Morgunblaðið - 31.12.1998, Blaðsíða 30
- 30 C FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Verðlaun:
1. Minningabækur Halldórs Laxness: I túninu heima, Úngur eg var, Grikklandsárið og Sjömeistarasagan
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
2. Eddukvæði. Útgefandi er Mál og menning.
3. Biskupasögur III. Útgefandi er Hið íslenska fornritafélag. Dreifing: Hið fslenska bókmenntafélag.
Svarið hverri spurningu með því að merkja við einn möguleika af fjórum.
Merkið lausnina, klippið síðuna út, setjið í umslag og skrifið utan á:
Morgunblaðið - fornsagnagetraun, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
Urlausnir þurfa að berast Morgunblaðinu fyrir kl. 16 mánudaginn 18. janúar.
I
Síðan sofnai- skálabúi, en Por-
steinn gerir tilraun með nokkru
harki, hve fast hann svæfi; hann
vaknaði við og snerist á hlið; og
enn leið stund, og gerði Þorsteinn
tilraun aðra, og vaknaði hann enn
við og þó minna. Hið þriðja sinn
gekk Þorsteinn ífam og drap mikið
högg á rúmstokkinn og fann, að þá
var allt kyrrt um hann. Síðan
kveikti Þorsteinn log og gekk að
rekkjunni og vill vita, ef hann væri
á brott. Þorsteinn sér, að hann
liggur þar og svaf í silkiskyrtu gull-
saumaðri og horfði í loft upp. Þor-
steinn brá þá saxinu og lagði fyrir
brjóst hinum mikla manni og veitti
honum mikið sár. Þessi brást við
fast og þreif til Þorsteins og kippti
honum upp í rúmið hjá sér, en sax-
ið stóð í sárinu, en svo fast hafði
Þorsteinn til lagt, að oddurinn stóð
í beðinn, en þessi maður var
fárrammur og lét þar standa saxið
sem komið var, en Þorsteinn lá í
milli þilis og hans.
Hinn sári maður mælti: „Hver er
sjá maður, er mér hefur áverka
veitt?"
Ur hvaða sögu er þessi lýsing?
Q a. Egils sögu
□ b. Vatnsdæla sögu
□ c. Njáls sögu
□ d. Grettis sögu
II
Hver orti:
Svo er ffiður kvenna,
þeirra er flátt hyggja,
sem aki jó óbryddum
á ísi hálum,
teitum, tvevetrum
og sé tamur illa,
eða í byr óðum
beiti stjómlausu,
eða skyli haltur henda
hrein í þáfjalli.
□ a. Fitjungur
□ b. Gunnlöð
□ c. Billingur
□ d. Óðinn
III
Ólafur konungur mælti: „Fram-
ar hefur þú þá gert um vígin á
Grænlandi en flskimaðurinn kallar
aflausn vera fiskinnar, því að hann
kallast leysa sig, ef hann dregur
fisk fyrir sig, en annan fyrir skip
sitt, þriðja fyrir öngul, fjórða fyrir
vað. Nú hefur þú framar gert, eða
hví drapstu svo marga menn?“
Til hvaða kappa mælir Ólafur
konungursvo?
Q a. Egils Skallagrímssonar
□ b. Bolla Bollasonar
□ c. Þormóðs Kolbrúnarskálds
□ d. Grettis Ásmundarsonar
IV
Hver kvað?
Víglýsirþú,
varð fyr Helga
Hundingur konungur
hníga að velli.
Bar sókn saman,
er sefa hefnduð,
og busti blóð
á brimis eggjar.
Q a. Helgi Hundingsbani
Q b. Sigrún Högnadóttir
□ c. Völsungur
□ d. Hrólfur kraki
V
Helgi gekk á spjótið og mælti við
Össur: „Sveikstu mig nú.“
Össur sá, að Helgi sneri að hon-
um og mundi ná til hans með
sverðinu. Þá hratt hann frá sér
spjótinu og öllu saman. Sneri þá
spjótskaftinu í jörð niður, og lét
hann þá laust.
Þá mælti Helgi, er hann sá, að
hann náði honum eigi: „Nú seink-
aði ég, en þú bræddir heldur."
Ævi hvers lauk þannig?
□ a. Helga Droplaugarsonar
□ b. Helga hins magra
□ c. Helga Ingjaldssonar
□ d. Helga Njálssonar
VI
Hver orti?
Varð í hreggi hðrðu
Hörður felldr at jörðu,
hann hefir átta unnit,
Unns, ok fimm at gunni;
heldr nam grimmra galdra
galdr rammliga at halda;
mundi bitra branda
brandr elligar standa.
□ a. Þórður köttur
□ b. Þorbjörg
□ c. Sigurður Torfafóstri
□ d. Helga Jarlsdóttir
VII
Ófeigur svarar: „Eigi er það, all-
mikið er féð; en þess væntir mig, að
þessu næst munir þú hljóta. Hafið
þér eigi svo talað, að þér skylduð
hafa hálft fé Odds, en fjórðungs-
menn hálft? Þá telst mér þannig til,
ef þér eruð átta bandamenn, að þér
munið hafa hálft Melsland; því að
svo munuð þér til ætla og svo mælt
hafa, þó að þér hafið þetta með fá-
dæmum upp tekið meirum en menn
viti dæmi til, þá munuð þér þessi
atkvæði haft hafa. Eða var yður
nokkur von á því, að Oddur, sonur
minn, myndi sitja kyrr fyrir geisan
yðar, er þér riðuð norður þangað?
Nei,“ sagði hann Ófeigur, „eigi
verður yður hann Oddur ráðlaus
fyrir, og svo mikla gnótt, sem hann
t^ f fl
1 1 i
hefur til fjár, þá hefur hann þó eigi
minni gæfu tH vitsmunanna og til
ráðagerða, þegar hann þykist þess
við þurfa. Ög það grunar mig, að
eigi skríður að síður knörrinn undir
honum um Islandshaf, þó að þér
kallið hann sekan. En það
má eigi sekt heita, er svo
er ranglega upp tekið, og
mun á þá falla, er með
fara, og þess væntir mig,
að hann muni nú í hafi með
allt sitt, nema landið á
Mel, það ætlar hann yður.
Frétt hafði hann það, að
eigi var löng sjávargata til
Borgar, ef hann kæmi á
Borgarfjörð. Nú mun þetta
svo setjast, sem upp var
hafið, að þér munuð fá af
skömm og svívirðing, og
gengur þó að maklegleik-
um, og þar með hvers
manns ámæli."
f hvaða sögu er svo mælt?
□ a. Krókarefs sögu
□ b. Laxdæla sögu
□ c. Vopnfirðinga sögu
□ d. Bandamanna sögu
VIII
Hver orti?
Öllhefrætttilhylli
Óðins skipat ljóðum,
algildar mank, aldar,
iðjur várra niðja;
en trauðr, þvít vel Viðris
vald hugnaðisk skaldi,
legg ek á frumver Friggjar
fjón, þvít Kristi þjónum.
□ a. Sturla Þórðarson
□ b. Egill Skallagrímsson
□ c. Hallfreður vandræðaskáld
□ d. Gunnlaugur ormstunga
IX
Og er Ólafur lauk sínu máli, þá
var góður rómur að ger, og þótti
þetta erindi stórum skörulegt. Og
er Ólafur kom heim til búðar,
sagði hann bræðrum sínum þessa
tilætlan. Þeim fannst fátt um og
þótti ærið mikið við haft. Eftir
þingið ríða þeir bræður heim. Líð-
ur nú sumarið. Búast þeir bræður
við veizlunni; leggur Ólafur til
óhneppilega, að þriðjungi, og er
veizlan búin með hinum beztu
föngum; var mikið til aflað þessar-
ar veizlu, því að það var ætlað, að
fjölmennt myndi koma. Og er að
veizlu kemur, er það sagt, að flest-
ir virðingamenn koma, þeir sem
heitið höfðu. Var það svo mikið
fjölmenni, að það er sögn manna
flestra, að eigi skyrti níu hundruð.
Þessi hefur önnur veizla fjölmenn-
ust verið á Islandi, en sú önnur, er
Hjaltasynir gerðu erfi eftir föður
sinn; þar voru tólf hundruð. Þessi
veizla var hin skörulegasta að öllu,
og fengu þeir bræður mikinn
sóma, og var Ólafur mest fyrir-
maður. Ölafur gekk til móts við
báða bræður sína um fégjafir; var
og gefið öllum virðingamönnum.
Hver var Ólafur og hvers
vegna bauð hann til svo
mikillar veislu?
□ a. Þetta er Ólafur Gunnarsson,
sonur Gunnars á Hlíðarenda og
bauð hann til erfis eftir föður
sinn.
□ b. Þetta er Ólafur Höskuldsson,
sonur Höskuldar Dalakollssonar
og bauð hann til erfis eftir fóður
sinn.
□ c. Þetta er Ólafur helgi konung-
ur og bauð hann til brúðkaups.
□ d. Þetta er Ólafur Þorsteinsson
feilan, sonur Þorsteins rauðs og
bauð hann til erfis eftir föður
sinn.
X
Hver kvað?
Þarf sás þér skal hvarfa,
þengill, fýr kné lengi
- svarar hógliga hveiju -
hugborð - konungr orði;
fáir erum vér, né frýju,
frændr, órum þó vændir
- minnumk meir á annat
mitt starf - konungdjarfir.
□ a. Þorvaldur víðfórli
□ b. Hallgerður langbrók
□ c. Guðrún Ósvífursdóttir
□ d. Þormóður Kolbrúnarskáld
lNS\GNXCÉIk.XUN Nafn: Aldur:
Heimili: Staður: Sími: