Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 7 Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst á morgun Kosningar á sunnudag LANDSFUNDUR Sjálfstæðis- flokksins hefst á morgun í Laugar- dalshöll með ræðu Davíðs Oddsson- ar, forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn verður settur kl. 17:30, en íyrir setninguna leikm- Lúðrasveit Reykjavíkur létt lög. Annað kvöld verða haldnir fjórir opnir fundir á Hótel Sögu um Sjálf- stæðisflokkinn og sjálfstæðisstefn- una í 70 ár. Á föstudag hefst fund- urinn í Laugardalshöll kl. 9 með fyrirspurnum til ráðherra flokksins. Eftir hádegið verður fjallað um starfsemi Sjálfstæðisflokksins og Kjartan Gunnarsson, framkvæmda- stjóri flokksins, flytur skýrslu um flokksstarfíð. Fjallað verður um skipulagsmál Sjálfstæðisflokksins og gerð grein fyrir drögum að stjórnmálaályktun fundarins. Síð- degis starfa málefnanefndir og um kvöldið efnir Samband ungra sjálf- stæðismanna til fundar með ungu fólki. Málefnanefndir funda fyrir há- degi á laugardag, en eftir hádegi hefst afgreiðsla ályktana og umræð- ur um þær. Umræður um ályktanir fundarins halda áfram á sunnudag, en þá fer jafnframt fram kosning manna í miðstjóm flokksins. Fund- inum lýkur um kl. 16 með kosningu formanns og varaformanns Sjálf- stæðisflokksins. Morgunblaðið/Þorkell GUÐMUNDUR Arnarsson, varaformaður Manchester United klúbbsins, afhenti Hirti Snæ Friðrikssyni, félagsskír- teini í klúbbinn ásamt treyju og fleiri hlutum. Fékk glaðn- ing fyrir aðgerðina MANCHESTER United-klúbb- urinn á Islandi færði í gær Hirti Snæ Friðrikssyni, níu ára göml- um dreng sem gengst undir mikla aðgerð á sjúkrahúsi í Lundi í Svíþjóð, skírteini í Manchester United-klúbbinn ásamt treyju félagsins og ýms- um öðrum hlutum. Hjörtur Snær hélt í morgun til Svíþjóðar ásamt móður sinni, Guðlaugu Magnúsdóttur, og systur hennar. Guðlaug sagði í samtali við Morgunblaðið að Hjörtur Snær væri með bein- krabbamein í lærleggnum og færi í aðgerð í Lundi. Hann væri mikill áhugamaður um knattspyrnu og framtak Manchester United-klúbbsins hefði því komið honum skemmtilega á óvart. „Það er alveg óráðið hve lengi við verðum í Lundi því þetta er mjög stór aðgerð sem hann fer í. Lærleggur hans er sýktur og það þarf að fjarlægja hann,“ sagði Guðlaug. ----------------- Fékk járnvír í gegnum fótinn Batahorfur mannsins eru góðar AÐGERÐ á starfsmanni Járn- bendingar, sem fékk 12 millimetra sveran vír í gegnum fótinn á mánu- dag, lauk samdægurs á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og var hinn slasaði lagður inn á bæklunardeild og er líðan hans ágæt að sögn læknis og batahorfur góðar. Vinnueftirlit ríkisins rannsakar vinnuslysið. Beinist rannsóknin að vinnubrögðum og hvort notkun tjakksins sem notaður var til að strekkja vírinn hafi verið rétt. Hjá Vinnueftirlitinu fengust þær upp- lýsingar að notkun tjakks sem þessa sé ekki algeng hérlendis og verið er að afla gagna um með- höndlun og framleiðslu hans frá umboðsmanni framleiðanda. Umboðsmaður framleiðanda hérlendis segir að þar sem unnið hafí verið við að losa upp spennu á vír, sem hafi verið strekktur áður, hafi sérstakrar aðgæslu verið þörf þar eð meiri hætta felist í því að losa upp spennu á vír en þegar vír- inn er strekktur. Vitað sé að vírinn skjótist.í gegnum tjakkinn við los- un spennu, en starfsmenn hafi hins vegar ekki áttað sig á úr hvorum enda vírinn skytist. Pjórir liryggisjHÍOar: ökumanns- og farþegamegin auk hliðarpúða í framsætum. > 6 rása rafeiudíistýrð hemlalæsivörn (ABS) með þrýstingsdreifingu(EBD) og diskabremsum að framan ogaftan. ^ Fimm stillanlegir höfuðpúðar í fullri stærð. Þrjú þriggja punkta belti í aftursæti. ► Forstrekkjarar á beltum við framsæti. Iireyfiltengd þjófnaðarvörn. : Þ Styrktarbitar í hurðum. 7: ► Hástætt hemlaljós í afturrúðu. ‘ > ► Þokuljós í aðalljóskerjum. ► Rafstýrð hæðarstilling á aðalljóskerjum. ► Útstigsiýsing í framhurðum. ró1 ► Varahjól í fullri stærð. . i ►Aflögunarsvið að framan og aftan. ■ij ►Hæðarstiilanlcgöryggisbelti. ► Þriðja sólskyggnið. : JpÞLasersuðutækni notuð við samsetningu á yfirbyggingu bílsins. ' Velour innrétting. > Rafstýrðir og upphitaðir útispeglar. * Itafdrifnar rúðuvindur með slysavörn í fram- og afturhurðum. > Hæðarstilling á bílstjóra- og farþegasæti frammí. > Armpúði með geymsluhólfi miili framsæta. > Glasahaldarar frammí og afturí. > 12V rafmagnsinnstunga í farangursrými. > Geymsluvasar á baki framsæta. > Fjarstýrðar samlæsingar. > Dagljósabúnaður. • Blá neon lýsing í mælaborði. > Snúningshraðamælir. ‘ Vökvastýri með velti- og aðdráttarstillingu. > Útvarp/segulband með 4 hátölurum (frammí). > Fjögurra hraða miöstöð með hringrásastillingu og frjókorna- og ryksíu. > Tvískipt niðurfellanlegt aftursæti (60/40). > Spegialjós í sólskyggnum. > Lesljós fyrir farþega í fram- og aftursætum. SamliHr stuðarar og útispeglar. GTI-loftnet á þaki. Aurhlífar að framan. Grænlitaö, hitaeinangrandi gler. 14" stálfelgur með heilum hjólkoppum. Stærð hjólbarða: 175/80R14. t Alsínkhúöuð yfirbygging. 12 ára ryðvarnarábyrgð gegn gegnumtæringu. íframljósi á Galferti: Stöðuljós, lágurgeisli, hár geisli, stefnuljós ogþokuljós. Golfl.4i 16V 5 dyra handskiptiir ComfortLine kostar kr. HEKLA -/ forystu á nýrrí öltl Volkswagen Oruggur á alla vegu!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.