Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Gunnlaugur ÞINGPULLTRÚAR Samflots komu alls staðar að af landinu. Oánægja meðal Samflotsfé- laga með launakjör Stykkishólmur - Samflot bæjar- starfsmanna er félagsskapur starfs- mannafélaga sveitarfélaga og fer með samningsmál félagsmanna sinna. Samtökin semja við launa- nefnd sveitarfélaga og við samninga- nefnd ríkisins um kjör. Innan Sam- flots starfar 21 sjálfstætt starfs- mannafélag sem eni innan BSRB. Samflot hélt aðalfund sinn í Stykk- ishólmi 26.-27. febrúar. Auk venju- Iegra aðalfundai'starfa var mikið rætt um kjaramál. Að sögn Elínai' Bjargar Jónsdóttur, formanns Sam- flots, er óánægja hjá bæjarstarfs- mönnum varðandi kjai’amál sín og að þeirra mati hafa þeir verið skildir eftir, þai' sem sveitarfélögin hafa verið að gera mun betur við aðra starfsmenn sína, sérstaklega kenn- ara. I ályktun aðalfundar Samflots í Stykkishólmi kemur fram að síðustu kjarasamningar voru Samfloti bæj- arstarfsmannafélaga dýrkeyptir. Hin harða launapólitík sveitarfélaga bitnaði hvað mest á félagsmönnum Samflotsfélaga. Launanefnd sveitar- félaga gerði gi-unnkjarasamninga fyrir hluta starfsmanna sinna með mismun upp á allt að 16%. Síðan hef- ur munurinn haldið áfram að aukast heima í héraði. Ljóst er að átt hefur sér ákveðinn trúnaðarbrestur á milli aðila og því verða verulegar breyt- ingar að verða á samskiptum svo launanefnd geti talist trúverðug sem ábyrgur samningsaðili. Krafa fund- arins er að bætt verði kjör félags- manna nú þegar til samræmis við aðra starfsmenn sveitarfélaga, segir í ályktun aðalfundarins. Gengið á milli verslana og fornra versl- anastæða HAFNAGÖNGUHÓPURINN stendur fyrh' gönguferð úr Kringl- unni út í Örfirisey í kvöld, miðviku- dag. Mæting er við Hafnarhúsið að vestanverðu kl. 20 eða við Verslun- arskólann, anddyri, kl. 20.30. Prá Hafnarhúsinu verður farið með SVR upp í Verslunarskóla. Eftir stutta heimsókn í skólann verður farið út í Kringlu og gengið eftir hitaveitustokkunum vestur að „Háaleiti“ í skarðinu á milli Öskju- hlíðanna, en þar litlu sunnar voru fyiTum mót þjóðleiða að vestan, norðan, austan og frá Suðurnesjum til og frá Reykjavík. Frá Háaleiti verður fornleið fylgt eins og kostur er norður undir Laugaveg og geng- ið eftir honum að Bankastræti og Austurstræti um Kvosina niður í Grófina að gamla verslunarhúsinu að Vesturgötu 2. Þaðan verður farið í gegnum „Bryggjuhúsið" yfir „Ból- virkið" út á „Duusbryggju“. Að þvi loknu gengið yfir „Hlíðarhúsasand" og „Örfiriseyjargranda“ út í Örfiris- ey og horft til „Gamla hólma“. Þar verður val um að ganga til baka að Hafnarhúsinu og upp í Verslunar- skóla eða fara með SVR. í ferðinni mun Lýður Björnsson kennari í Verslunarskólanum kynna starf- semi skólans og segja frá gömlu verslununum í Grófinni, Örflrisey og úti í Grandahólma. Erindi um fæð- inguna og hug- myndafræði ljósmæðra ÓLÖF Ásta Ólafsdóttir, lektor í ljósmóðurfræði, verður með rabb á vegum Rannsóknastofu í Kvenna- fræðum í Odda, stofu 201, kl. 12-13, fimmtudaginn 11. mars. Erindið kallar hún „Fæðingin, kraftmikið og skapandi ferli: Hugmyndafræði ljósmæðra". í fréttatilkynningu segir: „Arið 1995 fluttist nám ljósmæðra inn í háskóla á Islandi og sama hreyfing gerist víða um heim. Ljósmóður- starfið er eitt hið elsta í heiminum og á rætur sínar að rekja til sam- eiginlegrar reynslu mæðra og feðra af barneignum. Því hefur verið haldið fram að sögu ljósmæðra og hvemig staða þeirra hefur verið í samfélaginu megi líkja við stöðu kvenna almennt. Framan af var fæðingarhjálp í höndum kvenna og söfnuðu þær þekkingu og reynslu um meðgöngu, fæðingarhjálp og umönnun sængurkvenna og barna. Síðar, ekki síst fyrir áhrif læknavís- indanna (medicalization), glötuðu konur (ljósmæður) þessari þekk- ingu og ákveðinni stöðu í samfélag- inu. Litið var á fæðinguna sem sjúkdóm en ekki sem náttúrulegan atburð, kraftmikið og skapandi ferli. I dag er verið er að endur- skoða hugmyndagrunn ljósmóður- fræðinnar og greiria hvaða áhrif læknavísindin hafa haft á heilbrigði kvenna og barneignir. í rabbinu verður fjallað um þessa þessa þætti og þróuninni lýst með dæmum af upplifun mæðra og feðra. Hugtökin samfelld umönnun (continuity of carer) upplýst val (informed choice) styrking (empowerment) og stjórn (control) verða í þessu samhengi rædd.“ Námstefna um lausnir fyrir rekstur upplýs- ing-akerfa PLATINUM technology og TÍR - þekking & lausnir efna til nám- stefnu, fostudaginn 12. mars kl. 13-17 á Hótel Loftleiðum í þingsal 5. Tilgangur námstefnunnar er að kynna ProVision lausnirnar frá Platinum technology fyrir hag- kvæman og öruggan rekstur upp- lýsingakerfa. ProVision er safn samhæfðra verkfæra fyrir kerfis- og gagnagrunnsumsjón og neteftir- lit. Saman mynda verkfærin heild- arlausn sem unnt er að taka í notk- un í áföngum allt eftir því á hvaða sviðum þörfin er brýnust, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlesarar verða Lars Frigast Larsen og Lise Nielsen frá Platin- um technology, Geir Ragnarsson frá Landssímanum og Páll Björns- son frá Prentsmiðjunni Odda hf. Efni námstefnunnar er miðað við stjórnendur og umsjónarmenn sem bera ábyrgð á rekstri upplýsinga- kerfa. Þátttökugjald er 6.000 kr. Platinum technology er 7. stærsta fyrirtæki í heimi á sviði upplýsingatækni og nam velta þess á árinu 1998 um 70 milljörðum króna. Platinum technology er al- þjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðv- ar í Bandaríkjunum og skrifstofur í 41 landi með yfir 6.000 starfsmenn. Samstarfsaðilar þess eru m.a. IBM, Oracle, Microsoft, Hewlett-Packard ogSAP. Nánari upplýsingar um nám- stefnuna veita Ríkarður Ríkarðsson og Sólmundur Jónsson hjá TÍR - þekkingu & lausnum. Myndakvöld Ferðafélagsins MYNDAKVÖLD Ferðafélagsins verður í kvöld, miðvikudag, kl. 20.30 í Ferðafélagssalnum, Mörkinni 6. Fyiár hlé sýnir Bergþóra Sigurð- ardóttir myndir af Austurlandi og víðar og koma þar forvitnilegar ferðaslóðir og ferðir við sögu. M.a. verða sýndar myndir úr Ferðafé- lagsferðum frá 1975 og 1985 um svæði sem mikið hafa komið við sögu undanfarið vegna hugmynda um virkjanir. Sýndai' verða myndir frá Herðubreið, Kverkfjöllum, Ha- frahvammagljúfrum, Snæfelli og fossaröðinni í Jökulsá á Fljótsdal. Síðan verður haldið á önnur svæði, m.a. Klukkugil og Steinafjall í Suð- ursveit. Þá verða páskaferðimar kynntar. Þetta er tækifæri til að kynnast ferðamöguleikum um landið og hægt er að fá nýja ferðaáætlun Ferðafélagsins. Kaffiveitingar verða. Myndakvöldið er opið öllum og kostar 500 kr. Aðalfundur Ferðafélagsins verður miðvikudagskvöldið 17. mars kl. 20.30 í Ferðafélagssalnum, Mörk- inni 6. Skákmót öðl- inga 1999 í TR SKÁKMÓT öðlinga 1999 hefst á morgun, fimmtudag, kl. 19.30. Teflt verður í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi. Umhugsunartími verður 1,5 klst. á 30 leiki og 30 mín. til að ljúka skákinni. Teflt verður einu sinni í viku, á fimmtudags- kvöldum, og hefst taflið kl. 19.30 öll kvöldin. Rétt til þátttöku eiga allir sem náð hafa 40 ára aldri. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sæt- in en auk þess er keppt um vegleg- an farandbikar. MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 43 g f mars er Peter Begg gestur okkar í eldhúsi La Primavera 11.-18. mars). Hann er yfirkokkur á hinum stórvinsæla veitingastað The River Cafe í London, hjá þeim Rose Gray a I og Ruth Rogers. Tvær nýlegar bækur um staðinn eru einar mest seldu kokkabækur sem út hafa komið í Englandi. Þær fást hér ofar í götunni, hjá Eymundsson á sérstöku tilboði. Peter Begg mun aðeins elda af matseðli River Cafe. Verið velkomin. T H E R I V E R C A F E C O O K B O O K | C A F E C O O K B O O K T W O! PRIMAVERA RISTORANTE AUSTURSTRÆTI 9 - 2 HÆÐ - SÍMI 561 8555
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.