Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 38

Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 38
.88 MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Móðir okkar, GUÐFINNA ÞORLEIFSDÓTTIR, Grenimel 5, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 8. mars. Jónína Halldórsdóttir, Garðar Halldórsson, Dagbjört Halldórsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ANDRÉS KRISTJÁN GUÐLAUGSSON húsasmiðameístari, Langholtsvegi 48, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi mánu- dagsins 1. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 11. mars kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Vinafélag Sjúkra- húss Reykjavíkur eða hjúkrunarþjónustuna Karitas. Pálína Júlíusdóttir, Júlíus Hafsteinsson, Ingibjörg Richter, Rannveig Andrésdóttir, Sveinn Finnbogason, Björg Andrésdóttir, Einar H. Einarsson, Þorleifur Andrésson, Ragnheiður Valgarðsdóttir og barnabörn. t Útför STEINUNNAR FINNBOGADÓTTUR frá Þrúðvangi, Seltjarnarnesi, síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu Skógabæ, verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, miðviku- daginn 10. mars, kl. 13.30. Baldur Jóhannesson, Elínborg Kristjánsdóttir, Gerður Jóhannesdóttir Thorberg, Ólafur G. Jónsson, Bragi Jóhannesson, Elísabet Erla Gísladóttir og fjölskyldur. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður, bróður og afa, BENEDIKTS JÓNSSONAR frá Höfnum, Fífumóa 8, Njarðvík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og læknum Grensásdeildar. Guðrún Blöndal, Jón Benediktsson, Elínborg B. Benediktsdóttir, Jóhann Guðni Reynisson, Benedikta S. Benediktsdóttir, Björgvin Magnússon, Steinunn Ó. Benediktsdóttir, Jón G. Benediktsson, Helga M. Sigurbjörnsdóttir, Birna Jónsdóttir, Lára Bjarnadóttir og barnabörn. t Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, fósturföður, tengdaföður, bróður, mágs, afa og langafa, JÓHANNESS HEIÐARS LÁRUSSONAR, Mávahlíð 16, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Kristrún Guðjónsdóttir, Sonja Andrésdóttir, Lárus Kristjánsson, Matthildur Óskarsdóttir, Jóhanna H. Óskarsdóttir, Kári Böðvarsson, Björk Lind Óskarsdóttir, Pálmi Aðalbergsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Sveinbjörg Kristinsdóttir var fædd í Hvol- hreppi í Rangár- vallasýslu 26. janúar 1922. Hún lést á heimili sínu hinn 17. febrúar síðastliðinn og fór útfor hennar fram frá Keflavíkur- kirkju 26. febrúar. Mín kæra mágkona og góð vinkona, Sveina, eins og ég kall- aði þig. Snögglega ertu kölluð yfir móðuna miklu. Þótt þú hafir átt við heilsu- leysi að stríða þá bjóst ég ekki við að þú hyrfir okkur á braut að okkur óundirbúnum. Eg kom í morgunte til þín eins og alla aðra morgna og ekki datt mér í hug að þetta yrði sá síðasti þegar ég yf- irgaf þig sem snöggvast til þess að fara yfir í mína íbúð aðeins til þess að búa um rúmið mitt og skreppa út í búð. Elsku Sveina, ég fór frá þér í fáeinar mínút- ur, því eitthvað gerði það að verkum að mér fannst ég endilega verða að fara strax aft- ur inn til þín. A þessu augnabliki skilur þú við þennan heim, ég gerði mér ekki grein fyrir því strax hvað hafði gerst. Elsku Sveina mín, eftir situr tómleikinn, við sem bjuggum hlið við hlið og gátum leitað hvor til annarrar hvenær sem var, á nóttu sem degi. Elsku Sveina, ég get ekki trúað því að þú sért farin. En svona er lífið, enginn veit hvað morgun- dagurinn ber í skauti sér. Sveina mín þú varst mér mikil hjálparhella þegar ég missti manninn minn og mikil hjálp í því að vita að ég gæti leitað til þín öllum stundum. Ég er þér þakklát fyrir allar samveru- stundirnar. Ég vil votta börnum hennar og fjölskyldum þeirra, mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þín. Eg krýp og faðma fótskör þína, frelsari minn á bænarstund, Eg legg, sem bamið bresti mína, bróðir, í þína líknar mund. Eg hafna auðs og hefðarvöldum, hyl mig í þínum kærleiks öldum. Þín vinkona Bára Guðmundsdóttir. SVEINBJÖRG KRIS TINSDÓTTIR ÞORGEIR IBSEN + Þorgeir Guðmundur Ibsen fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 26. apríl 1917. Hann lést á Landspítalanum 8. febrúar siðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafnarljarðar- kirkju 15. febrúar. Kveðja úr Hólminum Hann var sérstakur. Ég átti mikil samskipti við hann meðan hann var hér skólastjóri í Stykkis- hólmi. Nýir vindar komu með hon- um í bæinn og skólastarfið var hon- um svo létt að manni fannst. Hann náði strax svo góðum tökum á skólaæskunni, og var heppinn með starfslið. Það fór ekki milli mála að þar var réttur maður á réttum stað. Við áttum gott samstarf sam- an og sérstaklega í bindindismál- um. Þar hlúði hann vel að og lagði lið að sem um munaði. Hann vissi hvað reglusemi var skólanum mik- ils virði. Hér var starfandi barna- stúka og fylgdi hún skólanum og mat Þorgeir það mikils. Ekki hafði Þorgeir verið hér lengi þegar hann gekkst fyrir stofnun góðtemplara- stúku fyrir unga og eldri félaga og stýrði henni ásamt góðu liði meðan hann var hér skólastjóri. Þessi stúka átti eftir að hafa veruleg áhrif hér, bæði á eldri sem yngri borgara bæjarins og var mikil eft- irsjá að Þorgeiri af félögum hans, þegar hann flutti úr bænum. Fylgdist hann vel með stúkunni og félögum og fagnaði velgengni hennar, og þegar við hittumst barst talið oft að málum stúkunnar. Okkur var því mikil ánægja að starfa saman. Skólastjórarnir sem á eftir komu studdu síðan vel við starfsemina og var það eitt af ánægjuefnum okkar Þorgeirs. Þor- geir var maður æskunnar og hlúði alla tíð að velgengni hennar, jafn- vel eftir að hann hætti störfum sem skólastjóri, það sýndi hann í raun og veru. Hvar sem hann fór kom það alltaf betur og betur í ljós hversu mikil ítök æskan átti í hon- um og er skemmst að minnast hinnar ágætu greinar sem birtist í Morgunblaðinu 20. f.m. Hún er svo sterk og áhrifamikil og hittir í mark. Þar varar hann þjóðfélagið við afskiptaleysi af högum æskunn- ar. Ég vona að þessi ágæta grein hafi ekki farið framhjá neinum og fjöldinn hafi lesið hana. Mig langar til að taka upp úr greininni nokkr- ar línur þar sem hann minnist sér- staklega á mestu auðæfi landsins, sem er unga fólkið og framtíð þess. Þar segir meðal annars: ,A þessari auðlind, æskunni, byggist framtíð þjóðarinnar, hún er örlagavaldur- inn og veldur þeim sköpum hvort búseta í landinu og byggð haldist til framtíðar eða ekki. En hvemig umgöngumst við þessa auðlind? Sannast sagna er það með ein- dæmum hversu afskiptaleysi og kæruleysi birtist í breytni okkar og hegðun gagnvart hinni uppvaxandi kynslóð, æskunni, sem öll gifta kemur til með byggjast á, hvort okkur sem þjóð takist að halda velli hér á norðurhjaranum eða ekki“ og ennfremur segir Þorgeir: „Við er- um svo upptekin af veraldargæð- um að við látum allt annað sem vind um eyrun þjóta, tökum ekki eftir hversu margt ungmenna, allt niður í barnsaldur er forfallið í drykkjuskap og fíkniefnaneyslu, að þetta tvennt fer svo ört vaxandi í okkar litla samfélagi, sem er um 280 þúsund, að okkur órar ekki fyr- ir hvílík hætta er á ferðum fyrir ör- lög okkar sem þjóðar". Ég þarf ekki að vitna í fleira, grein Þor- geirs er sterk viðvöran til stjóm- valda og allra ábyrgra manna og lýsir ritara hennar betur en nokk- uð annað. Hann vissi hvað hættan er mikil í dag og ef við vöknum ekki, þá er voði á ferðum. Þorgeir fórnaði sínu lífi fyrir æskuna og vildi allt gera til að auka hennar hag, barðist fyrir betra mannlífi. Þökk sé honum fyr- ir þessa góðu áminningu. Um leið og ég minnist þessa góða drengs bið ég ástvinum hans blessunar Drottins. Arni Helgason. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANNES GUÐJÓNSSON, skipstjóri, frá Ökrum, Skólabraut 28, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 8. mars. Fjóla Guðbjarnadóttir, Bjarni Jóhannesson, Ingiríður Jóhannesdóttir, Björn Gunnarsson, Guðjón Jóhannesson, Anna Sigurjónsdóttir, Guðný Jóhannesdóttir, Hjörleifur Jónsson, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, Ari Jóhannesson barnabörn og barnabarnabarn. Þökkum innilega öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR HELGASONAR húsgagnasmiðs, Leirutanga 41 a, Mosfellsbæ. Elsa Guðmundsdóttir, Arnar Guðmundsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Erla Hallbjörnsdóttir, Anna Kristín Einarsdóttir, Guðmundur Helgi Guðmundsson, Kristján Pétur Einarsson, Þóra Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri 11|pi| blómaverkstæði I I lll NNA~ I Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.