Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUÐNÝ * SIGFÚSDÓTTIR + Guðný Sigfús- dóttir fæddist í Skarði, Landsveit, Rangárvallasýslu, 16. janúar 1919. Hún varð bráð- kvödd að heimili sínu aðfaranótt 10. desember. Foreldr- ar hennar voru Sig- fús Ágúst Guðna- son, f. 1. ágúst 1895 ■+ ' í Skarði, Landsveit, Rangái’vallasýslu, d. 9. desember 1965, og Jóna Sigríður Jónsdóttir, f. 21. ágúst 1897, á Þverlæk, Holta- hreppi, Rangárvallasýslu, d. 3. apríl 1998. Guðný var elst af 11 systkinum sem eru: Hörður, f. 24. desember 1919, d. 24. janúar 1974; Gerður, f. 29. júní 1921; Helgi, f. 19. september 1922; Hjalti, f. 26. nóvember 1923; Hulda, f. 18. febrúar 1925, d. 4. maí 1932; Gyða, f. 26. ágúst 1926, d. 1. júlí 1927; Guðni, f. 29. september 1928; Gyða Sigríður, f. 19. nóvember 1929; Ólöf "Hulda, f. 11. desember 1932; Ha'ldór Þráinn, f. 12. september Mig langar til að skrifa nokkur orð til að minnast elskulegrar tengdamóður minnar, Guðnýjar Sigfúsdóttur, Grenimel 35, sem lést svo skyndilega aðfaranótt 10. des- ember síðastliðinn. Þegar hátíð fer í hönd og fjöl- skyldur sameinast um helgi jólanna, er sárt að Guðný skuli ekki lengur vera á meðal okkar, nema í anda. fítversu margir í fjölskyldu hennar minnast ekki með gleði jólahaldsins á Grenimelnum, hátíðleika aðfanga- dagskvölds, samveru fjölskyldunnar á jóladag, eftirvæntingar og leiks barna og barnabarna í stórum hópi. Einnig undirbúningsins, - Júlla að bjástra við seríumar og tréð og Guðnýjar sem sífellt var vakandi yf- ir að allt væri í lagi, allir fengju nóg og ekki síst að börnin nytu sín. Það var sannkölluð fjölskylduhátíð að gömlum sið. Og Júlli, sem þrátt fyr- ir fötlun sína geislaði af ánægju, enda naut hann óskiptrar ástar og 1937. Guðný giftist 18. desember 1937 Guðmundi Júlfusi Guðmundssyni, f. 14. júlí 1912, d. 27. apríl 1998. Börn þeirra eru: 1) Sig- rún Kristín, f. 4. ágúst 1938, maki Sigurður Jakobs- son, og eiga þau tvö börn og fimm barnabörn. 2) Sig- fús, f. 22. október 1941, maki Ros- emarie Þorleifsdótt- ir, og eiga þau fjög- ur börn og fimm barnabörn. 3) Guðni, f. 13. febrúar 1944, maki Steinunn Sigurðardóttir og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn. 4) Þórunn, f. 19. febrúar 1949, maki Ólafur Kristinn Ólafsson og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. 5) Hafdís, f. 26. októ- ber 1954, maki Guðmundur Gíslason og eiga þau eitt barn. Þau hjónin bjuggu lengst af á Grenimel 35 í Reykjavík. títför Guðnýjar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. þolinmæði eiginkonu sinnar öll þessi ár. Segja má að ævi Guðnýjar hafi skipst í tvö skeið, að frátalinni barnæsku,- fyrir og eftir veikindi Júlla. Svo sterkt og ástríkt var sam- band þeirra að ekki verður hjá því komist að miða við þessi hvörf í lífi beggja. Guðmundur Júlíus veiktist á gamlársdag 1973 af heilablóðfalli og lifði við þá fötlun að vera máttlít- ill í hægri hluta líkamans og mállaus allt til dauðadags, sem varð 27. apríl sl., eða fyrir sjö og hálfum mánuði. Guðný og Júlli kynntust f Skarði í Landsveit þegar hann kom þangað vinnumaður en Guðný var þár í fóstri hjá afa sínum og ömmu. Hún var 11 ára, hann 17 ára. Þau trúlof- uðu sig þegar Guðný var á sextánda ári og gengu í hjónaband 18. desem- ber 1937. Allt samband þeirra var með þeim hætti að ljóma stafaði af. Eftir að þau fluttu til Reykjavíkur bjuggu þau fyrst á Njálsgötu en frá árinu 1945 í Vesturbænum, að + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, dóttur og ömmu, STEFANÍU ÞÓRUNNAR SÆMUNDSDÓTTUR húsfreyju í Syðra-Vallholti, Skagaflrði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Skagfirðinga, Sauðárkróki, og til starfsfólks gjörgæsludeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, er veitti henni og okkur ómetanlega hjálp í veikindum hennar. Hjartans þakkir fyrir hið hlýja viðmót og Ijúflyndi í okkar garð. Gunnar Gunnarsson, Jónína Gunnarsdóttir, Trausti Hólmar Gunnarsson, Sæmundur Jónsson og barnabörn. . Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- * hug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður og afa, KJARTANS TÓMASAR GUÐJÓNSSONAR, sem andaðist mánudaginn 7. desember. Í4 Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Grenimel 35. Framan af bjuggu fóð- urforeldrar hjá þeim enda var íbúð- in rúmgóð. Minningarnar þaðan eru óteljandi og flestar hamingjuríkar. Börnin uxu og döfnuðu, barnabörn fæddust, lífið gaf og tók en þar kom að áfall dundi yfir þegar Júlli missti heilsuna. Guðný varð þá höfuð heimilisins og fyrirvinna með dygg- um stuðningi barna þeirra hjóna, bæði þeirra sem flutt voru að heim- an og þeirra sem enn bjuggu á Grenimel. Hún starfaði lengi á Hótel Sögu og ræsti í Lögbergi Há- skólans og talaði æ síðan af vænt- umþykju um þessar stofnanir og sagði stundum „kallagreyin“ um einhverja prinsa sem gist höfðu Sögu eða prófessora í Lögbergi. Hún hafði gaman af því sem sumum fannst hversdagslegt amstur, enda naut hún þess að umgangast aðra. Það er ekki á neinn hallað þótt sér- staklega sé tiltekinn dugnaður Guð- nýjar, ósérhlífni og ástúð í garð maka síns sem særður var und sem aldrei greri. í veikindunum stóð hún við hlið hans og hjúkraði, stóð fóstum fótum og barðist á sinn elskulega hátt fyrir tiiveru þeirra í tuttugu og fimm ár. Aldrei bar skugga á, aldrei gafst hún upp eða gaf eftir fyrir skyndilausn eða stundlegri gerviskemmtun. I minn- ingunni stendur hún fyrir dyggðina, fyrir fölskvalausa ást, fyrir styrk al- þýðukonunnar, fyrir móður jörð. Fórn hennar var stór en hún færði hana af þvílíku æðruleysi og með- fæddri lífsgleði að margur hefur ef- laust ekki gert sér grein fyrir þunga hennar. Eg var svo lánsamur að kynnast Guðnýju og Júila nokkru fyrir 1974 þegar ég fór að gera mér dælt við Hafdísi, yngstu dóttur þeirra hjóna. Fór fyrir mér eins og mörgum að ferðirnar á Grenimelinn urðu tíðar og vildu dragast á langinn af því að þar var gott að koma, svo hlýlegt viðmót. Guðný Sigfúsdóttir hafði þann eiginleika að fólki leið vel með henni, hún hafði ánægju af að gleðja aðra. Hún var af kjarngóðu íslensku bændafólki, talaði fallegt og tepru- laust mál með sínum skemmtilega sunnlenska framburði, kryddað al- þýðuspeki og stundum sérstæðum líkingum úr sveitinni hennar sem var henni svo kær. Hún gat átt til að vera orðhvöss, skóf ekki af ef henni misiíkaði, sem helst var tengt því sem hún kaliaði asnaskap þeirra sem steyptu sér í vitleysu vegna áskapaðs vesældóms. Sjálf var Guð- ný reglumanneskja allt sitt líf og hafði yndi af mannfagnaði og söng, sérstaklega ef það tengdist sveit og hestamennsku eða starfinu í Nes- kirkju sem hún mat mikils. Eg minnist margra kvöidheim- sókna þegar við strákamir, félagai- Hafdísar í gagnfræðaskóla og síðar menntaskóla, sátum lengi frameftir og spiluðum vist inni í borðstofu. Aldrei var stuggað við okkur með ónotum eða hastað á okkur, annað hvort drógu hjónin sig í hlé og fóru að sofa eða þá að Guðný tók í spil með okkur. Alltaf var greiðvikni og umhyggja í fyrirrúmi, jafnvel þó að langur vinnudagur væri að baki. Stundum, þegar hugsað er til baka, dettur manni í hug hvort þeim hjón- um hafi yfirhöfuð litist á blikuna, þegar þrír eða fjórir mussuklæddir, stórvaxnir og luralegir piltar með hár niður á herðar voru sestir upp hjá dóttur þeirra við kortspii. En Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 það veit ég, hvort sem þessir mussumenn eru núna læknar, lög- fræðingar eða prestar þá minnast þeir stundanna á Grenimel 35 með sérstakri hlýju. Einnig veit ég, eins og aðrir sem notið hafa þess að búa um lengri eða skemmri tíma á heim- ilinu að Grenimel, að þar var yndis- legt að dvelja, þar leið gestum vel. Og ekki spillti að Guðný var alltaf tilbúin að taka málstað tengdasonar ef með þurfti, með stríðnislegu bliki í augum. Guðný mín, elskulega tengda- móðir sem ég á svo margt að þakka, ég veit að þú hefur ekki búist við að kallið kæmi strax, ekkert okkar bjóst við því, þú varst svo heilsugóð og ern. En það er huggun að við vit- um að nú ertu komin til hans Júlla þíns, hann hefur tekið á móti þér al- heill eins og forðum með sinn út- breidda, sterka faðm. Það varð þá aðeins hálfur áttundi mánuður á milli ykkar. Eg veit að núna getið þið saman gengið á vit þeirra minn- inga sem ykkur voru svo kærar. Þið munið leiðast heim í Skarð, rölta út með á, haldast í hendur uppi á Bæli og horfa yfir sveitina ykkar, koma við í Hvammi. Þið munið á ný ganga Njálsgötuna og vitja saman endur- minninga vorkvölda í Reykjavík. Þið munið aftur skjökta Kambana á gamla Grána og dvelja í litla sumar- bústaðnum ykkar í Hveragerði. Þið munið takast ferðir á hendur austur í Geldingaholt með smíðatól og vín- arbrauð eins og svo oft áður til að heimsækja og hjálpa til. Og ekki síst, þið munið leiðast hönd í hönd um Melana eins og forðum, þegar börnin uxu úr grasi og lífið með öll- um sínum unga íjölbreytileik blasti við. Hér eftir hvílið þið hlið við hlið og verðið saman að eilífu á drottins vegum. Elsku Guðný mín, líf þitt hefur verið okkur sem þekktum þig blessun og hvatning, þú hefur gefið svo óendanlega mikið. Öllum að- standendum nær og fjær votta ég mína dýpstu samúð, megi guð varð- veita þá og minningu sómahjónanna Guðnýjar Sigfúsdóttur og Guð- mundar Júliusar Guðmundssonar. Guðmundur Gíslason. Hún amma á Grenimei er dáin. Það er skrýtin tilhugsun að geta ekki komið við á Grenó. í sumar sem leið var ég oft heima hjá henni, ég hafði lausan tíma á milli vinnu og æfingar og vandi þvi komur mínar þangað. Hún gaf mér að borða og við spjölluðum og svo lagði ég mig eða las í bók. Mér leið alltaf vel hjá ömmu, hún var svo umhyggjusöm og góð við mig og það var alltaf hlý- legt og notalegt á Grenimeinum. Það er ótrúlegt hve andrúmsloftið var rólegt hjá henni. Það var eins og stress nútímans næði ekki þangað inn. Amma að hella uppá kaffi og alltaf var útvarpið á með fallegri tónlist. Gamla klukkan gekk tikk - takk, tikk - takk endalaust og hjart- sláttur manns var kominn í takt. Þegar ég var yngri sátum við krakkarnir saman inni í herbergi í jólaboðum og borðuðum kökur við kringlótt borð. A Grenimelnum var svo margt hægt að bralla. Við gerð- um teppahús, en í það notuðum við gífurlegt magn af húsgögnum og teppum og eftir byggingu var eins og stormsveipur hefði farið þar um. Stundum bjó ég til bolta úr rifnum dagblöðum og fór í fótbolta með kompuopið sem mark. Amma fylgd- ist með okkur sallaróleg. Teppin voru bílabrautir, hurðirnar mörk og borðin voru hús. Þetta var okkar draumaland. Amma gaf okkur það. Amma mín, það er sárt að sjá á eftir þér. Þú fórst alltof skyndilega, ég kvaddi þig aldrei, en það er mér huggun að ég veit að þú og afi eruð saman á himnum. Ég mun aldrei gleyma þeim tíma sem ég varði með þér síðasta sumar. Öllum aðstand- endum votta ég mína dýpstu samúð og bið Guð að varðveita þá og minn- ingu ömmu minnar og afa. Gísli Þór Guðmundsson. Guðný fæddist á höfuðbólinu Skarði í Landsveit 16. janúar 1919 og ólst þar upp hjá afa sínum og ömmu á mannmörgu heimili. Ung kynntist hún vinnu og reglusemi jafnt utanbæjar sem innan, bjó hún að þeim dyggðum alla sína ævi. Guðný ólst upp við gott atlæti hún var yngst af stórum hóp barna og fósturbarna á heimilinu. Þar voru tvær eldri föðursystur, Guðrún og Kristín, sem réttu hjálparhönd við uppeldið, hún mat þær og virti alla tíð. Guðný átti margar góðar minn- ingar frá æskuárunum sem hún þreyttist aldrei á að segja okkur sem yngri vorum. Oft sagði hún söguna þegar hún innan við ferm- ingu fór ein á honum Skugga hans afa suður í Þykkvabæ að heimsækja pabba sinn og mömmu sem bjuggu í Háfi, þetta var löng leið, hún gisti eina nótt hjá foðurbróður sínum sem þá bjó að Raftholti í Holtum. Það sýndi sig að fljótt kom fram dugnaður, kjarkur og lagni við hesta, hún hlaut þá hæfileika frá forfeðrum sínum. Guðný var bók- gefin, fannst gaman að lesa og grúska í gömlum ritum. Stutt er síð- an hún lánaði mér tvö gömul blöð af Þjóðólfi, þar voru greinar um gamla bændamenningu á Suðuriandi. Hún kunni mikið af ljóðum og sálmum, vænst þótti henni um tvær bækur sem amma hennar keypti af farand- sala, önnur var Giampar eftir ná- grannan Grétar Fells, hin eftir Guð- mund Daníelsson. I þessum bókum las hún oft. Árið 1937 flutti Guðný til Reykja- víkur með unnusta sínum Guð- mundi Júlíusi Guðmundssyni, ung- um manni sem dvaldi á heimilinu. Þau byrjuðu búskap á Njálsgötu 58 með Guðmundi og Kristínu, foreldr- um hans, síðar keyptu þau í samein- ingu íbúðina á Grenimel 35, árið 1945. Þannig hagaði til að þær þurftu að deila sama eldhúsinu, aldrei voru árekstrar eða kynslóða- bil. Þá kom sér vel agi og tillitsemi sem hún ólst upp við, þær gengu ekki hvor á hlut annarrar. Þetta gekk svo til í 15 ár. Guðmundur og Guðný eignuðust fimm mannvænleg börn sem öll eru mótuð af góðu og reglusömu upp- eldi. Árið 1973 missti Guðmundur heilsuna, lamaðist að hluta til og missti málið, eftir það gat hann ekki tjáð sig. Þá stóð Guðný sig vel og sýndi hvað í henni bjó, hún annaðist hann til dauðadags, eða í 25 ár að frátöldum sex síðustu mánuðunum sem hann dvaldi á Landakoti, hann andaðist í apríl á þessu ári. Þetta gerði hún af svo mikilli hlýju og kærleika að aldrei mun gleymast. Hún kvartaði aldrei yfir erfiðleikun- um eða vinnunni sem hún lét í té. Hún mætti sínum foriögum með jafnaðargeði og æðruleysi. Þá kom sér vel hin létta lund sem hún hafði alla tíð. Hún vildi öllum gott gera, átti gott með að umgangast ung- dóminn, hafði barnabörnin úr sveit- inni í fæði og húsnæði þegar þau voru við nám í Reykjavík. Við Krist- insbörn sem ólumst upp með henni í Skarði þökkum samfylgdina, hún var góð fyrirmynd og uppeldissystir. Ég mun sakna okkar daglegu símtala þar sem spjallað var um dagsins önn, sem gamla tíð. Ég sendi börnum og ættingjum öllum mínar samúðarkveðjur. Laufey Kristinsdóttir. Góð félagskona hefur kvatt þenn- an heim. Margir eiga góðar minn- ingar um þessa glaðværu og dagfar- sprúðu konu. Mörg eru handtökin hennar í starfi Neskirkju og fyrir það viijum við þakka. Á fundum var gott að hitta Guðnýju, því sama var hvernig iá á öðrum, alltaf gat hún sáð gleði og sól í sinni samferðarfólks. Með virðingu og þökk sendum við ijöl- skyldu hennar innilegar samúðar- kveðjur. Fh. Kvenfélags Neskirkju, Jóna Sigurjónsdóttir. Atlan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.