Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 1
57. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Holbrooke ræðir Kosovo-deiluna við Milosevic Serbar varaðir við hættu á stríði Reuters Niðurstaða í „Blóð- hneykslinu“ vekur reiði Belgrad. Reuters. RICHARD Holbrooke, sendimaður Bandaríkjastjómar, fór til Belgrad í gær til að freista þess að knýja Slobodan Milosevic, forseta Júgó- slavíu, til að fallast á samkomulag um frið í Kosovo. Holbrooke varaði Serba við því að þeir stæðu frammi fyrir hættu á stríði við Vesturiönd ef þeir gæfu ekki eftir í deilunni um Kosovo á næstu dögum. „Hættan á stríði er alltaf til stað- ar,“ sagði Holbrooke við fréttamenn við komuna til Belgrad og bætti við að Serbar hefðu aðeins nokkra daga til að afstýra átökum við Vesturlönd og fallast á samkomulag um að Kosovo fái aukna sjálfstjórn og að hersveitir Atlantshafsbandalagsins (NATO) fái að vera í héraðinu til að tryggja að serbneskar öi-yggissveitir verði fluttar þaðan. Holbrooke ræðir við Milosevic í dag og búist er við að hann ítreki hótun NATO um loftárásir á skotmörk í Júgóslavíu, sambandsrfld Serbíu og Svartíjaflalands, ef Serbar hindra sam- komulag um frið í Kosovo. Stjómvöld í Belgrad hafa fall- ist á að veita Kosovo sjálfstjóm en ekki léð máls á því að hleypa her- sveitum NATO inn í héraðið. Sáttasemjarar Tengslahópsins svokallaða vilja að Serbar og Kosovo-AIbanar undirriti samkomulagið áður en þeir hefja friðarviðræður í París. Ráðgert hef- ur verið að viðræðurnar hefjist á mánudag en háttsettur embættis- maður hjá NATO sagði í gær að þeim kynni að verða frestað um nokkra daga. Wolfgang Petritsch, sendimaður Evrópusambandsins, kvaðst telja að Milosevic væri að íhuga tilslakanir sem gætu leitt til friðarsamkomulags. Bandarískir embættismenn sögðu í fyrradag að leiðtogar Frelsishers Kosovo (UCK) hefðu fallist á sam- komulagið um sjálfstjórn héraðsins eftir viðræður við Chris Hill, sátta- semjara Bandaríkjastjórnar, og Bob Dole, fyrrverandi öldunga- deildarþingmann. Frelsisherinn hefur þó ekki enn undirritað sam- komulagið. Albanar handteknir Serbneskar her- og lögreglusveitir gerðu í gær sprengjuárásir á þorp norðan við Pristina, höfuðstað Kosovo, og hröktu skæruliða UCK og íbúa þorpanna á flótta. Serbnesk- ir Iögreglumenn umkringdu um 400 flóttamenn og handtóku karlmenn- ina í hópnum. „Þetta er mikið áhyggjuefni,“ sagði Beatrice Lacoste, talsmaður eftirlitsmanna Oryggis- og samvinnustofnunar Evr- ópu. „Við höfum áhyggjur af því hvað gert verður við mennina." „MORÐINGJAR, morðingjar," hrópuðu margir þegar Lýðveldis- dómstóllinn í Frakklandi sýknaði f gær tvo fyrrverandi ráðherra, Laurent Fabius og Georginu Du- foix, af allri sök í „Blóðhneyksl- inu“ svokaliaða. Edmond Herve, undirmaður þeirra á sínum tíma, var hins vegar sakfelidur fyrir manndráp af gáleysi en fékk skil- orðsbundinn dóm. Málið snerist um 3.600 manns, sem sýktust af alnæmi eftir að hafa fengið smitað blóð, sem ekki hafði verið skimað, á árunum 1984-’85. A.m.k. 1.000 þeirra eru nú látnir. Hér er einn sjúklinganna, Sylvie Rouy, að yfir- gefa réttarsalinn í hjólastól. ■ Sýknudómur/21 Richard Holbrooke Forseti S Irans til Rómar Rdm. Reuters. MOHAMMAD Khatami, forseti Irans, hóf opinbera heimsókn sína til ítali'u í gær. Hún er talin marka tímamót í samskiptum Irans og Vesturveldanna, en þetta er í fyrsta skipti frá því að íslamska byltingin var gerð árið 1979 að leiðtoga klerkaveldisins er boðið til Vesturlanda. „Islamska lýðveldið hefur náð þroska og er reiðubúið til þess að efla tengsl við aðrar þjóðir," sagði Khatami áður en hann hélt í heimsóknina til Itahu. Heimsókn Khatamis til Rómar stendur í þijá daga. í gær átti hann fund með Oscar Luigi Scalfaro, forseta Ítalíu. Gert er ráð fyrir að samvinna á sviði ol- íu- og gasvinnslu verði ofarlega á baugi í viðræðum Khatamis við ítalska ráðamenn. ■ Tímamót/22 , _ Reuters MOHAMMAD Khatami, forseti Irans, og Oscar Luigi Scalfaro, forseti Ítalíu, kanna heiðursvörð við upphaf opinberrar heimsóknar Khatamis til Ítalíu í gær. Ennþá stál 1 stál í bananadeilu Bandarrkjanna og Evrópusambandsins ESB vill hindra að deilan harðni Brussel. Reuters. SIR Leon Brittan, sem fer með við- skiptamál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sagði í gær að ekki mætti láta það viðgangast að deilan við Bandaríkjamenn um við- skipti með banana harðnaði enn frekar, úr því sem komið er. Sagði hann Evrópusambandið (ESB) leita lausnar af öllum mætti. Aðstoðarviðskiptamálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Mallett, sagðist í gær sjá glitta í möguleika á að finna lausn á deilunni en hann sagði Evrópusambandið eiga næsta leik. Mallett ítrekaði þá skoðun bandaríski-a stjórnvalda að ESB hefði enn ekki hlítt úrskurðum Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO) um bananainnflutningsregl- ur sínar. Sagði hann tíma til kominn að ESB færi að settum reglum. í ávarpi sem Brittan flutti Evr- ópuþinginu fordæmdi hann banda- rísk stjórnvöld fyrir að ákveða að leggja refsitolla á ýmsar evrópskar vörur og hvatti þau til að hætta við að grípa til þess sem hann kallaði einhliða aðgerðir. „Þessi deila má ekki magnast og við höldum áfram að beita okkur af öllum mætti fyrir lausn hennar, en Evrópa mun ekki standa aðgerðalaus hjá þegar regl- ur um alþjóðaviðskipti eru brotnar," sagði hann. A fundi allsherjarráðs WTO í Genf í fyrradag voru stjórnvöld Banda- ríkjanna og ESB sökuð um að lama stofnunina með aðgerðum sínum í deilunni. Er fulltrúai- þessara tveggja stærstu viðskiptavelda heimsins munnhjuggust á allsherjar- ráðsfundinum um vantraust og vilj- andi brot á reglum, hvatti Renato Ruggiero, framkvæmdastjóri WTO, deilendur til að vinna saman af heil- um hug að lausn vandans. IMF veitir Brasilíu nýtt lán Realinn styrkist Sao Paulo. Reuters. GENGI realsins, gjaldmiðils Bras- ilíu, hækkaði í gær um 3,7% gagn- vart dollarnum eftir að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn (IMF) hafði samþykkt að veita landinu nýtt lán. I vikunni sem leið var gengi realsins gagnvart dollarnum 2,22 og lægra en nokkru sinni fyrr en var komið í 1,91 í gær. „Það er erfitt að trúa því að gengi realsins lækki jafnmikið aftur,“ sagði Francisco Carlos Lace, gjaldeyris- sali hjá Banco Real. „Það ríkir bjartsýni á markaðnum núna.“ Nokkrir hagfræðingar hafa þó spáð því að gengi realsins verði undir 2 gagnvart dollarnum í lok ársins, einkum ef brasih'skum stjórnvöldum tekst ekki að ná þeim efnahagslegu markmiðum sem samið var um við Alþjóðagjaldeyr- issjóðinn. Stefnt að skattahækkun IMF samþykkti í fyrradag að veita Brasilíu lán að andvirði 4,9 mifljarða dala, 353 milljarða króna; eftir sex vikna samningaviðræður. I samkomulaginu er gert ráð fyrir því að landsframleiðslan minnki um 4% í ár en að hagvöxtur heíjist á næsta ári. Brasilíska stjómin leggur nú mik- ið kapp á að minnka fjárlagahallann og búist er við að þingið samþykki á næstu dögum nýtt frumvarp um breytingar á skattalöggjöfinni sem eiga að auka tekjur rfldsins um 580 milljarða ki-óna á árinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.