótans.“ Gísli nefnir ennfremur að nefndin telji að skilgreina þurfi markmið kvótakeifis skýrt strax við setningu þess. Kvótakerfi hafi mismunandi markmið eftir því hvar þau eru búin til. Hins vegar þurfi að vera ljóst í upphafi hvaða félagslegum, hagrænum og vist- fræðilegum markmiðum menn ætli sér að ná. Þessi markmið verði að skil- greina með almenm’i þátttöku hags- munaaðila. Byggðakvóti hefur marga kosti Þá telur nefndin að skoða beri gaumgæfilega möguleika á byggða- kvóta. I Magnusson Stevens-lögunum er kveðið á um skipun sérstakrar nefndar til að fjalla um byggðakvóta og skilaði sú nefnd einnig niðurstöðum sínum í gær. Gísli segh' nefnd Rann- sóknaráðsins hafa komið inn á byggða- kvóta. „Niðurstaða okkar var sú að byggðakvóti hafi ákveðna kosti í viss- um tilvikum, en hann kann líka að hafa ákveðna annmarka. I Alaska hafa menn verið að prófa sig áfram með slíkt kerfí. Þá er aflaheimildum aðal- lega deilt niður á sveitarfélög. Mark- miðin geta verið mismunandi, að halda byggð innan héraðsins og að tryggja ákveðna dreifingu heimildanna.“ Þá leggur nefndin til í skýrslu sinni að leiga á aflaheimildum verði heimil- uð. Hún leggur hins vegar áherslu á að ekki verði til sérstök stétt manna sem aðeins lifi af því að leigja aflaheimildh’. Gísli segir að aðstæður og markmið geti verið mismunandi hvað leiguna varðar eins og í öðru. „Kvótakerfi þarf að þjóna margs konar markmiðum og hagsmunum. Þegai’ menn eru að kanna möguleika í útfærslu kerfanna eiga þeir að huga að því hvernig megi ná þeim markmiðum sem þeir hafa skilgreint í upphafi. Ef þau nást ekki með kvótakerfi, þá eiga menn að reyna aðrar leiðir. En nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að kvótakerfi gætu verið mikilvæg tæki til að ná tilteknum markmiðum. En útfærsla þeirra ræður úrslitum um hvort markmiðin nást.“ Ennfremur telur nefndin að draga beri úr hvata til að misnota auðlindina og svindla á kvótakerfi. Eitt af mark- miðum kvótakeifis sé að hamla ofveiði og tryggja sjálfbæra nýtingu fiski- stofna. Gísli segh’ margs konar svindl til staðai’ í kvótakerfum en eðli málsins samkvæmt sé eifitt að afla gagna um slíkt. „Engu að síður hafa menn miklar áhyggjur af slíku og alls staðar er við- urkennt að vandinn er fyrh’ hendi. Sú kenning sem kvótakerfi byggjast á leggur áherslu á að sé einkaeign komið á í fiskveiðum hafi menn ekki lengur hag af því að ganga illa um auðlindina og stunda kerfisbundna rányi’kju. Þessi kenning er umdeild og ég tel að hún gildi að minnsta kosti ekki hvað + sjávarútveg varðai’. Röksemdin fyrir því er einkum sú að eign á aflaheimild- um dugar ekki ein sér þegar um villta dýi'astofna er að ræða.' Handhafai’ afla- heimildanna geta ekki tryggt að aðrir handhafar gangi vel um auðlindina. Brottkast á fiski er þess vegna stað- reynd. Það er sambærilegt við ofbeit á sameiginlegum almenningum eða af- réttum." I skýrslu nefndarinnar segh' að um leið og valin hafi verið sú leið að setja kvóta á fiskitegundh’ og útdeila afla- heimildum til ákveðinna aðila, geti ver- ið mjög erfitt að snúa til baka. Gísli segir að þegar valin sé leið kvótakeifis- ins sé útvegurinn kominn á ákveðna brautarteina þvi kerfi af þessu tagi hafi tilhneigingu til að þróast í ákveðna átt. „Þetta hefur komið áþreifanlega í ljós á Islandi og mér sýnist Norðmenn vera að fara svipaða leið um þessar mundir.“ Úthlutunin á fslandi skapaði ójöfnuð HANNA Kristjana, 4 ára, Ásmundur Þór, 14 ára, og Tómas Birnir, 2 ára. Gísli telur að mistökin við gerð margra kvótakerfa megi að miklu leyti rekja til þeirrar hugmyndafræði sem sett hefm’ svip sinn á alla umræðu um stjórnun veiða og auðlinda á Vestur- löndum síðustu tvo áratugi. „Þar hefur ráðið ríkjum hörð, nýklassísk hagfræði sem segir mönnum að arðsemi sé það eina sem skipti máli, hagkerfið sé sam- sett af eigingjörnum og sjálfstæðum einstaklingum sem ekki kunni að ráða ráðum sínum í hópi og eignarhald á tækjum og fjármagni gegni mun stærra hlutverki en vinnuaflið. Þau kvótakerfi sem sett hafa verið á lagg- irnai’ hér á íslandi, á Nýja-Sjálandi, víða í Bandai'íkjunum og í Kanada, hafa þann stóra annmarka að þau hafa ekki tekið á spurningum um jöfnuð og dreifingu. Þetta eru spurningar sem Hæstiréttur Islands hefur nýverið tek- ið á með athyglisverðum hætti. ís- lenska dæmið er gott dæmi um þrönga skilgreiningu á aflareynslu. Hér var byggt á aflareynslu þriggja ára og þeir sem höfðu rétt á aflareynslu sam- kvæmt skilgreiningunni voi-u þeir sem áttu skip. Það eru engin fi-æðileg né raunhæf rök fyrir því að hengja sig á slíka skilgi’einingu. Þessi aðferð skap- aði mikinn ójöfnuð í íslenska fiskveiði- kerfinu og með afdrifaríkum hætti. Síðustu misseri hafa verið að koma fi’am afleiðingai’ þessa. Hérlendis er víðtæk óánægja meðal almennings með kvótakerfið sem endurspeglast m.a. í þeim umsóknum um kvóta sem nú streyma inn í sjávarútvegsráðu- neytið í þúsundatali. Sömu sögu má segja víða erlendis. Þar hafa kvótakerfi takmarkað hóp upphaflegra handhafa kvóta við eigendur á skipum og mikill arður hefur fallið þessum hópi í skaut fljótlega eftir að kvótanum er úthlutað. Tilhneigingin er síðan sú að kvótinn færist á enn færri hendur þegar menn selja sig út úr kerfinu og hirða ávinn- inginn sjálfir. Þetta hefur skapað ójöfnuð, ekki hvað síst þegar möguleik- inn á leigu kemur einnig til skjalanna. Það er skýlaus ki’afa Magnusson Stevens-laganna að tryggður sé jöfn- uður þegnanna og dreifing aflaheim- ilda við hönnun kvótakerfa til að forð- ast afleiðingar af þessu tagi.“ Einstök skýrsla Gísli segh’ vissulega hafa verið uppi ólíkar skoðanir í nefndinni, enda hafi setið í henni fulltrúar ólíkra þjóðfé- lagssjónarmiða, aðstæðna og fræði- greina. „Að mínu mati er það hins veg- ar merkilegt hvað þessi hópur gat komist að mörgum sameiginlegum niðurstöðum á svo skömmum tíma. Við teljum þetta mjög merkilegar niður- stöður. Skýrslan er að mínu mati eina heildræna úttektin á kvótakerfum sem völ er á. Allar aðrar skýrslur um kvótakerfi hafa þann alvarlega ann- marka að mínu viti, að þær taka fyrst og fremst á formlegri og hagrænni hlið kerfanna. Það er engin önnur út- tekt sem ræðir jafnmargar útfærslur á kvótakerfum, út frá jafnmörgum sjón- armiðum, félagslegum, hagrænum og vistfræðilegum. Að því leyti tel ég að þessi skýrsla sé sér á báti og eigi eftir að hafa mikil áhrif á umræðu um fisk- veiðar og fiskveiðistjórnun, ekki bara í Bandaríkjunum heldur víðar. Það mætti vel segja mér að hún setti tölu- verðan svip á þá umræðu sem væntan- lega fer fram um kvótakeifið hérlend- is í ljósi atburða síðustu vikna. Að vísu verður skýrslan ekki gefin út í heild sinni fyiT en eftir einhverjar vikur eða mánuði og verður því ekki aðgengileg almenningi fyrr en þá,“ segir Gísli Pálsson. Aldrei upplifað óhugnanlegri lífsreynslu „ÉG hef aldrei upplifað óhugnanlegri lífs- reynslu en að sjá lestar- vagninn með börnunum minum á hvolfi. Ég taldi víst að börnin væru öll látin. I vagninum voru um tíu börn,“ segir Sveinn Guðmundsson, sem ásamt þremur börnum sínum var í járnbrautarlest sem fór út af sporinu um 30 km sunnan bæjarins Mosjaen í Noregi. Daginn áður hafði Sveinn lent í þeirri lífs- reynslu að reyna að bjarga konu á áttræðis- aldri sem fékk hjartaáfall á póst- húsinu í Reine þar sem Sveinn býr. Sveinn segir að hann hafi reynt að blása lífi í konuna meðan norskur sjúkraliði, sem þarna var einnig staddur, reyndi hjartahnoð. Konan dó í höndunum á þeim. Mikil rigning hefur verið í norð- urhluta Noregs undanfarna daga og er talið hugsanlegt að vatn hafi grafið jarðveginn undan járn- brautarteinunum. Sveinn var á leið til Helsingor í Danmörku ásamt börnunum frá Reine, þar sem þau ætluðu að hitta eiginkonu Sveins, Fanneyju Birnu Ásmunds- dóttur, sem stundar nám á fslandi. Fjölskyldan ætlaði að vera saman á jólunum í Helsingor og halda upp á fimm ára afmæli næstyngsta barnsins, Hönnu Kristínar. Sveinn býr ásamt börnunum í Reine í Lofoten, þar sem hann starfar hjá High North Alliance, sem eru samtök sem vinna kynn- ingarstarf fyrir hval-, sel- og fisk- veiðimenn á norðurslóðum. Börnin í leikvagninum „Ég var staddur í fimmta vagni, veitingavagninum, þegar lestin fór út af sporinu. Ég var í símanum þegar vagninn byrjaði að hristast til. Börnin voru í leikvagninum, tveimur vögnum framar. Fyrst kom ójafna eins og gerist oft í lest- um og síðan jukust rykkirnir jafnt og þétt. Þá áttaði ég niig á því hvað var að gerast. Ég kastaði frá mér símanum og rauk út úr vagn- inum til þess að komast í leikvagn- inn. Um það leyti sem lestin stöðv- aðist náði ég að opna dyrnar en þá var næsti vagn fyrir framan af- tengdur. Ég hljóp fram fyrir af- tengda vagninn og kom að leik- vagninum sem lá á þakinu. Honum hafði hvolft og sömuleiðis næsta vagni fyrir framan. Þetta voru einu vagnarnir sem hvolfdi," sagði Sveinn. Slysið gerðist í kolniðamyrkri en þokkalegu veðri. Sveinn rauk strax að vagninum og stóð hurðin á sér í fyrstu. „Einhvern veginn opnaði ég hana. Ég heyrði strax í dóttur x minni. Ofsahræðsla hafði gripið börnin. Gólfið í vagninum var glerhált. Um leið og ég kallaði á börnin svaraði sonur minn strax að ekkert amaði að þeim. Þau voru öll grátandi og vagninn var gersamlega í rúst,“ sagði Sveinn. Ásmundur Þór, 14 ára sonur Sveins, er , marinn og blár og Hanna Kristjana fékk ljótt glóðarauga og mar á enni. Yngsta barnið, Tómas Birnir, sem er tveggja ára, virðist hins vegar hafa sloppið við meiðsli. „Það gæti verið að hann hafi lent á eldri bróður sínum sem hefur dregið úr högginu," segir Sveinn. „Erum við komin til Danmerkur?" Tómas Birnir Iýsti slysinu á þann veg fyrir föður sínum að hann hefði skyndilega farið á hvolf í lestinni. „Þegar ég komst inn í vagninn spurði hann hvort við værum núna kornnir til Danmerk- ur. Dóttir mín og Ásmundur flugu um inni í vagninum þegar honum hvolfí og það kom gat á loftplötu í þakinu þegar hann skall með höf- uðið þar.“ Sveinn telur líklegt að dráttar- vagninn og fyrsti vagninn hafi hrist jörðina svo rækilega að það hafi losað um jarðveg undir tein- unum. Teinarnir hafi síðan gefið sig og Ijórði og fimmti vagn farið á hvolf. Hann segir að vel hafi gengið að koma börnunum út úr vagninum. Um 150 farþegar voru með lest- inni og söfnuðust flestir saman við vagnana sem hvolfdi. Höfðu þeir kveikt á kveikjurunum til sjá handa skil við björgunina. „Ég hef grun um að fólkið í vagninum fyr- ir framan leikvagninn hafi slasast einna mest. Mér skildist að fjórtán manns hefðu alvarlegri skaða án þess að vera lífshættulega slasað- ir. Það eru allir á þeirri skoðun að það sé með ólíkindum hve vel fólk- ið slapp og að enginn skyldi hafa látist." Allur farangur fjölskyldunnar var enn um borð í lestinni í gær- kvöldi því björgunarmenn höfðu bannað alla umgengni í vagnana þar sem þeir eni mjög ótryggir. Sveinn segir að aðstoð hafi ekki borist fyrr en eftir óratíina. Að lokum kom bóndi af næiiiggjandi bæ til aðstoðar og fengu margir húsaskjól þar, þar á meðal Sveinn og börnin hans. Þeir sem voru mest slasaðir voru fluttir á sjúkra- húsið í Mosjoen. SVEINN Guðmundsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.