Morgunblaðið - 31.12.1998, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 31.12.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 C 39 Beck Hansen bindur ekkí bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir og ætlaði reyndar ekki að gefa Muta- tions út nema með takmark- aðri dreífingu. Sem betur fer sá hann að sér því skíf- an er vissulega með bestu plötum ársins, þótt ekki sé hún eins margslungin og síðasta plata Becks. Mogwai - Kicking a Dead Pig Mikið hefur verið að gerast í skoskri rokktónlist á liðnum árum og þaðan komið margar framúrskarandi sveitir. Engin hefur þó jafnast á við piltana í Mogwai fyrir frumleika og sköpunargleði sem sann- aðist á skífu þeirra Young Team sem kom út á síð- asta ári. Á meðan beðið er nýrrar hljóð- versskrfu má skemmta sér með endurunnum lögum, Kick- ing a Dead Pig. Boards of Canada Music Has the Right to Children Skoska tvíeykið Mike Sandí- son og Marcus Es kom veru- lega á óvart með fyrstu skífu sinni fyrir Warp-útgáfuna góðkunnu. Þar mátti heyra ótrúlegustu strauma í tónlist, allt frá japanskri teikni- myndatónlist í frumstæða tölvu- hljóma. Platan sýnir á sér nýj- ar hliðar við hverja hlustun. Gang Starr - Moment of Truth Þeir félagar Guru og Premi- er tóku sér ríflegan tima til að setja saman breiðskífuna Moment of Truth, ein fjögur ár. Þeim tíma var og vel var- ið því skífan er frábæriega vel heppnuð, uppfull með eftirminnilega tónlist og beittan raddspuna. DMX Crew - Nu Romantix Ekki er gott að segja til um hvaðan Edward Upton fékk þá frábæru hugmynd að end- urreisa rómantíkina bresku en fáar hugmyndir voru betri á árinu. Á síðustu skífu DMX Crew mátti heyra hvert stefndi en enginn gat átt von á annarri eins skífu og Nu Romantix vissulega er. Frábærlega skemmtileg plata, fyndin og átakan- leg í senn. Tortoise - TNT Meðal helstu platna áratugar- ins er plata Tortoise Millions Now Living Will Never Die sem kom út fyrir tveimur árum. Ekki var þvi nema von að næstu skífu væri beðið með eftírvæntingu. Sú heitir TNT og var lítt síðri, spuna- kenndar djassskotnar tónfléttur og því líkast sem liðsmenn Tortoise láti kylfu ráða kasti þegar hafist er handa við lagasmíðar. Grant Lee Buffalo - Jubilee Grant Lee Buffalo er ein þeirra hljómsveita sem ná aldrei að slá í gegn, þrátt fyrir frábæra dóma og mikla um- fjöllun. Sveitin heldur þó sínu striki og verður sífellt betri, sem sannast á Ju- bilee. í sveitinni eru þeir tveir eftir Grant Lee Phillips og Joey Peters og öllu hressari en meðan Paul Kimble lék á bassa og stýrði upptökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.