Morgunblaðið - 31.12.1998, Síða 35

Morgunblaðið - 31.12.1998, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 C 35 ' B -$ -: 8S i Morgunblaðið/RAX TAKNRÆN MOTMÆLI VIÐ HÁGÖNGUMIÐLUNARLÓN HÓPUR ferðafólks, vísindamenn og áhugafólk um umhverfismál, lagði leið sína að miðlunarlóni Landsvirkjunar við Hágöngur í júlí þegar vatn var að safnast í lónið í fyrsta skipti. Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur mótmælti framkvæmdinni með því að reisa íslenska fánann á hverasvæði í lóninu. Lögreglan fjarlægði fán- ann en Guðmundur Páll og félagi hans ítrekuðu þá mótmælin með því að koma fyrir 273 pappírsfánum við Fögruhveri áður en þeir fóru undir vatn. Morgunblaðið/ÁsdÍ8 KEIKO FLUTTUR TIL VESTMANNAEYJA HÁHYRNINGURINN Keikó vai- fluttur frá Newport í Oregon í Bandaríkjunum til ís- lands og 10. september var hann settur í kvína sem smíðuð var sérstaklega fyrir hann og sett upp í Klettsvík í Vestmannaeyjum. Skepnan virtist ekki láta erfítt ferðalag mikið á sig fá, fór fljótlega að skoða umhverfi sitt í Klettsvík og éta síld sem henni var færð. Morgunblaðið/Golli KISTA FORSETAFRUARINNAR TIL LANDSINS GUÐRÚN Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú lést á sjúkrahúsi í Seattle í Bandaríkjunum að kvöldi 12. október, 64 ára að aldri. Hún hafði barist við illvígan sjúkdóm í rúmt ár. Myndin var tekin þegar kista Guðrúnar Katrínar kom með flugvél til landsins en Ólafur Ragnar Grímsson forseti íslands og dætur hans, Svanhildur Dalla og Guðrún Tinna, fylgdu henni heim. Útíorin var gerð frá Hallgrímskirkju að viðstöddu fjölmenni. Morgunblaðið/Júlíus BATASMIÐJA BRENNUR í HAFNARFIRÐI BÁTASMIÐJAN Ósey brann til grunna að morgni 7. nóvember. Tvö þúsund fermetra skemma sem hýsti vélaverkstæði og heildsölu eyðilagðist ásamt öllu sem í henni var, meðal annars 50 tonna stáibáti. Tjónið var talið nema að minnsta kosti 100 milljónum kr. Morgunblaðið/Einar Falur JAFNTEFLI VIÐ HEIMSMEISTARANA ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu gerði jafntefli (1-1) við heimsmeistara Frakka í landsleik á Laugardalsvelli 5. september. Myndin var tekin þegar Ríkharður Daðason skallaði yfir Fabian Barthez markvörð heimsmeistar- anna og náði óvænt forystu fyrir ísland við gífurlegan fögnuð liðlega 10 þúsund áhorfenda. Morgunblaðið/RAX HVALFJARÐARGONG OPNUÐ UMFERÐ UMFERÐ var hleypt á Hvalfjarðargöng 11. júlí. Fjöldi boðsgesta var viðstaddur þegar Davíð Oddsson forsætis- ^ ráðherra opnaði göngin við hátíðlega athöfn. í tilefni tímamótanna var haldin gangahátíð á Akranesi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.