Morgunblaðið - 31.12.1998, Síða 20

Morgunblaðið - 31.12.1998, Síða 20
20 C FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ •• / Ogmundur Jónasson, formaður þingflokks Oháðra Uppstokkun íslenskra sljórnmála, sem sér ekki fyrir endann á i. DÓMUR Hæstaréttar er langt frá því að vera skýr og gefur tilefni til mismunandi túlkana, eins og rækilega hefur komið á daginn. Rík- isstjórnin hefur valið að túlka dóm- inn þröngt eins og frumvarp hennar fyrir jólin um breytingar á lögum um fiskveiðistjómun ber ljósan vott um. Þeir sem vilja úthluta veiðileyf- um á óheftum uppboðsmarkaði, með öðrum orðum markaðsvæða auðlindanýtinguna algerlega, kjósa að túlka dóminn mjög rúmt, eins og heyra má á málflutningi krata. Landsráðsteftia Vinstrihreyfing- arinnar - Græns framboðs fagnaði í ályktun 5. desember sl. nýgengnum dómi Hæstaréttar í kvótamálinu og sérstaklega því að niðurstaðan styrkir í sessi ákvæði 1. greinar laga um stjóm fiskveiða og sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar. „Öumflýjanlegt er að gera grund- vallarbreytingar á kerfinu og stokka upp spilin“, segir í ályktun landsráðstefnunnar. „Um leið gefst tækifæri til að móta nýja sjávarút- vegsstefnu þar sem sjónarmið um- hverfisvemdar, byggðajafnvægis og jafnréttis við skiptingu afraksturs- ins eru höfð í heiðri." Fram hafa síðan stigið lögspekingar sem telja sameignarákvæði fiskveiðistjómun- arlaganna markleysu og tala fyrir ómenguðum einkaeignarrétti á fisk- veiðiauðlindinni. I reynd talar ríkis- stjómin fyrir svipuðum sjónarmið- um með túlkun sinni og viðbrögðum við dómnum. Það sést best á því að í fmmvarpi hennar er ekkert sólar- lagsákvæði, eins og eðlilegt væri ef menn ætluðu fljótlega að leggja inn á nýjar brautir. Þar nægir ekki að okkar mati almenn endurskoðun á lögunum að tveimur árum liðnum. Astæða er tii að rifja hér upp ákvæði 1. greinar gildandi laga svohljóðandi: „Nytjastofnar á Is- landsmiðum em sameigin íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að vemdun og hag- kvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiði- heimildum.“ Réttmætt er að hafa stór orð um þá þróun sem viðgengist hefur í skjóli fiskveiðistjómunarlaganna. Þrátt fyrir ákvæði 1. greinar lag- anna hafa ýmsir handhafar kvóta leigt hann og braskað með hann fyrir háar upphæðir. Kvótinn er far- inn að ganga í erfðir og andvirði hans hefur verið flutt úr landi. Eng- an þarf að undra að þjóðinni svíði að horfa upp á aðila sem em að hætta í sjávarútvegi hirða með sér út úr at- vinnugreininni ómældar fjárhæðir í nær skattfrjálsum gróða. Þetta ranglæti og siðleysi hefur gengið fram af almenningi og er löngu tfmabært að þessi ósvinna verði stöðvuð og er það eitt helsta for- gangsverkefni srtjómmálanna. Það er eitt stærsta og brýnasta hagsmunamál okkar að tryggja sjálfbæra og réttláta fiskveiði- stjómun og nú gefst okkur tækifæri til þess að ganga í það verk. Það er pólitískt verkefni sem Alþingi og stjómmálaflokkamir mega ekki víkja sér undan. Nýfallinn dómur Hæstaréttar opnar sviðið. Með hon- um skapast tækifæri til að endur- meta stefnu okkar varðandi alla fiskveiðistjómun og á þeirri for- sendu ber að fagna dómnum. Sp- umingin sem við blasir er meðal annars sú, hvort menn ætla dóm- stólum að höggva á hnúta eða hvort löggjafarvaldið sýnir það frumkvæði sem þarf. Viðbrögð ríkis- stjórnarinnar vísa því miður ekki á leið til sátta. Þingflokkur Óháðra og hin nýja græna vinstrihreyfing vill leggja áherslu á þrjú meginsjónarmið. I fyrsta lagi á vemdun lífrænna auðlinda á ís- landsmiðum gegn rányrkju og mengun, í öðru lagi á umhverfis- vænar veiðar og í þriðja lagi á byggða- væna úthlutun veiði- réttinda. Um fyrsta atriðið ætti að vera víðtæk sarnstaða svo augljósir þjóð- arhagsmunir sem þar eru í húfi. Til þess að ákvarða hámarksafla á traustum grunni þekkingar þarf hins vegar að efla til mikilla muna rannsóknir á vistkerfi sjávar. Hætta á aðborinni mengun vofir stöðugt yfir, bæði af völdum þrávirkra og geislavirkra efna. Til að veijast henni reynir umfram allt á alþjóða- samninga og eftirlit og þá um leið á samkvæmni íslendinga í umhverfis- málum. Hvað nýtingu sjávarauðlindanna innan ramma úthlutaðs hámarks- afla viðvíkur ætti að rýmka mögu- leika báta og smábáta til veiða frá því sem verið hefur. Slík útgerð ætti að njóta meiri forgangs til grunn- miða næst landi og með henni er unnt að þróa vistvænar veiðiaðferð- ir og spara orku. Með því að efla smábátaútgerðina hringinn í kring- um landið væri jafnframt stuðlað að fjölbreytni í greininni og nýliðun sem tryggja verður í breyttu stjórn- kerfi. Það hefur reynst nýjum mönnum erfitt að komast inn í út- gerð, þar eð þeir hafa þurft að kaupa sig inn í hana dýrum dómum. A þessu þarf að verða breyting. Samhliða þessu þarf að stokka al- gjörlega upp veiðistjóm þessa hluta flotans og koma á einföldum og samræmdum reglum. Til að treysta tilverurétt sjávar- byggðanna teljum við að byggða- tengja eigi réttindi til veiða, að minsta kosti að því er varðar nýt- ingu grunnmiðanna næst landi. Fátt myndi stuðla betur að jafíivægi í byggð landsins og koma um leið í veg fyrir stórtækan tilflutning á fiskveiðiheimildum landshluta á milli. Þetta kallar á uppstokkun á þeirri aflaskiptingu sem nú er við Iýði. Ýmsar leiðir má fara í úthlutun veiðiheimilda en grundvallaratriði er að þær heimildir sem ekki væru nýttar gengju til samfélagsins aftur. Hættan af óheftu og ótakmörk- uðu uppboði veiðiheimilda eru margþætt, meðal annars sú að með því yrði opnað fyrir greiðan aðgang Evrópusambandsins að íslandsmið- um. Mér býður í grun að slíka Evr- ópudrauma eigi einhverjir stjóm- málamenn hér á landi. Væri þá síð- asti þröskuldurinn fyrir inngöngu í Evrópusambandið horfinn að þeirra dómi. Vandinn er sá að með því hyrfi líka vömin fyrir dreifðar byggðir íslands og þar með is- lensku þjóðina sem væri komin á sama bekk og riki Mið-Ameríku sem selja erlendum stórfýrirtækj- um aðgang að náttúraauðlindum sínum. 2. Hér em engar niðurstöður gefn- ar og að sjálfsögðu verður það und- ir vilja kjósenda komið hver fram- vindan verður. Hitt er víst að nú stendur fyrir dyram uppstokkun í ís- lenskum stjórnmálum sem engan veginn er séð fyrir endann á. Innan Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Kvennalista era margir sem lengi hafa viljað ná saman og mynda sam- fylkingu, og sýnist mér stefna í nýkratískan stjómmálaflokk svipað og við jiekkjum frá Bretlandi og víðar þar sem lagt hefur verið upp í siglingu tfl hægri. Stjómmál á einmitt að skipuleggja þannig að þeir starfi saman sem hafa svipuð sjónarmið og pólitísk baráttumark- mið og er ekkert nema gott eitt um það að segja þegar samherjar í stjómmálum finna sér sameiginleg- an vettvang. Hins vegar er það ein- földun að líta svo á að um samein- ingu Alþýðuflokks, Alþýðubanda- lags og Kvennalista sé að ræða. Þessir flokkar heyra að vísu allir senn sögunni til en eftir stendur nýr flokkur sem þarf að sanna sig á eigin forsendum. Hverjar afleiðing- ar þetta mun hafa skal ósagt látið. Þó er ljóst að ýmsir snertifletir era við núverandi forystu Framsóknar- flokksins, og þá ekki síst í Evrópu- málum þar sem báðir aðilar halda öllu opnu fyrir inngöngu í Evrópu- sambandið. Augljósustu áhrifin af tilkomu Samfylkingarinnar virðast, alla vega í bili, ætla að verða aukin hægri slagsíða í íslenskum stjórn- málum og aukið fylgi við Sjálfstæð- isflokkinn. Þetta era þó að mínum dómi ekki áhrif til langframa. Afdrifaríkari af- leiðingar af fæðingu hins nýja kra- taflokks era þær að umhverfis- vemdarsinnar og fólk af vinstri- væng stjómmálanna hefur tekið upp samstarf og býr sig nú undir að lyfta nýju merki. Tel ég það vera merkustu fréttir þessa árs og að hér skuli vera í uppsiglingu nýtt stjómmálaafl, Vinstrihreyfingin - Grænt framboð. Margt bendir til að í þessari nýju hreyfingu finni kröft- um sínum farveg eindregið baráttu- fólk fyrir jafnrétti, félagslegu rétt- læti og umhverfisvemd. Þegar er Ijóst að fjöldi fólks sem fylgt hefur fyrmefndum stjómmálaflokkum og Framsóknarflokknum að málum svo og óflokksbundnir og óháðir einstaklingar ætla að koma til liðs við þetta græna vinstraafl. Sérstak- lega er ánægjulegt að sjá hve mjög þessar áherslur á umhverfisvemd og félagslegt réttlæti virðast höfða til ungs fólks. Ekki er ólíklegt að þessi hreyfing marki ákveðnari spor í íslenska stjómmálasögu en samfylking þeirra flokka sem áður vora upp taldir og heyra brátt sög- unni til. Hér á landi og víða erlendis er nú að koma fram andsvar við sókn sós- íaldemókrata inn á miðju stjóm- málanna og jafnvel inn á hægri vænginn eins og raunin hefur orðið með breska Verkamannaflokkinn. í andsvari við þessari þróun er á ferðinni fólk sem vill setja mann- gildið framar auðgildi og skynjar þörfina fyrir náttúra- og umhverf- isvernd. Það er engin tilviljun að á sama tíma og Margrét Thatcher lýsir vfir velþóknum á stefnu breska Verkamannaflokksins undir forystu Tonys Blairs þá skuli ókjrrrast mjög vinstrimenn innan flokksins og verkalýðshreyfingar- innar bresku. í nýafstöðnum þing- Ögmundur Jónasson kosningum í Svíþjóð er hið sama uppi á teningnum. Þar unnu vinstri menn mikinn kosningasigur og í Þýskalandi er Græni flokkurinn í fyrsta sinni þátttakandi í ríkis- stjóm. A vettvangi stjómmálanna er tekist á um mismunandi markmið og leiðir. Að sjálfsögðu eru skoðan- ir skiptar um hvað sé samfélagi og einstaklingum fyrir bestu. Svörin fara eftir pólitískri sannfæringu og mismunandi hagsmunum þeirra sem á annað borð taka afstöðu. Forsenda fyrir kröftugu lýðræði og heilbrigðu stjómmálalífi er að kjós- endum bjóðist skýrir kostir - allt annað er ávísun á stöðnun og kyrr- stöðu, jafnvel spillta valdapólitík. Vinstrihreyfingin - Grænt framboð mun ekki sigla undir hentifánum heldur leggja sitt af mörkrnn til að gera stjómmálin þróttmeiri og skýrari en þau hafa verið um skeið. Fyrir þeirra tilstilli getur orðið tíð- inda að vænta sem margir hafa beðið eftir. 3. Ef takast á að stöðva núverandi straum fólks frá landsbyggðinni og helst snúa honum við þarf einbeitt- ar aðgerðir af opinberri hálfu sem leiði til aukins jöfnuðar óháð búsetu og til hugarfarsbreytingar. Tilflutn- ingur fólks frá jaðarsvæðum til borga er vissulega ekki séríslenskt fyrirbæri, en hérlendis hefur langt- um minna verið að gert en viðast hvar annars staðar til að hamla gegn slíkri þróun. Það er mjög mik- ilvægt að greina orsakir fólksflutn- inga á raunsæjan hátt og í því ljósi grípa til aðgerða sem augljóslega eru af ýmsum toga en þurfa að vera samþættar. Ekki leikur nokkur vafí á því að það er landsmönnum öllum til hags- bóta að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Það er auðveldara að nýta gæði lands og sjávar með dreifðri byggð auk þess sem vilji manna stendur til þess að búa víðs vegar um landið. Forsenda þess að slíkt megi verða er hins vegar sú að fjöl- breytt atvinnutækifæri bjóðist og möguleikar til lífsgæða séu áþekkir hvar sem er á landinu. Atakanlegt er að lesa skýrslu rík- isstjómarinnar um byggðamál og úrræði hennar til að tryggja búsetu í dreifðum byggðum landsins. Þar rekst hvað á annars horn, annars vegar tillögur og hugmyndir til úr- bóta og síðan sú byggðafjandsam- lega stefna sem fylgt er á nánast öllum sviðum. A sama tíma og landsbyggðarfólk bendir á nauðsyn þess að jafna orkukostnað er hafist handa um að brjóta niður sameigin- leg raforkukerfi landsmanna og markaðsvæða þau. Slíkt mun óhjá- kvæmilega draga úr möguleikum til jöfnunar á orkukostnaði. Þá er ljóst að einkavæðing almannaþjónust- unnar hefur leitt til þess að dregið hefur úr þjónustu í fámennum byggðarlögum. A það meðal annars við um póst- og símaþjónustu og þjónustu í fjármálakerfinu. Eftir því sem lengra verður gengið í þessum efnum í velferðarþjónust- unni, á sviði heilbrigðis- og skóla- mála mun þrengjast hagur lands- byggðarinnar. Ekki má heldur gleyma sveitarfélögunum, sem nú era víða rekin með halla vegna yfir- töku kostnaðarsamra verkefna á sama tíma og ríkissjóður skilar af- gangi. Þá er Ijóst að tilflutningur á kvóta hefur valdið mörgum byggð- arlögum ómældum búsifjum á liðn- um áram og misseram. Til að snúa þessari óheillaþróun við þarf allt aðra stjómarstefnu en hér hefur verið fylgt lengi. Efla þarf þjónustustarfsemi í byggða- kjömum á landsbyggðinni og tryggja að allir þegnar landsins sitji við sama borð í velferðarþjón- ustu og mennta- og menningarlífi. Jafna þarf kostnað við húshitun og annan orkukostnað. Fiskveiði- stjórpunarkerfið þarf að styðja við heilbrigða byggðastefnu eins og áð- ur er að vildð. Stöðva þarf einka- væðingu almannaþjónustunnar og snúa vöm upp í sókn á því sviði. Góð og vönduð velferðar- og al- mannaþjónusta um land allt er for- senda kröftugs atvinnulífs á lands- byggðinni. Þrátt fyrir erfiða stöðu landsbyggðarinnar era ýmis já- kvæð teikn á lofti. Þannig opnar samgöngubyltingin nýjar víddir í tilveranni. Jarðgöng á Vestfjörðum hafa til dæmis það í för með sér að fólk í smærri byggðum á greiðari leið í margvíslega sérhæfða þjón- ustu sem ætla má að sé forsenda til að reka með sóma í stærri byggða- kjörnum. Færa þarf opinbera stjórnsýslu út til fólksins í lands- fjórðungunum að undangenginni vandaðri stefnumörkun. Mikilvægt er að dreifa opinberri þjónustu- starfsemi sem víðast. Þetta má gera með því að koma á fót svæða- skrifstofum opinberrar stjómsýslu en með því móti skapast atvinnu- möguleikar víðar en ef öllu er hald- ið miðstýrðu á einum stað. Einnig má nýta möguleika fjarvinnslu í þessu skyni. Þannig er ekkert því til fyrirstöðu að ýmis verkefni, til dæmis í ráðuneytum, séu unnin með fjarvinnslutækni í fjarlægum landshlutum. Allt kallar þetta á markvissa stefnumótun en ef vilji er fyrir hendi hjá stjórnvöldum þá mun takast að snúa af þeirri braut sem við eram nú á. En það er ekki nóg að gera það í orði kveðnu. Það þarf að vera samræmi á milli orða og athafna. 4, Við erum nú að súpa seyðið af mjög einhliða mati frá liðnum tíma á umfangi orkulinda landsins og á gildi hálendisins og þeirra náttúru- fyrirbæra sem óhjákvæmilega yrði raskað með virkjun fallvatnanna. „Virkjunarmenn“ höfðu allt frá því snemma á öldinni tiltölulega rúman fjárhag til að vinna að sínum fram- kvæmdaáformum. Hin hliðin á ten- ingnum, gildi ósnortinnar náttúra, var tæpast til fyrr en á allra síðustu áratugum. Og það er fyrst á síðustu 2-3 árum að upp rís fjöldahreyfmg í landinu sem eitthvað kveður að til varnar þessum gildum. Enn má þó litlu til kosta að draga fram vernd- arþáttinn. Ríkisstjórnin felldi til dæmis við afgreiðslu fjárlaga fyrir jólin tillögu okkar Óháðra um græna þjóðhagsreikninga. Ég tel að niðjar okkar myndu telja sig standa í þakkarskuld við núlifandi menn í landinu ef við stæðum fast gegn virkjunaráform- um sem nú eru uppi og til er stofn- að fyrst og fremst vegna hugmynda um málmbræðslur. Um slíka ráð- stöfun orkulinda landsins getur engin sátt orðið eins og þau mál era nú sett fram af stjómvöldum. Vinstrihreyfíngin - Grænt framboð beitir sér ákveðið gegn stórvirkjun- um og stóriðju í þágu mengandi iðnaðar. I fyrsta lagi vegna þess að óspillt náttúra hefur sjálfstætt gildi og gefur okkur ómælda ánægju. Bæði innlendir menn og erlendir sækja í hin ósnortnu víðemi íslands og okkur ber siðferðileg skylda til að vera mjög varfærin ef við á annað borð teljum okkur þurfa að hrófla við þeim. Náttúrufegurð Islands mun án efa gefa komandi kynslóð- um lífsfyllingu og verða þeim auð- lind einnig í efnalegu tilliti því að ferðamenn framtíðarinnar munu ef- laust kunna að meta hana að verð- leikum. I öðra lagi verðum við að gera okkur grein fyrir því að orkan í fall- vötnum og jarðhita er mun tak- markaðri að magni til en látið er í veðri vaka. Fyrir Alþingi liggur til- laga þingflokks Óháðra um sjálf- bæra orkustefnu. I henni bendum við meðal annars á að vegna nátt- úravemdarsjónarmiða séu fyrri út- reikningar um nýtanlega orku of- ætlaðir svo miklu munar. Þá sé á það að líta að sú orka sem þjóðin mun þurfa á að halda í stað inn- fluttrar olíu á komandi áratugum muni margfalda orkuþörfina. Ætla má að bílar, skip og önnur farar- tæki verði í framtíðinni knúin vist- vænu eldsneyti sem framleiða má í krafti eigin orkulinda. Slíkt væri meira en lítill búhnykkur, bæði þjóðhagslega og til að auðvelda okkur að standa við alþjóðlegar skuldbindingar um að draga úr mengun andrúmsloftsins. I ljósi þessa væri það með fádæmum van- hugsað að hlaupa til nú og virkja í þágu erlendra stóriðjufyrirtækja og binda þannig hendur okkar um langa framtíð. Það mun samt reyn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.