Morgunblaðið - 31.12.1998, Side 45

Morgunblaðið - 31.12.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 C 45 fyrir. Viðvöranarbjöllurnar era þó farnar að klingja. Aukinn kaup- máttur hefur leitt til þess að mun meira var flutt inn en nam heildar- útflutningi á árinu. Viðskiptahallinn sem þannig hefur myndast skapar hættu á að verðbólgan fari af stað aftur, eins og dæmi era um frá síð- asta áratug. Mikilvægt er að sporna við þeirri þróun ef fyrh-tækin og þar með efnahagslífið eiga að geta hald- ið áfram að dafna. Efling innlends sparnaðar er veigamesta atriðið í því sambandi. Þá veldur áhyggjum að ríki og sveitarfélög hafa ekki hagrætt og aukið framleiðni í starf- semi sinni með sama hætti og at- vinnulífið. Aukin umsvif hins opin- bera og bættur hagur opinberra starfsmanna byggist því á meiri skatttekjum frá atvinnulífinu. Hlutverk Verslunarráðs Verslunairáð íslands er frjáls fé- lagasamtök sem hefur þann tilgang að gæta hagsmuna atvinnulífsins í landinu, með viðskiptafrelsi og jafnræði milli atvinnugreina og fyr- irtækja að leiðarljósi. Fyrirtæki úr öllum atvinnugreinum eiga aðild að Verslunarráði og í því liggur einmitt styrkur þess. Viðskiptaþing Verslunarráðsins 1998 fjallaði um mikilvægi virkrar samkeppni og ekki síst þátt ríkisins í því efni. Fram kom að ríkið einokar enn rekstur á stóram sviðum atvinnu- lífsins, þótt 21. öldin sé handan homsins. Lög og reglur standa líka oft í vegi fyrir eðlilegri samkeppni. Þá hefur einkavæðing ríkisfyrir- tækja gengið mun hægar fram en eðlilegt hefði verið. Þrátt fyrir að töluvert hafi farið fyrir hlutabréfa- sölu í ríkishlutafélögum á liðnu ári er ríkið enn meirihlutaeigandi að flestum þeim fyrirtækjum. Þó ber að fagna því framfaraspori sem stigið var á árinu með því sem kall- að hefur verið einkaframkvæmd á vegum ríkisins, þ.e. þegar ríkið semur við einkaaðila um bæði byggingu og rekstur mannvirkja gegn ákveðnu leigugjaldi. Einka- framkvæmd í öðrum löndum hefur sýnt að einkaaðilar eru betur færir um að leita leiða til hagkvæmari rekstrar á þeim stofnunum eða mannvirkjum sem gerðir hafa verið slíkir samningar um en ríkið sjálft. Bæði ríki og einkageiri hafa því notið góðs af. Rétt er að hvetja ís- lensk stjórnvöld til að halda áfram á þessari braut og má t.d. benda á sjúkrahús, skóla, vega- og orku- mannvirki í því sambandi. Alþjóðavæðing Á komandi Viðskiptaþingi Versl- unarráðsins, sem haldið verður 10. febrúar nk., verður fjallað um al- þjóðavæðingu atvinnulífsins. Heim- urinn er í raun allur að renna sam- an í einn markað. Þannig hafa ís- lensk fyrirtæki haslað sér völl í Evrópu, Afríku, Ameríku og Asíu og á sama tíma sjáum við erlenda aðila í auknum mæli færa út kví- arnar hingað til lands. Alllangt er síðan erlend fyrirtæki tylltu niður fæti hér á landi, til dæmfe í fjár- magns- og ferðageiranum. Á þessu ári urðu menn svo vitni að því að erlendur aðili keypti sig inn í stærstu verslunarkeðju landsins. Að sjálfsögðu er ánægjuefni að er- lend fyrirtæki séu farin að sjá ís- lenskan markað sem raunhæfan kost fyrir fjárfestingu. Þannig flyst bæði fjármagn og þekking til lands- ins. Það er stjórnvalda að sjá til þess að leikreglurnar standi ekki slíkri tjárfestingu í íslensku at- vinnulífi fyrir þrifum. Þá mun nýr evrópskur gjaldmiðill, evran, sem nú tekur formlega gildi vafalaust enn auka samkeppni á Evrópu- markaði. Afar mikilvægt er að starfsskil- yrði íslenskra fyrirtækja séu ekki síðri en almennt gerist úti í heimi ef þau eiga að geta staðið sig í sí- harðnandi samkeppni. Hraði við- skiptalífsins og opnun hagkerfa heimsins valda því að þeir sem eru svifaseinir verða undir. í þessu sambandi ber að líta til skattaum- hverfis, samkeppnisreglna, við- skiptalöggjafarinnar í heild sinni, vinnulöggjafar o.íl. Þótt mikið hafi áunnist í að bæta þetta umhverfi á síðastliðnum árum, er ennþá ýmis- Betri nýting - meiri sparnaður Nýtt fyrirkomulag í sorphirðumálum Frá og með áramótum verður tekinn upp nýr háttur á sorphirðu Reykvíkinga. Innheimt verður sérstakt sorphirðugjald en á móti lækka fasteignagjöld svo heildarálögur á borgarbúa hækka ekki. Upphæð sorphirðugjaldsins verður kr. 6.000 á 240 1 tunnu sem tæmd er vikulega. Þessi aýji hitmr befor mzrgz hostí i íörmeðsér: ✓ Nú greiða borgarbúar aðeins fyrir þá þjónustu sem þeir nota. ✓ Hægt er að ná sparnaði með fækkun sorptunna. ✓ Tunnurnar má nýta betur með hirðusamlegri umgengni. Minnka má rúmtak umbúða með því að rífa niður pappa og koma sorpinu vel fyrir í tunnunum. Dagblöð og samanbromar mjólkurfemur skal setja í sérstaka gáma. Munið að grjót, garðaúrgangur, bylgjupappi, spilliefni og stærri munir sem henda á, eiga ekki heima í almennum sorpílátum heldur í endurvinnslustöðvum Sorpu. Fpnmtmmiiiaðina mi skila tnnnam eftatfiaajartnmnr 2H Um mitt ár verður gerð tilraun með sorphirðu á 10 daga fresti í íbúðarhverfum í austurhluta borgarinnar og mun sorphirðugjald lækka í þeim hverfum íkr. 5.500,- á ári. ■1. Allar nánari upplýsingar veitir Hreinsunardeild gatnamálastjóra í síma 567 9600, fax 567 9605. Kynningarbæklingi um efnið verður dreift til borgarbúa með fyrsta álagningarseðli. Borgarstjórinn í Reykjavík, Hreinsunardeild gatnamálastjóra AUGLYSINGADEILU Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110 Netfang: augl@mbl.is vf>mbl.is JKLLTAf= GITTHVAO NYTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.