Morgunblaðið - 31.12.1998, Síða 36
-'36 C FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Porkell
Páfiá
Kúbu
JÓHANNES Páll II
páfi fór í opinbera
heimsókn til Kúbu í
janúar og er það í
fyrsta sinn í sögu
Kúbu sem kaþólskur
trúarleiðtogi heim-
sækir eyjuna. Fidel
Castro Kúbuleiðtogi
tók á móti páfa en
hann innleiddi guð-
leysisstefnu er hann
komst til valda.
Reuters
, Reuters
„Atti ekki í
kynferðissam-
bandi við
þessa konuu
HILLARY Rodham Clinton horf-
ir á eiginmann sinn, Bill Clinton
Bandaríkjaforseta, neita því í
janúar að hann hafi átt í kynferð-
issambandi við Monicu Lewinsky.
Var forsetanum mikið niðri fyrir
er hann neitaði sambandinu ít-
rekað, með orðunum: „Ég átti
ekki í kynferðissambandi við
þessa konu.“ Hálfu ári síðar við-
urkenndi hann hins vegar að
hafa staðið í sambandi við hana.
Reuters
Ráðist á sendiráð í Afríku
BJÖRGUNARMENN draga lík
manns úr rústum húss sem stóð
við hlið bandaríska sendiráðsins í
Nairobi í Kenýa, en öflug
sprengja sprakk við sendiráðið í
ágúst. Á sama tíma sprakk önnur
sprengja við sendiráð Bandaríkj-
anna i Tansaníu. Mikið mannfall
varð í sprengingunum, 253 létu
lífið og um 5.000 særðust.
Hryðjuverkamenn tengdir Sádi-
Arabanum Osama bin Laden eru
grunaðir um að hafa staðið að
baki sprengingunum. Nokkrum
vikum síðar gerði bandaríski her-
inn flugskeytaárásir á búðir bin
Ladens í Afganistan og meinta
efnavopnaverksmiðju í Súdan.
Reuters
Lewinsky-málið
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
komst í hann krappann í upphafi
árs er upp komst um samband
hans við fyrrverandi lærling í
Hvíta húsinu, Monicu Lewinsky,
sem hér sést fagna forsetanum á
fjáröflunarkvöldverði. Clinton
neitaði lengi vel því að hafa átt í
kynferðissambandi við stúlkuna,
en Kenneth Starr, sem var sér-
skipaður saksóknari til að kanna
fjármál Clinton-hjónanna, ákvað
að rannsaka hvað hæft væri í
fullyrðingum um samband Clint-
ons og Lewinsky. Kallaði Starr
til fjölda vitna, þar á meðal
Lewinsky og forsetann og svo fór
í ágúst að Clintonjátaði samband
sitt við stúlkuna. I kjölfarið
ákvað dómsmálanefnd fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings að
ákæra Clinton m.a. fyrir mein-
særi vegna framgöngu hans í
málinu og hefur fulltrúadeildin
samþykkt tvær þeirra sem send-
ar hafa verið öldungadeildinni.
Reuters
Jeltsín í ham
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
var við þokkalega heilsu framan
af ári og sýndi það og sannaði að
hann er litríkur stjórnmálamað-
ur. Hér rífur hann af sér háls-
bindið við upphaf heimsóknar
sinnar til Japans í apríl til að
leggja áherslu á að hún sé óform-
leg. Er líða tók á árið fór heilsa
Jeltsíns að bila verulega og
seinnihluta árs hefur hann verið
frá vinnu að mestu vegna veik-
inda. Þá hefur Jeltsín þótt óút-
reiknanlegur, ekki síst hvað
varðar örar mannabreytingar í
ríkisstjórn og starfsliði hans. í
lok mars rak hann til að mynda
ríkissljórn Viktors Tsjernómyrd-
íns, skipaði Sergei Kíríjenkó for-
sætisráðherra í hans stað en rak
hann svo í ágúst. Hins vegar
tókst Jeltsín ekki að fá þingið til
að fallast á að Tsjernómyrdín
tæki við að nýju og í október
samþykktu þingmenn skipan Jev-
genís Prímakovs, sem gegnt
hafði embætti utanríkisráðherra,
í stól forsætisráðherra. Hefur
Prímakov tekið yfir stóran hluta
af daglegi'i stjórn landsins úr
höndum Jeltsi'ns vegna veikinda
forsetans.
Örþirgð
í írak
ALGENGT er að mæð-
'Aur og ömmur hugsi um
börn á sjúkrahúsum í
írak vegna þess hve
fátt starfsfólk er eftir
og úrræðaleysið virð-
ist algert. í Irak deyja
börn úr næringar-
skorti og öðrum sjúk-
dómum sem ekki
þekkjast lengur á
Vesturlöndum. Við-
skiptabann Sameinuðu
þjóðanna á Irak var
sett á eftir lok
Persaflóastríðsins árið
1991 og hefur gengið
erfiðlega að ná sam-
komulagi við írösk
stjórnvöld um sölu á
olíu til kaupa á mat og
hjálpargögnum. Þor-
kell Þorkelsson, ljós-
myndari Morgunblaðs-
* ins, var á ferð í írak í
september.
Árið
erlendis í
myndum