Morgunblaðið - 31.12.1998, Side 20
20 C FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
•• /
Ogmundur Jónasson, formaður þingflokks Oháðra
Uppstokkun íslenskra
sljórnmála, sem sér
ekki fyrir endann á
i.
DÓMUR Hæstaréttar er langt
frá því að vera skýr og gefur tilefni
til mismunandi túlkana, eins og
rækilega hefur komið á daginn. Rík-
isstjórnin hefur valið að túlka dóm-
inn þröngt eins og frumvarp hennar
fyrir jólin um breytingar á lögum
um fiskveiðistjómun ber ljósan vott
um. Þeir sem vilja úthluta veiðileyf-
um á óheftum uppboðsmarkaði,
með öðrum orðum markaðsvæða
auðlindanýtinguna algerlega, kjósa
að túlka dóminn mjög rúmt, eins og
heyra má á málflutningi krata.
Landsráðsteftia Vinstrihreyfing-
arinnar - Græns framboðs fagnaði í
ályktun 5. desember sl. nýgengnum
dómi Hæstaréttar í kvótamálinu og
sérstaklega því að niðurstaðan
styrkir í sessi ákvæði 1. greinar
laga um stjóm fiskveiða og sameign
þjóðarinnar á auðlindum sjávar.
„Öumflýjanlegt er að gera grund-
vallarbreytingar á kerfinu og
stokka upp spilin“, segir í ályktun
landsráðstefnunnar. „Um leið gefst
tækifæri til að móta nýja sjávarút-
vegsstefnu þar sem sjónarmið um-
hverfisvemdar, byggðajafnvægis og
jafnréttis við skiptingu afraksturs-
ins eru höfð í heiðri." Fram hafa
síðan stigið lögspekingar sem telja
sameignarákvæði fiskveiðistjómun-
arlaganna markleysu og tala fyrir
ómenguðum einkaeignarrétti á fisk-
veiðiauðlindinni. I reynd talar ríkis-
stjómin fyrir svipuðum sjónarmið-
um með túlkun sinni og viðbrögðum
við dómnum. Það sést best á því að í
fmmvarpi hennar er ekkert sólar-
lagsákvæði, eins og eðlilegt væri ef
menn ætluðu fljótlega að leggja inn
á nýjar brautir. Þar nægir ekki að
okkar mati almenn endurskoðun á
lögunum að tveimur árum liðnum.
Astæða er tii að rifja hér upp
ákvæði 1. greinar gildandi laga
svohljóðandi: „Nytjastofnar á Is-
landsmiðum em sameigin íslensku
þjóðarinnar. Markmið laga þessara
er að stuðla að vemdun og hag-
kvæmri nýtingu þeirra og tryggja
með því trausta atvinnu og byggð í
landinu. Úthlutun veiðiheimilda
samkvæmt lögum þessum myndar
ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt
forræði einstakra aðila yfir veiði-
heimildum.“
Réttmætt er að hafa stór orð um
þá þróun sem viðgengist hefur í
skjóli fiskveiðistjómunarlaganna.
Þrátt fyrir ákvæði 1. greinar lag-
anna hafa ýmsir handhafar kvóta
leigt hann og braskað með hann
fyrir háar upphæðir. Kvótinn er far-
inn að ganga í erfðir og andvirði
hans hefur verið flutt úr landi. Eng-
an þarf að undra að þjóðinni svíði að
horfa upp á aðila sem em að hætta í
sjávarútvegi hirða með sér út úr at-
vinnugreininni ómældar fjárhæðir í
nær skattfrjálsum gróða. Þetta
ranglæti og siðleysi hefur gengið
fram af almenningi og er löngu
tfmabært að þessi ósvinna verði
stöðvuð og er það eitt helsta for-
gangsverkefni srtjómmálanna.
Það er eitt stærsta og brýnasta
hagsmunamál okkar að tryggja
sjálfbæra og réttláta fiskveiði-
stjómun og nú gefst okkur tækifæri
til þess að ganga í það verk. Það er
pólitískt verkefni sem Alþingi og
stjómmálaflokkamir mega ekki
víkja sér undan. Nýfallinn dómur
Hæstaréttar opnar sviðið. Með hon-
um skapast tækifæri til að endur-
meta stefnu okkar varðandi alla
fiskveiðistjómun og á þeirri for-
sendu ber að fagna dómnum. Sp-
umingin sem við blasir er meðal
annars sú, hvort menn ætla dóm-
stólum að höggva á hnúta eða hvort
löggjafarvaldið sýnir
það frumkvæði sem
þarf. Viðbrögð ríkis-
stjórnarinnar vísa því
miður ekki á leið til
sátta.
Þingflokkur Óháðra
og hin nýja græna
vinstrihreyfing vill
leggja áherslu á þrjú
meginsjónarmið. I
fyrsta lagi á vemdun
lífrænna auðlinda á ís-
landsmiðum gegn
rányrkju og mengun, í
öðru lagi á umhverfis-
vænar veiðar og í
þriðja lagi á byggða-
væna úthlutun veiði-
réttinda.
Um fyrsta atriðið ætti að vera
víðtæk sarnstaða svo augljósir þjóð-
arhagsmunir sem þar eru í húfi. Til
þess að ákvarða hámarksafla á
traustum grunni þekkingar þarf
hins vegar að efla til mikilla muna
rannsóknir á vistkerfi sjávar. Hætta
á aðborinni mengun vofir stöðugt
yfir, bæði af völdum þrávirkra og
geislavirkra efna. Til að veijast
henni reynir umfram allt á alþjóða-
samninga og eftirlit og þá um leið á
samkvæmni íslendinga í umhverfis-
málum.
Hvað nýtingu sjávarauðlindanna
innan ramma úthlutaðs hámarks-
afla viðvíkur ætti að rýmka mögu-
leika báta og smábáta til veiða frá
því sem verið hefur. Slík útgerð ætti
að njóta meiri forgangs til grunn-
miða næst landi og með henni er
unnt að þróa vistvænar veiðiaðferð-
ir og spara orku. Með því að efla
smábátaútgerðina hringinn í kring-
um landið væri jafnframt stuðlað að
fjölbreytni í greininni og nýliðun
sem tryggja verður í breyttu stjórn-
kerfi. Það hefur reynst nýjum
mönnum erfitt að komast inn í út-
gerð, þar eð þeir hafa þurft að
kaupa sig inn í hana dýrum dómum.
A þessu þarf að verða breyting.
Samhliða þessu þarf að stokka al-
gjörlega upp veiðistjóm þessa hluta
flotans og koma á einföldum og
samræmdum reglum.
Til að treysta tilverurétt sjávar-
byggðanna teljum við að byggða-
tengja eigi réttindi til veiða, að
minsta kosti að því er varðar nýt-
ingu grunnmiðanna næst landi. Fátt
myndi stuðla betur að jafíivægi í
byggð landsins og koma um leið í
veg fyrir stórtækan tilflutning á
fiskveiðiheimildum landshluta á
milli. Þetta kallar á uppstokkun á
þeirri aflaskiptingu sem nú er við
Iýði. Ýmsar leiðir má fara í úthlutun
veiðiheimilda en grundvallaratriði
er að þær heimildir sem ekki væru
nýttar gengju til samfélagsins aftur.
Hættan af óheftu og ótakmörk-
uðu uppboði veiðiheimilda eru
margþætt, meðal annars sú að með
því yrði opnað fyrir greiðan aðgang
Evrópusambandsins að íslandsmið-
um. Mér býður í grun að slíka Evr-
ópudrauma eigi einhverjir stjóm-
málamenn hér á landi. Væri þá síð-
asti þröskuldurinn fyrir inngöngu í
Evrópusambandið horfinn að þeirra
dómi. Vandinn er sá að með því
hyrfi líka vömin fyrir dreifðar
byggðir íslands og þar með is-
lensku þjóðina sem væri komin á
sama bekk og riki Mið-Ameríku
sem selja erlendum stórfýrirtækj-
um aðgang að náttúraauðlindum
sínum.
2.
Hér em engar niðurstöður gefn-
ar og að sjálfsögðu verður það und-
ir vilja kjósenda komið hver fram-
vindan verður. Hitt er
víst að nú stendur fyrir
dyram uppstokkun í ís-
lenskum stjórnmálum
sem engan veginn er
séð fyrir endann á.
Innan Alþýðuflokks,
Alþýðubandalags og
Kvennalista era margir
sem lengi hafa viljað ná
saman og mynda sam-
fylkingu, og sýnist mér
stefna í nýkratískan
stjómmálaflokk svipað
og við jiekkjum frá
Bretlandi og víðar þar
sem lagt hefur verið
upp í siglingu tfl hægri.
Stjómmál á einmitt að
skipuleggja þannig að
þeir starfi saman sem hafa svipuð
sjónarmið og pólitísk baráttumark-
mið og er ekkert nema gott eitt um
það að segja þegar samherjar í
stjómmálum finna sér sameiginleg-
an vettvang. Hins vegar er það ein-
földun að líta svo á að um samein-
ingu Alþýðuflokks, Alþýðubanda-
lags og Kvennalista sé að ræða.
Þessir flokkar heyra að vísu allir
senn sögunni til en eftir stendur
nýr flokkur sem þarf að sanna sig á
eigin forsendum. Hverjar afleiðing-
ar þetta mun hafa skal ósagt látið.
Þó er ljóst að ýmsir snertifletir era
við núverandi forystu Framsóknar-
flokksins, og þá ekki síst í Evrópu-
málum þar sem báðir aðilar halda
öllu opnu fyrir inngöngu í Evrópu-
sambandið. Augljósustu áhrifin af
tilkomu Samfylkingarinnar virðast,
alla vega í bili, ætla að verða aukin
hægri slagsíða í íslenskum stjórn-
málum og aukið fylgi við Sjálfstæð-
isflokkinn.
Þetta era þó að mínum dómi ekki
áhrif til langframa. Afdrifaríkari af-
leiðingar af fæðingu hins nýja kra-
taflokks era þær að umhverfis-
vemdarsinnar og fólk af vinstri-
væng stjómmálanna hefur tekið
upp samstarf og býr sig nú undir að
lyfta nýju merki. Tel ég það vera
merkustu fréttir þessa árs og að
hér skuli vera í uppsiglingu nýtt
stjómmálaafl, Vinstrihreyfingin -
Grænt framboð. Margt bendir til að
í þessari nýju hreyfingu finni kröft-
um sínum farveg eindregið baráttu-
fólk fyrir jafnrétti, félagslegu rétt-
læti og umhverfisvemd. Þegar er
Ijóst að fjöldi fólks sem fylgt hefur
fyrmefndum stjómmálaflokkum og
Framsóknarflokknum að málum
svo og óflokksbundnir og óháðir
einstaklingar ætla að koma til liðs
við þetta græna vinstraafl. Sérstak-
lega er ánægjulegt að sjá hve mjög
þessar áherslur á umhverfisvemd
og félagslegt réttlæti virðast höfða
til ungs fólks. Ekki er ólíklegt að
þessi hreyfing marki ákveðnari
spor í íslenska stjómmálasögu en
samfylking þeirra flokka sem áður
vora upp taldir og heyra brátt sög-
unni til.
Hér á landi og víða erlendis er nú
að koma fram andsvar við sókn sós-
íaldemókrata inn á miðju stjóm-
málanna og jafnvel inn á hægri
vænginn eins og raunin hefur orðið
með breska Verkamannaflokkinn. í
andsvari við þessari þróun er á
ferðinni fólk sem vill setja mann-
gildið framar auðgildi og skynjar
þörfina fyrir náttúra- og umhverf-
isvernd. Það er engin tilviljun að á
sama tíma og Margrét Thatcher
lýsir vfir velþóknum á stefnu
breska Verkamannaflokksins undir
forystu Tonys Blairs þá skuli
ókjrrrast mjög vinstrimenn innan
flokksins og verkalýðshreyfingar-
innar bresku. í nýafstöðnum þing-
Ögmundur
Jónasson
kosningum í Svíþjóð er hið sama
uppi á teningnum. Þar unnu vinstri
menn mikinn kosningasigur og í
Þýskalandi er Græni flokkurinn í
fyrsta sinni þátttakandi í ríkis-
stjóm.
A vettvangi stjómmálanna er
tekist á um mismunandi markmið
og leiðir. Að sjálfsögðu eru skoðan-
ir skiptar um hvað sé samfélagi og
einstaklingum fyrir bestu. Svörin
fara eftir pólitískri sannfæringu og
mismunandi hagsmunum þeirra
sem á annað borð taka afstöðu.
Forsenda fyrir kröftugu lýðræði og
heilbrigðu stjómmálalífi er að kjós-
endum bjóðist skýrir kostir - allt
annað er ávísun á stöðnun og kyrr-
stöðu, jafnvel spillta valdapólitík.
Vinstrihreyfingin - Grænt framboð
mun ekki sigla undir hentifánum
heldur leggja sitt af mörkrnn til að
gera stjómmálin þróttmeiri og
skýrari en þau hafa verið um skeið.
Fyrir þeirra tilstilli getur orðið tíð-
inda að vænta sem margir hafa
beðið eftir.
3.
Ef takast á að stöðva núverandi
straum fólks frá landsbyggðinni og
helst snúa honum við þarf einbeitt-
ar aðgerðir af opinberri hálfu sem
leiði til aukins jöfnuðar óháð búsetu
og til hugarfarsbreytingar. Tilflutn-
ingur fólks frá jaðarsvæðum til
borga er vissulega ekki séríslenskt
fyrirbæri, en hérlendis hefur langt-
um minna verið að gert en viðast
hvar annars staðar til að hamla
gegn slíkri þróun. Það er mjög mik-
ilvægt að greina orsakir fólksflutn-
inga á raunsæjan hátt og í því ljósi
grípa til aðgerða sem augljóslega
eru af ýmsum toga en þurfa að vera
samþættar.
Ekki leikur nokkur vafí á því að
það er landsmönnum öllum til hags-
bóta að stuðla að jafnvægi í byggð
landsins. Það er auðveldara að nýta
gæði lands og sjávar með dreifðri
byggð auk þess sem vilji manna
stendur til þess að búa víðs vegar
um landið. Forsenda þess að slíkt
megi verða er hins vegar sú að fjöl-
breytt atvinnutækifæri bjóðist og
möguleikar til lífsgæða séu áþekkir
hvar sem er á landinu.
Atakanlegt er að lesa skýrslu rík-
isstjómarinnar um byggðamál og
úrræði hennar til að tryggja búsetu
í dreifðum byggðum landsins. Þar
rekst hvað á annars horn, annars
vegar tillögur og hugmyndir til úr-
bóta og síðan sú byggðafjandsam-
lega stefna sem fylgt er á nánast
öllum sviðum. A sama tíma og
landsbyggðarfólk bendir á nauðsyn
þess að jafna orkukostnað er hafist
handa um að brjóta niður sameigin-
leg raforkukerfi landsmanna og
markaðsvæða þau. Slíkt mun óhjá-
kvæmilega draga úr möguleikum til
jöfnunar á orkukostnaði. Þá er ljóst
að einkavæðing almannaþjónust-
unnar hefur leitt til þess að dregið
hefur úr þjónustu í fámennum
byggðarlögum. A það meðal annars
við um póst- og símaþjónustu og
þjónustu í fjármálakerfinu. Eftir
því sem lengra verður gengið í
þessum efnum í velferðarþjónust-
unni, á sviði heilbrigðis- og skóla-
mála mun þrengjast hagur lands-
byggðarinnar. Ekki má heldur
gleyma sveitarfélögunum, sem nú
era víða rekin með halla vegna yfir-
töku kostnaðarsamra verkefna á
sama tíma og ríkissjóður skilar af-
gangi. Þá er Ijóst að tilflutningur á
kvóta hefur valdið mörgum byggð-
arlögum ómældum búsifjum á liðn-
um áram og misseram.
Til að snúa þessari óheillaþróun
við þarf allt aðra stjómarstefnu en
hér hefur verið fylgt lengi. Efla
þarf þjónustustarfsemi í byggða-
kjömum á landsbyggðinni og
tryggja að allir þegnar landsins
sitji við sama borð í velferðarþjón-
ustu og mennta- og menningarlífi.
Jafna þarf kostnað við húshitun og
annan orkukostnað. Fiskveiði-
stjórpunarkerfið þarf að styðja við
heilbrigða byggðastefnu eins og áð-
ur er að vildð. Stöðva þarf einka-
væðingu almannaþjónustunnar og
snúa vöm upp í sókn á því sviði.
Góð og vönduð velferðar- og al-
mannaþjónusta um land allt er for-
senda kröftugs atvinnulífs á lands-
byggðinni. Þrátt fyrir erfiða stöðu
landsbyggðarinnar era ýmis já-
kvæð teikn á lofti. Þannig opnar
samgöngubyltingin nýjar víddir í
tilveranni. Jarðgöng á Vestfjörðum
hafa til dæmis það í för með sér að
fólk í smærri byggðum á greiðari
leið í margvíslega sérhæfða þjón-
ustu sem ætla má að sé forsenda til
að reka með sóma í stærri byggða-
kjörnum. Færa þarf opinbera
stjórnsýslu út til fólksins í lands-
fjórðungunum að undangenginni
vandaðri stefnumörkun. Mikilvægt
er að dreifa opinberri þjónustu-
starfsemi sem víðast. Þetta má
gera með því að koma á fót svæða-
skrifstofum opinberrar stjómsýslu
en með því móti skapast atvinnu-
möguleikar víðar en ef öllu er hald-
ið miðstýrðu á einum stað. Einnig
má nýta möguleika fjarvinnslu í
þessu skyni. Þannig er ekkert því
til fyrirstöðu að ýmis verkefni, til
dæmis í ráðuneytum, séu unnin
með fjarvinnslutækni í fjarlægum
landshlutum. Allt kallar þetta á
markvissa stefnumótun en ef vilji
er fyrir hendi hjá stjórnvöldum þá
mun takast að snúa af þeirri braut
sem við eram nú á. En það er ekki
nóg að gera það í orði kveðnu. Það
þarf að vera samræmi á milli orða
og athafna.
4,
Við erum nú að súpa seyðið af
mjög einhliða mati frá liðnum tíma
á umfangi orkulinda landsins og á
gildi hálendisins og þeirra náttúru-
fyrirbæra sem óhjákvæmilega yrði
raskað með virkjun fallvatnanna.
„Virkjunarmenn“ höfðu allt frá því
snemma á öldinni tiltölulega rúman
fjárhag til að vinna að sínum fram-
kvæmdaáformum. Hin hliðin á ten-
ingnum, gildi ósnortinnar náttúra,
var tæpast til fyrr en á allra síðustu
áratugum. Og það er fyrst á síðustu
2-3 árum að upp rís fjöldahreyfmg
í landinu sem eitthvað kveður að til
varnar þessum gildum. Enn má þó
litlu til kosta að draga fram vernd-
arþáttinn. Ríkisstjórnin felldi til
dæmis við afgreiðslu fjárlaga fyrir
jólin tillögu okkar Óháðra um
græna þjóðhagsreikninga.
Ég tel að niðjar okkar myndu
telja sig standa í þakkarskuld við
núlifandi menn í landinu ef við
stæðum fast gegn virkjunaráform-
um sem nú eru uppi og til er stofn-
að fyrst og fremst vegna hugmynda
um málmbræðslur. Um slíka ráð-
stöfun orkulinda landsins getur
engin sátt orðið eins og þau mál era
nú sett fram af stjómvöldum.
Vinstrihreyfíngin - Grænt framboð
beitir sér ákveðið gegn stórvirkjun-
um og stóriðju í þágu mengandi
iðnaðar.
I fyrsta lagi vegna þess að óspillt
náttúra hefur sjálfstætt gildi og
gefur okkur ómælda ánægju. Bæði
innlendir menn og erlendir sækja í
hin ósnortnu víðemi íslands og
okkur ber siðferðileg skylda til að
vera mjög varfærin ef við á annað
borð teljum okkur þurfa að hrófla
við þeim. Náttúrufegurð Islands
mun án efa gefa komandi kynslóð-
um lífsfyllingu og verða þeim auð-
lind einnig í efnalegu tilliti því að
ferðamenn framtíðarinnar munu ef-
laust kunna að meta hana að verð-
leikum.
I öðra lagi verðum við að gera
okkur grein fyrir því að orkan í fall-
vötnum og jarðhita er mun tak-
markaðri að magni til en látið er í
veðri vaka. Fyrir Alþingi liggur til-
laga þingflokks Óháðra um sjálf-
bæra orkustefnu. I henni bendum
við meðal annars á að vegna nátt-
úravemdarsjónarmiða séu fyrri út-
reikningar um nýtanlega orku of-
ætlaðir svo miklu munar. Þá sé á
það að líta að sú orka sem þjóðin
mun þurfa á að halda í stað inn-
fluttrar olíu á komandi áratugum
muni margfalda orkuþörfina. Ætla
má að bílar, skip og önnur farar-
tæki verði í framtíðinni knúin vist-
vænu eldsneyti sem framleiða má í
krafti eigin orkulinda. Slíkt væri
meira en lítill búhnykkur, bæði
þjóðhagslega og til að auðvelda
okkur að standa við alþjóðlegar
skuldbindingar um að draga úr
mengun andrúmsloftsins. I ljósi
þessa væri það með fádæmum van-
hugsað að hlaupa til nú og virkja í
þágu erlendra stóriðjufyrirtækja og
binda þannig hendur okkar um
langa framtíð. Það mun samt reyn-