Morgunblaðið - 18.12.1998, Side 75

Morgunblaðið - 18.12.1998, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 75 r FOLK I FRETTUM Órannsakanlegir vegir tónlistargyðjunnar TONLIST Geisladiskur STÓRHÖFÐASVÍTAN OG SVOLÍTIÐ MEIRA Geisladiskur Arna Johnsen, sem er höfundur margra laganna og texta auk þess sem hann syngur flest lögin. Aðrir ljóða- og textahöfundar eru: Davíð Stefánsson, Halldór Laxness, Jóhannes úr Kötlum, Matthías Jo- hannessen, Jón Helgason, Loftur Guðmundsson og Poul F. Joensen. Geir Hilmar Haarde syngur þrjú lög. Hljóðfæraleikarar úr ýmsum áttum, þ. á m. Sinfóníuhljómsveit Islands undir stjórn Bernard S. Wilkinson. Utsetning á Stórhöfðasvítu: Ed Welsh. Stjórn upptöku: Vilhjálmur Guðjónsson, sem auk þess leikur á ýmis hljóðfæri. Útgefandi: Ystiklett- ur. Dreifing: Japis. Lengd: 69:49 mín. ÁRNI Johnsen gaf menningarelít- unni langt nef þegar hann fékk Sin- fóníuhljómsveitina til að frumflytja fyrir sig Stórhöfðasvítuna sællar minningar. Fáir áttu von á þessu snjalla útspili þingmannsins, en þetta undirstrikar bara að vegir tón- listargyðjunnar eru órannsakanleg- ir. Nú er svítan komin út á geisla- diski, ásamt öðru efni, og er svítan að mínu mati sterkasta tromp disks- ins út frá Iistrænu og faglegu sjónar- miði. Hér skal þó ekki lagður dómur á hvort verkið skipi Árna á bekk með helstu klassísku tónskáldum samtíð- arinnar, um það verða aðrir dæma. Annað sterkt tromp á þessum diski er að sjálfur fjármálaráðherra í ríkisstjórn lýðveldisins, Geir Hilm- ar Haarde, lætur sig hafa það að syngja nokkur laganna, og gerir það með stæl að mínu mati. Söngur hans fellur vel að þessum þremur lögum s'em hann syngur, sem eru Eg elska Þig og Söngur sjómannsins, sem bæði eru amerískir slagarar og rússneska þjóðlagið Stenka Rasin, sem hér er flutt við texta Árna undir nafninu Elfur landsins. Geir hefur greinilega gaman af því sem hann er að gera, enda söngelskur maður. Onnur lög á plötunni syngur Ami sjálfur, en hér er að finna sjö nýút- sett lög, flest bandarísk kántrýlög, Stórhöfðasvítuna og svo 10 gamlar upptökur frá ýmsum tímum, sú elsta frá árinu 1971. ÁRNI Johnsen á Stórhöfða við frumflutning svítunnar sem dregur nafn sitt af staðnum. Hér skal ekki dregin fjöður yfir það að Árni hefur löngum verið um- deildur tónlistarmaður og einkum hafa menn haft söngrödd hans í flimtingum. Um það hafa jafnvel ver- ið sagðir landfleygir brandai’ar, eins og þessi nýjasti, um andann, Vest- mannaeyjagöngin og söngröddina. Og skæðar tungur og illgjarnai- hafa reynt að koma því inn hjá þjóðinni að Árni haldi ekki lagi. Þessu vísa ég al- farið til foðurhúsanna. Ami er ágæt> lega lagviss, en honum hættir stund- um til að syngja lög sín full neðarlega á tónstiganum, með dálítið stórkalla- legum rokum, sem byrja neðst í kvið- arholinu og brjótast síðan upp á yfir- borðið, eins og söngvarinn sé að reyna að yfirgnæfa samkór þúsunda misdrukkinna þjóðhátíðargesta í Brekkusöngnum, þar sem Ami hefur verið forsöngvari um árabil. Nýútsettu smellirnir á þessari plötu bera þó með sér að dregið hef- ur úr „Brekkusöngsjílnum" í söng Áma og er það vel. Árni er fyrst og fremst vísnasöngvari og lunkinn sem slíkur, enda öðmm mönnum lagnari við að rífa upp fjöldasöng við ólíklegustu aðstæður. Það er létt yf- ir þessum lögum og textar Árna falla vel að þeim. Valinkunnir hljóm- listarmenn sjá um undirleikinn und- ir fagmannlegri stjórn Vilhjálms Guðjónssonar og er hér vel að verki staðið. Flest laganna hafa í sér gríp- andi laglínu, sem ætti að duga til al- SAGA V matury skemmtun, dans Jólastemning í Súlnasal öll fóstudags- og laugardagskvöld Glæsilegt jólahlaðborð og fjölbreytt skemmtiatriði: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Örn Árnason og ungir tónlistarmenn. Hljómsveitin Saga Klass ásamt Reyni Guðmundssyni og Sigrúnu Evu Ármannsdóttur leikur fyrir dansi eftir kl. 23.30. Verð 3.600 kr. Verð 850 kr. á dansleik. - þin jólasaga! mennra vinsælda, eins og til dæmis Fagra blóm, sem að uppbygg- ingu minnir á „Undir bláhimni", sem notið hefur óhemju vinsælda meðal alþýðu manna á undanfömum árum. Þar er komið enn eitt dæmi um órannsakan- lega vegi tónlistargyðj- unnar. Stórhöfðasvítan er, eins og áður segir, sterkasta tromp þessar- ar plötu, ekki síst vegna þeirrar sérstöðu sem hún hefur í íslenskum tónbókmenntum. Grannur hennar er byggður á lögum eftir Árna, sem hann hefur áður sent frá sér, í sin- fónískri útsetningu Ed Welsh. Sin- fóníuhljómsveit Islands og rytma- band undir stjórn Bernards S. Wilk- inson flytur svítuna og ég heyri ekki betur en sá flutningur sé full boðleg- ur, hver svo sem mælistikan er, sem menn setja á þetta verk. Á eftir fylgja þau tíu lög sem svítan er byggð á í uppranalegum útgáfum og finnst mér fengur að því að safna þeim hér saman á einn stað. Síðasta lagið á plötunni er svo færeysk út- gáfa af Fagra blóm við texta Poul F. Joensen frá Suðurey í Færeyjum. Er vel til fundið hjá Árna að bjóða frændum vorum Færeyingum upp á eitt lag á þessum diski, en í Færeyj- um nýtur hann virðingar og er al- mennt talinn óumdeildur snillingur. Þegar á heildina er litið _er þessi plata líklega sú besta, sem Árni hef- ur sent frá sér til þessa. Hún hefur meiri breidd en fyrri verk hans, þótt undirtónninn sé dæmigerður fyrir Eyjapeyjann. Það er grallaralegur og glaðbeittur blær yfir þessu öllu saman, sem fer vel í mig. Sveinn Guðjónsson yjújunq frá noname iV CJ J ----COSMETICS —— AndMtsvat™ Hreinsilína fyrir allar húðgerðir Glæsilegt kynningartilboð Handaburður . , Taska 1 verslunum No name Ká1>astia kráin í basnum Sja ára ng 18 daga fleftskpt um heldma nú mæta þeir áalvashir Gamli Daitskurinn o£ féla^ar frá KK Óli MeGuiness o± Inévar Garcia spila sjóðheitirbæði kvöldin m i ÆL jHL afnarstræti 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.