Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 29

Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 29
28 MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ pltrgMmWuMlí STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. AÐALFUNDUR SH KOSNINGARNAR á aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna í gær marka áreiðanlega ákveðin þáttaskil í við- skiptalífinu hér. Sölumiðstöðin er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins. Þegar hlutabréfamarkaðurinn hefur þróazt á þann veg að hægt er að ná yfirráðum í svo stóru fyrirtæki með hlutabréfakaupum, má ætla að það sama eigi við um nánast öll fyrirtæki sem skráð eru á verðbréfaþingi. Ljóst er að sala hlutabréfa Haraldar Böðvarssonar hf. í Sölumiðstöðinni í gærmorgun var lykillinn að því að Róbert Guðfinnsson og samherjar hans náðu meirihluta í stjórn fyrirtækisins og stjórnarformennsku. Slíkar sviptingar í opnum hlutafélögum eru algengar í öðr- um löndum, sérstaklega í hinum engilsaxneska heimi. Við- skiptalífið hér hefur hins vegar verið í föstum skorðum og mikið um gagnkvæma eignaraðild á milli hlutafélaga, ekki sízt í sjávarútvegi. Segja má að fyrstu vísbendingar um að nýir tímar væru í vændum hafí komið á aðalfundi Islands- banka hf. vorið 1994 þegar Pétur Blöndal birti auglýsingu hér í blaðinu, þar sem hann hvatti litla hluthafa í bankanum til þess að veita sér umboð til að fara með atkvæði þeirra við stjórnarkjör. Að þessu sinni er ljóst að fyrirtækið Þormóður rammi-Sæ- berg hf. hefur gengið til leiks með markvissum hætti og fjár- fest mikið í hlutabréfum í Sölumiðstöðinni bersýnilega með það í huga að styrkja stöðu sína í æðstu stjórn SH. Ovænt kaup hlutabréfa, sem koma mönnum í opna skjöldu, eins og gerðist í gærmorgun eru nýjung hér en algeng t.d. í Banda- ríkjunum. Hinn nýi stjórnarformaður Sölumiðstöðvarinnar hefur gef- ið til kynna að hann muni beita sér fyrir stefnubreytingu í starfsemi fyrirtækisins. Sú stefnubreyting varðar fyrst og fremst hluthafa, starfsmenn og viðskiptavini Sölumiðstöðvar- innar. Það vakti hins vegar athygli að engar umræður urðu á aðalfundi SH eftir skýrslu fráfarandi stjórnarformanns og forstjóra. Ætla hefði mátt að úr því að ágreiningur er um stefnumörkun innan fyrirtækisins hefði hann verið ræddur fyrir opnum tjöldum. Svo var ekki og veldur það vonbrigðum. Slík skoðanaskipti eru mikilvæg fyrir smærri hluthafa - og þeir eru orðnir býsna margir - til þess að þeir geti betur átt- að sig á stöðu fyrirtækjanna. En nú þegar það er komið í ljós að hægt er að ná yfirráðum í fyrirtækjum sem skráð eru á verðbréfaþingi með þessum hætti má búast við að fleiri vilji láta á þessa aðferð reyna. Við því var að búast að til þess kæmi fyrr en síðar. Hvort það verður íslenzku viðskiptalífi til framdráttar á eftir að koma í Ijós. Hlutabréfamarkaðurinn er harður húsbóndi. STARFSLAUN NOKKUR UMRÆÐA verður alltaf um árlega úthlutun starfslauna listamanna. Þar er margt að athuga. Sumir telja ekki æskilegt að ríkið úthluti slíkum launum en aðrir sjá ekki hvernig listalíf á að þrífast í landinu án slíks stuðnings frá ríkinu. Sagt er að þeim sem sitja í úthlutunarnefndum sjóðanna séu falin of mikil völd. Þannig er því haldið fram að smám saman hafi sjóðirnir búið til þann hóp listamanna sem geta starfað sem listamenn og eru áberandi eða áhrifamiklir á sínu sviði. Ennfremur eru menn sjaldnast á eitt sáttir um það hverjir eiga að fá laun í hvert skipti. Hafa menn ekki síst rætt nokkuð um það hver sé hlutur ungra listamanna í út- hlutun úr sjóðunum. í raun þyrfti að fara fram ítarleg umræða um þessi deiluat- riði, um hlutverk og markmið sjóðanna. Ef úthlutunin að þessu sinni er skoðuð má til dæmis velta því fyrir sér hvort sú stefna sem í henni birtist gagnvart ungum listamönnum er rétt. Úr úthlutuninni má lesa að sjóðirnir séu ekki tilbúnir til að taka áhættu með því að veðja á unga og efnilega listamenn með starfslaunum til lengri tíma. I úthlutun úr Launasjóði rithöfunda eru til dæmis nokkrum svokölluðum ungskáldum veitt laun í sex mánuði en allir þeir sem hlutu laun til eins árs eða þriggja eru viðurkenndir höfundar með nokkrar bækur að baki. Hið sama á við um úthlutun úr öðrum sjóðum. For- sendan sem úthlutunarnefndirnar vinna út frá virðist því vera sú að listamenn þurfí að vera búnir að sanna sig, eins og það heitir, vera almennt viðurkenndir til þess að fá laun til lengri tíma. Því er hins vegar sjaldnast að heilsa hjá ungum listamönnum sem hafa þó ef til vill gert góða hluti en eiga litla möguleika á að þróa list sína áfram nema til komi ytri stuðningur til langs tíma. Með því að auka áherslu á stuðning við ungt og efnilegt listafólk væri vissulega verið að taka ákveðna áhættu en hún gæti líka skilað sér í meiri fjölbreytni og hugsanlega í frjórri nýsköpun. Róbert Guðfínnsson kjörinn stjórnarformaður SH í stað Jóns Ingvarssonar 0,7% atkvæða skildu menn að í formannskjöri Morgunblaðið/Golli JON Ingvarsson, fráfarandi stjórnarforniaður, setur atkvæði Granda hf. í formannskjörinu í kjörkassa en hann situr í stjórn Granda hf. Við hlið hans situr Friðrik Pálsson, forsljóri Sölumiðstöðvarinnar. KOSNING stjómarfor- manns var afar tvísýn og spennandi á aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna hf. í gær. Róbert Guðfinns- son var kosinn í stað Jóns Ingvars- sonar sem verið hefur stjórnarfor- maður félagsins í fimmtán ár en munurinn á milli þeima var afar lítill. Tíu menn gáfu kost á sér í stjóm Sölumiðstöðvarinnar, einum fleiri en kjósa átti. Tveir af fyrri stjórnar- mönnum gáfu ekki kost á sér, Magn- ús Bjamason, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf., og Finnbogi Jónsson, fyiTverandi fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað. í framboði vora aðrir stjórnarmenn og þrír menn sem ekki hafa átt sæti í stjóm félagsins en það era Guðmundur Krístjánsson, fram- kvæmdastjóri Kristjáns Guðmunds- sonar hf. á Rifi, Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma - Sæbergs hf. á Siglufirði og Björgólfur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað. Óskað hafði verið eftir margfeldis- kosningu sem felur í sér að hver hluthafí ræður yfir atkvæðum sem samsvai-a nífóldu nafnverði hluta- bréfa hans og getur greitt einum manni öll atkvæðin eða skipt þeim á milli fleiri manna. Töluverðan tíma tók að telja saman atkvæðin. Björgólfur fékk flest atkvæði Niðurstaðan varð sú að Björgólfur Jóhannsson fékk flest atkvæði, Ró- bert Guðfinnsson, stjómarformaður Þoi-móðs ramma - Sæbergs hf., næstflest og Jón Ingvarsson, stjóm- arformaður SH, varð þriðji í röðinni. Ólafur B. Ólafsson, stjómai-maður í Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi, sem átt hefur sæti í stjóm Sölumið- stöðvarinnar náði ekki kjörí en fyrir- tækið hafði selt Róbert Guðfinnssyni og fleiram meginhluta hlutafjáreign- ar sinnar fyn- um daginn. Atkvæði féllu þannig: Björgólfur Jóhannsson 1.706 milljónir atkvæða, Róbert Guðfinnsson 1.579 milljónir, Jón Ingvarsson 1.519 milljónir, Guð- mundur Kristjánsson 1.466 milljónir, Kristján G. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Gunnvarar hf. á Isa- firði, 1.464 milljónir, Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Út- gerðarfélags Akureyringa, 1.382 milljónir, Rakel Olsen, aðaleigandi Sigurðar Ágústssonai- hf. í Stykkis- hólmi, 1.370 milljónir, Ólafur Mar- teinsson 1.369 milljónir og Brynjólfur Bjamason, framkvæmdastjóri Granda hf. í Reykjavík, 1.105 milljón- ir atkvæða. Ólafur B. Ólafsson fékk 243 milljónir atkvæða og náði ekki kjöri. Aðrir fengu fáein atkvæði. Róbert sljómarforniaður Að svo búnu var gengið til kjörs stjórnarformanns úr hópi stjórnar- manna og fór fram um það venjuleg kosning. Róbert Guðfinnsson var kosinn stjómarformaður með 734.116.607 atkvæðum eða 50,035% greiddra atkvæða. Jón Ingvarsson fráfarandi stjórnarformaður fékk 733.079.089 atkvæði eða 49,965% greiddra atkvæða. Munaði því liðlega milljón atkvæðum á fylgi þeirra, eða 0,7%. Munurinn var það lítill að ef eig- andi hlutafjár að nafnverði liðlega 500 þúsund kr. hefði greitt Jóni at- kvæði sitt í stað Róberts, þá hefði Jón haldið velli. Jón situr eigi að síð- ur í stjóm félagsins. Skilur eftir sig sárindi Strax og niðurstöðurnar lágu fyrir kvaddi Róbert Guðfinnsson sér hljóðs og þakkaði hluthöfum Sölu- miðstöðvarinnar fyrir stuðninginn. „Jafnframt vil ég þakka Jóni Ingv- arssyni þau ágætu störf sem hann hefur unnið fyrir félagið á undan- fömum áram sem formaður. Það er alveg ljóst að kosning eins og þessi skilur eftir sig einhver sárindi en ég vona að okkur takist að hafa þroska til að komast yfir þau á skömmum tíma og ná að keyra félagið inn í framtíðina og láta það vaxa og dafna og verða arðbært og gott félag fyrir ykkur, hluthafar góðir.“ Leitt félagið einstaklega vel Friðrik Pálsson, forstjóri SH, tók þá til máls: „Hér hafa orðið talsverð tíðindi. Ég vil byrja á því að óska Ró- bert Guðfinnssyni velfamaðar í staifi og það er mikið starf sem hann tekur að sér. Ástæðan fyrir því að ég stend hér upp er nú samt fyrst og fremst sú að við Jón Ingvarsson eram búnir að vinna saman sem stjómarformað- ur og forstjóri í mjög langan tíma og ég tel ekki hallað á neinn þó ég segi að með meiri drengskaparmanni hef ég aldrei unnið. Hann hefur að mínu mati leitt þetta félag einstaklega vel inn á þær brautir sem það er á í dag og ég held að nýkjörin stjóm taki þar við mjög góðu búi frá honum. Ég skal vera alveg hreinskilinn með það að mér hefði fundist það miklu skemmtilegra ef stjórnarformanns- kjör hefði getað orðið með öðram hætti en við þvi er að sjálfsögðu ekk- ert að segja. Þetta era hluthafar fé- lagsins og svona era leikreglumar í lýðræðisþjóðfélagi og það gildir að sjálfsögðu um hlutafélög eins og önn- ur félög. En mig langar sérstaklega til að þakka Jóni fyrir afskaplega ánægjulegt samstarf á undanfömum áram og óska honum fyrir mína hönd, og ég veit að ég tala fyrir hönd allra starfsmannanna líka, sem hann hefur unnið mjög náið með lengi, bæði heima og erlendis, velfamaðar í þeim störfum sem hann tekur sér fyrir hendur á næstu áram.“ AÐDRAGANDINN að þeim deilum innan stjóm- ar SH og meðal hluthafa, sem nú hefur leitt til kosn- ingar nýs stjórnarformanns, nær aftur fyrir þann tíma er SH var breytt í hlutafélag fyrir rúmum tveimur árum. Deilt var um það hvenær sú breyting yrði gerð og þótti ákveðnum hópi sú breyting taka of langan tíma. Jafnframt hafa þeir haldið því fram að nægilegar breytingar hafi ekki fylgt í kjölfarið. Jón Ingvarsson, fráfarandi formað- ur, hefur á hinn bóginn sagt að ekki hafi verið fyrir hendi nauðsynleg samstaða fyrir breytingu SH í hlutafélag fyi'r en raun bar vitni. Tilraun til slíkrar breytingar hefði verið felld ef hún hefði verið gerð fyrr. Frá þessum tíma virðast hafa byggzt upp tvær andstæðar fylking- ar, sem tekizt hafa á um ýmsa þætti í rekstri og stefnumörkun SH, fylk- ing Jóns Ingvarssonar og hans manna og fylking með þá Róbert Guðfinnsson, stjórnarformann Þor- móðs ramma - Sæbergs, og Brynjólf Bjarnason, forstjóra Granda, í fararbroddi. Hefur ági'einingurinn meðal annars komið SVIPTINGAR Á SÍÐUSTU STUNDU Átök innan SH náðu hámarki í sögulegu stjórnarkjöri á aðalfundi fé- lagsins í gær þar sem Róbert Guðfínnsson frá Siglufirði felldi sitj- andi formann, Jón Ingvarsson, með 0,7% mun. Hjörtur Gíslason og Helgi Bjarnason kynntu sér aðdraganda og umgjörð sviptinganna. fram í því að krafist hefur verið upp- sagnar Friðriks Pálssonar forstjóra en Jón ekki léð máls á því. Fylking Jóns Ingvarssonar hefur haft yfir- höndina allt þar til nú. Deilurnar náðu svo hámarki nú er leið að aðalfundinum og Róbert Guð- finnsson bauð sig fram til formanns gegn Jóni Ingvarssyni. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun hann áður hafa gengið á fund Jóns og krafizt ákveðinna breytinga, en ekki fengið sínu framgengt. Báðir aðilar leituðu síðan stuðnings hlut- hafa félagsins og á mánudag virtist nokkuð öraggt að Jón Ingvarsson nyti meiri stuðnings. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru margir stórir hluthafar beggja blands. Töldu breytingar nauðsyn- legar en vildu ekki ganga of hratt eða of harkalega fram til þess. Miklu máli skipti að framtíðarnefnd félagsins var að vinna að stefnu- mótun fyrir félagið og Kaupþing að vinna að úttekt á rekstri þess. Vildu þeir bíða með miklar bi-eytingar þar til þessar tillögur lægju fyrir og ljóst væri hver stefnan yrði þá. Dregur til tíðinda Seint á mánudagskvöld dregur svo til tíðinda, er stjórn Haraldar MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 29 Fyrir liggur að móta nýja stefnu, segir nýkjörinn formaður stjórnar SH Engar breyt- ingar ákveðnar Morgunblaðið/Golli RÓBERT Guðfinnsson, formaður stjórnar SH, stefnir að því að gera félagið að eftirsóknarverðum fjárfestingarkosti. FYRSTA verk nýs stjórnar- formanns verður líklega að heimsækja höfuðstöðvamar á morgun og heilsa upp á starfsfólkið. „Við höfum líka verið að vinna að stefnumörkun til framtíðar ásamt ráðgjafarfyrirtæki. Það er ljóst að sú stefnumörkun verður lögð fyrir á næstunni og í framhaldi af því mun- um við vinna úr því sem þar kemur fram og móta nýja stefnu félagsins. Markmiðið er að auka veg þess og vanda, færa það til nútímalegra horfs og gera það að ákjósanlegum fjárfest- ingarkosti," segir Róbert Guðfinnsson í samtali við Morgunblaðið. Er einhverra breytinga að vænta nú þegar? „Það eru engar breytingar ákveðn- ar nú þegar. Eg held að ég kjósi að- eins að sitja á mér núna og bíða þess að geta sezt niður með stjórninni og farið yfir þessi mál. Það eru svo marg- ir þættir í rekstri félags eins og SH, sem þarf langt mál til að skýra. Ég held að það sé ekki rétt að vera að fax'a með það í fjölmiðla á þessu stigi. Ég á von á því að þetta félag muni breytast og þi'oskast í náinni framtíð, enda bauð ég mig beinlínis fram til formanns stjórnar til að ná fram ákveðnum beytingum. Það er alveg ljóst að félagið hefur haldið aðeins í þessi gömlu vinnubrögð se_m tíðkuð- ust meðan það var samlag. Ég held að ekki sé hægt að kenna neinum einum um það, málin hafa einfaldlega þróazt á þessa leið. Nú er ætlunin að í-eyna að stilla þessu upp upp á nýtt og sjá hvert við komumst með félagið. Ekki við hæfí að nefna einstök atriði Ég held að það sé ekki tímabæi-t að ræða hugsanlegar breytingar á um- boðssölukerfi félagsins. Eftir að út- tektin á fyrirtækinu liggur fyrir verð- ur farið yfir þá þætti og metið hvar við erum staddir og hvernig við viljum láta félagið þróast.“ Það hefur verið gagnrýnt að stjóm- arformaður skuli sitja í stjómum dótt- urfélaganna, en ekki forstjórinn. Verður breyting á því nú? „Ég held að það sé ekki við hæfi að taka einstök atriði út og segja; við breytum þessu og við breytum hinu. Við ætlum að taka heildarstefnuna til endurskoðunar, við ætlum að taka stjórnkerfið til endurskoðunar og við ætlum að skoða hvernig við getum gert þetta félag betra.“ Hvaðan kom stuðningurinn við þig fyrst og fremst? „í raun kom þessi stuðningur mjög víða að. Ég fann mikinn þrýsting og stuðning frá minni fjárfestum, lífeyr- issjóðum og verðbréfasjóðum, vegna þess hve lítil viðskipti hafa verið með hlutabréf í félaginu og einnig var um nokkra stóra hluthafa að ræða sem vildu fá þessar breytingar. Þá gei'ðu kaupin á 7% hlut H.B. í SH gæfumun- inn eins og sjá má á úrslitunum." Hvenær var ákvörðun tekin um að bjóða í þessi hlutabréf? „Sú ákvörðun var tekin seint í gær- kvöldi og kaupandinn er ég sjálfur og að baki mér standa nokkrir fjárfestar, sem hafa txú á því sem ég er að gera og vilja standa með mér. Kaupverð er ekki gefið upp enda er það trúnaðar- mál milli kaupanda og seljanda." Þarf að auka hlut almennra fjárfesta í félaginu Má búast við að félagið verði frekar hluthafasinnað en ft'amleiðendasinnað eftir þetta? „Sú ákvörðun var tekin, þegai' fé- laginu var breytt í hlutafélag, að fara að þjóna okkar fjárfestum og eigend- um. Það er frumskylda hvers félags. En þetta félag er ekki neitt án þeirra framleiðenda, sem eru að selja í gegn um það og kaupenda að vöranum. Okkur ber því að leggja rækt við þessa þætti og ég held að þetta eigi allt góða samleið, verði rétt á haldið. Það þax-f einnig að auka hlut almennra fjárfesta í fyrirtækinu. Því miður hafa þeir verið með mjög lítinn hlut í félag- inu, en ég bind vonir við það, að með nýrri stefnu og nýrri framtíð, muni SH verða eftirsóknai-verður fjárfest- ingarkostur.“ Er að vænta breytinga á fram- kvæmdastjóm félagsins? „Það er mál sem nýkjörin stjórn mun meta og ákvarða. Slíkt er ekki eingöngu ákvöi'ðun stjórnarformanns. Ég vil heldur ekki ræða um framtíð einstakra starfsmanna félagsins á þessum vettvangi.“ Hvernig lízt þeir á að starfa með þessai'i stjórn sem nú hefur verið kos- in? „Mér lízt vel á það. í þessari stjórn hafa verið og era núna margir sterkir og kröftugir einstaklingar. Ég á ekki von á öðra en við náum mjög vel sam- an.“ Afkoman var slök á síðasta ári, verður ekki eitt af fyi'stu verkefnun- um að snúa þeirri þiúun við? „Vissulega þaif að gera það. Menn verða hins vegar að greina hvar af- koman var slæm og hvers vegna og hvað sé hægt að bæta. Það sem gei'ð- ist í Rússlandi og Bretlandi era uppá- komur sem alltaf er hægt að eiga von á í sjávaiútvegi. Þetta er sveiflukennd atvinnugrein. Það er alveg Ijóst að þetta félag á í góðu árfei'ði að geta skilað arði eins og bezt gerist á hluta- bréfamai'kaðnum og það hlýtur að vera það, sem við stefnum að,“ segir Róbert Guðfinnsson. Jón Ingvarsson, fráfarandi stjórnarformaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna Vonbrigði að ná ekki settu marki „ÞAÐ eru alltaf vonbrigði þegar maður nær ekki settu marki. En maður verður að sætta sig við það sem að höndum ber,“ sagði Jón Ingvarsson þegar leitað var álits hans á niðurstöðum í kjöri stjórn- arformanns á aðalfundi SH í gær. Aðspurður kvaðst hann hafa átt von á því að ná endurkjöri. „Það kom mér á óvart hvað þessir aðil- ar voru tilbúnir að ganga langt til að seilast til áhrifa í félaginu,“ sagði Jón þegar hann var spurður hvaða augum hann liti kaup Ró- berts Guðfínnssonar á 7% eignar- hlut HB í SH. Jón vildi ekkert um það segja hvaða áhrif breytingar á stjórnar- formennsku hefðu á stjórnun Sölumiðstöðvarinnar og stefnu, sajgði að aðrir yrðu að svara því. „Eg óska nýrri forystusveit vel- farnaðar í störfum sínum,“ sagði hann. Böðvarssonar hf. berst tilboð í hlutabréf fyi'irtækisins í SH frá Ró- beif Guðfinnssyni og öðrum fjár- festum. Róbert vill ekki upplýsa hvei'jir standi að tilboðinu með hon- um, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins unnu að málinu þeir Kristján G. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Gunnvai'ar hf. á Isa- firði, Guðmundur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Kristjáns Guð- mundssonar hf. á Rifi, Bi-ynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjói'i Granda og Björgólfur Jóhannsson, fi'amkvæmdastjói'i Sfldai'vinnslunn- ar í Neskaupstað og á síðari stigum Ólafur Marteinsson, félagi Róberts í Þoi-móði i'amma - Sæbergi. Allir náðu þeir kjöi'i í stjórn SH á aðal- fundinum í gær. HB átti 8% í SH og hljóðaði tilboð Róberts upp á kaup á 7% hlut og vora tímamörk sett fyrir hádegi á þriðjudeginum, fundardeg- inum sjálfum. HB hefur viljað selja eignir frá því í haust er fyrirtækið gerði samninga um kaup tveggja nýri'a skipa og hefur hlutur félagsins í SH meðal annars verið boðinn til sölu, bæði Kaupþingi og Burðarási, en þá reyndist ekki áhugi þessai-a aðila á kaupum. Meii'ihluti stjói'nar HB ákvað kl. 11 í gærmorgun að taka tilboði Róberts. Eyjólfur Sveinsson, stjórnai'for- maður Haraldar Böðvarssonar, seg- ir að stjómendur fyrirtækisins hafi verið að hugsa um hagsmuni þess við söluna enda hefðu þeir ekki leyfi til annars. „En ég get upplýst að áð- ur en hlutabréfin vora seld var stuðningsmönnum Jóns Ingvars- sonar boðið að skipta hlutabi'éfun- um til helminga því við höfðum ekki áhuga á að blandast inn í átök á að- alfundi SH. Því tilboði var ekki tek- ið,“ segir Eyjólfur. Stuðningsmenn Jóns höfnuðu þessari málaleitan enda munu þeir hafa talið að stjórn- arformaður HB hefði ekki meiri- hluta í félaginu fyrir sölunni. Þeir óskuðu eftir viðræðum en bréfin vora þá seld. Samkvæmt heimildum Moi'gunblaðsins var hér meðal ann- ars um að ræða Burðarás, sem er eignarhaldsfélag Eimskips, Sigurð Ágústsson hf. og Jón Ingvarsson. Meirihluti stjórnar HB í þessu máli er skipaður Eyjólfi Sveinssyni stjói'narformanni, Mattheu Ki'. St- ui'Iaugsdóttur og Þorgeii'i Haralds- syni. Málið mun hafa verið unnið í nánu samráði við framkvæmda- stjóra félagsins og aðstoðarfram- kvæmdastjóra, Hax-ald og Sturlaug Stui'laugssyni. Tveir af stærstu hluthöfum félagsins, Ólafur B. og Gunnar Þór Ólafssynir, sitja í stjórn og vora þeir á móti sölunni. Einnig er talið að fleiri af stærstu hluthöf- um félagsins hafi verið andvígir söl- unni, meðal annars Burðarás hf. I stjóminni sitja einnig fulltiúar OLÍS og Skeljungs. Þegar ákveðið var að selja hlutbráf HB í SH á sín- um tíma, lýstu þeir yfir stuðningi við söluna og var hún falin formanni stjómar og framkvæmdastjóra, en þeir höfðu að öðra leyti engin af- skipti af því hvei'jum bréfin væru seld. 470 milljóna kr. sala Nafnverð 7% eignarhluta HB í SH er um 105 milljónir kr. Bréfin vora seld á genginu 4,5 sem þýðir að söluverð þeirra hefur verið lið- lega 470 milljónir kr. Er þetta litlu hæiTa gengi en verið hefur á bréf- um SH að undanfórnu en á bak við þau era afar lítil viðskipti. Spui'ning er hvort það dregur dilk á eftir sér innan Haraldar Böðvarssonar að stórir hluthafar voru andvígir sölunni. Það sem vakti fyi'ir stjómendum HB, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins, var að losa fé vegna skipakaupanna og fjái’festinga á Aki’anesi og í Sandgerði, en ekki að hafa áhrif á kjör formanns stjórnar SH. Tvennt reið baggamuninn Ljóst er að þessi hlutabréfakaup breyttu myndinni nánast á svip- stundu. Hluthafar endurskoðuðu af- stöðu sína, enda Róbei't þá kominn með um 23% atkvæða eða tæpan fjórðung í félaginu og möguleikar hans miklu meirí en áður. Jafnframt var talið víst að atkvæði HB hefðu fallið Jón Ingvarssyni í vil. Stuðn- ingsmenn Jóns töldu sig þrátt fyrir það hafa loforð meirihluta hluthafa fyrir kjöri Jóns. Svo reyndist ekki vera, þegar talið var upp úr kjör- kössunum. Róbei't var kosinn stjórnarformaður með minnsta mögulegum meii'ihluta. Ljóst er að hluthafar, sem Jóns menn höfðu talið á sínu bandi, höfðu greitt Ró- bert atkvæði sín og er Síldarvinnsl- an hf. í Neskaupstað nefnd þar til sögunnar. Segja má að afstaða Sfld- arvinnslunnar hafi því, eins og kaupin á hlut HB í SH, riðið bagga- muninn í þessu tvísýna formanns- kjöri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.