Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 19
Hraðfrystihúsið hf. í
Hnífsdal hagnast
um 40 milljónir
Hagræðing
vegna
Frosta að
skila sér
HAGNAÐUR af reglulegri starf-
semi Hraðfrystihússins hf. í Hnífs-
dal nam 24 milljónum króna á síð-
asta ári en árið þar áður var 60
milljóna tap af reglulegri starfsemi.
Hagnaður tímabilsins nam hins
vegar 40 milljónum króna en 179
milljónum króna árið þar á undan.
Konráð Jakobsson framkvæmda-
stjóri félagsins segir að þetta
skýrist af því að árið 1997 hafi sölu-
hagnaður numið um 339 mkr.
Konráð segist sáttur við niður-
stöðuna nú. „Það varð samdráttur í
rækjuveiðum í haust sem kom nið-
ur á rekstrinum en við erum að
halda að þetta klári sig þó að
rækjuveiðin hafi minnkað. Auk
þess höfum við verið að jafna okkur
á sameiningunni við Frosta í Súða-
vík á árinu 1997, en hagræðingar-
aðgerðir vegna hennar eru farnar
að skila árangri, þótt þeim sé enn
ekki að fullu lokið,“ sagði Konráð.
Um útlitið á þessu ári sagði Kon-
ráð að sem stendur væri veiðin
betri í rækjunni en hún hefði verið
undanfarna mánuði og fyrirtækið
er nú með þrjú skip á rækjuveiðum,
að hans sögn.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að framlegð af rekstri félags-
in hafi aukist verulega á milli ára
og þrátt fyrir samdrátt í rækjuveið-
um hafí framlegð fyrirtækisins
einnig aukist frá 6 mánaða upp-
gjöri.
og hagnað félagsins enn frekar á
þessu ári ef ytri skilyrði verða okkur
hagstæð. Þó ber að taka tillit til þess
að fyrirtækið á mikið undir því að
vel gangi í sjávarútvegi og því hefur
t.a.m. lækkandi afurðaverð á loðnu
óhagstæð áhrif á reksturinn. A móti
kemur að við höfum verið að hasla
okkur völl á nýjum vettvangi með
Select-búðunum þar sem við teljum
okkur vera að brjóta félaginu leið
inn á nýja markaði.“
Kristinn segir óreglulegar tekjur
upp á 110 milljónir króna að stærst-
um hluta mega rekja til söluhagnað-
ar af hlutabréfum auk þess sem
tekjuskattsskuldbinding félagsins
lækkaði.
Vörusala óbreytt
Að sögn Alberts Jónssonar, for-
stöðumanns verðbréfamiðlunar
Fjárvangs, er ljóst að afkoma Skelj-
ungs hefur batnað á milli ára, þrátt
fyrir meiri hagnað af óreglulegum
liðum og sölu eigna. Hann bendir á
að veltufé frá rekstri hafi aukist um
tæpar 200 milljónir sem skýrist að-
allega af auknum hagnaði auk þess
sem afskriftir hafa vaxið um tæpar
50 milljónir. „Það lítur út fyrir að
framlegð í þessum rekstri sé að
gefa meira af sér og að menn hafi
náð að hagræða töluvert í innkaup-
um því að vörusala er nánast
óbreytt á milli ára en kostnaður af
seldum vörum lækkar um nálægt
320 milljónir króna. Aðalhagræð-
ingin virðist því felast í betri inn-
kaupum. Hins vegar virðist ekki
vera mikill vöxtur í greininni ef litið
er til þess að vörusala á milli ára
vex ekki rnikið."
Albert telur því sýnt að olíuiðnað-
urinn á íslandi sé ekki vaxtariðnað-
ur heldur felist betri árangur félag-
anna fyrst og fremst í betri inn-
kaupum og aukinni hagi’æðingu í
dreifikerfinu.
Alls var verslað með hlutabréf í
Skeljungi fyrir 20 milljónir króna á
Verðbréfaþingi í gær og hækkaði
gengi félagsins um 11,7%. Albert
telur þá verðlagningu eðlilega mið-
að við afkomu félagsins en segir lít-
ið svigrúm til frekari hækkana.
Hraðfrystihúsið hf. Hnífsdal
k-J í—_ Úr ársreikningi 1998 -.u, L
■ . • .HSwHBteBBBBHSr .v- ;; •
Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyting |
Rekstrartekjur Milljónir króna 1.735 1.029 +69%
Rekstrargjöld 1.430 931 +54%
Hagnaður fyrir afskriftir og fjárm.liði 305 97 +214%
Afskriftir (159) (108) +47%
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (107) (72) +49%
Hagnaður (tap) af reglulegri starfsemi 35 (60) ~
Skattar 10 - -
Aðrar tekjur og gjöld 15 240 -94%
Hagnaður ársins 40 179 -78%
Efnahagsreikningur 31. des. 1998 1997 Breyting
I Eiqnir: !
Fastafjármunir Milljónir króna Veltufjármunir 2.118 641 2.052 688 +3% -7%
Eignir samtals 2.759 2.740 +1%
I Skuldir oq eigið fé: , I
Eigið fé 575 589 -2%
Tekjuskattsskuldbinding 51 30 +70%
Langtímaskuldir 1.673 1.733 -3%
Skammtímaskuldir 460 388 +19%
Skuldir og eigið fé samtals 2.759 2.740 +1%
Sjóðstreymi 1998 1997 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 187 (37) -
Forsala er hafin
á ESSO-stöðvunum
Forsala er hafin til Safnkortshafa á ESSO-stöðvunum á höfuðborgarsvæðinu!
Taktu undir þig stökk, fáðu þér Safnkort og náðu þér í miða!
Safnkortsverð: • Fullorðnir 800 kr. • Börn 7-12 ára 300 kr. • Frítt fyrir sex ára og yngri
Fullt verð: Fullorðnir 1.000 kr. Börn 500 kr.
í LAUGARDALSHÖLL16. MARS kl. 20
Stórkostlegur íþróttaviðburður
Margir af bestu stökkvurum Evrópu mæta til leiks, þ.á m. brons-
verðlaunahafinn frá FIM í Japan, Zsuzsa Szabo ásamt Völu Flosadóttur,
Þóreyju Eddu og Monique De Wilt. í hástökki karla keppir íslands-
meistarinn Einar Karl Hjartarson við Vegard Hansen frá Noregi
og Chmara, núverandi heimsmeistara í sjöþraut.