Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 10. MARZ 1999 15
AKUREYRI
Islensk miðlun og Raufarhafnarhreppur stofna hlutafélag
Þrettán ný störf í markaðs- og
upplýsing'amálum á Raufarhöfn
Morgunblaðið/Kristján
SVAVAR Kristinsson, framkvæmdastjóri fslenskrar miðlunar, Gunn-
laugur Júlíusson, sveitarstjdri á Raufarhöfn, og Reynir Þorsteinsson,
oddviti, ásamt Fritz Jörgenssyni, sölumanni hjá Tæknivali, á blaða-
mannafundi á Akureyri í gær þar sem kynnt var stofnun dótturfélags
Islenskrar miðlunar á Raufarhöfn en þar munu skapast 13 ný mark-
aðs- og upplýsingastörf.
ÞRETTÁN ný störf á sviði markaðs-
og upplýsinga skapast á Raufarhöfn
með nýjum samningi milli Islenskra
tniðlunar ehf. og Raufarhafnar-
hrepps um stofnun dótturfélags í
sveitarfélaginu. Starfsmennirnir
munu starfa í beinum tengslum við
aðalskrifstofu Islenskrar miðlunar í
Reykjavík. Fyrirtækið mun opna
nýjar leiðir og tækifæri í atvinnu-
málum um leið og það flytur nýjustu
samskiptatækni og þekkingu til
Raufarhafnar. Hafíst verður handa
við að setja upp búnað í húsakynnum
hins nýja fyrirtækis á Raufarhöfn í
næstu viku en stefnt er að því að
starfsemin hefjist fljótlega eftir
páska.
Með víðnetinu er hægt að
færa störfin til fólksins
Svavar Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Islenskrar miðlunar,
sagði tilhlökkunarefni að hefja sam-
starf við Raufarhafnarhrepp, en
tækniþróun síðustu ára hefði orðið
með þeim hætti að nú skipti ekki
máli hvort þessi störf væru innt af
hendi í Reykjavík eða á Raufarhöfn.
Þensla á vinnumarkaði syðra og þar
af leiðandi meira rót á starfsfólki
hefði m.a. orðið til þess að starfs-
stöðin er sett upp á Raufarhöfn,
stöðugleikar á vinnumarkaði á
landsbyggðinni hefði vegið þungt.
Um 30 manns starfa hjá fyrirtækinu
og eru þeir 13 starfsmenn sem ráðn-
ir verða á Raufarhöfn viðbót við fyr-
irtækið.
Settar verða upp sex starfsstöðv-
ar með tilheyrandi síma- og tölvu-
búnaði og verður unnið á tveimur
vöktum, dag- og kvöldvöktum.
Munu starfsmennirnir á Raufar-
höfn taka fullan þátt í þeirri þjón-
ustustarfsemi sem íslensk miðlun
býður upp á, en fyrirtækið annast í
auknum mæli margvísleg markaðs-
og sölustörf, tekur að sér simsvör-
un fyrir fyrirtæki, út- og innhring-
ingar vegna upplýsinga-, markaðs-
og söluátaks, markhópavinnslu og
gerð spurninga- og markaðskann-
ana.
Tæknival hf. mun setja upp tölvu-
og víðnetsbúnað ásamt símbúnaði
frá Smith og Norland, en ein af for-
sendum þess að hægt er að flytja
stöi-fín til Raufarhafnar er að landið
er nú eitt gjaldsvæði. Þá verður sett
upp fjarfundarkerfi sem tengt verð-
ur skrifstofunni í Reykjavik. Víð-
netslausnin felst m.a. í því að unnt er
að tengja saman tvo eða fleiri vinnu-
staði sem geta starfað saman óháð
vegalengdum. Með víðnetinu er
þannig hægt að færa störfin til fólks-
ins öfugt við það sem áður var þegar
fólk varð að flytja þangað sem störf-
in voru í boði.
Gunnlaugur Júlíusson, sveitar-
stjóri á Raufarhöfn, sagði ánægju-
legt að störfum fjölgaði og styrkari
stoðum væri skotið undir atvinnulífið
en ekki væri síður mikilvægt að sjá
þá möguleika sem fælust í tækni-
framfórum, nýtt fyrirtæki á sviði
samskipta kallaði á nýsköpun og
aðra hugsun sem væri ómetanleg
fyi-ir sjávarpláss þar sem atvinna
hefði að mestu snúist um sjávarút-
veg. Reynir Þorsteinsson, oddviti
Raufarhafnarhrepps, sagði að þau
byggðarlög sem byðu ekki upp á
fleiri valkosti í atvinnulífi en nú er,
þ.e. aðallega á sviði sjávarútvegs,
myndu ekki verða til eftir fimm ár,
þess vegna yrðu menn að vera vak-
andi fyrir þeim möguleikum sem
byðust.
Karlakór
Akureyrar - Geysir
Tvennir tón-
leikar með
Kristjáni Jó-
hannssyni
KRISTJÁN Jóhannsson
stórsöngvari syngur með
Karlakór Akureyrar - Geysi
á tvennum tónleikum í
íþróttaskemmunni á Akur-
eyri dagana 30. apríl og 1.
maí næstkomandi.
Á tónleikunum mun Krist-
ján einnig syngja með bræðr-
um sínum, Svavari og Jó-
hanni Má, en það verður í
fyrsta skipti sem þeir bræður
koma opinberlega fram sam-
an. Auk þess munu systur-
synir þeirra bræðra, Örn Við-
ar og Stefán Birgissynir,
koma fram.
Tónleikarnir verða þrí-
skiptir. Fyrsti hlutinn sam-
anstendur af hefðbundnum
íslenskum karlakórslögum,
annar verður söngur þeirra
bræðra og frænda og sá síð-
asti ítölsk óperulög og aríur.
Tónleikar Kiistjáns Jóhanns-
sonar hafa lengi verið í deigl-
unni, en bæði Kristján og fað-
ir hans, Jóhann Konráðsson,
sungu með karlakórunum á
Akureyri sem nú hafa verið
sameinaðir.
Morgunblaðið/Kristján
Þau skemmtu sér á skíðum
UM 400 krakkar skemmtu sér
konunglega á skíðum í björtu og
fögru vetrarveðri í Hlíðarljalli í
gær, en þá var útivistardagur
hjá tveimur skólum, hjá börnum
í 5., 6. og 7. bekk Síðuskóla og 5.
til 10. bekk Glerárskóla. Haukur
Stefánsson, forstöðumaður
Skíðastaða, sagði alla hafa
skemmt sér hið besta þótt frost-
ið hefði bitið dálítið í kinn en um
7 stiga frost var í íjallinu í gær-
morgun.
Veður hefur verið ákjósanlegt
til skíðaferða að undanfornu og
færið eins og best verður á kosið
að sögn Hauks. Síðasta helgi var
einkar góð, en þá voni fleiri
þúsund manns í fjallinu, „að-
sóknin stappaði nærrijgóðri
páskahelgi," sagði Haukur. „Hér
hefur verið fín stemmning, gott
færi og fallegt veður síðustu
daga og því allir í góðu skapi.“
Jarðgöng í gegnum Vaðlaheiði
Kostnaður áætl-
aður um 4 millj-
arðar árið 1990
TÖLUVERÐ umræða hefur verið
um jarðgangagerð hér á landi að
undanfórnu og þá helst verið rætt
um göng milli Siglufjarðar og
Ólafsfjarðar annars vegar og
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsíjarðar
hins vegar. Jarðgöng í gegnum
Vaðlaheiði austan AkiU’eyrar hafa
einnig komið til umræðu en sam-
göngur um Víkurskarð eru einmitt
mikilvægur hlekkur samgangna
við Austurland. Þar getur hins veg-
ar oft verið þungfært yfir vetrar-
mánuðina.
Samkvæmt lauslegri úttekt sem
Vegagerðin framkvæmdi árið 1990
kemur fram að heildarkostnaður á
núverandi verðlagi við tvíbreið 7,2
km löng jarðgöng gegnum Vaðla-
heiði er um 4 milljarðar króna.
Hreinn Haraldsson, framkvæmda-
stjóri rannsóknar- og þróunarsviðs
Vegagerðarinnar, sagði að miðað
hefði verið við að göngin væru í
innan við 100 metra hæð á móts við
Akureyri og í rúmlega 100 metra
hæð á móts við gömlu brúna yfir í
Vaglaskóg í Fnjóskadal.
Margir vilja
jarðgöng
„Ef við miðum við að aðstæður
séu svipaðar og í Ólafsfjarðarmúla
ættu ekki að vera nein jarðfræðileg
vandamál þarna á ferðinni. Þessi
framkvæmd er hins vegar ekki
komin á dagskrá og það eru margir
sem vilja jarðgöng og ekkert skrýt-
ið við það. Þetta er samgöngumáti
sem hentai- vel í okkar landi. Fjár-
magn liggur hins vegar ekki á
lausu en nú hillir undir að menn
fari að setjast niður og marki ein-
hverja stefnu í þessum málum.
Hvort Vaðlaheiði verður þar inni
er þó ómögulegt að segja til um á
þessari stundu,“ sagði Hreinn.
Samkvæmt úttekt Vegagerðar-
innar fara að meðaltali 600-700 bíl-
ar um Víkurskarð á dag og um
1.200 bílar á dag yfir sumarmánuð-
ina.
--------------
Vinafundur
eldri borgara
VINAFUNDUR eldri borgara
verður í Glerárkirkju á morgun,
fimmtudaginn 11. mars, kl. 15.
Samveran hefst með stuttri helgi-
stund. Gestur fundarins verður sr.
Pétur Þórarinsson. Baldvin Kr.
Baldvinsson syngur einsöng. Boðið
verður upp á veitingar og eru allir
velkomnir.
.lÆKN^s^o
G
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
BLUSSUR /SÉR T1L BO O
1990
Innkaupataska
Mikið úrval af
öðrum töskum
Aðeins
ALLAR STÆRÐIR • MIKIÐ ÚRVAL / kr. 1290,-
Quelle
VERSLUN
DALVEGI 2 • KÓPAVOGI
SÍMI: 564 2000