Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens B
Smáfólk
YOU KNOW UJHY I
(aJANTTOBUV PE66V
JEAM TH05E 6L0VE5
FOR CHRI5TMA5?
UJHEM I FIK5TMET HEK
TI4I5 5UMMER AT CAMP I
NOTICED UJHAT PRETTV HAND5
5HEHAD... I UJANT TH05E
PRETTY HANDS TO BE UJARM..
1
BUTI D0NTHAVE TUIENTY-FIVE DOLLAR5TOBUY THE 6L0VE5... — 5END HER A NICE CARRANPTELLHER TO KEEP HER HANP5 IN HER P0CKET5!
/
- - - - - - ^>^11 -' 1 - -
Veistu af hverju mig-
langar að kaupa
hanska handa Pálu
Jónu í jólagjöf?
Þegar ég hitti hana fyrst í
sumarbúðununi tók ég eftir
því hve hún hafði fallegar
hendur - ég vil að þessum fal-
legu höndum sé hlýtt.
En ég á ekki 2000
kr. til að kaupa
hanskana...
Sendu lienni fallegt kort
og segðu henni að hafa
hendurnar í vösunum!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Bjartsýnisverðlaun
eldri borgara
Frá Einari Grétari Björnssyni:
SPYR sá sem ekki veit. Maður er
svo undrandi að orða er vant. Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
heiTa hefur veitt bjartsýnisverðlaun
írá Framsóknarflokknum til Lands-
sambands eldri borgara. Er þetta
skortur á skynsemi? Getur þetta fólk
kallað sig ráðamenn þjóðarinnar?
Veit það ekki eða rennir það ekki
grun í að um 21 þúsund af 24 þúsund
ellilífeyrisþegum eru undir fátæktar-
mörkum? Eru þessi bjartsýnisverð-
laun fyrir það að hinn almenni lífeyr-
isþegi skuli tóra af þessum gi-eiðsl-
um sem koma frá Tryggingastofnun
ríkisins? Þetta er litlu betra en í
Rússlandi hvernig komið er fram við
eldri borgara. Verðum við að tína
dósir og fiöskur úr sorptunnum,
gámum og kringum veitingastaði til
að eiga fyrir nauðþurftum? Sé svo er
ég ekki hissa á því að við eldri borg-
arar fáum bjartsýnisverðlaun Fram-
sóknarflokksins fyrir það eitt að
tóra. Eg læt desemberseðil minn
fljóta með þessum línum svo fólk
megi sjá rausn íslenska ríkisins. Eg
tek það fram að ég er kvæntur og að
konan mín vinnur úti og fær um 68
þúsund krónur á mánuði.
Svo heyrir maður í fréttum að
bankastjórar fái 500 milljónir króna,
menn sem ætíð hafa verið með topp-
laun og fríðindi hverskonar: bíla,
ferðalög, dagpeninga, risnu, laxveið-
ar - gjörið þið svo vel. Þeim veitir er
ekki af 72-75 m.kr. á mann. Er þetta
samkvæmt jafnréttisreglunni? Það
er bannað að mismuna fóki tekjulega
samkvæmt mannréttindayfírlýsingu
Sameinuðu þjóðanna frá 1948.
Þegar þeir rétta bankastjórunum
miljónahundruð hækkar matur á
elliheimilum ríkisins. Tannlækninga-
kostnaður eldri borgara erskorinn
niður um 78 m.kr. Það er svo sannar-
lega munur á séra Jóni og bara Jóni.
Eg fór fram á gjafsókn vegna
skerðingar sem ellilífeyrisþegar hafa
orðið fyrii' og ég tel mannréttinda-
brot samkvæmt stjórnarskrá. Svarið
var nei. I svarinu liggur að ég sé svo
ríkur að ég þurfi ekki á gjafsókn að
halda. Það er mannamunur gerður í
þessum efnum sem öðrum hér á
landi. Og ég sem hélt að við gaml-
DESEMBERSEÐILL frá
Tryggingastofnun.
ingjarnir ættum það inni hjá ríkinu,
eftir verðbólgu- og gengisfellinga-
ílóðin 1954 til 1984, sem eyðilögðu
allan spamað og lífeyrissjóði kyn-
slóðar okkar, að fá aðstöðu til að
bera hönd fyrir höfuð okkar. 40 ára
líftrygging sem tekin var kringum
1994 sem þá vai' 15 þúsund krónur,
ætli dagkaupið hafi ekki verið 70
krónur fyrir 10 tíma vinnu, tók sín-
um breytingum; eftir þessi 40 ár
voru þessar 15 þúsund krónir komn-
ar niður fyrir eitt hundrað! Er þetta
góð stjómsýsla? Eins var um lífseyr-
issjóði hjá sjómönnum, hinum al-
menna launamanni og bændum. Er
ekki tímabært að Landssamband
eldri borgar hefji málssókn á ríkið?
Mismunin hér á landi brýtur í
bága við alþjóðasamning um borgar-
leg og stjórnmálaleg réttindi frá
1996. Það er nóg komið af skerðing-
um og mál að hefja málsókn á ríkið
og Tryggingastofnun ríkisins.
Kjörorð Framsóknarflokksins fyr-
ir síðustu kosningar var: „Fólk í fyr-
irrúmi“! Var þá bara átt við banka-
stjóra? Eiga bjartssýnisverðlaunin
að duga hinum eldri? Svo lengi má
deigt járn brýna að bíti. - Þér skuluð
ekki gjöra öðram það, sem þér viljið
ekki að yður sé gjört!
EINAR GRÉTAR BJÖRNSSON,
fyrrv. sjómaður, Seltjarnarnesi.
Jól - hvað er það?
Frá Sonju R. Haraldsdóttur:
ÞEGAR ég vai' bláfátækt barn í
Þýskalandi (ég er reyndar enn fá-
tæk), vissi ég hvað vora jól. Jól vora
vegna fæðingar Jesú, jól voru undur,
heilagur viðburður, andleg upplifun
og uppbygging. Jól voru ekki vegna
jólasveinsins, ekki vegna gjafanna
eða jólasteikanna.
En nú er haldið upp á afmæli frels-
ai'ans með því að tæma allar verslan-
ir og koma Visakortunum í stóran
mínus. Eru þetta jól, er þetta að vera
kristinn? Hvað er eiginlega gert fyrir
afmælisbarnið, hvaða gjafír eða fórn-
ir fær hann? Hvað er gert fyrir okkar
minnsta bróður? Kristin tvisvar á ári,
stórar minningarathafnir fyrir jól og
páska? Hvern höldum við að við sé-
um að blekkja með þessu? Svo sann-
arlega ekki Jesú Krist, því hann
sagði: „Sannlega segi ég yður: Það
allt sem þér gjörðuð ekki einum
hinna minnstu bræðra minna, það
hafið þér ekki heldur gjört mér“
(Mattheus 25:31^6). Og hann kenndi
okkur að elska náungann eins og
sjálfan sig. En maður nokkur spurði:
„Hver er náungi minn?“ Þá svai'aði
Jesús: „Sá sem er í neyð, sá sem þarf
á þinni hjálp að halda.“
Og era ekki margar milljónir
barna um allan heim að kalla á hjálp
okkar? Munaðarleysingjar, heimilis-
Iaus börn, götuböm, stríðsböra, börn
í vændi og klámi, börn í þrælkunai'-
vinnu, börn í sárafátækt, börn sem
deyja úr hungi'i í milljóna tali o.s.fí-v.
Til eru samtök sem gera það auðvelt
fyrir okkur að hjálpa þessum börn-
um. Eg sjálf hef verið með þessi fóst-
urbörn á framfæri í 20 ár. Það kostar
andvirði fjögurra pakka af sígarett-
um á á mánuði fyrir eitt barn. Hver
er ekki aflögufær um fjóra pakka af
sígarettum til að bjarga einu barni?
En fáir heyra eða vilja heyra. Af
hverju þetta mikla afskiptaleysi? Af
því að það eru fáir sannkristnir menn
til í dag. AJlir hinir þykjast vera
kristnir en hjörtu þein-a era fyrir
löngu frosin. Heilagm- Nikulás gekk
um og gaf fátækum börnum og það
eigum við líka að gera. „Það sem þér
hafíð gjört einum þessara minnstu
bræðra, það hafið þið gjört mér.“
SONJA R. HARALDSDÓTTIR,
Bakkakoti, Reykjavík.